Fréttablaðið - 15.10.2011, Síða 48
Brand,“ segir Hólmfríður, en
hún hefur þó ekki unnið sam-
fellt hjá fyrirtækinu því eftir sex
ára vinnu hjá FutureBrand flutti
hún til Los Angeles, þar sem hún
starfaði fyrir samkeppnisaðila
þess um tíma.
„Þá vorum við maðurinn minn,
sem er bandarískur myndlist-
armaður, að stofna fjölskyldu.
Okkur þótti tilvalið að prófa eitt-
hvað annað en stressið í New York
en eftir fjögur ár í LA komumst
við að þeirri niðurstöðu að við
söknuðum borgarinnar og flutt-
um til baka í fyrrasumar. Ég var
ráðin til FutureBrand aftur og
finnst gott að vera komin aftur
í borgina. Nú eru afi Hörður og
amma Svanfríður að koma í heim-
sókn frá Íslandi og börnin, Svan-
fríður, 5 ára, og Akira, 2 ára, eru
brjáluð af spenningi yfir því.“
Þessa dagana vinnur Hólmfríð-
ur að árlegri rannsókn Future-
Brand þar sem breyting á ímynd
mismunandi landa frá ári til árs
er skoðuð, eftir því hvað gerist
þar á mismunandi sviðum, í fjár-
málum, umhverfismálum, ferða-
mannaiðnaðinum og svo fram-
vegis. „Á síðasta ári var Ísland í
24. sæti af 100 löndum sem voru
rannsökuð.“ juliam@frettabladid.is
Hólmfríður Harðardóttir stýrir skrifstofu
FutureBrand í New York.
Framhald af forsíðu
Hrossablót Söguseturs
íslenska hestsins verð-
ur haldið í fjórða sinn
á Hótel Varmahlíð í
kvöld. Um er að ræða
veislu þar sem hrossið
verður í aðalhlutverki,
bæði á matseðli og í
skemmtidag-
skrá.
www.sogusetur.is
Hefur flú starfa› vi› málarai›n
og vilt ljúka námi í greininni?
th
or
ri@
12
og
3.
is
4
26
.0
34
fiá gæti raunfærnimat veri› fyrir flig
Raunfærnimat í málarai›n mi›ar a› flví a› meta flekkingu og
færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›. Markmi›i› er
a› flátttakendur í verkefninu fari í skóla og ljúki sveinsprófi.
Inntökuskilyr›i í raunfærnimat eru 5 ára starfsaldur og 25 ára
lífaldur.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA fræ›slusetur
í síma 590-6400.
Nánari uppl‡singar er a› finna á: www.idan/radgjof.is.
Einnig er hægt a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is
Veri› er a› vinna samskonar verkefni í bílgreinum, húsasmí›i
og múrarai›n.
Jólaferðir Bændaferða til Þýskalands hafa öðlast fastan sess í hjörtum margra og
hafa verið geysivinsælar í gegnum árin. Í þessari nýju jólaferð er ferðinni heitið til
borgarinnar Mainz sem stendur við ána Rín. Mainz hefur upp á margt að bjóða og
skartar miðbærinn fallegum jólamarkaði sem á sér 200 ára gamla sögu. Þar má
einnig sjá einstaklega fallegan 11 metra háan jólapíramída sem prýddur er englum,
jólasveinum og þekktum hetjum úr sögu Mainz. Boðið verður upp á stutta bæjarferð
um Mainz og eftir það er upplagt að njóta aðventustemningarinnar, kíkja í verslanir
eða ylja sér við jólaglögg. Einnig verður farið í dagsferð til háskólaborgarinnar
Heidelberg, þar sem kastali frá 13. öld gnæfir tignarlega yfir borginni en í miðbænum
er einnig þekktur jólamarkaður þar sem kaupa má allskyns fallegar jólavörur.
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
Verð: 105.700 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus!
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting í 3 nætur með morgunverði, ferðir til
og frá flugvelli í Frankfurt, skoðunarferð til Heidelberg og íslensk fararstjórn.
1. - 4. desember
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Allar skoðunarferðir innifaldar!
Jólaferð til Mainz
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
vera ● Laugavegi 49
Sími 552 2020
DÚNÚLPUR,
VATTÚLPUR,
nýkomnar frá Olsen.
20%
afsláttur af öllum
bolum og buxum.
Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar Elín, Elísa-
bet og Sigríður Eyþórsdætur spila á Dillon í dag klukk-
an 16.30. Tónleikarnir eru hluti af Air waves-hátíðinni.
Frítt er inn á Dillon alla helgina.
Laugardagskvöld í október eru
leikritakvöld hjá Útvarpsleik-
húsinu og í kvöld verður fluttur
þáttur Vigdísar Finnbogadóttur
um Brynjólf Jóhannesson
og síðan Blóðbrullaup eftir
Federico Garcia Lorca.
„Í fyrravetur vorum við með leik-
ritakvöld einu sinni í mánuði en
í vetur ætlum við að hafa þetta
aðeins veglegra og vera með leik-
ritakvöld á hverju laugardags-
kvöldi annan hvern mánuð,“
segir Viðar Eggertsson
útvarpsleikhússtjóri um þá
nýbreytni RÚV að bjóða upp á
þriggja tíma leikritaveislu
á Rás 1 á laugardags-
kvöldum.
Veislan hefst klukk-
an 19 á þáttum sem
nefnast „Þau stóðu í
sviðsljósinu“ og voru
gerðir árið 1976. Í kvöld
verður fluttur þriðji þátt-
urinn, sem fjallar um
Brynjólf Jóhannesson
leikara og var gerður af Vigdísi
Finnbogadóttur. „Þessir þættir eru
klukkutíma langir og fjalla um ein-
hvern af okkar stóru leikurum frá
því um miðja síðustu öld,“ segir
Viðar. „Klukkan 20 verða síðan
fluttir dýrgripir úr djúpum safns
Útvarpsleikhússins og í kvöld verð-
ur það Blóðbrullaup eftir Federico
García Lorca í þýðingu Einars
Braga og leikstjórn Gísla Halldórs-
sonar. Tekið upp 1960.“
Viðar segir leikritakvöldin kær-
komið tækifæri til að flytja perl-
ur úr safni ríkisútvarpsins. „Á
sunnudögum á hefðbundnum
útsendingartíma Útvarpsleik-
hússins erum við með ný og
nýleg verk en þarna gefst okkur
kostur á að flytja þessi stærri
sviðsleikrit sem tíðkaðist
að taka upp og útvarpa á
sínum tíma. Þarna eru
margar perlur sem ég er
sannfærður um að fólk
kann að meta.“
Allar upplýsing-
ar má nálgast á síðu
útvarpsleikhússins inni
á ruv.is. fridrikab@frettabladid.is
Perlur úr djúpinu
Brynjólfur Jóhannesson sem Jón Hreggviðsson og Herdís Þorvaldsdóttir í hlutverki
Snæfríðar í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni árið 1950.
Viðar Egg-
ertsson,
verkefnisstjóri
leiklistar hjá
RÚV.