Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 89

Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 89
FIMMTUDAGUR 8. desember 2011 73 Daniel Radcliffe er skemmti- kraftur ársins að mati tímarits- ins Entertainment Weekly. Radcliffe er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem galdradrengur- inn Harry Potter, en hann lék ein- mitt í ár í síðustu myndinni sem var gerð eftir bókunum, Deathly Hallows: Part II. Þá lék hann aðalhlutverkið í Broad- way-sýningunni How to Succeed in Business Without Really Trying, sem fékk hin margróm- uðu Tony-verðlaun. Á meðal ann- arra sem hafa hlotið þennan heiður tíma- ritsins eru söngkon- an Taylor Swift, leik- konan Sandra Bullock og leikar- inn Robert Downey Jr. Skemmti- kraftur ársins VERÐLAUNAÐUR Daniel Radcliffe hefur ástæðu til að brosa, en hann er skemmti- kraftur ársins að mati Entertainment Weekly. Kólumbíska söngkonan Shakira ólst upp við að hlusta á þunga- rokk og segist vera einlægur aðdáandi rokksveitarinnar Metallica. Óvíst er hvort aðdá- endur hennar deila ástríðu hennar fyrir rokkinu en marg- ir þeirra kunna eflaust að meta að Shakira hafi bætt frægasta lagi sveitarinnar, Nothing Else Matters, á lagalista tónleika- ferðalags síns. Söngkonan segist hafa sungið það allan liðlangan daginn áður en hún varð fræg og að hún hafi viljað koma tónleika- gestum skemmtilega á óvart með flutningnum. Flytur lag Metallica ROKKARI Shakira hefur einnig dálæti á Led Zeppelin og Nirvana. Lady Gaga heimsótti Hvíta húsið á dögunum til að vekja athygli á ein- elti og afleiðingum þess. Ástæð- an fyrir heimsókn söngkonunnar í forsetabústaðinn í Washington var sjálfsmorð ungs táningspilts í Bandaríkjunum sem hefur verið mikið í fréttunum í vestanhafs. Lady Gaga hefur lengi talað gegn einelti og var ráðgjafi forset- ans, Valerie Jarrett, mjög hrærð yfir frásögn söngkonunnar af eigin reynslu af einelti. „Frásögn hennar snerti mig og ég er ánægð með hvernig hún notar frægð sína og frama til að varpa ljósi á mikil- vægt málefni.“ Lady Gaga hefur aldrei farið leynt með að sér hafi verið strítt í æsku og hyggst beita sér frekar gegn einelti í framtíðinni. Beitir sér gegn einelti HEIMSÓTTI HVÍTA HÚSIÐ Lady Gaga hyggst beita sér áfram gegn einelti í framtíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY Plata bresku söngkonunnar Adele, 21, er orðin mest selda plata þessa árþúsunds í Bretlandi, og hefur selst í meira en 3,4 milljónum eintaka. Platan sem áður átti metið er sólóplata annarrar breskrar söng- konu, Amy Winehouse, Back To Black. Sú var gefin út árið 2006 og náði því metsölunni á fimm ára tímabili, og skaust ekki upp í topp- sætið fyrr en eftir ótímabært lát Winehouse í sumar. Plata Adele kom út fyrir einungis tíu mánuð- um, og því er ljóst að vinsældir hennar eiga sér engan líka. 21 hefur setið í einhverju efstu tíu sæta metsölulista Bretlands frá því að platan kom út, eða í 45 vikur í röð. The Guardian greinir frá því að það sem ýtt hafi við sölunni á lokasprettinum hafi verið tilkynn- ing um tilnefningar ti Grammy verðlaunanna í síðustu viku, en Adele hlaut sex tilnefningar líkt og Fréttablaðið greindi frá. Söngkonan, sem gekkst undir aðgerð á raddböndum í síðasta mánuði og hefur átt erfitt með tal, beindi orðum sínum til aðdáenda sinna á vefsíðu sinni í vikunni. „Örfáum dögum eftir að ég loks- ins fæ málið aftur er ég algjör- lega orðlaus. Ég gerði plötuna en þið hafið gert hana að því sem hún er í dag.“ Adele slær Amy Winehouse við ÞAKKLÁT Söngkonan Adele segir árið 2011 vera það besta í lífi sínu hingað til.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.