Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 134

Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 134
10. desember 2011 LAUGARDAGUR106 Styrking • Jafnvægi • Fegurð CC Flax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaup og Krónunni. www.celsus.is Mulin hörfræ – Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum JÓL ÁN AUKAKÍLÓA - Frábær árangur - Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan. Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa og tryggja góða starfsemi ristilsins. Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3 PERSÓNAN Viktoría Jóhannsdóttir Hjördísardóttir Aldur: 26 ára. Starf: Nemi í listfræðum. Búseta: Vesturbærinn Fjölskylda: Í sambúð með Elíasi Björnssyni kerfisfræðingi og saman eigum við Örnu Dís, sex ára. Stjörnumerki: Tvíburi. Viktoría er einn af stofnendum hins glænýja Artíma gallerís. „Þessi plata er ófrávíkjanlegur þáttur í jólahaldi minnar fjölskyldu,“ segir Haukur Morthens, sonur og alnafni söngvarans góðkunna. Ný, endurhljóðblönduð jólaplata með föður hans, Hátíð í bæ, hefur verið gefin út. Hún var tekin upp í Kaupmannahöfn 1964, sett á vínyl í Noregi og kom út sama ár hér á Íslandi við mjög góðar undirtektir. Haukur yngri sat sjálfur fyrir á umslagi plötunnar, á snjósleða fyrir framan jólatré með pakka í kringum sig, eins og aðdáendur þessarar sígildu plötu ættu að kann- ast við. „Þetta umslag stendur mér mjög nálægt. Ég hef sagt meira í gamni en alvöru að þetta var fyrsta og eina giggið sem ég fékk sem fyrirsæta,“ segir Haukur og hlær en hann var tveggja ára þegar myndatakan fór fram á heimili hans á Hjarðarhaganum í Reykja- vík. „Þessi ágæti ljósmyndari sem pabbi þekkti vel kom heim og tók þessa mynd heima í stofu og ég fékk sleðann og leikföngin að launum. Þetta var mjög góð borgun á þessum tíma.“ Haukur er núna 49 ára og starfar sem arkitekt í Ósló, en hann á rætur að rekja til Noregs því Haukur faðir hans var norskur í aðra ættina. Haukur yngri hefur búið meira og minna í útlöndum síðastliðin 25 ár, í Berlín, Svíþjóð og Noregi. Hann og eldri bræður hans tveir, Heimir og Ómar sem búa í Reykjavík, starf- rækja fyrirtækið Faxafón sem er með útgáfurétt á hluta af lagasafni föður þeirra, sem lést fyrir nítján árum. Þá fékk móðir þeirra útgáfu- réttinn en eftir að hún féll frá tóku bræðurnir við og stofnuðu Faxafón til að halda utan um arfleifð föður síns. „Þessi jólaplata var orðin algjörlega ófáanleg og ákveðnir aðilar höfðu sýnt þessu áhuga,“ segir Haukur en á endanum var samið við fyrirtækið Frost Music. Hann á sjálfur tvö börn, Evu Birnu sem er níu ára og Gústaf Hauk Morthens, sem er sex ára. Kona hans er norsk og heitir Hanne Torkildsen. Haukur segist sjálfur vera algjör- lega laglaus en sömu sögu er ekki að segja um börnin. „Ég hef trú á því að hann geti sungið betur en ég og við höfum fengið það staðfest að hún heldur lagi. Skemmtana genið hefur alla vega skilað sér áfram.“ freyr@frettabladid.is HAUKUR MORTHENS: FYRSTA OG EINA GIGGIÐ MITT SEM FYRIRSÆTA Fékk snjósleðann og alla pakkana fyrir að sitja fyrir ENDURÚTGÁFA Sonur og alnafni söngvar- ans sáluga, Hauks Mort- hens, sat fyrir á heimili sínu í Hjarðarhaganum vegna jólaplötunnar Hátíð í bæ sem kom út 1964. Hún hefur núna verið endurútgefin. Leikarinn Kit Harington átti frí frá tökum á sjónvarpsþáttunum Game of Thrones síðastliðið fimmtu- dagskvöld og sótti tónleika með hljómsveitinni Mammút á Hressó. Harington þótti bæði kurteis og geðþekkur og lét lítið fyrir sér fara. Fréttablaðið hafði eftir vaktstjóra á Hressó að Harington hefði verið afskaplega kurteis og að það hefði samstarfsfólk hans líka verið. Það hefði fljótt kvisast út að leikarinn væri staddur á staðnum og vildi fólk þá taka í höndina á honum, knúsa hann og hrósa honum fyrir góðan leik í skemmtilegum sjónvarps- þáttum. Að sögn vaktstjórans þótti Harington gaman hvað Íslendingar voru hlýir og gefnir fyrir faðmlög. Harington og vinir hans yfirgáfu Hressó skömmu eftir að tón- leikunum lauk en hann gaf sér þó tíma í spjall og myndatökur áður. Erna María Þrastardóttir var ein þeirra er hittu leikarann og ber hún honum vel söguna. „Ég hef aldrei horft á Game of Thrones en vinkona mín er mikill aðdáandi og ég tók myndina fyrir hana. Hann var mjög almennilegur og fannst lítið mál að láta smella af sér mynd,“ segir Erna. Harington leikur persónuna Jon Snow í Game of Thrones, en þættirnir hófu göngu sína á Stöð 2 í haust. Hann fer einnig með hlut- verk í kvikmyndinni Silent Hill: Revelation 3D sem er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári. Þar leikur hann móti Sean Bean, en þeir leika einmitt feðga í Game of Thrones. - sm Kit Harington djammaði á Hressó VINSÆLL Leikarinn Kit Harington sótti tónleika á Hressó á fimmtudagskvöldið. Hann þótti kurteis og almennilegur og hrósuðu gestir staðarins honum fyrir góðan leik í Game of Thrones. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI „Ég ætla að taka fjölskylduna með mér, setja alla upp í bílinn og keyra af stað,“ segir Regína Ósk sem er á leiðinni í tónleikaferðalag um landið. Hún ætlar að syngja á sjö fjölskyldu- og jólatónleikum og verða þeir fyrstu í Dalvíkur- kirkju á morgun en þeir síðustu í Lindakirkju í Kópavogi 21. desember. Maðurinn hennar, Svenni Þór, ætlar að spila með henni og syngja, auk þess sem níu ára dóttir hennar, Aníta, grípur í hljóðnemann. Hún söng einmitt með mömmu sinni lagið Bráðum koma jólin á jólaplötunni sem Regína Ósk gaf út í fyrra. „Hún er ekki bara þarna af því að hún er dóttir mín. Hún er rosalega góð og mjög efnileg. Hún verður örugglega betri en ég þegar hún verður stór.“ Söngkonan á aðra dóttur sem er álíka efnileg. „Litla stelpan kemur örugglega með eftir svona eitt til tvö ár.“ Einn barnakór verður á hverjum viðkomustað og hafa krakkarnir verið að æfa á fullu síðastliðinn mánuð. Þrír kóranna voru stofnaðir sérstaklega fyrir tón- leikana. „Ég er ekkert smá ánægð með það,“ segir hún. Regína Ósk hefur síðastliðin tvö ár sungið í Lindakirkju á afmælis- degi sínum, 21. desember en ákvað að prófa tónleikaferð um landið í þetta sinn. „Ég fór bara með Frost- rósum í fyrra og hafði engan tíma til að fylgja plötunni eftir. Núna verð ég í þriðja skiptið í Linda- kirkju. Í staðinn fyrir að halda afmæli held ég tónleika. Þetta er orðin smá hefð hjá fjölskyldunni.“ Nýverið lauk hún söng sínum með Frostrósum þetta árið með sjö tónleikum í Hörpunni. „Það var geðveikt og allt öðruvísi. Við vorum svo mikið nær fólkinu en áður. Maður finnur svo mikið fyrir fólkinu.“ -fb Regína Ósk með fjölskylduna í tónleikaferð Á LEIÐ Í TÓNLEIKAFERÐ Regína Ósk er á leiðinni í tónleikaferð um landið ásamt fjölskyldu sinni og tveimur hljóðfæra- leikurum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fyrri sýning Jólauppistands Mið- Íslands og hins finnska André Wickström fór fram í Þjóðleikhús- kjallaranum á fimmtudagskvöldið og var sýningin svo vel sótt að bæta þurfti við stólum fyrir gesti. Nokkur þekkt andlit voru á meðal áhorfenda og má þar nefna sjón- varpskonuna Margréti Erlu Maack, borgarfulltrúann Diljá Ámundadóttur, Steinþór Helga Arnsteinsson, umboðsmann Hjaltalín, Hugleik Dagsson listamann, Þórarin Eldjárn rithöfund og loks Nilla sem tók á móti gestum í miðasölunni. Þá voru fréttamennirnir Breki Logason, Andri Ólafsson og Höskuldur Kári Schram einnig í salnum. Uppistandið þótti vel heppnað og var meðal annars mikið hlegið yfir leikþætti Jóhanns Alfreðs sem las upp samtöl af vefsíðunni Barnaland.is. Finninn André Wickström þótti einnig glimrandi góður en brandarar Dóra DNA fóru fyrir brjóstið á einum áhorfandanum sem lét grínistann heyra það meðan á atriði hans stóð. Dóri var þó fljótur að ná vopnum sínum á ný og kláraði sjóvið með stæl. - sm FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.