Fréttablaðið - 24.11.2011, Side 56

Fréttablaðið - 24.11.2011, Side 56
24. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR40 BAKÞANKAR sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. málhelti, 6. tveir eins, 8. líða vel, 9. tilvera, 11. númer, 12. liðamót, 14. gimsteinn, 16. átt, 17. atvikast, 18. frostskemmd, 20. tveir, 21. ármynni. LÓÐRÉTT 1. tísku, 3. í röð, 4. annir, 5. sjór, 7. tvívegis, 10. svelgur, 13. þakbrún, 15. flakk, 16. skjön, 19. kusk. LAUSN LÁRÉTT: 2. stam, 6. tt, 8. una, 9. ævi, 11. nr, 12. liður, 14. safír, 16. sv, 17. ske, 18. kal, 20. ii, 21. árós. LÓÐRÉTT: 1. stæl, 3. tu, 4. annríki, 5. mar, 7. tvisvar, 10. iða, 13. ufs, 15. reik, 16. ská, 19. ló. Hefurðu tíma fyrir kaffibolla áður en þú ferð? Því miður, ég verð að drífa mig heim! Ég er að fara á deit í kvöld! Ókei, til hamingju með það! Takk! Sjáumst, Kamilla! Áttu svo ekkert stefnumót í kvöld? Kannski! Ég vil bara að hún fái að svitna aðeins. Auk þess... ... er nóttin ung! Jói! Rólegur! Ég er klár í kvöld! Ekki láta mig fara eina heim! Velkominn heim, Palli. Ég bjó til samloku fyrir þig. Ókei, kannski nota ég of mikinn rakspíra. Lyktin var komin heim fimm mínútum á undan þér. Hannes! Þú og Tryggvi eruð búnir að vera í stríðsleik í allan dag. Af hverju prófið þið ekki spil í staðinn? Ókei. Jú, það stemmir. Ég var krókó- dílaveiðimaður. Hvað varðar þig um það?! Við Landakotskirkju er skúlptur Stein-unnar Þórarinsdóttur. Einn veturinn gekk ég daglega framhjá honum og vitjaði móður minnar, sem lá banaleguna á Landa- kotsspítala. Ég horfði jafnan á styttuna, sem er konumynd, hreifst af þokka hennar, mjúkum línum og þeirri auðmýkt og lotn- ingu sem hún miðlar. Oft var ég áhyggju- fullur þegar ég fór hjá,en þessi einfaldi en agaði minnisvarði um nunnuþjónustu Sankti Jósepssystra miðlaði mér trúar- trausti og óttaleysi. GLERKROSS sker ryðgaðan málminn. Fyrst sá ég að krossinn náði frá hjartastað og upp á andlit. Síðar tók ég eftir að kross var líka á bakinu. Krossarnir minntu mig á signinguna, sem elskandi mömmur og pabb- ar hafa merkt börn sín með – að framan og aftan. Minnti mig á að við mannfólkið erum krossuð á bak og brjóst, sama hvað við erum frosin og lemstruð. EINN morguninn þegar áhyggju- myrkrið var hvað dimmast gekk ég mót sól og að Steinunnar- skúlptúrnum. Þá varð ég fyrir undri. Sólargeisli skein í gegnum krossinn á styttubakinu og út um krossinn á brjóststykkinu. Allur krossinn lýstist upp og glerið magn- aði ljómann. Rústrauð mannsmyndin varð sem yfirjarðnesk vera, sem tók í sig himinljósið. Brjóstið opnaðist og miðl- aði birtunni áfram í mynd krossins. Þetta varð mér sýn, sem ég túlkaði í krafti trúar. Verkið heitir Köllun og við erum öll kölluð til lífs og hins guðlega. STEINUNN Þórarinsdóttir hefur gert marga skúlptúra. Einn er í Kópavogskirkju, tveir í miðbænum, einn við Sandgerði og annar við Bjarnastaðavör á Seltjarnarnesi. Það er viðburður í menningarlífinu að sýn- ing hennar verður opnuð í Vídalínskirkju næsta sunnudag. Kirkjur eru öllum opnar og sýning Steinunnar líka. Til hamingju Garð bæingar. AUGNALAUS mannlíki Steinunnar eru ein- kennilega ávirk. Þau eru ekki einstakling- ar, heldur fremur efnislegar „hugmyndir“ um fólk. Þau eru sem frosin en fjalla samt um mennska möguleika og læsingar, vanda og vonir. Mannlíkin eru tákn um afdrif og möguleika. Merking verka Steinunnar leit- ar inn á við. ENGINN gengur að undrinu að vild, þegar fólk er í stuði og ætlast til að ná sambandi. Konumyndin við Landakot geislar aðeins á ákveðnum tíma og við ákveðnar aðstæður. Best er að koma með opnum huga og íhygli. Þá opnast verkin og undur lífsins verður ljóst, í málmi, gifsi og gleri. List Steinunnar Þórarinsdóttur er fyrir lífið. Steinunn og geislar lífsins UM HVE RFISMERKI Prentgripur 141 825 Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is við prentum TÍMARIT 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 15. 16. 23. 24. 25. 15. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 32. 33. 34. 35. 36. 37.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.