Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 80
15. október 2011 LAUGARDAGUR48
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýju við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Þóris Hafnfjörð
Óskarssonar
bifreiðarstjóra, Merkurgötu 12,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks 4. hæðar og hjúkr-
unarfólks Sólvangs í Hafnarfirði fyrir einstaka
umönnun og aðhlynningu. Einnig þökkum við
starfsfólki alla hlýju í okkar garð.
Ingibjörg Kristín Þorgeirsdóttir
Óskar Hafnfjörð Þórisson
Magdalena Sirrý Þórisdóttir Jón Björn Sigtryggsson
Hrafnhildur Hafnfjörð Þórisdóttir Jens Kristinn
Þorsteinsson
Marinó Hafnfjörð Þórisson Steinunn Arnljótsdóttir
Sverrir Hafnfjörð Þórisson
barnabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Ingþór Hallberg
Guðnason
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum í
Fossvogi laugardaginn 8. október. Útför hans verður frá
Fossvogskirkju mánudaginn 17. október kl. 15.00.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson Hulda Anna Arnljótsdóttir
Björg Ingþórsdóttir Garðar Halldórsson
Ásdís Ingþórsdóttir Axel Viðar Hilmarsson
Alda Rún Ingþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns og besta
vinar, föður, stjúpföður, tengdaföður,
afa og langafa,
Hreins Þorvaldssonar
múrarameistara, Kleppsvegi 82,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Sigurborg Jónasdóttir
Eygló Ebba Hreinsdóttir Sigurjón Grétarsson
Hrafnhildur Hreinsdóttir
Ingvar Hreinsson Jóna Laufey Jóhannsdóttir
Þorvaldur Hreinsson Oddný Vala Kjartansdóttir
Jóhanna Hrund Hreinsdóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir Jóhannes Gunnarsson
Stefanía Þóra Flosadóttir Halldór Þórhallsson
Ellen Flosadóttir Bolli Bjarnason
Guðvin Flosason
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt)
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri - S. 892 8947
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
Helgu Kristínar
Helgadóttur
frá Siglufirði.
Starfsfólki Landspítalans, heimahjúkrunar og heima-
hlynningar ásamt MND-teyminu þökkum við af alúð
fyrir einstaka umhyggju og frábæra aðhlynningu.
Helgi Kr. Eiríksson Katrín Gunnarsdóttir
Martha Eiríksdóttir Andrés Magnússon
Diðrik Eiríksson Viktoría Valdimarsdóttir
Inga Rós Eiríksdóttir Halldór Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju vegna
fráfalls ástkærrar systur okkar,
Hjördísar Þorleifsdóttur
kennara, áður Hrísmóum 4, Garðabæ.
Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks Hrafnistu,
Hafnarfirði, og Landspítala sem annaðist hana
í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Þráinn og Trausti Þorleifssynir og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem
sýnduð okkur einstaka hlýju og
stuðning við andlát og útför
Þórunnar Árnadóttur
ljósmóður,
Strandvegi 3, Garðabæ.
Starfsfólki á lungnadeildum LSH í Fossvogi og á
Landakoti þökkum við umhyggju þeirra og umönnun
síðustu ár hennar; ásamt sérstökum þökkum til Dóru
Lúðvíksdóttur læknis og Stellu S. Hrafnkelsdóttur
hjúkrunarfræðings, sem reyndust okkur öllum
stuðningur langt umfram starfsskyldur.
Tómas Agnar Tómasson
Ingibjörg Erna Sveinsson Helgi Ólafur Ólafsson
Agnes Vala Tómasdóttir Bryndal
Árni Haukur Tómasson Marion Tómasson
Helga Brynja Tómasdóttir Vilhjálmur Karl Gissurarson
Herdís Rún Tómasdóttir Ingólfur Freyr Elmers
Óskar Bergmann Tómasson
Tómas Heimir Tómasson Helena Tómasson
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
AGATHA CHRISTIE glæpasagnahöfundur (1890-1976) fæddist þennan dag.
„Fornleifafræðingur er besti eiginmaður sem kona getur hugsað sér.
Eftir því sem hún eldist eykst áhugi hans á henni.“
Merkisatburðir
1940 Strandferðaskipið
Esja kemur til Reykja-
víkur frá Petsamo í
Finnlandi með 258
íslenska ríkisborg-
ara sem höfðu lokast
inni í Evrópu vegna
stríðsins.
1955 Nóbelsverðlaunahaf-
inn William Faulkner
les úr óbirtri skáld-
sögu sinni á samkomu
í Háskóla Íslands.
1979 Minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins undir
forsæti Benedikts
Gröndal tekur við
völdum.
Hún kennir sig ekki bara við föður
sinn, heldur móður sína líka: Hún er
Heiðar- og Ómarsdóttir. „Þegar lög-
unum var breytt 1996 á þann veg að
fólk mætti kenna sig við báða for-
eldra fór ég strax á Hagstofuna og
lét breyta skráningu minni þar,“ segir
Brynhildur, hin nýja framkvæmda-
stýra Kvenréttindafélags Íslands.
Hún hefur unnið með félaginu áður
og var í ritstjórn blaðsins 19. júní í ár.
Kvenréttindafélagið var stofnað af
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur fyrir 104
árum til að vinna að því að íslensk-
ar konur fengju fullt stjórnmálajafn-
rétti á við karlmenn, kosningarétt,
kjörgengi, rétt til náms, embætta og
atvinnu með sömu skilyrðum og þeir.
Síðan hefur margt breyst en Bryn-
hildur segir samt enn fulla þörf fyrir
félagið.
„Launamunur kynjanna jókst á
síðasta ári í stað þess að minnka og
það er ljóst að jafnrétti kemur ekki
af sjálfu sér, heldur þarf enn að vaka
yfir því og minna á það,“ segir hún.
Brynhildur er í 50 prósenta starfi
fyrir Kvenréttindafélagið. „Reyndar
er það fulllítil prósenta miðað við þau
verkefni sem þarf að takast á við en
við sníðum okkur stakk eftir vexti,“
segir hún og upplýsir að starfið felist í
skrifum á fréttum, greinum og álykt-
unum og undirbúningi ráðstefna og
málþinga. Hún hefur aðstöðu á Hall-
veigarstöðum við Túngötu, en húsið
er nefnt eftir Hallveigu Fróðadóttur,
fyrstu húsfreyju í Reykjavík. Þar eru
ýmis fleiri kvennasamtök til húsa,
eins og Kvenfélagasamband Íslands,
Bandalag kvenna í Reykjavík og Sam-
tök kvenna af erlendum uppruna.
Kvenréttindafélagið tekur þátt í
alþjóðlegu samstarfi. „Við Íslending-
ar höfum á síðustu árum komið hvað
best út úr alþjóðlegum könnunum
um jafnrétti kynjanna en að mörgu
leyti segir sú niðurstaða meira um
hve ástandið er slæmt annars stað-
ar í heiminum,“ segir Brynhildur.
Hún telur Íslendinga hafa heil-
miklu að miðla erlendis í sambandi
við jafnréttismál og nefnir feðra-
orlofið og bann við strippstöðum
sem dæmi. „Við búum í landi sem er
þekkt fyrir hreina orku og við erum
þjóð sem getur kennt öðrum ýmis-
legt um það hvernig á að standa að
jafnréttismálum,“ segir hún.
Brynhildur er bókmenntafræðing-
ur og í fyrra gaf Bókaútgáfan Æskan
út bók eftir hana og systur henn-
ar með þjóðsögum og ævintýrum í
nútímabúningi þar sem stelpur voru
í aðalhlutverkum. Nú vinnur hún að
kvikmyndahandriti að fantasíu og sér
ásamt öðrum um þáttinn Skorninga á
Rás 1. gun@frettabladid.is
BRYNHILDUR HEIÐAR- OG ÓMARSDÓTTIR: NÝ STÝRA KVENRÉTTINDAFÉLAGSINS
Jafnréttið kemur ekki af sjálfu sér
STÝRA KVENRÉTTINDAFÉLAGSINS „Við búum í landi sem er þekkt fyrir hreina orku og við erum
þjóð sem getur kennt öðrum ýmislegt um það hvernig á að standa að jafnréttismálum,“ segir
hún. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
90 ára afmæli
Hr. Björgvin
Sigurður Sveinsson
verður níræður 17. október.
Af því tilefni tekur hann á móti vinum
og ætting jum á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 16. október frá
kl. 14.00 í veitingasal á 5. hæð.