Fréttablaðið - 08.12.2011, Side 38

Fréttablaðið - 08.12.2011, Side 38
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR Engin jól án þeirra! Þegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér, á ostabakka eða til að kóróna matargerðina Höfðingi Bragðmildur hvítmygluostur sem hefur slegið í gegn. Gráðaostur Tilvalinn til matargerðar. Góður einn og sér. Jóla-Yrja Bragðmild og góð eins og hún kemur fyrir eða í matargerð. Gullostur Bragðmikill hvítmygluostur, glæsilegur á veisluborðið. Jóla-Brie Á ostabakkann og með kexi og ávöxtum. Camembert Einn og sér, á osta- bakkann og í matargerð. Stóri-Dímon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. Jólaostakaka með skógarberjafyllingu. Kætir bragðlaukana svo um munar. Jólaosturinn 201 1 Havartiættaður með lauk og papriku. Blár kastali Með ferskum ávöxtum eða einn og sér. Hátíðarostur Mjúkur og bragðgóður brauðostur. Dalahringur Fallegur á veislubakkann. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA ms.is Blár höfðingi Mjúkur hvít- og blámygluostur sem fer vel á ostabakka. Tölvukaup opinberra aðila hafa í tvígang með stuttu millibili ratað í fjölmiðla. Í bæði skiptin var um að ræða kaup opinberra aðila á spjaldtölvum sem eru helsta nýjungin sem fram hefur komið í tölvuheimum undanfarin misseri. Þessi fréttaflutningur var í báðum tilfellum afar undarlegur og settur fram með neikvæðum hætti. Staðreyndin er sú að íslensk fyrirtæki og stofnanir kaupa tölv- ur og tölvutengdan búnað fyrir milljónir króna í hverri viku. Hvers vegna verður það (neikvætt) fréttaefni þegar opinberar stofn- anir ákveða að sýna þá framsýni að fjárfesta í nýjustu tækni í tölvu- geiranum? Lögreglan kaupir iPad Fyrri fréttin birtist í DV í sumar. Þar kom fram að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði keypt 11 iPad spjaldtölvur. Til að setja þessi kaup í neikvætt ljós var þess getið að rekstur lögreglunnar hefði verið erfiður á síðustu árum og að lögreglumönnum hefði t.a.m. verið fækkað um 60 frá 2009 til 2010. Hvað á þessi samanburður að þýða? Heldur blaðamaður að svo lengi sem fækkað er í röðum lögreglunnar megi ekki uppfæra tölvukost hennar? Það yrði aldeil- is í hag borgaranna eða hitt þó heldur! Staðreyndin er sú að fyrir hverja iPad spjaldtölvu sem keypt er í stað PC-tölvu sparast miklir fjármunir, jafnt í innkaupa- sem rekstrarkostnaði. Hvað veldur því að þessi ein- stöku tölvuinnkaup fyrir eina milljón króna rata á síður DV, en ekki fjölmörg önnur innkaup opin- berra stofnana á rándýrum PC- tölvum? Ekki dettur mér í hug að það tengist á neinn hátt þeirri stað- reynd að framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi var á þessum tíma hluthafi í DV. Það væri ein- faldlega of billegt. Reykjavíkurborg kaupir iPad Þremur mánuðum síðar rata (spjald)tölvukaup hins opin- bera aftur í fjölmiðla. Að þessu sinni keypti Reykjavíkurborg 15 iPad spjaldtölvur til að nota í tónvísinda smiðju Bjarkar og síðar í grunnskólum borgarinnar. For- maður Skólastjórafélagsins fagnar kaupunum og segir það jákvætt að gamall og úr sér genginn tölvubún- aður grunnskólanna sé bættur. Ekki voru allir jafnánægðir með þessi framsýnu innkaup Reykja- víkurborgar. Minnihluti borgar- stjórnar óskaði í kjölfarið eftir nánari upplýsingum um þessi tölvuinnkaup borgarinnar. Minni- hlutinn mætti hafa sig allan við (og gerði lítið annað) ef hann óskaði eftir nánari upplýsingum í hvert sinn sem stofnanir borgarinnar keyptu tölvur! Að vera í takt við tímann Í samhengi við þessi „smáinn- kaup“ íslenskra stofnana er ástæða til að benda á að 92% af 500 stærstu fyrirtækjum heims hafa fjárfest í iPhone á undanförn- um mánuðum. Rúmur helmingur þessara sömu fyrirtækja notar nú þegar iPad spjaldtölvur í starfsemi sinni. Þegar svo bregður við hér á landi að tvær íslenskar stofnanir fjárfesta í slíkri tækni fyrir sam- tals tvær milljónir króna er rekið upp ramakvein í fjölmiðlum. Þessi neikvæði hugsunar háttur er með eindæmum. Slíka nei- kvæðni og hneykslun má helst bera saman við, ef skrifaðar hefðu verið hneykslunarfréttir á 9. ára- tug síðustu aldar um stofnanir sem hefðu ákveðið að fjárfesta í tölv- um í stað hinna hefðbundnu rit- véla sem þá stóðu á hverju borði íslenskra skrifstofa. Og vei þeim sem léti sér detta í hug að kaupa annað eins bruðl og tölvu! Það er þó vel ef fjölmiðlar halda vöku sinni og halda uppi gagnrýn- inni blaðamennsku. Menn verða þá að vera sjálfum sér samkvæmir og skoða málið frá fleiri hliðum (en bara spjaldtölvuhliðinni). Og fyrst DV og Fréttatíminn eru svona vel vakandi þegar hið opinbera kaupir spjaldtölvur (sem eru fremur ódýr tæki í samanburði við borð- og far- tölvur), þá ættu þessi blöð að taka málið skrefinu lengra. Þau ættu í raun að kanna hvers vegna fleiri stofnanir og fyrirtæki hafi ekki nýtt sér þessa nýju tækni sem að sönnu getur lækkað rekstrarkostn- að fyrirtækja og stofnana allveru- lega. Staðreyndin er nefnilega sú að fyrir hverja PC-tölvu sem skipt er út fyrir iPad sparast heilmik- ið fé. Fjölmiðlar gætu t.d. kannað: ● Hversu margar PC vélar eru á framfæri hins opinbera? Hvað kostar það almenning á ári hverju og hvernig má spara í þessum efnum? ● Einnig væri ekki vitlaust að skoða hversu margir (og hverj- ir) hafa á undanförnum árum farið í boðsferðir til Redmond í Seattle. Þar er til húsa stór hug- búnaðarframleiðandi sem hefur afar mikla hagsmuni af viðskipt- um við íslenskar stofnanir. Staðreyndin er þessi: Það væri óskandi fyrir íslenska þjóð sem nú fer í gegnum mikla efnahags- erfiðleika að fleiri stofnanir færu þá leið sem lögreglan og Reykja- víkurborg hafa farið á síðustu mánuðum. Þessar stofnanir eru að fylgja fordæmi margra bestu fyrirtækja í heiminum. Þær eru að taka nýja tækni í notkun sem á sama tíma lækkar rekstrarkostn- að þeirra verulega. Það er gott for- dæmi á tímum sem þessum. Það er óneitanlega mikið ánægjuefni að sjá að íslenskar stofnanir skuli vilja vera í takti við tímann og bera hag almenn- ings fyrir brjósti. Því eins og Stuð- menn sögðu á sínum tíma og eru sígild sannindi: Að vera í takt við tímann getur tekið á, að vera up to date er okkar innsta þrá. Hvers kyns fanatík er okkur framandi hún er handbremsa á hugann, lamandi. Að vera up to date er okkar innsta þrá Guðmundur Andri Thorsson skrifaði pistil í Fréttablaðið 5. desember sem bar heiti Banntrúarmenn. Þar fjallaði hann um félagið Vantrú, sem hann hefur ekki miklar mætur á. Guðmundur Andri segir að Vantrú hafi með kæru sinni til siðanefndar HÍ vegið að akadem- ísku frelsi fræðimanna við háskólann og leitast við að stjórna umfjöllun um sig. Það er hins vegar staðreynd að HÍ hefur sett sér siðareglur. Þær setja þau höft á akademískt frelsi fræði- manna að þeir haldi sig við siðleg og akademísk vinnubrögð. Frelsi án hafta er ekki eftirsóknarvert, hvorki innan fræðasamfélagsins né utan. Í siðareglunum kemur fram að aðilar innan og utan Háskólans geti sent erindi til siðanefndar. Ef það að senda slíkt erindi þegar fólki finnst á sér brotið er sjálfkrafa, óháð efnisatriðum, árás á akademískt frelsi og tilraun til að stjórna umfjöll- un þá þjóna siðareglurnar ekki til- gangi sínum og „frelsið“ er óbeislað. Guðmundur Andri skrifar: „Þeir sáu þá gullið tækifæri til að gera guð- fræðideild HÍ og þessum kennara alveg sérstaklega lífið leitt, sem svo sannarlega hefur tekist“ Þetta er alrangt. Vantrú taldi hluta kennslunn- ar brot á siðareglum HÍ. Vissulega finnast fáir aðdáendur guðfræðideildar í félaginu en það er hugarburður að Bjarni Randver sé erkióvinur þess. Aftur vitna ég í Guðmund Andra: „... sam- kvæmt grein Barkar virðast [félagar í Vantrú] hafa skipulagt látlausar árásir á Bjarna til að hrekja hann úr starfi fyrir þær sakir að hafa ekki farið þeim orðum um félagsskapinn sem félagsmenn töldu tilhlýðilegt.“ Þessar skipulögðu árásir finnast hvergi í gjörðum félagsins. Þær hafa menn fundið í stolnum gögnum af læstu innra spjalli. Þar ráða félagsmenn ráðum sínum en Vantrú er óhefð- bundið félag að því leyti að tilvera þess er nær eingöngu bundin við netið. Það voru notuð stór orð um Bjarna Randver í trúnaðarspjalli. Margt af því sem birt hefur verið var sagt í háði, t.d. þar sem talað er um „heilagt stríð“ og „einelti“. Þar voru menn að vitna í stórkarlalegri kerskni í orðræðu frá ákveðnum trúfélögum. „Herferðin“ var fyrst og fremst í kjaftinum á mönnum í umræðum sem fóru fram í trúnaði. Heiftin í félags- mönnum var ekki meiri en svo að þrisvar var Vantrú tilbúin að ljúka málinu með sátt. Því var ávallt hafn- að af Bjarna Randveri. Hvort sem vinnubrögð siðanefndar hafa verið fullnægjandi eða ekki er ljóst að ekki stóð upp á Vantrú að ljúka málinu án úrskurðar siðanefndar. Tilgangur félagsins var aldrei sá að koma höggi á Bjarna. Þetta mál hefur tekið mikið á Bjarna Randver. Það er miður. Van- trú óraði aldrei fyrir þeim látum sem hafa orðið í kringum það sem átti að vera einföld kvörtun. Hvort þær tafir og kostn- aður sem orðið hefur á málinu er vegna starfs- hátta siðanefndar eða heiftúðugra viðbragða Bjarna er ekki félagsmanna í Vantrú að dæma um. Vanlíðan og erfiðleikar Bjarna Randvers eru ekki fagnaðarefni fyrir meðlimi Vantrúar. Þvert á móti. Málsvörn banntrúarmanns Tölvukaup hins opinbera Bjarni Ákason framkvæmdastjóri epli.is Trúmál Egill Óskarsson félagi í Vantrú „Herferðin” var fyrst og fremst í kjaftinum á mönnum í umræðum sem fóru fram í trún- aði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.