Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 102
10. desember 2011 LAUGARDAGUR74
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. varsla, 6. samtök, 8. árkvíslir, 9.
óðagot, 11. tvíhljóði, 12. einkennis,
14. tipl, 16. klukka, 17. leyfi, 18. vilj-
ugur, 20. til, 21. form.
LÓÐRÉTT
1. vera með, 3. í röð, 4. gera óvand-
lega, 5. vefnaðarvara, 7. trúgjarn, 10.
sjór, 13. tilvist, 15. svífa, 16. upp-
hrópun, 19. vörumerki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vakt, 6. aa, 8. ála, 9. fum,
11. au, 12. aðals, 14. trítl, 16. úr, 17.
frí, 18. fús, 20. að, 21. fasi.
LÓÐRÉTT: 1. hafa, 3. aá, 4. klastra,
5. tau, 7. auðtrúa, 10. mar, 13. líf, 15.
líða, 16. úff, 19. ss.
Velkomin til
Fallna skógar
Höfuðborg
skógarhöggs
á Íslandi
Hehehe... he
he... er þetta
hææægggt....
hihi...
Er hann að hlæja
að eyrunum á mér?
Hann getur ekki verið
að hlæja að nýju
eyrunum mínum?
Nei,
nei,
nei!
Það eru
eyrun!
Mögu-
lega!
Pierce! GVUÐMINNGÓÐUR!
Dísa ætlaði að hætta
með þér í morgun
en við töluðum lengi
saman og ég
sannfærði hana um að
það væri enn von í þér
og hún skipti algerlega
um skoðun og nú er
hún í Smáralind að
kaupa bol handa þér
sem hún segir að passi
vel við augun á þér...
Bíddu...
ha?
Sambönd eru
eins og pylsur...
það er best
að vita ekkert
hvernig þau
verða til.
Ókei, ég veit
að þetta er
stelpudæmi og
það er allt gott
og vel...
... en fjörutíu og sjö
bækur um
einhyrninga??
Eins og þú
segir, þetta
er stelpu-
dæmi.
almáttugur!
Mörgum er uppsigað við hinn svokallaða fjórflokk. En staðreyndin er sú að við
búum ekki við fjögurra flokka kerfi, heldur
fimm. Fimmti flokkurinn skiptir reglulega
um nafn og sjálfsmynd en hann er alltaf
athvarf þeirra sem vilja vera partur af
kerfinu en finna sig ekki í hinum hólfunum.
Fimmti flokkurinn, hvort sem hann heitir
Borgaraflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn,
Kvennalistinn, Þjóðvaki eða Borgarahreyf-
ingin, verður síðan smám saman samdauna
hinni pólitísku ólykt og tekur upp alla ósið-
ina sem honum var stefnt gegn í upphafi,
ómálefnalega orðræðu og hið séríslenska
kosningasvindl sem flokkaflakk þing-
manna á miðju kjörtímabili er. Síðasta
tilraunin, Hreyfingin, er skólabókar-
dæmi. Ekki hafði hún lengi átt fulltrúa
á þingi áður en þar upphófust dylgjur
um geðræn vandamál þingmanna og
flokkaflakkið byrjaði.
ÞESS vegna er kominn tími á
nýjan, ferskan og frumleg-
an fimmtaflokk. Málefnin
þurfa ekki einu sinni að
liggja fyrir, það er nóg að
hann sé í eigin huga ferskur
og frumlegur ólíkt öllum
flokkunum sem hingað til
hafa farið fram úldnir og
ófrumlegir að eigin mati.
Flokkurinn verður leiddur af skilgetnasta
afkvæmi íslenskra stjórnmála 20. aldar-
innar, flokkaflakkaranum Guðmundi Stein-
grímssyni Hermannssonar Jónassonar.
Hann er greindarpiltur sem gott eitt vakir
fyrir, en þessi aðferðafræði mun ekki duga
honum betur til að siðvæða íslenska pólítik
en þeim fjölmörgu sem reynt hafa hana á
undan honum.
AÐ ætla að nota fimmta flokkinn til að bæta
íslenska pólitík hefur reynst ámóta gagnlegt
og að hreinsa drullupoll með því að bæta út í
hann pínulitlu af fersku vatni. Góðu áformin
verða undantekningalaust hinni gerspilltu
pólitísku ómenningu að bráð. Enn er mulið
undir alþingismenn, þeir hafa jafnvel fengið
aðstoðarmenn á launum hjá almenningi svo
þeir komist í jólafrí í byrjun desember og
ekki hefur verið hróflað við eftirlaununum
sem þeir skömmtuðu sér sjálfir og eru ekki í
neinu samræmi við það sem tíðkast hjá fólki
sem þarf að sjá fyrir sér með heiðarlegri
vinnu.
VIÐ þurfum ekki fleiri flokka á Alþingi. Við
þurfum ekki nýtt fólk á Alþingi. Það er full-
reynt. Við þurfum að jafna Alþingi við jörðu
og byggja nýtt stjórnkerfi frá grunni. Núver-
andi fyrirkomulag er þess eðlis að það eitt að
hafa áhuga á því að sitja á þingi gerir hvern
mann siðferðilega vanhæfan til þess.
Fimmti flokkurinn
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP