Fréttablaðið - 15.12.2011, Side 28
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR28
Umsjón: nánar á visir.is
Solidea sokkabuxur
fást í verslunum Lyfju
Lágmúla | Laugavegi | Smáralind | Smáratorg
Byltingarkennd
nýjung frá Solidea!
Redwellness sokkabuxurnar eru úr efni sem
innihalda steinefni sem gefa frá sér infrarauða geisla og
eykur blóðflæði undirliggjandi vefja og hefur einstaklega
góð áhrif á appelsínuhúð.
Personality - er fyrir konur í stærðum 16-30
Wonder model maman - Eykur vellíðan á meðgöngu
Selene, Naomi og Venere - hentar öllum konum
Breið vörulína sem
hentar öllum konum
Margir litir
103.973 TONN var heildarafli íslenskra fiskiskipa í nóvember.
VIÐSKIPTI Erlendir kröfuhafar
Kaupþings, Landsbanka og Glitnis
munu fá allt að 450 milljarða
króna af kröfum sínum greidd-
ar í íslenskum krónum á næstu
árum miðað við síðustu birtu
fjárhagsupplýsingar föllnu bank-
anna þriggja. Vegna gjaldeyris-
hafta verður ómögulegt fyrir þá
að breyta því fjármagni í erlend-
an gjaldeyri. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að til standi að
bjóða kröfuhöfunum útgönguleið
úr íslensku hagkerfi gegn því að
þeir bindi féð í ákveðinn tíma hér-
lendis.
Fulltrúar kröfuhafanna hafa
fundað með ráðherrum, þing-
mönnum og öðrum hagsmunaaðil-
um með það að leiðarljósi að finna
fjárfestingartækifæri fyrir þetta
fé hérlendis. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að þeir hafi einnig
þreifað sig áfram með kaup á ein-
stökum fyrirtækjum í huga. Á
meðal þeirra geira sem þeir horfa
hýru auga til er orkuiðnaðurinn.
Til viðbótar við þessa fyrirsjáan-
lega miklu krónueign erlendu
kröfuhafanna er aflandskrónu-
eign um 410 milljarðar króna.
Seðlabanki Íslands kynnti í síð-
asta mánuði svokallaða fjárfest-
ingarleið sem snerist meðal ann-
ars um að bjóða eigendum þessara
króna að fjárfesta hérlendis með
miklum afslætti. Til þess þurfa
þeir að koma með annað eins af
erlendum gjaldeyri inn í landið og
binda fjárfestingu sína hérlendis í
fimm ár.
Kröfuhafarnir vilja setja á fót
einhvers konar samstarfsvettvang
þar sem fundnar eru leiðir til að
koma þessu gríðarlega fjármagni
í fjárfestingar.
Árni Páll Árnason, efnahags-
og viðskiptaráðherra, segir að
verið sé að vinna að heildstæðri
áætlun sem muni meðal ann-
ars taka á því hvernig íslenskar
krónueignir kröfuhafanna verði
losaðar út úr íslensku hagkerfi.
„Við áttum okkur á því að það eru
útflæðisáhættur vegna þessa.
Seðlabankinn er að vinna að
greiningu á umfanginu og heild-
stæðri áætlun.“
Að sögn Árna Páls þarf ekki
sérstakan samstarfsvettvang svo
að kröfuhafarnir geti fjárfest hér-
lendis fyrir krónurnar sínar. „Þeir
fjárfestingarmöguleikar sem eru
í landinu eru auðvitað opnir fyrir
þetta fé ef það verður greitt beint
út úr þrotabúunum. Kröfuhafarnir
þurfa í sjálfu sér ekki að tala við
einn eða neinn um það.“
thordur@frettabladid.is
Landið troðfullt af
íslenskum krónum
Reiknað er með að kröfuhafar gömlu bankanna þriggja fái allt að 450 milljarða
króna greidda út í íslenskum krónum. Lítið um fjárfestingarmöguleika. Verður
líklega boðin útgönguleið úr íslensku hagkerfi ef þeir binda féð hér í nokkur ár.
RÁÐHERRA Árni Páll Árnason segir að verið sé að vinna að heildstæðri áætlun sem miði að því að íslenskar krónueignir verði
losaðar út úr íslensku hagkerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kröfuhafar Kaupþings, Landsbanka og Glitnis gera
ráð fyrir því að tapa 5.982 milljörðum króna á falli
bankanna þriggja. Þar af munu 5.245 milljarðar króna
lenda á erlendum kröfuhöfum. Þegar búið er að gera
upp við forgangskröfuhafa, sem eru nánast einvörðungu
innlánseigendur, eru áætlaðar endurheimtur annarra
kröfuhafa um 17-18% af þeim kröfum sem þeir lýstu í
búin. Þetta kemur fram í greiningu Houlihan Lokey, sem
hefur unnið mikið fyrir erlendu kröfuhafana, og hann
gerði í nóvember síðastliðnum. Heiti greiningarinnar er
„Icelandic Banks – who are the losers?“.
Mest verður tap kröfuhafa Kaupþings. Þegar búið
verður að greiða út forgangskröfur er reiknað með að
innlendir kröfuhafar búsins tapi um 223 milljörðum
króna. Greining gerir ráð fyrir að þeir muni fá 23% af
kröfum sínum til baka. Erlendir kröfuhafar Kaupþings
munu tapa um 2.295 milljörðum króna samkvæmt
greiningunni. Þeir munu fá 21% upp í kröfur sínar.
Hjá Glitni er gert ráð fyrir að aðrir kröfuhafar en inn-
lánseigendur muni tapa samtals 1.806 milljörðum króna.
Um 1.554 milljarðar króna af því tapi munu lenda á
erlendum kröfuhöfum en 252 milljarðar króna á inn-
lendum. Reiknað er með að 23% muni fást upp í kröfur
á Glitni.
Houlihan Lokey reiknar einungis með að 4% fáist upp
í almennar kröfur á Landsbankann þegar búið verður
að greiða allar forgangskröfur. Samtals er áætlað að
tap þeirra verði 1.658 milljarðar króna. Tæplega 1.400
milljarðar króna lenda á erlendum kröfuhöfum en inn-
lendir þurfa að taka á sig 262 milljarða króna.
Kröfuhafar föllnu bankanna þriggja tapa 6.000 milljörðum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI Á
HVERJUM MORGNI!