Fréttablaðið - 15.12.2011, Side 66

Fréttablaðið - 15.12.2011, Side 66
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR50 Myndlist ★★★ Nóvember Bjarni Sigurbjörnsson og Jón Óskar Reykjavík Art Gallery Það er húmor í viðmóti lista- mannanna Jóns Óskars og Bjarna Sigurbjörnssonar þegar þeir tala um sýningu sína í Reykjavík Art Gallery. „Tveir fyrir einn,“ segja þeir, rétt eins og um væri að ræða tilboð á hamborgurum í jólaös- inni. Það er gott að geta talað um listir, myndlist eða hvað sem það nú er, af léttleika. Fátt er meira þrúgandi en andaktugheit hvað varðar listir og menningu. Tveir fyrir einn eru orð að sönnu, því málverkin á sýning- unni eru öll unnin af listamönn- unum báðum sem vikum saman hafa unnið ofan í málverk hvors annars. Það má því líta á verkin sem tilraun til að brjóta upp eigin listsköpun. Bjarni Sigurbjörns- son er þekktur fyrir stór mál- verk þar sem kraftmikið litaflæði fyllir myndflötinn. Jón Óskar er löngu þekktur fyrir myndlist sína og hefur unnið í ýmsa miðla, þó heldur nær teikningu og þrykki en því flæðandi málverki sem Bjarni hefur unnið með. Þeir taka áhættu hér, útkoman er óviss áður en til handa er hafist og eins þarf ákveðið traust að vera til staðar til þess að hleypa öðrum inn á myndflöt verka sinna. Við fyrstu sýn eru málverkin allt að því yfirþyrmandi í lita- flæði, stærð og stórkarlaleg- um pensildráttum. Salarkynni eru í þrengsta lagi fyrir svo stór verk, gluggar eru engir og bakgrunnurinn hárauður. Ég er ekki frá því að þessi verk myndu njóta þess að fá dagsbirtu og aukið rými. Þegar betur er að gáð birtast margvíslegar mynd- ir á myndfletinum og samspil þrykks, teikningar og pensild- rátta er áhugavert. Jón Óskar á að einhverju leyti rætur sínar að rekja til nýja málverksins frá því í kringum 1980, og þá kannski helst til þess geira þar sem textar og fígúrur voru ríkjandi á myndfleti í frásagnarkenndu málverki. Hér birtast bæði fígúrur og stöku orð. Bjarni aftur á móti sækir sitthvað til vinnubragða fyrr á tuttugustu öldinni, til abstrakt málverks sem byggði á litaflæði þar sem mark- visst var unnið með tilviljun. Það hljómar mótsagnakennt, en dæmi um slík vinnubrögð eru til dæmis fræg málverk Jacksons Pollock sem sletti málningu á myndflöt- inn. Bjarni hefur unnið töluvert á plexígler sem hefur gert birtu að hluta af verkum hans, en þessi verk eru unnin á tréplötur. Það er sterkur heildarsvipur á sýningunni, málverkin eru nokkuð ólík innbyrðis þrátt fyrir áþekk vinnubrögð í verkunum öllum. Litaskali er breytilegur og áherslur listamannanna koma fram á mismunandi hátt, hér er um áhugaverða tilraun að ræða. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Litrík og kraftmikil málverk þar sem höfundareinkenni listamannanna tveggja spila saman á skemmtilegan hátt. Án efa myndi frekari samvinna leiða til markvissari niðurstöðu en hér er sköpunargleði og leikur í fyrirrúmi sem skilar sér vel til áhorfenda. Litrík og virk sköpunargleði Bækur ★★ Það sem ég hefði átt að segja næst – þráhyggjusögur Ingunn Snædal Bjartur SMS-regn úr sveitinni Ingunn Snædal sagði í Kiljunni fyrir skemmstu að hún kynni ekki að yrkja. Ég get verið henni sammála um það. Engu að síður sendir hún nú frá sér sína fimmtu „ljóðabók“ og samkvæmt sölutölum njóta bækur hennar fádæma vinsælda. Það er auðvelt að skilja hvers vegna. Ingunn hefur skemmtilega sýn og húmor fyrir sjálfri sér og tilverunni og er óhrædd við að bera tilfinningar sínar á torg. Þráhyggjusögurnar ollu mér þó töluverðum vonbrigðum. Hér er spilað á ódýra strengi, lítið um frumleg efnistök og þráhyggjan verður – eins og þráhyggju er siður – frekar leiðigjörn til lengdar. tilfinning II veit ekki hvort ég elska þig en er löngu hætt að kunna við sjálfa mig (bls. 31) Í þessu „ljóði“ er – eins og í mörgum öðrum ljóðum bókarinnar – ort í kring- um alkunnan frasa og snúið út úr. Útúrsnúningarnir eru reyndar Ingunnar sterkasta hlið og oft má glotta út í annað við lestur bókarinnar. Oftar en ekki er þó sársaukanum og höfnuninni snúið upp í kaldhæðni sem stundum virkar og stundum ekki. Dýptin í ljóðunum líður fyrir áherslu höfundar á skemmtilegheit og eftir standa í mörgum tilfellum ansi innihaldsrýrar línur: samskipti fyndið hvernig sumt fólk þegar maður reynir að tala við það er ekki fólk heldur veggur (bls. 43) Annað leiðarstef í bókinni er lífið í sveitinni. Einnig þar liggur áherslan á því sem er skondið; undarlegum orðatiltækjum, soðnum bjúgum, tímaritinu Múlaþingi o.s.frv. Undantekningar eru þó ljóðin sumarferð, dalurinn og afstaða þar sem undirtónninn er þyngri og bilið milli sveitar og borgar ekki sniðugt heldur erfitt og ósanngjarnt. Um stíl bókarinnar þarf ekki að fjölyrða. Hér er ekki tilþrifunum fyrir að fara og lítið um slándi línur eða eftirminnilegar myndir. Málfarið er eðlilegt talmál og áhrif sms-a og skrifa á facebook óspart notuð. Ljóðaheiti eins og ömó.is, hjúkket og útálandi undirstrika þennan talsmáta sem var kannski ferskur fyrir nokkrum árum en er orðinn ansi þreyttur. Í heildina er Það sem ég hefði átt að segja næst – þráhyggjusögur ágæt skemmtun við fyrsta lestur en þolir ekki mikla rýni. Gamanið gránar hratt við annan og þriðja lestur og eftir situr hundsvekktur lesandi sem átti von á svo miklu miklu meiru. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Húmorísk og kaldhæðin ljóð sem skemmta við fyrstu sýn en skilja lítið eftir. TVEIR FYRIR EINN Málverkin á sýningunni eru öll unnin af listamönnunum báðum sem hafa unnið ofan í málverk hvor annars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tilnefningar til Fjöru verð laun- anna, bókmenntaverðlauna kvenna, voru kynntar í Borgar- bókasafninu við Tryggvagötu í gær. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum – fyrir fagurbókmenntir, fræðibækur og barna- og unglingabækur. Í flokki fagurbókmennta eru til- nefndar bækurnar Jójó eftir Stein- unni Sigurðardóttur, Kanill eftir Sigríði Jónsdóttur og Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Í flokki fræðibóka eru tilnefnd- ar Mannvist eftir Birnu Lárus- dóttur, Nútímans konur eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ríkis- fang: ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur. Í flokki barna- og unglinga- bóka eru tilnefndar Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, Gegnum gler- vegginn eftir Ragnheiði Gests- dóttur og Með heiminn í Vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur. Fjöruverðlaunin eiga uppruna sinn í bókmenntahátíð kvenna sem haldin var í fyrsta sinn vorið 2007 og hefur verið haldin árlega síðan. Tilnefningar til Fjöruverð- launa kynntar BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR Er tilnefnd í flokki barna- og unglingabóka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Tilkynnt var um bestu bæk- urnar að mati bóksala í gær. Í flokki íslenskra skáldsagna voru Hjarta mannsins eftir Jón Kalman Stefánsson og Jójó eftir Steinunni Sigurðar- dóttur jöfn að stigum í fyrsta sæti. Í þriðja sæti var Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdótt- ur. Gamlinginn var valin besta þýdda skáldsagan en á hæla hennar komu Hvernig ég kynnt- ist fiskunum og Frönsk svíta. Í flokki íslenskra barnabóka þótti Flugan sem stöðvaði stríð- ið eftir Bryndísi Björgvinsdótt- ur skara fram úr. Þar á eftir komu Með heiminn í vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur og Hávamál Þórarins Eldjárn. Dæmisögur Esóps var valin besta þýdda barnabókin, Hung- urleikarnir urðu í öðru sæti og Ég er klárastur í því þriðja. Í flokki ljóðabóka var Allt kom það nær eftir Þorstein frá Hamri hlutskörpust. Það sem ég hefði átt að segja eftir Ing- unni Snædal kom þar á eftir og þar næst Söknuður Matthíasar Johannessen. Jarðlag í tímanum eftir Hannes Pétursson var valin besta ævisagan. Landnám eftir Jón Yngva Jóhannsson var í öðru sæti en Úr þagnarhyl eftir Þorleif Hauksson var í því þriðja. 1001 þjóðleið eftir Jónas Kristjánsson var valin besta verkið í flokki hand- og fræði- bóka. Í öðru sæti voru Íslenskir fuglar Benedikts Gröndals en Ríkisfang: ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur var í því þriðja. Það besta að mati bóksala
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.