Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 46
Sýning á skartgripum úr fórum Elísabetar Taylor stendur nú yfir hjá uppboðs-
fyrirtækinu Christie ś í New York. Þar á meðal þessi hringur sem leikkonan
fékk í gjöf frá Richard Burton en hann er metinn á allt að 416 milljónir króna.
Skartið verður boðið upp síðar í mánuðinum.
Forseti Venesúela hefur
lúmskt gaman af auglýsinga-
herferð sem sýnir hann kyssa
Bandaríkjaforseta.
Hugo Chávez, forseti Venesúela,
tekur ekki nærri sér nýlega
auglýsingu sem sýnir hann og
Barack Obama Bandaríkjafor-
seta kyssast beint á munninn.
Auglýsingin er hluti af alþjóð-
legri herferð ítalska tísku-
fyrirtækisins Benetton þar sem
þekktir þjóðar- og trúarleið-
togar sjást kyssast. Hún hefur
þegar valdið fjaðrafoki og til
marks um það ætlar Páfagarð-
ur í mál við fyrirtækið vegna
þess að Benedikt XVI páfi er
sýndur kyssa þekktan múslima-
klerk. Chávez hefur hins vegar
látið hafa eftir sér í fjölmiðlum
að hann hafi lúmskt gaman af
uppátækinu.
Benetton hefur oft farið
óhefðbundnar leiðir í auglýs-
ingaherferðum sínum og notar
þær oft til að koma mikilvæg-
um skilaboðum á framfæri.
Þannig vakti fyrirtækið athygli
á kynþáttafordómum um árið
og í þeirri nýju er sjónum beint
að hatri. - rve
Chávez hlær
að herferð
Auglýsingin sýnir hina svörnu fjendur
Obama og Chávez kyssast.
Indversk
áhrif hjá
Chanel
Métiers d‘Art, haustlína Chanel, var
frumsýnd í París í vikunni undir yfir-
skriftinni Paris-Bombay enda undir
áhrifum frá Indlandi. Fyrir sýninguna
veltu menn því fyrir sér hvernig
litaspjald Karls Lagerfeld myndi
líta út enda Chanel þekkt
fyrir daufa liti en indverskur
klæðnaður er jafnan litskrúð-
ugur. Chanel-yfirbragðið
leyndi sér ekki og var fágun,
glæsileiki og vandað efnisval
áberandi. Þá fékk litaspjaldið
að mestu að halda sér þótt
litirnir væru ef til vill aðeins
ýktari en venjulega. Skartið
var þó augljóslega undir
áhrifum frá Indlandi
og mikið um höfuð-
skraut sem náði niður
á enni. Auk þess var
meiri vídd í flíkunum
en venjulega.
Fágað Chanel-yfir-
bragðið leyndi sér ekki.
Litirnir voru þó aðeins skarpari
en venjulega og höfuðskart og
efnisval með indverskum blæ.