Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 92
10. desember 2011 LAUGARDAGUR64
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Dagskrá
8.30 21st Century Policies for Innovation
Andrew Wyckoff, forstöðumaður vísinda- tækni- og iðnaðarmála hjá Efnahags- og
framfarastofnuninni (Director of Science, Technology and Industry, OECD)
9.10 Hvað geta háskólar lagt til verðmæta- og nýsköpunar?
Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands
9.30 Vaxtargreinar atvinnulífsins næstu 20 ár
Orri Hauksson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
9.50 Sjónarhorn og stefna Vísinda- og tækniráðs
Guðrún Nordal formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
10.00 Sjónarhorn og stefna Vísinda- og tækniráðs
Sveinn Margeirsson, tækninefnd Vísinda- og tækniráðs
10.10 Umræður
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
Morgunmatur frá kl. 8.15. Allir velkomnir.
Skráning á rannis@rannis.is
Haustþing Rannís 2011
Vísindi og nýsköpun til vaxtar
14. desember kl. 8.30 - 10.30 á Grand hótel Reykjavík
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Krossgáta
Lárétt
1. Sérstakt ílát til að sjóða lítið grey (9)
5. Sjóskrímslasjór er grjóthart saltvatn (10)
10. Lýsi eftir stjörnubörmum, náttúrulega
bökuðum (9)
11. Öskuréttur og orðljótur skipstjóri (8)
12. Geri samning um punkt (3)
13. Hellingi stolið, þýfið allt í sama lit (7)
15. Gefa eftir að hvíla (8)
16. Á fætur, ég? Slappið af ... (5)
17. Drauma drepi á langri leið (7)
18. Hrottahugur veit á ósvífni (8)
19. Hinir langdrukknu villast í bjórþoku (6)
20. Friðarblómi sleginn koparljóma (8)
22. Honum Agnari er áskapað að ýkja (7)
25. Ofvöxnum búningsklefum lýst sem
skrauthýsum (10)
28. Set ár í garðinn, þá er fjandinn laus (9)
29. Dauður rölti ég fyrstur inn (12)
31. Agneta risin til geistlegra metorða? (7)
33. Varðandi bókhaldið vísa ég á
endurritunina (13)
34. Kjánaflóð kallar á léttari hjól undir bílinn (8)
35. Leiðsla veldur kynusla (5)
37. Næ bata fyrir blaður en aðallega búðing (6)
38. Spottaspilið boðar leikslokin (10)
39. Kvikindi koma saman, það er
mest um vert (9)
Lóðrétt
1. Tengir braggabuslið og
skemmuskarðið (10)
2. Komast í kvosina í grenndinni (10)
3. Hvorki nógu gamalt né
gætilega brúkað (6)
4. Festi fóðrar með ávöxtum, þeir eru af
ætt náttskugga (7)
5. Boldangsbrandar þykja merkileg vopn (10)
6. Sljór stundar dauðyfladúra (9)
7. Áfall í ástarleik (10)
8. Munda snara og fingrafima (10)
9. Beinið setur lim í liffærabankann (12)
14. Lífshlaup gæðinga (8)
17. Þessi öskur hljóma sem
ljúfasta tónlist (11)
21. Litla kisan kallast Broddbaunin (9)
22. Oft leiða orð manna til
verstu glæpanna (8)
23. Ruglað og tætt goð njósnar um
napran vind (11)
24. Von hún ljómi, blessunin, slíkur er
fagurgalinn (10)
26. Fleiri íslensk fjöll en eitt eru kennd við
hæstu stöðu sólar (9)
27. Sármeiðið hinn falska Eið (9)
30. Rifta staðfestum sáttmála og tæma bílinn (7)
32. Miða út bækistöð og bekk (7)
36. Blað er bólstur (3)
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10 11
12
13 14 15
16
17
18 19
20 21 22 23
24
25 26 27 28
29 30 31 32
33
34
35 36 37
38 39
T Á N I N G S A Þ Ó M E N N I S
A A A N Í Ð Þ U N G T I Æ P
F G U A V N Í Ð L Á
S Ö L U T U R N A G L Í M U F L O K K
A A N R R A A A N O
M A K K A R Ó N A V B X S N
A L B T N E I K V Æ Ð I O U
R I E A N G R S K Ó F
S P Ö L U R A F T A N I N N K E
M P G P R F Á K A L L
Á U U U H Á L E N D I Ð L
L E M Ú R I N N M I A I V
Þ I T S U L T U G E R Ð I N A
Ó L G U N N I N R S T N
F R N S T A Ð A L F R Á V I K A
I Á Y K L R O T B L
A Ð A L B L Á B E R R V O Ý
U B K G L A M B A G R A S
V A N D R A T A Ð I O I G I A
A R R F L Æ Ð I L Í N A N
A Ð V E N T U -
K R A N S
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist náttúrufyrirbæri
sem flestir Íslendingar kannast við. Sendið lausnarorðið fyrir 14. desember
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „10. desember“.
Lausnarorð síðustu viku var
aðventukrans.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum
og fær vinningshafi
gjafakörfu frá Te og kaffi
að verðmæti 5.000 kr..
Vinningshafi síðustu viku
var Ingveldur Gunnars-
dóttir, Akureyri.
Á þessum degi fyrir réttum 44 árum, hinn 10. desem-
ber árið 1967, lést sálar-
tónlistarmaðurinn Otis Redding
í flugslysi. Hann var aðeins 26
ára en hafði um nokkurra ára
skeið verið á uppleið í tónlistar-
bransanum.Redding hafði gefið
út nokkur vinsæl lög og samið
risasmellinn „Respect“ sem
Aretha Franklin hafði gert
ódauð legan.
Þetta sama ár hafði frægðar-
sól Reddings risið enn hærra
og hann hafði náð eyrum hvítra
ungmenna, meðal annars á
hinni goðsagnakenndu tónlistar-
hátíð Monterey Pop Festival, þar
sem hann kom fram ásamt Jimi
Hendrix, Janis Joplin, The Who
og fleirum.
Eftirminnilegur flutningur
hans á lokalaginu „Try a Little
Tenderness“ tryllti áhorfenda-
skarann og Redding virtust allir
vegir færir.
Hann sneri aftur til Memphis,
þar sem hann hélt áfram að
semja lög og taka upp.
Eitt laganna sömdu Redd-
ing og gítarleikarinn Steve
Cropper saman, en textinn
byggði á heimsókn söngvarans
til Sausalito í Kaliforníu þar
sem hann átti góða kvöldstund
við að fylgjast með skipum
koma og fara um flóann. Lagið
var „(Sittin’ on) The Dock of the
Bay“.
Lagið var ólíkt flestu öðru
sem Redding hafði áður gert og
markaði stefnubreytingu í tón-
smíðum hans.
Hinn 8. desember lauk upp-
tökum, nema að Redding hafði
ekki klárað textann. Í upptök-
unum brá hann því á það ráð að
blístra síðasta erindið í laginu
og hugðist bæta því við upp-
tökuna síðar.
Ekki varð honum af því,
vegna þess að hann var allur
tveimur dögum síðar í ísköldu
vatninu rétt hjá Madison í Wis-
consin. Orsakir slyssins, þar
sem sjö létust af þeim átta
sem voru um borð, voru aldrei
skýrðar, en slæmt veður var
þessa nótt.
Fráfall Reddings var mikill
missir fyrir tónlistar heiminn,
en skömmu síðar, í upphafi
árs 1968, var platan gefin út.
„The Dock of the Bay“ skaust
upp á topp vinsældalista, með
blísturs kaflanum sem Redding
hafði hugsað sér að skipta út.
Þetta var í fyrsta sinn sem tón-
listarmaður hafði náð toppnum
eftir andlátið.
Síðan þá hefur Otis Redding
og hans verk, sérstaklega „The
Dock of the Bay“, verið einn
af hornsteinum bandarískrar
dægur tónlistar.
- þj
Heimildir: History.com og Wikipedia.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1967
Otis Redding dó í flugslysi
ásamt sex öðrum
Goðsögn sálartónlistarinnar féll frá rétt áður en helsti smellurinn kom út.
OTIS REDDING 44 ár eru í dag frá því
að hann lést, en hann öðlaðist meiri
frægð eftir andlátið en hann naut
nokkru sinni á meðan hann lifði.
alla sunnudaga klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn – og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur