Fréttablaðið - 15.12.2011, Síða 35

Fréttablaðið - 15.12.2011, Síða 35
FIMMTUDAGUR 15. desember 2011 35 Þetta var fjölmenn mótmæla-ganga sem ég lenti óvart inni í fyrir nokkrum árum. Fólkið söng: „Aldrei aftur sterkt Þýska- land.“ Þetta var þó ekki í Varsjá, Moskvu, Aþenu, Prag eða í neinni þeirra mörgu borga Evrópu þar sem menn eiga vondar minning- ar um þýskan mátt. Þetta var í Þýskalandi. Og það í íhaldssöm- ustu stórborg landsins, München. Göngumenn sýndust upp til hópa vera þýskir. Ekkert land í veröld- inni hefur nokkru sinni gert upp við sögu sína með líkum hætti og Þýskaland. Pólsk krafa Ekkert ríki hefur heldur reynst jafn ófúst til að auka völd sín og það þýska nú. Eins og í mannlífinu vita menn að þeim er síst trúandi fyrir völdum sem mest sækjast eftir þeim. Þýskalandi er treyst- andi að þeirri reglu. Evrópumenn, ekki síst Pólverjar sem oftar en flestir aðrir hafa lent undir þýsku hernámi, krefjast þess nú að Þýskaland takist á herðar hlut- verk leiðtoga í álfunni. Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, kall- aði Þjóðverja um daginn hina ómissandi þjóð Evrópu. Hann lýsti þeirri undarlegu stöðu fyrir Pól- verja að óttast meira áhugaleysi Þýskalands en afl þess. Við stönd- um enn einu sinni frammi fyrir þýsku spurningunni. Mannskæð spurning Hennar hefur verið spurt með mismunandi hætti um aldir. Og svarað með nokkrum af verstu stríðum sögunnar. Staðreyndin er einfaldlega sú að nái þýska menn- ingarsvæðið saman myndar það til muna sterkustu einingu Evr- ópu. Þess vegna hafa öll stórveldi álfunnar um aldir haft það að markmiði að forða einingu þýsku- mælandi manna. Þetta hentaði líka oft þýskum ríkjum, stund- um Prússum, stundum Austur- ríkismönnum og svo framvegis. Hið sögulega hlutverk að sundra þýskum þjóðum féll síðast í skaut Margréti Thatcher. Fyrir rösk- um tuttugu árum reyndi hún að fá Sovétríkin með sér í lið til að koma í veg fyrir einingu Þýska- lands eftir fall Berlínarmúrsins. Svarið við þýsku spurningunni fannst hins vegar í því sem That- cher trúði ekki á frekar en margir á jöðrum álfunnar. Dýpkun Evr- ópusamrunans. Greiðsla fyrir söguna ESB hvíldi lengi á pólitísku for- ræði Frakka og efnahagslegum styrk Þýskalands. Díllinn var ein- faldlega sá að Þjóðverjar fengu að efnast gegn því að Frakkar fengju að vera stórveldi. Þegar Þjóð- verjar höfðu efnast svo mjög að þýski seðlabankinn fór að stjórna vöxtum í allri álfunni kröfðust Frakkar og fleiri þjóðir þess að þýska markið yrði lagt niður og evran stofnuð. Önnur Evrópuríki fengu þá aðild að seðlabankanum í Frankfurt, sem skipti um nafn og flutti í aðra götu. Þannig varð evran til. Þetta, sagði Kohl kansl- ari, svona prívat yfir pylsum og bjór, var síðasta afborgun Þjóð- verja af skuld stríðsins. Evruna vildu Þjóðverjar ekki en Kohl tók þetta á sitt breiða bak. Hann var síðastur þýskra kanslara til að muna sjálfur skelfingar stríðsins. Viðkvæmni hins sterka Nú sést glöggt hve mikið af völd- um Frakklands byggðist á þessum gamla díl við Þýskaland. Frakk- land var svona sterkt vegna síns þýska baklands. Jafnræði er nú ljóslega ekki lengur til staðar. Frakkar eiga ekki margra kosta völ þrátt fyrir snilli franska utanríkisráðuneytisins við að vefa þræði áhrifa um víðan völl. Þýskaland getur lifað án evrunn- ar. Frakkland eiginlega ekki. En Þýskaland þarf þó enn á Frakk- landi að halda. Og líka á Póllandi og öðrum nágrönnum sínum. Þó ekki væri nema sjálfs sín vegna. Þjóðverjar, allt frá íhaldsmönnum til sósíalista, eru nær allir áhuga- lausir um einmana þýskt stór- veldi. Hugmyndin ein vekur ang- ist. Þeir biðja því um ennþá nánari bönd við ríki Evrópu og sterkara ESB. Í þessari viðkvæmni hins sterka er að finna grunninn að því trausti sem nú má finna til Þýska- lands víða í Evrópu. Öðruvísi veldi Þýskaland er líka, og verður, stórveldi af öðru tagi en Banda- ríkin og Kína eru nú eða Bretland var. Nýleg saga landsins er svo skelfileg að hún á fáar hliðstæður nema helst í framgöngu Japana í Kína og Kóreu. Menn þurfa þó ekki að fara til Yasukuni-skríns- ins og safnsins í Tókýó til að sjá hve sérstætt uppgjör Þjóðverja við sögu sína er. Það nægir að fara til London, Brussel, Moskvu, Parísar eða Washington til að sjá dæmi um afsakanir og afflutning á skelfilegri sögu sem þjóðir um allar álfur ná sér seint af og munu aldrei gleyma eða fyrirgefa. Máttur sannleika Saga tuttugustu aldar og sekt þeirra seku er hins vegar til miðju í þýsku þjóðlífi og mennta- kerfi. Dóttir mín fékk sína fyrstu fræðslu um stríðið fimm ára gömul í leikskóla í Berlín. Í and- dyri nálægs barnaskóla hanga myndir af börnum úr hverfinu sem voru myrt fyrir þjóðerni sitt. Á ljósastaurum í hverfinu má lesa greinar úr þjóðernislögum nas- ista. Í gangstéttina eru greyptir skildir með nöfnum myrtra gyð- inga. Þetta er lifandi og daglegur veruleiki. Hann er skelfilegur en kennir um samtíðina ekki síður en fortíðina. Og kennir um margt af því sem mestu skiptir á okkar tímum. Markmið Þjóðverja í utanríkis- málum eru líka að hluta til önnur en algengast er. Því geta nágrann- ar þeirra fagnað. Og til þess geta Íslendingar litið. Þeir eiga trausta vináttu Þýskalands. Ekkert land í veröldinni hefur nokkru sinni gert upp við sögu sína með líkum hætti og Þýskaland. Þýska spurningin Þorsteinn Víglundsson fjallar í grein hér í blaðinu 13. desember um skýrslu okkar Ásgeirs Jónsson- ar um arðsemi orkusölu til stóriðju, sem unnin var fyrir fjármálaráðu- neytið. Hann spyr hvers vegna við lítum framhjá þeirri augljósu stað- reynd að arðsemi eiginfjár Lands- virkjunar hafi verið með besta móti miðað við almennt atvinnulíf hér á landi undanfarin ár, en látum nægja að skoða arðsemi heildarfjár fyrirtækisins (það er bæði eigin- fjár og lánsfjár). Skýringin á vali okkar er að Landsvirkjun nýtur ríkisábyrgðar á öllum skuldum. Arðsemi eiginfjár er gallaður mælikvarði þegar svo stendur á. Ríkisábyrgðin gerir það að verkum að erlent lánsfé fæst á lægri vöxtum en ella. Þá hefur ábyrgðin gert Lands- virkjun kleift að fjármagna fram- kvæmdir með hærra hlutfalli láns- fjár en öðrum fyrirtækjum hefði staðið til boða. Hvort tveggja veld- ur því að arðsemi eiginfjár er meiri en annars væri. Samanburður á arðsemi eiginfjár Landsvirkjunar og annarra fyrirtækja verður því marklítill að okkar dómi. Á hinn bóginn má færa rök fyrir því að eigandi sem er ábyrgur fyrir öllum skuldbindingum fyrirtækis geri lítinn greinarmun á eiginfé þess og skuldum. Þannig geti heild- ararðsemi gefið ágæta mynd af ávöxtun þess fjár sem Íslendingar leggja undir í rekstri Landsvirkj- unar. Í öllu falli eru ekki augljós- ir annmarkar á því að bera saman heildararðsemi Landsvirkjunar og annarra fyrirtækja. Af hverju var ekki horft á arð- semi eiginfjár Landsvirkjunar? Orkumál Sigurður Jóhannesson hagfræðingur Í DAG Jón Ormur Halldórsson dósent
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.