Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 80

Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 80
15. október 2011 LAUGARDAGUR48 Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýju við and- lát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Þóris Hafnfjörð Óskarssonar bifreiðarstjóra, Merkurgötu 12, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks 4. hæðar og hjúkr- unarfólks Sólvangs í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun og aðhlynningu. Einnig þökkum við starfsfólki alla hlýju í okkar garð. Ingibjörg Kristín Þorgeirsdóttir Óskar Hafnfjörð Þórisson Magdalena Sirrý Þórisdóttir Jón Björn Sigtryggsson Hrafnhildur Hafnfjörð Þórisdóttir Jens Kristinn Þorsteinsson Marinó Hafnfjörð Þórisson Steinunn Arnljótsdóttir Sverrir Hafnfjörð Þórisson barnabörn og langafabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingþór Hallberg Guðnason lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 8. október. Útför hans verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. október kl. 15.00. Ágúst Hjörtur Ingþórsson Hulda Anna Arnljótsdóttir Björg Ingþórsdóttir Garðar Halldórsson Ásdís Ingþórsdóttir Axel Viðar Hilmarsson Alda Rún Ingþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns og besta vinar, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, Hreins Þorvaldssonar múrarameistara, Kleppsvegi 82, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Sigurborg Jónasdóttir Eygló Ebba Hreinsdóttir Sigurjón Grétarsson Hrafnhildur Hreinsdóttir Ingvar Hreinsson Jóna Laufey Jóhannsdóttir Þorvaldur Hreinsson Oddný Vala Kjartansdóttir Jóhanna Hrund Hreinsdóttir Ásgerður Jóna Flosadóttir Jóhannes Gunnarsson Stefanía Þóra Flosadóttir Halldór Þórhallsson Ellen Flosadóttir Bolli Bjarnason Guðvin Flosason barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt) Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri - S. 892 8947 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Helgu Kristínar Helgadóttur frá Siglufirði. Starfsfólki Landspítalans, heimahjúkrunar og heima- hlynningar ásamt MND-teyminu þökkum við af alúð fyrir einstaka umhyggju og frábæra aðhlynningu. Helgi Kr. Eiríksson Katrín Gunnarsdóttir Martha Eiríksdóttir Andrés Magnússon Diðrik Eiríksson Viktoría Valdimarsdóttir Inga Rós Eiríksdóttir Halldór Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna fráfalls ástkærrar systur okkar, Hjördísar Þorleifsdóttur kennara, áður Hrísmóum 4, Garðabæ. Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði, og Landspítala sem annaðist hana í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Þráinn og Trausti Þorleifssynir og fjölskyldur. Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur einstaka hlýju og stuðning við andlát og útför Þórunnar Árnadóttur ljósmóður, Strandvegi 3, Garðabæ. Starfsfólki á lungnadeildum LSH í Fossvogi og á Landakoti þökkum við umhyggju þeirra og umönnun síðustu ár hennar; ásamt sérstökum þökkum til Dóru Lúðvíksdóttur læknis og Stellu S. Hrafnkelsdóttur hjúkrunarfræðings, sem reyndust okkur öllum stuðningur langt umfram starfsskyldur. Tómas Agnar Tómasson Ingibjörg Erna Sveinsson Helgi Ólafur Ólafsson Agnes Vala Tómasdóttir Bryndal Árni Haukur Tómasson Marion Tómasson Helga Brynja Tómasdóttir Vilhjálmur Karl Gissurarson Herdís Rún Tómasdóttir Ingólfur Freyr Elmers Óskar Bergmann Tómasson Tómas Heimir Tómasson Helena Tómasson Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is AGATHA CHRISTIE glæpasagnahöfundur (1890-1976) fæddist þennan dag. „Fornleifafræðingur er besti eiginmaður sem kona getur hugsað sér. Eftir því sem hún eldist eykst áhugi hans á henni.“ Merkisatburðir 1940 Strandferðaskipið Esja kemur til Reykja- víkur frá Petsamo í Finnlandi með 258 íslenska ríkisborg- ara sem höfðu lokast inni í Evrópu vegna stríðsins. 1955 Nóbelsverðlaunahaf- inn William Faulkner les úr óbirtri skáld- sögu sinni á samkomu í Háskóla Íslands. 1979 Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir forsæti Benedikts Gröndal tekur við völdum. Hún kennir sig ekki bara við föður sinn, heldur móður sína líka: Hún er Heiðar- og Ómarsdóttir. „Þegar lög- unum var breytt 1996 á þann veg að fólk mætti kenna sig við báða for- eldra fór ég strax á Hagstofuna og lét breyta skráningu minni þar,“ segir Brynhildur, hin nýja framkvæmda- stýra Kvenréttindafélags Íslands. Hún hefur unnið með félaginu áður og var í ritstjórn blaðsins 19. júní í ár. Kvenréttindafélagið var stofnað af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur fyrir 104 árum til að vinna að því að íslensk- ar konur fengju fullt stjórnmálajafn- rétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi, rétt til náms, embætta og atvinnu með sömu skilyrðum og þeir. Síðan hefur margt breyst en Bryn- hildur segir samt enn fulla þörf fyrir félagið. „Launamunur kynjanna jókst á síðasta ári í stað þess að minnka og það er ljóst að jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér, heldur þarf enn að vaka yfir því og minna á það,“ segir hún. Brynhildur er í 50 prósenta starfi fyrir Kvenréttindafélagið. „Reyndar er það fulllítil prósenta miðað við þau verkefni sem þarf að takast á við en við sníðum okkur stakk eftir vexti,“ segir hún og upplýsir að starfið felist í skrifum á fréttum, greinum og álykt- unum og undirbúningi ráðstefna og málþinga. Hún hefur aðstöðu á Hall- veigarstöðum við Túngötu, en húsið er nefnt eftir Hallveigu Fróðadóttur, fyrstu húsfreyju í Reykjavík. Þar eru ýmis fleiri kvennasamtök til húsa, eins og Kvenfélagasamband Íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík og Sam- tök kvenna af erlendum uppruna. Kvenréttindafélagið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi. „Við Íslending- ar höfum á síðustu árum komið hvað best út úr alþjóðlegum könnunum um jafnrétti kynjanna en að mörgu leyti segir sú niðurstaða meira um hve ástandið er slæmt annars stað- ar í heiminum,“ segir Brynhildur. Hún telur Íslendinga hafa heil- miklu að miðla erlendis í sambandi við jafnréttismál og nefnir feðra- orlofið og bann við strippstöðum sem dæmi. „Við búum í landi sem er þekkt fyrir hreina orku og við erum þjóð sem getur kennt öðrum ýmis- legt um það hvernig á að standa að jafnréttismálum,“ segir hún. Brynhildur er bókmenntafræðing- ur og í fyrra gaf Bókaútgáfan Æskan út bók eftir hana og systur henn- ar með þjóðsögum og ævintýrum í nútímabúningi þar sem stelpur voru í aðalhlutverkum. Nú vinnur hún að kvikmyndahandriti að fantasíu og sér ásamt öðrum um þáttinn Skorninga á Rás 1. gun@frettabladid.is BRYNHILDUR HEIÐAR- OG ÓMARSDÓTTIR: NÝ STÝRA KVENRÉTTINDAFÉLAGSINS Jafnréttið kemur ekki af sjálfu sér STÝRA KVENRÉTTINDAFÉLAGSINS „Við búum í landi sem er þekkt fyrir hreina orku og við erum þjóð sem getur kennt öðrum ýmislegt um það hvernig á að standa að jafnréttismálum,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 90 ára afmæli Hr. Björgvin Sigurður Sveinsson verður níræður 17. október. Af því tilefni tekur hann á móti vinum og ætting jum á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 16. október frá kl. 14.00 í veitingasal á 5. hæð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.