Fréttablaðið - 24.11.2011, Side 56
24. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR40
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. málhelti, 6. tveir eins, 8. líða vel,
9. tilvera, 11. númer, 12. liðamót, 14.
gimsteinn, 16. átt, 17. atvikast, 18.
frostskemmd, 20. tveir, 21. ármynni.
LÓÐRÉTT
1. tísku, 3. í röð, 4. annir, 5. sjór, 7.
tvívegis, 10. svelgur, 13. þakbrún, 15.
flakk, 16. skjön, 19. kusk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stam, 6. tt, 8. una, 9. ævi,
11. nr, 12. liður, 14. safír, 16. sv, 17.
ske, 18. kal, 20. ii, 21. árós.
LÓÐRÉTT: 1. stæl, 3. tu, 4. annríki,
5. mar, 7. tvisvar, 10. iða, 13. ufs, 15.
reik, 16. ská, 19. ló.
Hefurðu
tíma fyrir
kaffibolla
áður en
þú ferð?
Því miður, ég
verð að drífa
mig heim!
Ég er að
fara á deit í
kvöld!
Ókei,
til
hamingju
með það!
Takk!
Sjáumst,
Kamilla!
Áttu svo
ekkert
stefnumót
í kvöld?
Kannski!
Ég vil bara
að hún fái
að svitna
aðeins.
Auk þess...
... er
nóttin
ung!
Jói!
Rólegur!
Ég er klár
í kvöld!
Ekki láta
mig fara
eina
heim!
Velkominn
heim, Palli.
Ég bjó til
samloku
fyrir þig.
Ókei,
kannski nota
ég of mikinn
rakspíra.
Lyktin var
komin
heim
fimm
mínútum
á undan
þér.
Hannes! Þú og Tryggvi
eruð búnir að vera í
stríðsleik í allan dag.
Af hverju prófið
þið ekki spil í
staðinn?
Ókei.
Jú, það stemmir.
Ég var krókó-
dílaveiðimaður.
Hvað varðar þig
um það?!
Við Landakotskirkju er skúlptur Stein-unnar Þórarinsdóttur. Einn veturinn
gekk ég daglega framhjá honum og vitjaði
móður minnar, sem lá banaleguna á Landa-
kotsspítala. Ég horfði jafnan á styttuna,
sem er konumynd, hreifst af þokka hennar,
mjúkum línum og þeirri auðmýkt og lotn-
ingu sem hún miðlar. Oft var ég áhyggju-
fullur þegar ég fór hjá,en þessi einfaldi
en agaði minnisvarði um nunnuþjónustu
Sankti Jósepssystra miðlaði mér trúar-
trausti og óttaleysi.
GLERKROSS sker ryðgaðan málminn.
Fyrst sá ég að krossinn náði frá hjartastað
og upp á andlit. Síðar tók ég eftir að kross
var líka á bakinu. Krossarnir minntu mig á
signinguna, sem elskandi mömmur og pabb-
ar hafa merkt börn sín með – að framan og
aftan. Minnti mig á að við mannfólkið
erum krossuð á bak og brjóst, sama
hvað við erum frosin og lemstruð.
EINN morguninn þegar áhyggju-
myrkrið var hvað dimmast gekk
ég mót sól og að Steinunnar-
skúlptúrnum. Þá varð ég fyrir
undri. Sólargeisli skein í gegnum
krossinn á styttubakinu og út um
krossinn á brjóststykkinu. Allur
krossinn lýstist upp og glerið magn-
aði ljómann. Rústrauð mannsmyndin
varð sem yfirjarðnesk vera, sem tók í
sig himinljósið. Brjóstið opnaðist og miðl-
aði birtunni áfram í mynd krossins. Þetta
varð mér sýn, sem ég túlkaði í krafti trúar.
Verkið heitir Köllun og við erum öll kölluð
til lífs og hins guðlega.
STEINUNN Þórarinsdóttir hefur gert
marga skúlptúra. Einn er í Kópavogskirkju,
tveir í miðbænum, einn við Sandgerði og
annar við Bjarnastaðavör á Seltjarnarnesi.
Það er viðburður í menningarlífinu að sýn-
ing hennar verður opnuð í Vídalínskirkju
næsta sunnudag. Kirkjur eru öllum opnar
og sýning Steinunnar líka. Til hamingju
Garð bæingar.
AUGNALAUS mannlíki Steinunnar eru ein-
kennilega ávirk. Þau eru ekki einstakling-
ar, heldur fremur efnislegar „hugmyndir“
um fólk. Þau eru sem frosin en fjalla samt
um mennska möguleika og læsingar, vanda
og vonir. Mannlíkin eru tákn um afdrif og
möguleika. Merking verka Steinunnar leit-
ar inn á við.
ENGINN gengur að undrinu að vild, þegar
fólk er í stuði og ætlast til að ná sambandi.
Konumyndin við Landakot geislar aðeins á
ákveðnum tíma og við ákveðnar aðstæður.
Best er að koma með opnum huga og íhygli.
Þá opnast verkin og undur lífsins verður
ljóst, í málmi, gifsi og gleri. List Steinunnar
Þórarinsdóttur er fyrir lífið.
Steinunn og geislar lífsins
UM
HVE
RFISMERKI
Prentgripur
141 825
Suðurhraun 1
Garðabæ
Sími: 59 50 300
www.isafold.is
við prentum
TÍMARIT
1. 2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
15.
16.
23.
24.
25.
15.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
36.
37.