Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 74

Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 74
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR58 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 1. - 7. desember 2011 LAGALISTINN Vikuna 1. - 7. desember 2011 Sæti Flytjandi Lag 1 Mugison ............................................................. Kletturinn 2 Of Monsters and Men ..................King and Lionheart 3 Dikta .....................................What are you Waiting for? 4 Gotye/Kimbra ...................Somebody I Used to Know 5 Hjálmar ..................................................Ég teikna stjörnu 6 Coldplay ................................................................Paradise 7 Stefán Hilmarss./Eyjólfur Kristjánss. .....Þín innsta þrá 8 Bruno Mars ......................................................It Will Rain 9 Grafík .................................................................Bláir fuglar 10 Helgi Björnsson/Eivör Pálsdóttir ........................Án þín Sæti Flytjandi Plata 1 Páll Óskar & Sinfó .............................Páll Óskar & Sinfó 2 Mugison ....................................................................Haglél 3 Frostrósir ................................................. Frostrósir fagna 4 KK & Ellen .....................................................................Jólin 5 Stebbi og Eyfi ........................Fleiri notalegar ábreiður 6 Helgi Björnsson ........ Íslenskar dægurperlur í Hörpu 7 Of Monsters and Men ............ My Head is an Animal 8 Frostrósir .......................................................Hin fyrstu jól 9 Sigurður Guðmundss. og Sigríður Thorl. ...................... ................................. Ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands 10 Ingimar Eydal ................................................Allt fyrir alla Tíunda plata rokkaranna í Korn er komin út. Núna daðra þeir við dubstep og annars konar danstónlist með áhugaverðum árangri. Bandaríska rokksveitin Korn gaf fyrir skömmu út sína tíundu hljóð- versplötu, The Path of Totality. Söngvarinn Jonathan Davis og félagar ákváðu að prófa nýja hluti við gerð plötunnar. Þeir blönd- uðu rokktónlist sinni saman við nútímalega danstónlist og hóuðu í hóp taktfastra stuðbolta úr dubsteb, drum & bass og electrohouse-geir- anum. Korn-menn voru frumkvöðl- ar á sínum tíma, enda með þeim fyrstu til að blanda saman hiphop- tónlist og nu-metal rokki. Tenging- in við dubsteb-tónlistina ætti því ekki að koma svo mjög á óvart. Upptökur fóru fram á heimili Davis í Bakersfield í Kaliforníu. Bassaleikarinn Fieldy segir gerð plötunnar hafa verið auðveldari og skipulagðari en nokkru sinni fyrr. „Við fengum fjölbreytt efni frá plötusnúðunum. Í stað þess að taka upp gítarinn eða bassann og djamma saman, fengum við inn- blástur frá þessum skrítnu hljóð- um og vinnunni í kringum þau.“ Textarnir eru öðruvísi en áður því söngvarinn Davis ákvað að syngja ekki beint um sjálfan sig í þetta sinn heldur meira um upplifun sína af heiminum í kringum sig. Sautján ár eru liðin frá því að fyrsta plata Korn kom út, sam- nefnd sveitinni. Næsta plata, Life Is Peachy, kom út tveimur árum síðar og vakti enn meiri athygli. Það var þó ekki fyrr en með þeirri þriðju, Follow the Leader, sem Korn náði almennri hyllri rokkáhugamanna. Ráðvilltir unglingar áttu auðvelt með að tengja sig við innibyrgða reiði Davis sem söng af öllum lífs og sálar kröftum um erfiða æsku sína. Lögin Got the Life, All in the Family og Freak on a Leash, hittu í mark og Korn var komin í fremstu röð. Follow the Leader hefur í dag selst í um fjórtán milljónum eintaka og er vinsælasta plata Korn. Alls nemur plötusala sveit- arinnar um 35 milljónum eintaka en mjög hefur þó dregið úr henni undanfarin ár. Næsta útgáfa, Issues, fékk einnig fínar viðtökur, enda voru þar flott lög á borð við Falling Away From Me og Make Me Bad. Fimmta plat- an Untouchables kom út 2002 og ári síðar kom út Take A Look in the Mirror, sem er síðasta platan með gítarleikaranum Brian Welch, eða Head, sem frelsaðist og ákvað að segja skilið við bandið. Trommar- inn David Silveria yfirgaf Korn svo eftir að sjöunda platan, See You on the Other Side, kom út. The Path of Totality hefur feng- ið misjafnar viðtökur, rétt eins og síðustu plötur Korn. NME gefur henni 6 af 10 mögulegum og Spin 7 af 10. Tónlistarsíðan Sputnikmusic sér aftur á móti ekkert jákvætt við plötuna, gefur henni 0,5 af 5 mögu- legum og segir Davis og félaga algjörlega úti á þekju. freyr@frettabladid.is Korn daðrar við dubstep TÍU PLÖTUR Jonathan Davis og félagar í Korn gáfu fyrir skömmu út sína tíundu hljóðsversplötu, The Path of Totality. NORDICPHOTOS/GETTY Það vakti töluverða athygli þegar Elvis Costello skoraði á aðdáendur sína að kaupa ekki nýja plötukassann sem er að koma út með honum næsta mánudag, The Return of the Spectacular Spinning Songbook. Í honum er bók og þrjár plötur með tónleikaupptökum: Ein vínylplata, einn geisla- diskur og einn DVD-diskur. Útsöluverð á Amazon í Bretlandi er um 40 þúsund krónur. Boxið hans Costello er ekki eina plötuboxið sem mönnum blöskrar verðið á þessa dagana. Önnur dæmi sem oft eru nefnd eru Immer- sion-útgáfurnar af Pink Floyd plötunum, sem þó kosta innan við 20 þúsund. Það sem fer í taugarnar á sumum gömlum Floyd-aðdáend- um er að það er sáralítið af áður óútgefinni tónlist í þessum útgáfum. Í staðinn eru þetta mismunandi 5.1 mix bæði á DVD- og Blueray- diskum, myndabæklingar og eftirprentanir af tónleikamiðum og baksviðspössum. Það góða við þetta allt saman er samt að á sama tíma og menn sjá, enn eina ferðina, rautt yfir græðginni í stóru plötufyrirtækj- unum, þá eru þessi sömu fyrirtæki líka að búa til ódýra hágæðapakka með miklu magni af tónlist. Sony er að selja fjögurra og fimm diska söfn með listamönnum eins og Elvis Presley, Johnny Cash og Roy Orbison fyrir innan við þrjú þúsund krónur og 8–13 diska söfn með Byrds, Sam Cooke og Ninu Simone á fimm þúsund kall og Decca-útgáfan var að setja á markað 13–15 diska heildarsöfn með Ellu Fitzgerald, Charlie Parker, Billie Holiday og fleirum á svipuðu verði. Hér á Íslandi er Sena nánast eini framleiðandi plötupakka af þessu tagi. Hún standur sig vel í verðunum. Nýi sparipakkinn með Björgvini Halldórssyni sem hefur að geyma fjóra tónlistardiska, DVD-disk og bók kostar til dæmis innan við fimm þúsund kall. Metið í lúxusnum á samt sennilega Björk sem seldi fínustu útgáfuna af Biophiliu á tæpar hundrað þúsund krónur. Með henni fylgdu tónkvísl- ir í mismunandi litum. Niðurstaðan er kannski sú að þegar menn kaupa dýrustu boxin þá hefur þetta ekkert með tónlist að gera lengur, heldur söfnunargildi og aukahluti eins og tónkvíslir og tónleikamiða … Enn um græðgi plöturisanna OKUR Mörgum finnast Immersion-útgáfurnar af plötum Pink Floyd vera á okurverði. Matt Berninger, söngvari The National, segir að lögin sem hann er að semja með gítarleikaranum Aaron Dessner séu með þeim bestu sem þeir hafa nokkurn tímann samið. Að sögn Berningers hefur nýtilkomið föður- hlutverk Dessners haft áhrif á lagasmíðarnar. Þær séu ekki eins gáfumannslegar og ekki eins mikið eftir bókinni og áður. „Við erum nú þegar orðnir mjög spenntir fyrir nýju plötunni,“ sagði hann í viðtali við Jam. „Við ætlum að sökkva okkur ofan í lagasmíðarnar. Mér finnst við vera tilbúnir í það. Auðvitað gæti allt breyst og við kannski hendum öllu eftir sex mánuði. Maður veit aldrei hvað gerist.“ Hin bandaríska hljómsveit The National hefur á ferli sínum gefið út fimm plötur og hlaut sú síðasta sem kom út í fyrra, High Violet, afbragðsgóða dóma víðast hvar. Nýju lögin mjög góð GENGUR VEL Matt Bernin- ger er mjög ánægður með nýju lögin. > Í SPILARANUM Ragga Gröndal - Astrocat Lullaby Amy Winehouse - Lioness: Hidden Treasures Guðmundur Pétursson - Elabórat Drake - Take Care Óskar Axel - Maður í mótun > PLATA VIKUNNAR Pollapönk – Aðeins meira Polla- pönk ★★★★ „Fleiri hressilegir smellir fyrir krakka á öllum aldri.“ - tj FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.