Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 60
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA DUGGUVOGI 10 RVK AUSTURVEGI 52 SELFOSS PITSTOP.IS WWW HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ568 2020 SÍMI DEKK SEM ÞÚ GETUR TREYST! TIL Í STÆRÐUM FRÁ 32-46” – ERU ÚRVALS HEILSÁRSDEKK OG HENTA VEL FYRIR MÍKRÓSKURÐ OG NEGLINGU. Frá árinu 1963 hefur Mickey Thompson verið leiðandi meðal framleiðenda á jeppadekkjum fyrir akstur utan vega jafnt sem á malbikinu. Rætur fyrirtækisins liggja í akstursíþróttum þar sem áreiðanleiki og gæði geta ráðið úrslitum. AMERÍSKU JEPPADEKKIN FRÁ MICKEY THOMPSON ERU ENDINGARGÓÐ OG HAFA EINSTAKA AKSTURSEIGINLEIKA. JÓLAGJÖFIN hennar og hans Verð 24.000.- Mörkinni 6 - Sími 588 5518 NÆG BÍLASTÆÐI GÓÐAR V ÖRUR Á TILBOÐI Gefðu gjöf sem fegrar og hlýjar. Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16, sunnudaga 12-16, www.topphusid.is Aðalsteinsson vin minn sem gera hana einstaka.“ Þú hefur ekkert farið að safna steinum í kjölfarið? „Jú, þú getur rétt ímyndað þér, ég fer ekki í göngutúr núna án þess að vera með nefið ofan í jörðinni. Á borð- stofuborðinu hjá mér núna er full askja af kúlulaga steinum sem ég hef tínt upp á síðkastið. Hver veit nema ég verði orðinn steinasafnari fyrir alvöru eftir örfá ár,“ segir Þor- grímur og viðurkennir að hann og Petra hafi náð vel saman því sjálf- ur þekki hann söfnunaráráttuna vel. „Konan mín veltist um af hlátri þegar hún rifjar upp hvað leynist í kössum uppi á háalofti. Gamlir tapp- ar, eldspýtustokkar, frímerki og ég á fermingarservíetturnar mínar.“ Færri vita að auk bókarinnar um Petru kemur út hvorki meira né minna en 720 blaðsíðna bók um Val 18. desember næstkomandi sem Þorgrímur skrifaði, en hann segist hafa gaman af því að ögra sjálfum sér og stökkva út úr rammanum, sem þekkt er orðið. Enginn getur gleymt árinu 2007 þegar Þorgrím- ur skrifaði bók sem þurfti töluvert hugrekki til að gefa út í litlu sam- félagi. Bókin fjallaði á hreinskilinn hátt um hvernig karlmenn gætu gert konuna sína hamingjusama og Þorgrímur fékk mikil viðbrögð; þar á meðal póst frá alls kyns ólíku fólki sem þakkaði honum. „Ég sem skrifaði þessa bók veit náttúrulega að maður gerir ekki aðra hamingjusama. Ef ég myndi skrifa þessa bók í dag yrði hún allt öðru- vísi, ég er öðruvísi stemmdur. En ég er samt mjög stoltur af henni. Það næsta sem ég geri hvað þetta varð- ar er að skrifa sjónvarps- þætti um þessi mál, sem ég er reyndar búinn að, en mig langar til að selja þá til Bandaríkj- anna en ekki hérlendis.“ Men to men er vinnuheiti þeirra þátta og í þeim fjallar Þorgrímur um allt það sem karlmenn þora ekki að tala um opinberlega. „Þættirnir eru á svip- uðum nótum og bókin. Sökum anna hef ég ekkert gert með þá en langar núna að fara að dusta rykið af þessu verkefni. Að komast inn á erlendan markað er svo eins og að koma úlf- alda í gegnum nálarauga en þegar maður á eitthvað sem maður hefur trú á þá hættir maður ekki og hver veit nema það verði börnin mín sem verði rík af þessu.“ En verður Þorgrímur með barnabók fyrir næstu jól? „Jú, ég stefni á að vera með barnabók á næsta ári enda sakna ég þess að fara í skóla og hitta krakkana því það er bæði nærandi og gaman. Börn eru svo fölskvalaus, einlæg og heiðar- leg. Maður verður að tala frá hjartanu og þau skilja það. Ég býst við að vera áfram á andlegum nótum eins og ég var í Þokunni.“ juliam@frettabladid.is Framhald af forsíðu Í gömlu verbúðunum á Granda- garði við höfnina í Reykjavík hafa að undanförnu sprottið upp gall- erí, vinnustofur og verslanir þar sem íslenskir listamenn og hönn- uðir vinna, sýna og selja verk sín. Ragnheiður Guðjónsdóttir mynd- listarkona reið á vaðið og flutti inn í hrátt húsnæðið fyrir þrem- ur árum. „Síðan fór að fjölga hérna fyrir um einu og hálfu ári og nú eru hér fimm listamenn og hönnuðir, auk þess sem sjötta rýmið verður opnað fljótlega,“ segir Ragn heiður. „Svo er Gall- erí Grandi hérna og þar fást alls konar vörur eftir íslenska lista- menn. Þetta er að verða heilmik- ið listasamfélag hérna hjá okkur.“ Ragnheiður segir þó ekki mikið um að fólk kíki við á Granda- garðinum. „Það virðast ekki marg- ir vita af þessu, eða þá að fólk nennir ekki að labba hingað. Hér er samt nóg af bíla stæðum, svo það ætti ekki að standa heimsóknum fyrir þrifum, og við tökum vel á móti öllum sem kíkja við. Sumir virðast vera hræddir um að trufla okkur við vinnuna en það er mesti misskilningur. Við erum einmitt hér til að taka á móti fólki.“ Það er fleira en listamanna- verkstæði við Grandagarðinn. Á Grandagarði 8 er Víkin Sjóminja- safn til húsa og á morgun verður þar haldinn jólamarkaður sem listamennirnir munu nýta til að kynna vörur sínar. Markaðurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 17. Þar verður selt íslenskt handverk og list munir, harmóníkuleikari skemmtir gestum og boðið verður upp á jóla- föndur fyrir börnin ásamtrjúkandi kaffi og með því á kaffihúsinu. Ingibjörg Áskels dóttir, sviðsstjóri Sjóminjasafnsins, segir þetta vera tilraun sem vonandi heppnist svo vel að jóla markaðurinn verði árlegur viðburður. fridrikab@frettabladid.is Jólastemning við Grandagarð Við Grandagarð í Reykjavík blómstrar blómlegt listamannasamfélag í gömlu verbúðunum. Þar er líka Víkin Sjóminjasafn og á morgun verður jólamarkaður þar sem jólaandinn svífur yfir vötnum. Föndur fyrir börnin og dillandi harmóníkuleikur gefur tóninn. Ragnheiður Guðjónsdóttir við vinnustofuna í Grandagarði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sígildar jólaperlur verða fluttar í Seltjarnarneskirkju í kvöld klukkan 17. Fram koma Þóra H. Passauer, Katla Björk Rannversdóttir, Guðrún Helga Stefánsdóttir og Halldór Unnar Ómarsson. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.