Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 69

Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 69
fjölskyldan 5 Hækkun mikið reiðarslag Í ljósi gjaldskrárhækkana ArtMe- dica og óvissu með niðurgreiðslur Sjúkratrygginga eftir áramót segir María nú margar konur kveðja á vefsíðunni Draumabörn, samfélagi þeirra sem ganga í gegnum tækni- frjóvganir. „Tíðindin eru reiðarslag á tímum þegar flestir þurfa að horfa í hverja krónu. Við hjónin erum farin að horfast í augu við að dóttir okkar verði einkabarn ef aðstæður breytast ekki. Á næsta ári munum við nota tvær frostrós- ir sem við eigum í uppsetningu, en verði ekki þungun úr því veit ég ekki með framhaldið,“ segir María, en glasameðferð fyrir þau hjónin mun kosta yfir 600 þúsund krónur skiptið. „Fólki er refsað fyrir að geta ekki eignast börn. Vegna þess að við eigum nú eitt barn fáum við svo til enga niðurgreiðslu með næsta barni. Það er ósanngjarnt þegar litið er til þess að pör sem eiga börn úr fyrri samböndum fá fulla niðurgreiðslu vilji þau eign- ast barn saman og konan hafi látið taka sig úr sambandi í millitíð- inni. Á meðan er pörum sem geta alls ekki eignast barn nema með tæknifrjóvgun stillt upp við vegg með sitt einbirni ef þau eiga ekki nægan pening til að eignast fleiri börn,“ segir María og bætir við að horfa þurfi á aðstæður hvers og eins. „Sem viðskiptalögfræðingur veit ég að Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi að barneignir eru ekki mannréttindi. Það finnst mér skrýtið því það eru mannrétt- indi að vera hamingjusamur og barneignir stuðla að lífshamingju flestra. Hins vegar er áframhald- andi stuðningur ríkisins þjóðinni til hagsbóta því glasabörn verða líka skattgreiðendur framtíðar. Ef niðurgreiðslur frá Sjúkratrygging- um falla niður mun það koma illa við marga og hafa áhrif á andlega heilsu kvenna. Það mun svo kosta samfélagið miklu meira en ham- ingjusöm móðir og þá er spurn- ingin; hvað er verið að spara?“ - þlg Samningur milli Sjúkra- trygginga Íslands og læknastofunnar ArtMedica um niðurgreiðslur á tæknifrjóvgunaraðgerðum rann út 1. október síðastlið- inn. Samkvæmt samningn- um fór þátttökuhlutfall Sjúkratrygginga í tækni- frjóvgunum eftir því hvort um fyrstu meðferð var að ræða, aðra til fjórðu meðferð eða meðferðir eftir það. Síðan hefur velferðar- ráðherra samþykkt reglu- gerð um óbreyttar niður- greiðslur til áramóta, en óvissa ríkir um framhaldið. Skilyrðin verða þau sömu; par sem ekki á barn saman fær 40 prósent endurgreidd af fyrstu meðferð og 65 prósent af annarri til fjórðu meðferð. Par sem á eitt barn saman fær 15 prósenta endurgreiðslu á fyrstu til fjórðu meðferð. Óvissa eftir áramótin EKKERT ÖRUGGT Frjóvgun í glasameðferð fer fram í hitaskáp. Eftir tvo sólarhringa hafa fósturvísarnir venjulega skipt sér í tvær til átta frumur. Bestu fósturvísunum er komið fyrir í legi konunnar. Einungis má setja upp tvo í einu. Líkur á þungun eru innan við 40 prósent. ÞUNGUR BAGGI Eftir fjórar glasameðferðir fellur niðurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands niður óháð því hvort þær hafi borið árangur eða ekki. Hver glasameðferð eftir það kostar 376.055 krónur og hver smásjármeðferð 449.660 krónur. Lyfjakostnaður er ekki meðtalinn. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT ER TITILLINN KOMINN Í ÁSKRIFT Á OLD TRAFFORD? VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.