Fréttablaðið - 15.10.2011, Qupperneq 92
15. október 2011 LAUGARDAGUR60
folk@frettabladid.is
Kvikmyndir ★★★★
Hetjur Valhallar - Þór
Leikstjóri: Óskar Jónasson.
Meðleikstjórn: Gunnar Karlsson, Toby Genkel.
Aðalhlutverk: Atli Rafn Sigurðsson, Þórhallur Sigurðsson og Ágústa
Eva Erlendsdóttir.
Feykigóð fjölskylduskemmtun
Undirheimadrottningin Hel
ætlar sér ekkert minna en
heimsyfirráð og setur þar
með örlög guða og manna
í hættu. Æsir hafa sofnað
á verðinum og sá eini sem
stendur í vegi fyrir að ráða-
gerðin gangi eftir væskils-
legur piltur að nafni Þór.
Norræni þrumuguðinn
virðist ólíklegur til afreka eins
og hann birtist áhorfendum
hér í upphafi sögu í Hetjum
Valhallar - Þór, fyrstu íslensku
teiknimyndinni í fullri lengd.
Hógvær og á sannarlega fátt
sameiginlegt með drambláta
beljakanum sem barði á hrímþursum í leikinni Hollywood-mynd í sumar og
framleiðandinn Arnar Þórisson, hjá fyrirtækinu Caoz, hafði í upphafi áhyggjur
af að gæti eyðilagt fyrir íslenska útspilinu.
Ljóst má vera að slíkar áhyggjur reyndust með öllu óþarfar þar sem
samanburðurinn, að minnsta kosti í listrænu tilliti, er Hetjum Valhallar fullkom-
lega í hag og íslenski Þór líklegur til að ná langt ef marka má góðar viðtökur,
hlátrasköll og lófaklapp á frumsýningunni í Smárabíó á fimmtudag.
Það er engum ofsögum sagt að myndin blæs nýju lífi í norræna goðafræði
svo um munar með þéttri atburðarrás, hlaðinni spennu og ærslafullu gríni
sem höfðar til barna og fullorðinna og feykilega vel gerðri tölvugrafík sem
jafnast á við það besta sem sést hefur. Ótrúleg nákvæmni og skemmtilega
sérstæður stíll skila sérlega áferðarfallegri mynd, vitnisburði um þá gríðarlegu
vinnu sem fór í að koma verkinu á kopp.
Sumir gætu kvartað undan því skáldaleyfi sem höfundar taka sér óspart,
stundum í því skyni að draga dár að frumtextanum líkt og hefur áður verið
gert með góðum árangri í myndum eins og Shrek þar sem Disney-ævintýrin fá
það óþvegið. En bragðið hrífur. Myndin kannski skemmtilegri fyrir vikið, ekki
síst í augum þeirra sem til þekkja, og ekki kemur að sök þótt söguþráðurinn sé
einfaldur. Sígild barátta góðs og ills þar sem drengur með hetjudrauma býður
myrkraöflum byrginn flestum að óvörum og einkum föðurnum, sjálfum Óðni,
en mannast og vinnur að lokum vopnaður góðu hjartalagi, hugdirfsku, og jú
töfrahamrinum Mjölni.
Einn helsti vankanturinn er skortur á örlítilli dramatík sem hefði gefið mynd-
inni aukna dýpt og veitt brosvöðvunum vel þegna hvíld inn á milli brandara.
Annað er til fyrirmyndar, hljóðsetning, klipping og örugg leikstjórn og
valinkunnir leikararnir sem ljá persónunum raddir og fylla þær af lífi. Allt
leggst á eitt að gera Hetjur Valhallar - Þór að fyrirtaks fjölskylduskemmtun.
Roald Eyvindsson
Niðurstaða: Feykilega vel gerð mynd í alla staði sem gefur erlendum
stórmyndum ekkert eftir.
Fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd,
Hetjur Valhallar: Þór, var forsýnd á fimmtu-
dagskvöld í Smárabíói. Fjöldi fólks mætti
á sýninguna og skemmti sér hið besta yfir
ævintýrinu um þrumuguðinn.
Yfir sjö ár eru liðin síðan þróunarvinna við myndina
hófst og á þeim tíma hefur framleiðslan teygt anga
sína víða. Framleiðslulöndin eru þrjú, Ísland, Þýska-
land og Írland, og hafa fleiri hundruð manns komið
að gerð myndarinnar. Um helgina verður brotið blað
í fjölda sýningarstaða á Íslandi því Hetjur Valhallar:
Þór verður sýnd í 24 sýningarsölum á ellefu stöðum
vítt og breitt um landið.
Þrumuguð og
þrumustuð
Í KRAKKAHÓPI Laddi, sem talar inn á myndina, ásamt hópi hressra krakka á for-
sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
SÁU ÞÓR Barnastjarnan Sveppi, dóttir hans Þórdís Katla, Bragi
Þór Hinriksson og sonur hans Hinrik Huldar sáu teiknimyndina.
KRISTÍN OG ÆGIR Kristín Olga Gunnarsdóttir og Ægir Óli
Matthíasson voru á meðal gesta.
Í SMÁRABÍÓI Kolbeinn Marteinsson,
aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var í
Smárabíói ásamt Birnu Kolbeinsdóttur
og Kötlu Hauksdóttur.
RUT OG INGÓLFUR Rut Ingólfsdóttir og Ingólfur Hreggviðsson
skemmtu sér vel.
Á FORSÝNINGU Stefán Jóhannssson,
Birna Sísí Jóhannsdóttir, Jóhann Gunnar
Stefánsson, Stefán Gunnar Jóhannsson
og Inga Rannveig Jóhannsdóttir mættu
á forsýninguna.
FEÐGAR Feðgarnir Christofer Lund og Ari Carl Lund sáu Hetjur
Valhallar: Þór.
6000 BÆKUR fékk Reading Public bókasafnið í Bandaríkjunum að gjöf frá söngkonunni Taylor Swift. Vegna niðurskurðar hafði bókasafnið ekki efni á
nýjum bókum og ákvað Swift því að leggja sitt lóð á vogarskálarnar.