Fréttablaðið - 15.10.2011, Síða 98
15. október 2011 LAUGARDAGUR66
„Þetta er eiginlega tólf daga kynn-
isferð en við náum sem betur fer
tveimur leikjum,“ segir Arngrím-
ur Baldursson, þýðandi og annar
höfunda bókarinnar Liverpool:
The Complete Record.
Hann er ásamt meðrithöfundi
sínum, Guðmundi Magnússyni,
farinn í mikla kynningarferð til
Liverpool-borgar þar sem þeir
ætla að kynna bókina sína. Þeir
eru búnir að leigja íbúð í miðborg
Liverpool undir sig og sína og
munu í kjölfarið sinna viðtölum við
sjónvarpsstöðvar, útvarp, dagblöð
og netmiðla. Bókin Liverpool: The
Complete Record inniheldur upp-
lýsingar um alla leiki knattspyrnu-
liðsins Liverpool frá árinu 1892.
Bókin hefur þegar komið út í
London en nú er komið að Liver-
pool og þá á að leggja allt í söl-
urnar. Arngrímur og Guðmundur
árita meðal annars bókina í dag í
Waterstones, sem er ein stærsta
bókabúð Liverpool. Með þeim við
áritunarborðið sitja goðsagn-
irnar Ron Yeats, sem er sá
leikmaður sem hefur gegnt
fyrirliðastöðu liðsins lengst
allra, og Tommy Smith. Að sögn
Arngríms er Smith einn
allra harðasti varnar-
maður félagsins frá
upphafi. „Hann
átti það til að
tækla menn í
herðar niður.“
Svo skemmti-
lega vill til að
Liverpool mætir einmitt
erkifjendunum frá Manc-
hester United á Anfield í
hádeginu og Arngrím-
ur ætlar að sjálfsögðu
á leikinn. „Það reynd-
ist hins vegar þrautin
þyngri að fá miða og ég
grenjaði þá eiginlega út
hjá miðasölunni,“ segir
Arngrímur og hlær. - fgg
Árita Liverpool-bók með gömlum Liverpool-goðsögnum
GÓÐIR SAMAN Arngrímur og Guðmundur eru á leið í mikla kynnisferð til Liverpool
að kynna bókina sína, Liverpool: The Complete Record. Þeir munu árita bókina með
Liverpol-goðsögnunum Ron Yeats og Tommy Smith. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Litlu munaði að söngdívunni Whit-
ney Houston væri hent út úr flugvél
er hún neitaði að spenna sætisól-
arnar í flugtaki. Houston var á leið
sinni með Delta-flugfélaginu frá
Atlanta til Detroit en brást ókvæða
við er flugfreyja bað hana vinsam-
legast um að spenna beltin, eins og
venja er í flugtaki og lendingu.
Eftir nokkurt þras við Houston
þurfti flugfreyjan sjálf að beygja
sig niður og spenna beltið utan
um söngkonuna. Frá þessu greinir
vefsíðan tmz.com, en samkvæmt
nánum vini söngkonunnar var
Houston ekki undir áhrifum í flug-
vélinni heldur einungis fúl því hún
missti af flugvél fyrr um daginn.
Houston er þessa dagana að
reyna að lappa upp á feril sinn og
var á leiðinni til Detroit til að leika
í kvikmynd.
Whitney neitaði
að spenna beltið
FÚL VIÐ FLUGFREYJU Whitney Houston
neitaði að spenna sætisólarnar í flug-
taki. NORDICPHOTOS/GETTY
Tískufyr irmyndin Ol iv ia
Palermo er loksins búin að stofna
sína eigin vefsíðu og blogg þar
sem hún gefur lesendum sínum
ráð varðandi tísku og snyrti-
vörur. Palermo er þekkt úr raun-
veruleikaþáttunum The City,
sem gengu á sjónvarpsstöðinni
MTV fyrir nokkrum misserum,
og síðan þá hefur hún verið fasta-
gestur á tískuvikum úti um allan
heim og vakið óskipta athygli
fyrir skemmtilegan fatastíl.
Palermo er búsett í New York,
og fyrir utan það að hafa verið
lærlingur á bandaríska ELLE í
raunveruleikaþáttunum vinnur
hún við að þeysast á milli tísku-
viðburða og vera smart.
Mikill þrýstingur hefur verið á
Palermo að stofna bloggsíðu, því
hún á fullt af aðdáendum úti um
allan heim og á vefsíðan oliviapa-
lermo.com eflaust eftir að vera
mikið lesin af tískuunnendum.
Palermo deilir út tískuráðum
TÍSKUFYRIRMYND Nafnið Olivia Palermo er vel þekkt í tískuheiminum og því bíða
margir spenntir eftir að lesa nýja vefsíðu stúlkunnar. NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríska tímaritið OK Magaz-
ine birtir nú fréttir þess efnis
að leikkonan Jennifer Aniston
sé barnshafandi. Blaðið þykist
það öruggt í sinni sök að fréttin
prýðir forsíðu blaðsins. Í grein-
inni kemur fram að Aniston
þykir hafa bætt óvenjumiklu
á maga, rass og brjóst síðustu
mánuði. „Hún hefur ekki ennþá
viðurkennt það fyrir vinum
sínum en flestir þeirra halda að
Aniston sé loksins ófrísk,“ segir
í greininni. Aðeins nokkrar
vikur eru síðan OK Magazine
birti óléttufregnir af annarri
stjörnu en þá var Kim Kardashi-
an sögð eiga von á barni. Hvorki
Aniston né Kardashian hafa
viðurkennt óléttuna og því mun
tíminn einn leiða í ljós hvort
slúðurblaðið hafði rétt fyrir sér í
þetta sinn.
Aniston sögð
barnshafandi
FORSÍÐUEFNI Leikkonan Jennifer
Aniston prýðir forsíðu OK Magazine,
sem staðhæfir að hún sé barnshafandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fatahönnuðurinn Sruli Recht hélt tískusýningu
á göngum Hörpunnar á miðvikudaginn var
og var það jafnframt sú fyrsta sem fram
fer í tónlistarhúsinu. Sruli sýndi herra-
fatnað og voru flíkurnar vel sniðnar og
margar mjög klæðilegar þó aðrar hafi
verið tilraunakenndari. Línan innihélt
meðal annars hatta, yfirhafnir, sandala
og stuttbuxur. - sm
VEL SNIÐIÐ
OG FALLEGT
SKUGGALEGUR
Dökkur frakki og
hattur frá Sruli.
SUMARFÍLINGUR Stutt-
buxur, skyrta og fallegir
sandalar frá Sruli.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MYNDARLEGIR Fyrir-
sæturnar stóðu sig
allar með prýði.
ÞÆGILEGUR FATN-
AÐUR Fyrirsætan og
læknaneminn Elmar
Johnson sýndi þessi
fallegu föt.
FLOTTUR HATTUR Línan
innihélt meðal annars fallega,
barðastóra hatta sem þennan.