Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 68
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR52
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
frumsýnt í janúar
Tryggðu þér miða strax!
Myndir/Bækur ★★★★
Leitin að stórlaxinum
Ásmundur Helgason og Gunnar Helgason
Undir heillastjörnu veiðigyðjunnar
Tvíburarnir Ásmundur og Gunnar Helgasynir eru aftur mættir til leiks með
mynd um laxveiði og nú fylgir bók að auki.
Í fyrra sendu þær bræður frá sér disk með sjónvarpsþáttaröðinni Með
öngulinn í rassinum. Í henni flökkuðu þeir á milli veiðisvæða í keppni um
hvor fengi mestu sumarveiðina. Að þessu sinni einkennir meira bróðerni
yfirreið Ásmundar og Gunnars. Markmiðið er að hvor um sig fái sinn stærsta
fisk fram að því og síðan að fá lax sem vegur tuttugu pund eða meira.
Sumarið var bræðrunum afar gjöfult og það endurspeglast í ríkulegri
skemmtun í Leitinni að stórlaxinum. Myndatakan er oft og tíðum afbragð
þó að stundum hafi þurft að reiða sig alfarið á GoPro-smávélarnar sem
ávallt voru við höndina og björguðu frábærum augnablikum í hús. Söngur
Karlakórs Kjalnesinga ljær myndinni síðan huggulegan og þjóðlegan blæ.
(Síendurtekið Guttavísustef var þó reyndar farið að hljóma í mín eyru dálítið
eins og íslensku gestirnir sem héldu vöku fyrir alríkislögreglumanninum
Dale Cooper á hótelinu í Tvídröngum – ef einhver skyldi vera að horfa á
Twin Peaks sem nú er verið að endursýna).
Breiðdalsá, Laxá í Aðaldal, Hofsá og Jöklusvæðið er sótt heim. Eins og
vera ber er aðaláherslan á það sem fer fram við árbakkann. Inn á milli er
rætt við reynda kappa um leyndardóma laxveiðinnar og álitamál á borð við
veiða/sleppa fyrirkomulagið.
Af aukaefni sem fylgir með á diskinum ber hæst rennsli í gegn um alla
myndina þar sem Ási og Gunni spjalla um það sem fyrir augu ber og velta
fyrir sér ýmsum spurningum.
Leitinni að stórlaxinum fylgir samnefnd bók. Þar skrifar Ásmundur um
gerð myndarinnar og þeir bræður og átta aðrir veiðimenn segja frá uppá-
haldsflugunum sínum. Hvað gæði varðar stendur bókin myndinni nokkuð
að baki. Til dæmis eru mistök í prófarkalestri til lýta á riti sem hefur á sér
vandað yfirbragð. Garðar Örn Úlfarsson
Niðurstaða: Leitin að stórlaxinum er innihaldsrík, skemmtileg og vel
heppnuð veiðimynd.
Myndlist ★★★
Tígrisdýrasmjör/Flugdrekar
Ósk Vilhjálmsdóttir/Björk Viggósd.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsið
Tígrisdýrasmjör nefnir Ósk Vil-
hjálmsdóttir sýningu sína í stóra
súlnasalnum á jarðhæð Listasafns
Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Titill-
inn er fenginn úr sögunni af Litla
svarta Sambó, þar sem tígrisdýr
elta Sambó litla í svo miklu offorsi
að á endanum bráðna þau niður í
smjör.
Strekktur dúkur í formi skips-
botns, upplýstur innan frá, er í lofti
salarins. Í gluggum sem vísa að göt-
unni birtist nú myndband af Reykja-
vík séð frá sjónum, en myndin er
tekin á siglingu. Umhverfis skips-
botninn hverfist hljóðmynd af hlaup-
ara, andardráttur og fótatak. Út frá
titli sýningarinnar má lesa samspil
þessara þátta sem ádeilu á samfé-
lag sem hefur gleymt sér, gleymdi
sér í glötuðu kapphlaupi fyrir hrun,
það er spurning hvort við höfum
nokkurn tímann hætt að hlaupa.
Það er viss fegurð í þessari inn-
setningu, birtan frá skipsbotn-
inum, kvikmyndin á gluggunum,
taktfastur andardrátturinn og fóta-
takið. Þættirnir bæði vinna saman
og ekki, það er eitthvað órökrétt við
að vera eins og á sjávarbotni með
skipið yfir sér, en líka á yfirborðinu
að horfa út yfir vatnið, loks bætist
hlauparinn við. Engu að síður vel
Bjartar innsetningar Bjargar og Óskar
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikirgjafir
unnin og aðgengileg innsetning sem
skilur eftir sterka mynd í huganum,
fallega þrátt fyrir undirliggjandi og
þyngri boðskap.
Í D-sal á efri hæð sýnir Björk
Viggósdóttir innsetninguna Flug-
drekar. Tvö myndbönd birtast á
vegg líkt og málverk og í salnum
bíða flugdrekar þess að komast út,
upp.
Flugdrekar er fallegt verk með
margræðum undirtónum. Svíf-
andi drekarnir í rýminu verða líkt
og uppleyst málverk, frelsuð af
striganum. Myndböndin byggja á
gegnsæi og léttleika en myndefn-
ið, bardagaíþróttir, felur í sér kraft
og þunga sem gefur verkinu nauð-
synlega þyngd. Björk vinnur hér
sérstaklega með myndræna þætti,
form, liti, efniskennd, hreyfingu og
tónlist og spinnur þá alla saman í
eina heild. Þau hughrif sem sýning
hennar skapar eru tilfinningalegs
eðlis, en sýning Óskar vinnur jafnt
með undirliggjandi og samfélags-
legan boðskap sem og þætti á borð
við form, hljóð og mynd. Það má
velta því fyrir sér hvort þarna komi
fram ákveðinn kynslóðamunur, þar
sem heimur hugmyndalistar hefur á
löngum tíma og smátt og smátt vikið
fyrir áherslum á hið skynræna og
tilfinningarnar. Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Unnið er markvisst með
liti, form, hljóð og mynd. Niðurstöð-
urnar eru ólíkar en eiga sér engu að
síður ákveðna snertifleti. Ósk og Björk
hafa unnið tvær fallegar innsetningar
sem lýsa upp skammdegismyrkrið.
FALLEG VERK Upplýstur skipsbotn Óskar Vilhjálmsdóttur og flugdrekar Bjarkar Viggós-
dóttur.
Sigurður Pétursson sagn-
fræðingur heldur svonefnd-
an Dagsbrúnarfyrirlestur í
Reykjavík-
uraka-
demíunni
í h ád e g-
inu í dag.
Fyrirlestur-
i n n mu n
fjalla um þá
umbyltingu
viðhorfa og
aðstæðna
sem fylgdu
í kjölfar nýrra þjóðfélags-
aðstæðna um aldamótin 1900.
Fyrr á þessu ári kom út fyrsta
bindi sögu verkalýðshreyfing-
arinnar á Vestfjörðum eftir
Sigurð. Bókin nefnist Vindur
í seglum og nær til tímabilsins
1890-1930. Hún segir frá þeim
breytingum sem áttu sér stað
í atvinnuháttum, búsetu og
félagsmálum á Vestfjörðum í
kjölfar nýrra verslunarhátta,
þéttbýlismyndunar og skútu-
útgerðar. Þá voru verkalýðs-
félög stofnuð til að bæta kjör
vinnandi fólks, en mættu
sterkri andstöðu atvinnurek-
enda. Fyrirlesturinn hefst
klukkan 12.05 og fer fram
í húsnæði Reykjavíkuraka-
demíunnar, Hringbraut 121.
Átök í árdaga
verkalýðs-
hreyfingar
SIGURÐUR
PÉTURSSON