Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 94
10. desember 2011 LAUGARDAGUR66
Elskulegur faðir okkar, tendafaðir,
afi og langafi,
Sigurður Hafsteinn
Halldórsson
húsasmiður, Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, mánu-
daginn 5. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 13.
desember kl. 13.00.
Hrefna Sigurðardóttir Rúnar Benediktsson
Svava Sigurðardóttir Ævar Ingi Guðbergsson
Erna Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Unnusti minn, faðir, afi,
bróðir okkar og mágur,
Hallur Bergsson
húsasmiður,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn
7. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Tcvetanka Peeva
Lína Peeva
Sunna Björg Sigfríðardóttir
Vaka Agnarsdóttir
Þorkell Bergsson Ásta Ingólfsdóttir
Birna Bergsdóttir
Björgvin Bergsson Hafdís Sigurðardóttir
24 tíma vakt
Davíð H. Ósvaldsson
S: 896 8284
Óli Pétur Friðþjófsson
S: 892 8947
Sími 551 3485
ÞEKKING –REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Elskuleg móðir okkar, dóttir og systir,
Vera Siemsen
hjúkrunarfræðingur,
Lágholti 9, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
14. desember klukkan 13.00.
Helgi Siemsen Sigurðarson
Ólafur Siemsen Sigurðarson
Guðmundur Siemsen Sigurðarson
Gústav Magnús Siemsen
Kristín Siemsen Ásbjörn Sigurgeirsson
Ólöf Guðfinna Siemsen Baldur Bjartmarsson
Tilkynningar um
merkis atburði,
stórafmæli og útfarir má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Séra Árni Bergur skipar sérstakan
sess í hugum sóknarbarna sinna og
reyndar langt út fyrir raðir þeirra.
Hann var afar vinsæll prestur,“ segir
Birgir Arnar, formaður sóknarnefnd-
ar Áskirkju. Tilefnið er að málverk
af séra Árna Bergi verður afhjúpað
í Áskirkju á morgun. Hann var þar
sóknarprestur í 25 ár og hefði orðið
sjötugur fyrr á þessu ári en lést 2005.
„Það var ákveðið í byrjun þessa
árs að láta mála mynd af séra Árna
Bergi og á aðalsafnaðarfundi í apríl
var formlega tilkynnt að búið væri að
stofna sjóð í þeim tilgangi. Í hann hafa
runnið frjáls framlög sóknarbarna og
annarra sem þekktu séra Árna Berg,“
lýsir Birgir. „Hann segir ótrúlega vel
hafa gengið að safna fé til þessa verk-
efnis, miðað við árferðið. „Það vantar
bara herslumun sem við brúum tíma-
bundið með láni úr okkar gluggasjóði
en tökum ekki af sóknargjöldum til
kirkjunnar,“ segir hann.
Hver tók svo að sér að mála mynd-
ina? „Hann heitir Stephen Lárus,“
svarar Birgir. „Stephen er sonur lista-
konunnar Karólínu Lárusdóttur og
hefur sérhæft sig í portrettmálverk-
um. Svo skemmtilega vill til að hann
býr í sókninni okkar.“
Áskirkja var vígð 11. desember
1983. Afhjúpun listaverksins ber
því upp á vígsluafmælisdag kirkj-
unnar. „Þetta verður hátíð sem bæði
systkini séra Árna Bergs og afkom-
endur hans taka þátt í,“ segir Birgir.
„Byrjað verður með messu klukkan
11 þar sem þeir séra Sigurður Jóns-
son sóknar prestur og herra Karl
Sigurbjörns son, biskup Íslands, þjóna
fyrir altari. Síðan mun Einar Sigur-
björnsson prófessor flytja predik-
un og fluttur verður sálmur við lag
Þorkels Sigurbjörns sonar tónskálds.
Fermingar börn lesa ritningarlestra
og Guðbjartur Hákonarson, barna-
barn Árna Bergs, leikur einleik á
fiðlu. Eftir messuna verður svo athöfn
í safnaðarheimilinu þar sem mál-
verkið verður afhjúpað og þar verður
boðið upp á veitingar.“
Að sögn Birgis hefur málverkinu
verið valinn staður í stofu kirkjunn-
ar. Þar hangir einnig málverk af séra
Grími Grímssyni, fyrsta sóknarpresti
Áskirkju.
Birgir tekur fram að kirkjur lands-
ins séu illa staddar fjárhagslega um
þessar mundir. Því sé það þakkarvert
hversu vel söfnun í málverkssjóðinn
hafi gengið. „Við vorum lengi vel tví-
stígandi yfir því hvort þetta mundi
ganga,“ segir hann. „Við hefðum ekki
getað þetta nema fyrir örlæti og vel-
vilja þeirra sem hafa gefið fé til verks-
ins.“ gun@frettabladid.is
ÁSKIRKJA: MÁLVERK AFHJÚPAÐ AF SÉRA ÁRNA BERGI SIGURBJÖRNSSYNI
SKIPAR SÉRSTAKAN SESS Í
HUGUM SÓKNARBARNA SINNA
FORMAÐUR SÓKNARNEFNDAR ÁSKIRKJU „Við hefðum ekki getað þetta nema fyrir örlæti og
velvilja þeirra sem hafa gefið fé til verksins,“ segir Birgir Arnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
51
Nóbelsverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn í
Stokkhólmi þann 10. desember 1901 á fimm
ára dánarafmæli Alfreds Nobel. Þá voru afhent
verðlaun fyrir eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði og
bókmenntir auk friðarverðlauna.
Alfred Nobel var sænskur uppfinningamaður
sem meðal annars fann upp dínamítið og
áskotnuðust mikil auðæfi fyrir uppfinningar sínar. Í
erfðaskrá sinni mælti hann svo fyrir að fjármunum
hans yrði varið til að verðlauna árlega þá sem
„undanfarið ár hafa lagt mest að mörkum til góðs
fyrir mannkynið.“ Í erfðaskránni var engin skýring á
þessari ákvörðun Nobels, en almannarómur hefur
löngum talið að hún hafi sprottið af slæmri sam-
visku hans vegna þeirra hörmunga sem sprengi-
efnin sem hann fann upp leiddu yfir mannkynið.
ÞETTA GERÐIST: 10. DESEMBER 1901
Nóbelsverðlaun afhent í fyrsta sinn
Merkisatburðir 10. desember
1924 Rauði kross Íslands er stofnaður í Reykjavík. Fyrsti for-
maðurinn er Sveinn Björnsson, síðar forseti Íslands.
1936 Játvarður 8. Englandskonungur undirritar afsögn sína.
1948 Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna er samþykkt.
1955 Halldór Laxness veitir Bókmenntaverðlaunum Nóbels við-
töku í Stokkhólmi.
KENNETH BRANAGH, leikari og leikstjóri, er 51 árs.
„Það er mjög undarlegt að fólk skuli vera grimmast
við þá sem það elskar mest.“
Innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Hjálmarsdóttur
Waage
Hjúkrunarheimilinu Eir, áður til
heimilis að Laugarásvegi 28, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 2 N á Hjúkrunar-
heimilinu Eir fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður S. Waage
Kristín H. Waage Knútur Signarsson
Margrét G. Waage
Sigrún Waage Franz Ploder
Hendrikka G. Waage
barnabörn og barnabarnabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR