Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 25

Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 25
LAUGARDAGUR 15. október 2011 25 arionbanki.is – 444 7000 ÍS LE NS KA SI A. IS A RI 56 79 9 1 0/ 11 Við viljum sjá þig Staðreyndin er sú að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr. Flest eigum við endurskinsmerki ofan í skúffu, en þau koma aðeins að gagni séu þau notuð. Gætum að því að börnin okkar noti endurskinsmerki. Arion banki gefur endurskinsmerki sem nálgast má í öllum útibúum bankans, í samstarfi við Umferðarstofu. Þeir sem búa fjarri útibúum bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merkin send. Nældu þér í endurskinsmerki í næsta útibúi bankans. Fréttablaðið og Vísir hvetja les- endur til að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð, að hámarki um 4.500 tölvu- slög með bilum. Aðeins er tekið við yfirlesnum og villulausum texta. Greinahöfundar eru beðnir að hafa í huga að því styttri sem greinin er, þeim mun líklegra er að hún fái skjóta birtingu. Eingöngu er tekið við raunveru- legum umræðugreinum, en ekki greinum sem eru fyrst og fremst kynning á til dæmis fyrirtæki eða félagasamtökum, ráðstefnu eða átaki. Tekið er á móti efni á net- fanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Frétta- blaðinu eða á Vísi eða í báðum miðlum að hluta eða í heild. Áskil- inn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Sendið okkur línu Í dag býr stór hópur þessa sam-félags við þunga skuldabyrði, aðallega vegna fjármálahruns, verðbólguskots og gífurlegrar hækkunar á verðtryggðum lánum. Ungt fólk er stór hluti þessa hóps, sem í mörgum tilvikum fær ekki úrlausn sinna mála með þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa boðið upp á. Aðgerðir sem flestar ganga út á að leysa greiðsluvanda, ekki skuldavanda. Við, höfundar þessar greinar, tilheyrum þessum hópi. Við erum ungt fólk, sem fór út á fast- eignamarkaðinn á árinu 2004-2008 til að kaupa okkar fyrstu eign. Við erum lánsveðshópurinn sem fell- ur ekki undir 110% leiðina, sem á sama tíma horfir á skuldabaggann stækka vegna skerðingar á kaup- mætti, skattahækkana, hækkana á þjónustugjöldum, allt á meðan laun hafa lækkað eða staðið í stað. Hver er vandi ungs fólks? Meðan húsnæðisverð blés út á árun- um 2003-2008 buðust fáir valkost- ir við séreignakerfið. Eina leiðin til að vera með á húsnæðismarkaði var að taka lán og kaupa fasteign. Ýmsar aðstæður gerðu það að verk- um að húsnæðisverð hækkaði hratt og taka þurfti áður óþekkt hlutfall kaupverðsins að láni. Það sem enn fremur setti hóp fyrstu kaupenda í einkennilega aðstöðu var að mark- aðsverð fasteigna fór langt fram úr matsverðinu sem yfirleitt gaf veð- rými eignanna. Þetta voru algerlega nýir tímar á húsnæðismarkaði. Ódýrasta leið- in til að brúa bilið var að fá lánað veðrými til dæmis hjá foreldrum og taka lán út á það. Bönkum og líf- eyrissjóðum nægði sem sagt ekki að taka veð í því sem verið var að kaupa heldur þurftu að fá frekari tryggingar fyrir sínu. Þess má geta að í dag hefur þetta lánsveðsfyrir- komulag verið bannað. Það er því ljóst að fasteignakaupendur á fyrstu eign á árunum 2004-2008 eru raun- veruleg fórnarlömb fasteignaból- unnar. Hvað er ósanngjarnt við lausnina í dag? Ýmislegt hefur verið gert til að bæta stöðu skuldara. En snarlækk- að eignaverð og lán sem bólgnað hafa út hafa skilið marga Íslend- inga eftir í ómögulegri stöðu. Það sem verra er er að margt ungt fólk er án úrræða til að leysa úr sínum málum á sanngjarnan hátt. 110% leiðin undanskilur nefnilega algeng- ustu fjármögnunarleið ungs, eigna- lauss fólks sem er lánsveðið. Því er unga fólkið enn í ómögulegri stöðu og hún fer versnandi. Aðgerðir stjórnvalda hafa eingöngu miðast við að leysa fólk í djúpum skulda- vanda úr sinni krísu. Fyrstu kaup- endur íbúða, fólk sem er að taka sín fyrstu skref á fasteignamark- aði hefur ekki hlotið neina sérstaka athygli. Það sem gerir 110% leið- ina enn ósanngjarnari er að hún er útfærð með ólíkum hætti milli fjár- málastofnana. Þá var hún illa kynnt almenningi og fór seint af stað. Allt þetta hefur eftirlitsnefnd um skuldavandamál gagnrýnt í skýrslu sinni skýrt og skilmerkilega. En allt kemur fyrir ekki, stjórnvöld og þingflokkar stjórnarflokkanna þegja þunnu hljóði yfir vandanum. Það er þó unga fólkið sem á að halda uppi hagvexti næstu ára og halda landinu í byggð. Ungu, grandvöru fólki sem jafnvel lagði fram reiðufé í íbúðir sínar hefur beinlínis verið refsað. Á meðan var bankainnistæðum eldra fólks bjarg- að krónu fyrir krónu, jafnvel fé sem fékkst fyrir endurfjármögnuð lán sem síðar hafa verið felld niður. Mættum við vinsamlegast hafna slíku kynslóðalotteríi. Hvað viljum við gera? Sanngirni er þörf, ekki bara milli einstaklinga heldur milli kynslóða. Sagan af 110% leið- inni eins og við þekkjum hana er saga óréttlætis og ójöfnuðar, sem hefur valdið því að við getum ekki annað en látið í okkur heyra. Við viljum málefnalega umræðu án upphrópana um það hvernig ungt fólk sér þessi mál og hvern- ig stjórnvöld sjá framtíðina fyrir sér. Við efnum því til fundar um þetta málefni þar sem allt ungt fólk er boðið til umræðna um skuldavandann og framtíðina – óháð pólitískum flokkadráttum þriðjudaginn 18. október kl. 20.00 í Sjóminjasafninu. Lánleysi kynslóðanna Fjármál Eva H. Baldursdóttir lögfræðingur Sverrir Bollason verkfræðingur Það er því ljóst að fasteignakaup- endur á fyrstu eign á árunum 2004-2008 eru raunveruleg fórnarlömb fasteignabólunnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.