Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 8
10. desember 2011 LAUGARDAGUR8
Langur
laugardagur
» Sproti kemur í heimsókn kl. 14 og a ur kl. 15
» Myndataka með jólasveininum
» Heitt súkkulaði og smákökur fyrir alla gesti
» Jólasveinar gefa yngstu börnunum gjafi r
á meðan birgðir endast
Austurbæjarútibú Laugavegi 77,
laugardaginn 10. desember kl. 13 - 16.
Allir velkomnir
1. Hvar er hæsta jólatré landsins
þessi jólin?
2. Hversu gamall er rithöfundurinn
Auðunn Sólberg Valsson?
3. Í anda hvaða tónlistarmanns
býður Reykjavíkurborg tónvísinda-
smiðjur í grunnskólum?
SVÖR:
1. Reyðarfirði. 2. Sex ára. 3. Bjarkar Guð-
mundsdóttur
Gríðarleg eftirspurn er
eftir nýjum fjárfestingar-
möguleikum á Íslandi. Hún
kristallaðist í almennu
útboði á hlutabréfum
í Högum sem lauk á
fimmtudag.
Tilboð upp á 40 milljarða króna
bárust í 30% hlut í Högum í
almennu útboði sem lauk í vikunni.
Eftirspurnin eftir bréfum var átt-
föld og 95% tilboða voru gerð á
genginu 13,5 krónur á hlut, sem
voru efri mörk útboðsins. Því er
ljóst að gífurlegur áhugi er á hluta-
bréfum í Högum. Ástæðurnar eru
aðallega tvær.
Í fyrsta lagi eru Hagar gott
rekstrarfélag sem hefur minnkað
fjármagnskostnað sinn mikið að
undanförnu, er með sterka mark-
aðsstöðu og skilar góðri arðsemi.
Í annan stað er gífurleg eftir-
spurn eftir nýjum fjárfestingum á
Íslandi. Það sést best á því að það
bárust tilboð fyrir 40 milljarða
króna í 30% hlut í Högum, sem er
fyrsta nýskráning eftir bankahrun,
þrátt fyrir að í besta falli væru
hlutir að andvirði 4,9 milljarðar
króna til sölu. Annað dæmi um
þennan þrýsting er útgáfa Íslands-
banka á skuldabréfum í Kaup-
höllinni síðastliðinn fimmtudag.
Það var fyrsta slíka útgáfan eftir
bankahrun. Þar var eftirspurnin
líka mun meiri en framboðið.
Fjárfestingargeta innlendra
aðila er enda mikil. Í lok október
síðastliðins áttu þeir 1.519 millj-
arða króna í innlánum. Þar af
áttu lífeyrissjóðir, tryggingafélög,
verðbréfa- og fjárfestingarsjóð-
ir og ýmis önnur lánafyrirtæki
276,2 milljarða króna á innláns-
reikningum. Þessir aðilar þurfa
að ávaxta fé sitt. Þegar horft er til
þess að kaupendur í Haga útboð-
inu voru samtals um þrjú þúsund
talsins þá er ljóst að áhugi almenn-
ings á hlutabréfakaupum er einn-
ing töluverður. Þá eiga bankarnir
sjálfir 180,7 milljarða króna í sjóð-
um og innstæðum hjá Seðlabanka
Íslands sem eru ekki að vinna fyrir
þá. Það verður örugglega ekki löng
bið eftir því að þeir fari að lána til
hlutabréfakaupa.
Fyrsti viðskiptadagur á Aðal-
markaði Kauphallarinnar með
hlutabréf í Högum verður 15. des-
ember næstkomandi. Þá mun koma
í ljós hvert markaðsgengi bréfanna
er í raun og veru. Í fyrirtækja-
greiningu Íslandsbanka á Högum
frá 1. desember síðastliðnum, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum,
kemur fram að bankinn telur gengi
verðmatsgengi Haga vera 16 krón-
ur á hlut, eða 18,5% yfir útboðs-
genginu. Samkvæmt henni er virði
hlutarins sem var seldur í útboð-
inu 5,8 milljarðar króna, eða um
900 milljónum krónum hærra en
gengið sem var í útboðinu. Viðmæl-
endur Fréttablaðsins telja reyndar
margir hverjir að verðmat Íslands-
banka sé hófsamlegt og að virði
Haga geti vel farið í 18-20 krónur
á hlut innan tíðar.
Áttföld eftirspurn eftir Hagabréfum
BÓNUS Hagar eru með rúmlega 50% markaðshlutdeild á matvörumarkað. Lágvöruverslunarkeðjan Bónus er langstærsta einingin
innan Haga-samstæðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Í skráningarlýsingu Haga kemur
fram að stjórn félagsins muni
leggja áherslu á „að Hagar hf. skili
beint eða óbeint til hluthafa þeim
verðmætum sem skapast i rekstr-
inum á hverju ári. Í því skyni hefur
félagið þrjá valkosti: Beinar arð-
greiðslur, niðurgreiðslu vaxtaberandi
lána og kaup á eigin hlutabréfum“.
Arðgreiðslurnar eiga að vera 0,45
krónur á hlut. Í greiningu Íslands-
banka segir að „þau félög sem hafa
verið skráð á markað hér á landi
hafa yfirleitt verið vaxtafélög en ekki
arðgreiðslufélög en föst arðgreiðslu-
stefna félaga er mun algengari
erlendis, t.d. í Bandaríkjunum. Þar
þykir það yfirleitt gefa slæm skilaboð
út á markaðinn ef félag lækkar arð-
greiðslu á hlut og því forðast félög
að gera það í lengstu lög. Ásamt
þessu munu Hagar einbeita sér að
frekari niðurgreiðslu skulda. Stefna
félagsins verður einnig sú að auka
vægi eigin fasteigna í stað þess
að leigja nær allar fasteignir undir
verslunarrekstur sinn“.
Niðurstaða greiningar Íslandsbanka,
sem er reyndar ekki ætluð almenn-
ingi, er afgerandi: „Ráðgjöf: Kaupa“.
Arðgreiðslufélag sem greiðir niður lán og kaupir eigin bréf
FRÉTTASKÝRING: Skráning Haga í Kauphöllina
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR Meirihlutinn í
bæjarráði Kópavogs synjaði á
fimmtudag ósk bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks um að
afgreiðslu fjárhagsáætlunar
næsta árs yrði
frestað til 20.
desember svo
þeir gætu unnið
sína tillögu að
fjárhagsáætl-
un eins vel og
unnt sé. „Þetta
lýsir viðhorfi
meirihlutans og
bæjarstjórans
til samstarfs,“
bókuðu þeir Ármann Kr. Ólafsson
og Gunnar Ingi Birgisson.
„Við teljum ekki eðilegt að
fresta afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar þó svo að sjálfstæðismenn hafi
ekki unnið heimavinnuna sína,“
bókaði þá Guðríður Arnardóttir,
oddviti Samfylkingar og formað-
ur bæjarráðs. Sjálfstæðismenn
sögðust ekki hafa „her embættis-
manna til þess að sjá um vinnu
fyrir sig“. - gar
Fjárhagsáætlun ekki frestað:
Áttu að vinna
heimavinnuna
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
VEISTU SVARIÐ?