Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 72
10. desember 2011 LAUGARDAGUR10
Bókari - 50% starf.
Leitum að bókara til starfa í 50% starf. Vinnutími er kl. 13-17.
Um er að ræða færslu á öllu fjárhagsbókhaldi ásamt viðskiptamanna-,
launa- og birgðabókhaldi. Bókari þarf að geta stemmt af reikninga,
gert kassauppgjör og stillt upp bókhaldi til endurskoðanda.
Leitað er að vönum bókara sem hefur glöggan skilning á bókhaldi,
með góða tölvukunnáttu og þekkingu á Navision tölvukerfum.
Bókarinn þarf að geta unnið sjálfstætt.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið
hreyfing@hreyfing.is fyrir 17. des.
Stjórn Náttúrustofu Reykjaness auglýsir
starf forstöðumanns laust til umsóknar
Náttúrustofa Reykjaness er rekin skv. lögum um Náttúrufræði-
stofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60 frá 1992.
Stofan er staðsett að Garðvegi 1, Sandgerði og starfar þar
undir sama þaki og í nánu samstarfi við Rannsóknasetur HÍ
á Suðurnesjum, Botndýrarannsóknastöðina í Sandgerði og
Fræðasetrið í Sandgerði.
Stofan hefur fengist við margvíslegar rannsóknir en rannsóknir
tengdar lífríki fjöru og stranda hafa verið umfangsmestar. Á
stofunni starfa 5 sérfræðingar.
Samkvæmt lögum skal forstöðumaður náttúrustofu hafa há-
skólapróf í náttúrufræði eða þekkingu sem meta má til jafns
við það. Hann er í fyrirsvari fyrir stofuna í heild, stjórnar dag-
legum rekstri hennar og ræður að henni annað starfslið með
samþykki stjórnar, eftir því sem fé er veitt til hverju sinni.
Gerðar eru kröfur um að umsækjandi hafi faglega þekkingu á
viðfangsefnum Náttúrustofunnar auk góðrar og yfirgripsmikillar
þekkingar á náttúru Reykjanesskaga. Umsækjandi skal hafa for-
ystu-, skipulags- og samskiptahæfileika og áhuga á uppbygg-
ingar og þróunarstarfi.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. febrúar 2012
Umsóknum ásamt ferilskrá skal senda til stjórnar Náttúrustofu
Reykjaness, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði eða á net-
fangið nr@nr.is fyrir 31. 12. 2011.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Árnadóttir formaður stjórnar
Náttúrustofu Reykjaness í síma 420 7555 einnig má finna upp-
lýsingar á http://www.nr.is/.
HJARTAVERND
Hugbúnaðarsérfræðingur
Spennandi starf við hönnun og þróun upplýsinga- og skráninga-
kerfis fyrir vísindagögn.
Starfsumhverfi:
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
og lagskiptri hönnun
Umsjón með ráðningu:
hádegi.
Umsóknarfrestur til og með:
Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann í hlutastarf
Starfssvið
Flugmálastjórn óskar eftir að ráða eftirlitsmann til að gera hlaðskoðanir á loftförum, einkum loftförum skráðum erlendis
sem hafa viðkomu á Íslandi (SAFA Safety Assessment of Foreign Aircraft). Starfið felst í staðlaðri skoðun á loftförum og
gögnum þess auk skýrslugerðar og úrvinnslu gagna ásamt tilfallandi verkefnum. Um er að ræða hlutastarf um 30-40
klst. á mánuði að jafnaði. Heimilt er að sinna starfinu meðfram öðrum störfum skv. samkomulagi.
Menntunar- og hæfnikröfur
Starfsmaður sem ráðinn verður þarf að að sækja tilheyrandi námskeið sem og starfsþjálfun erlendis í samtals um 10 daga
á tímabilinu janúar - mars 2012 og þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við leitum að starfsmanni með góða samskiptahæfileika, örugga og þægilega framkomu. Hann þarf að sýna af sér sjálf-
stæði, háttvísi og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og agaður í verkum sínum og geta unnið undir álagi. Launakjör taka
mið af kjarasamningum ríkisins.
Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem reynsla og áhugi á flugi fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Frekari upplýsingar um starfið gefur Halla S. Sigurðardóttir framkvæmda-
stjóri stjórnsýslusviðs (hallas@caa.is)
Vinsamlegast sendið umsókn og ferilskrá til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 28.
desember n.k. merkt, „Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns SAFA“
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innan-
lands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan.
Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Hæfniskröfur
Starfssvið
Um er að ræða tímabundnar stöður (í 7-9 mánuði) með möguleika á framlengingu. Helstu verkefni fela í sér
sölu, bókanir og úrvinnslu gagna vegna móttöku erlendra ferðamanna til Íslands. Æskilegt er að viðkomandi
geti byrjað fljótlega en við erum reiðubúin að bíða eftir réttu fólki sé þess þörf.
Við bjóðum spennandi starf hjá einu fremsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Þú verður hluti af frábærum hópi
starfsfólks sem býr yfir afburðaþekkingu á sínu sviði.
Eingöngu er tekið við skriflegum umsóknum með
mynd ásamt upplýsingum um menntun, starfsreynslu,
tungumálakunnáttu og fleira. Upplýsingar eru ekki
veittar í síma. Með allar umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknarfrestur er til 16. desember.
Umsókn sendist til:
Terra Nova, Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
eða á netfang starf@terranova.is
• Mjög góð kunnátta í þýsku, frönsku og/eða spænsku er skilyrði.
• Háskólamenntun er æskileg.
• Þjónustulipurð og reynsla af sambærilegum störfum er
nauðsynleg.
• Jákvæðni, skipulags-, sölu- og samskiptahæfileikar, stundvísi
og metnaður.
Vegna aukinna verkefna óska Terra Nova og Iceland Tours eftir starfsfólki.
Störf á ferðaskrifstofu