Fréttablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 44
4 • POPPSKÚRINN Dikta flytur What Are You Waiting For og fleiri lög í Popp- skúrnum á Vísi.is. ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Á NASA Dikta heldur útgáfutónleika á Nasa í kvöld. Húsið opnar klukkan 22 í kvöld og það kostar 2.000 krónur inn. Forsala miða fer fram á Midi.is. Hávaði skaðar heyrnina Hlíðasmára 11 - Kópavogi - 534-9600www.heyrn.is Heyrnarskerðing er varanleg Verndaðu heyrnina á meðan þú hefur hana. Tónlistarfólk notar heyrnarsíur sem dempa hávaða án þess að þær breyti blöndun og tón- blæ hljóðsins. Bjóðum fjölbreytt úrval bæði af stöðluðum og sérsmíðuðum heyrnarsíum. Dikta hefur sent frá sér plötuna Trust Me. Platan er sú fjórða í röðinni frá hljómsveitinni og fylgir eftir hinni gríðarlega vinsælu Get It Together sem náði nýlega platínusölu á Íslandi. Platan kom hljómsveitinni rækilega á kortið. Allt í einu var Dikta orðin vinsælasta hljómsveit landsins og ein af fáum hljómsveitum sem fylla skemmtistaðinn Nasa eins og að drekka vatn. Það hlýtur því að hafa verið erfitt að fylgja eftir plötunni sem innihélt ofurslagara á borð við Thank You, eða hvað? „Nei, ég get ekki sagt það,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari Diktu. „Við reyndum aldrei að fylgja hinni eftir, spáðum ekkert í því. Okkur langaði að gera nýja plötu og vildum ekki láta fjögur ár líða á milli platna, eins og síðast. Við ákváðum því að kýla á plötu í sumar. Þetta ferli var líka allt öðruvísi en venjulega. Allt öðruvísi. Við sömdum alla plötuna í sumar og vorum alla daga að glamra á hljóðfæri.“ Dikta fékk aðstöðu í grunn- skóla í heimabæ sínum Garðabæ í sumar þar sem nýja platan varð til. Í staðinn fyrir að eyða kvöldum og helgum í gerð plötunnar tóku strákarnir í Diktu sér frí frá hinum hefðbundnu störfum og réðu sig í vinnu hjá hljómsveitinni. „Við vorum í dagvinnu sem starfandi tónlistarmenn. Við náðum að borga okkur lágmarkslaun í þrjá mánuði. Þannig gátum við verið án hefðbundinnar dagvinnu, allir fjórir, í fyrsta skipti í sögu hljóm- sveitarinnar,“ segir Haukur. Þið eruð náttúrulega svo ráð- settir menn og lausir við allt rugl. Sátuð þið á digrum hljómsveitar- sjóði sem gerði þetta mögulegt? „Við vorum komnir með smá sjóð, en hann var ekki digur og tæmdist við þetta. Við gátum allavega gert þetta, það var fínt. Svo gátum við hitt börn og konur um helgar.“ Haukur segir þessa vinnuaðferð hafa minnkað pressuna við gerð nýju plötunnar. „Við höfðum meira frelsi. Gátum borgað okkur laun og unnið meira í þessu. Það var því minni pressa en venjulega,“ segir Haukur en játar þó að hljómsveitin hafi ekki náð að klára plötuna á þessum þremur mánuðum. „Við fórum á túr til Þýskalands í september og áttum alveg slatta eftir,“ segir hann. „Við tókum með okkur upptökudót á túrinn og tókum upp í rútunni og á hótelherbergjum. Það endaði fullt af því á plötunni.“ Nýja platan er hefðbundin Diktuplata í þeim skilningi að hún inniheldur mikið rokk og mikið popp. Sumir segja að platan sé rólegri en síðasta plata og Haukur er undrandi á því. „Það kemur mér á óvart að fólk segi að þessi plata sé rólegri en sú síðasta. Það eru róleg lög á plötunni en það voru líka róleg lög á síðustu og þarsíðustu,“ segir hann. Stundum þegar listamenn slá í gegn skjóta upp kollinum draugar fortíðar sem vilja hagnast á vinsældunum. Haukur segir enga slíka elta Diktu. „Það liggur við að það sé meira í hina áttina. Að blöð eins og Grapevine hati okkur meira,“ segir hann léttur. „Það eru líka alltaf einhverjir sem eru á móti öllu sem er vinsælt. Það var fullt af fólki sem fílaði Coldplay eftir fyrstu plötuna, en svo urðu þeir vinsælir og þá er þetta lélegasta band sem hefur nokkru sinni stigið á jörðina.“ En þeir urðu lélegir. „Ég er ekki sammála því. Þeir hafa gert fullt af góðum lögum eftir að þeir urðu vinsælir. Finnst mér. Þó að ég hlusti ekki mikið á þá. En það er fólk sem hatar þá af ástríðu vegna þess að þeir eru vinsælir.“ Sneru aðdáendur fyrstu tveggja platnanna Diktu við ykkur baki eftir að þið urðuð vinsælir? „Nei, ég segi það nú ekki. Ef það gerðist þá tókum við ekki eftir því. Það er alltaf fullt á tón- leikum hjá okkur en það getur vel verið að það hafi gerst, ég hef ekki hugmynd um það. Platan hafði miklu meira jákvætt í för með sér en neikvætt. Ég hef ekki undan neinu að kvarta, þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími eftir að hún kom út.“ Hljómsveitin Dikta hefur verið til í meira en áratug, en varð gríðarlega vinsæl fyrir tveimur árum. Þá sendi hún frá sér plötuna Get It To- gether og í kjölfarið byrjuðu lög á borð við Thank You og Just Getting Started að óma á flestum útvarpsstöðvum, pöbbum, félagsheim- ilum, leikskólum og elliheimilum landsins. Nú hefur hljómsveitin snúið aftur með nýja plötu í farteskinu. Orð: Atli Fannar Bjarkason Myndir: Stefán Karlsson ENGIN PRESSA Meðlimir Diktu í hefðbundnum Garðabæjarsundfatnaði. BJÓST EKKI VIÐ AÐ THANK YOU FÆRI Í ÚTVARP Fá íslensk lög hafa notið jafn mikilla vinsælda og Thank You með Diktu, sem kom út á plötunni Get It Together. Haukur Heiðar sá ekki fyrir að lagið yrði hittari og bjóst ekki einu sinni við að það færi í útvarp. „Þegar við vorum að ræða hvaða lög færu í útvarp bjóst ég alls ekki við að það færi. Svo var það bara stærsta lag í útvarpi síðustu 300 árin,“ segir hann. Orð að sönnu en það er varla til sú útvarpsstöð á Íslandi sem hefur ekki nánast ofspilað lagið. DIKTA Í POPPSKÚRNUM FLYTJA LÖGIN WHAT ARE YOU WAITING FOR IN SPITE OF ME A DAY AT THE OPERA Á VÍSI.IS Alla virka daga kl. 18.00 Mythbusters eru frábærir þættir þar sem snillingarnir Jamie Hyneman og Adam Savage framkvæma ótrúlegar tilraunir. Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.