Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 33
Náttúrulækningafélag Íslands
Laugavegi 7 - 101 Reykjavík - Sími: 552 8191 - www.nlfi.is
Ályktanir 33. landsþings
NLFÍ í október 2011
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Erfðabreyttar lífverur
- ræktun erfðabreyttra plantna á Íslandi
Landsþing Náttúrulækningafélags Íslands fordæmir það
ábyrgðarleysi íslenskra stjórnvalda að heimila útiræktun
á erfðabreyttum lífverum á Íslandi. Fjöldi ritrýndra
vísindalegra rannsókna liggja nú fyrir sem sýna fram á að
erfðabreyttar lífverur og afurðir þeirra valda óafturkræfu
tjóni á umhverfi og heilbrigði dýra og manna. Landsþing
NLFÍ telur að notkun erfðabreyttra lífvera skuli einvörðungu
fara fram í lokuðu rými. Þingið krefst þess að þar sem leyfi
til slíkrar “afmarkaðrar” notkunar hafa verið veitt tryggi
eftirlitsaðilar raunverulega afmörkun þannig að erfðabreytt
efni berist ekki út í umhverfi og mengi grunnvatn og
jarðveg.
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að banna með öllu
útiræktun á erfðabreyttum lífverum og undirbúa að Ísland
verði sem fyrst lýst „land án erfðabreyttra lífvera”.
Erfðabreyttar lífverur - innihaldslýsingar
Landsþing NLFÍ fordæmir aðgerðarleysi íslenskra stjórnvalda
varðandi innihaldslýsingu matvæla og hvetur þingið til þess
að nú þegar verði tekin upp tilskipun EES í íslensk lög um
merkingar á matvælum sem framleidd eru úr erfðabreyttum
lífverum og afurðum þeirra.
Lífræn framleiðsla
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að styðja bændur í
lífrænni framleiðslu og móta stefnu um eflingu lífræns
landbúnaðar á Íslandi. Innlend framleiðsla annar nú ekki
eftirspurn eftir lífrænum afurðum.
Vottað lífrænt nytjaland á Íslandi nemur nú aðeins 1,23%
af áætluðu flatarmáli þess lands sem talið er nýtanlegt til
landbúnaðar.
Vísindalegum rannsóknum fjölgar sem sýna fram
á að lífrænar aðferðir auka langtíma hagkvæmni í
framleiðslu, hafa jákvæð áhrif á lífríki og umhverfi,
auka næringarefnainnihald matvæla og stuðla að bættu
heilsufari.
Mataræði barna í grunnskólum
Landsþing NLFÍ hvetur íslensk stjórnvöld til að tryggja
börnum hollt fæði í öllum grunnskólum landsins.
Rannsóknir sýna tengsl á milli holls og góðs mataræðis og
námsárangurs. Því ættu allir grunnskólar á Íslandi að bjóða
fjölbreytta fæðu öllum börnum að kostnaðarlausu.
Sykur og auglýsingar
Landsþing NLFÍ varar við auglýsingum á miður hollum
neysluvörum. Margar auglýsingar hvetja til neyslu á
varningi sem inniheldur mikið af viðbættum sykri og öðrum
óæskilegum efnum þótt þær gefi hollustu í skyn. Vitað er
að ofneysla sykurs hefur slæm áhrif á heilsufar. NLFÍ hvetur
til að undantekningalaust verði skylt að tilgreina magn
viðbætts sykurs á umbúðum matvæla sem seld eru hér á
landi.
Áfengi
Landsþing NLFÍ hvetur til aukinnar almennrar fræðslu
um skaðsemi áfengis, einkum er varðar áhrif þess á
barnshafandi konur, börn og unglinga.
Neysla áfengis á meðgöngu getur skaðað fóstur og orsakað
m.a. greindarskerðingu. Neysla áfengis skaðar einnig
börn og unglinga sem eru að taka út þroska og getur
leitt til fíkniefnaneyslu. Landsþing NLFÍ hvetur til að sett
verði varnaðarorð á umbúðir áfengra drykkja og skorar á
stjórnvöld að fylgja betur eftir banni við áfengisauglýsingum
og herða viðurlög ef brotið er gegn þeim.
Tóbak
Náttúrulækningafélag Íslands og stofnendur þess hafa mælt
gegn tóbaksneyslu í yfir 80 ár. Landsþing NLFÍ fagnar þeim
árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum á Íslandi og hvetur
stjórnvöld til að taka skrefið til fulls og banna reykingar
á almannafæri. Árlega deyja um 260 manns af völdum
tóbaksnotkunar á Íslandi.
Hefðbundnar og
óhefðbundnar lækningar
Landsþing NLFÍ hvetur til aukinnar samþættingar
hefðbundinna lækninga og viðbótarmeðferða.
Viðbótarmeðferð vísar til meðferðar sem ekki hefur verið
talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu en sýnt
hefur verið fram á með rannsóknum að nýtist samhliða
hefðbundinni meðferð eða sem sjálfstæð meðferð.
Umhverfi
Landsþing NLFÍ minnir á að hreint náttúrulegt umhverfi er
mikilvægur þáttur í lífi og heilsu fólks. Almenningur þarf að
geta stundað heilbrigt útilíf og hafa aðgang að ósnortnum
víðernum. Fólkið í landinu og stjórnvöld verða að standa
vörð um stórbrotna náttúru Íslands og lífríki þess.