Fréttablaðið - 15.12.2011, Síða 91
FIMMTUDAGUR 15. desember 2011 75
„Þau neyddu mig til að spila
þarna, ég þverneitaði fyrst,“
segir rapparinn Gísli Pálmi í
léttum dúr.
Gísli Pálmi kemur fram í
Kaldalónssal Hörpunnar á föstu-
dag. Hljómsveitin Dream Cent-
ral Station kemur einnig fram,
en í henni eru meðal annars
meðlimir hljómsveitarinnar sál-
ugu Jakobínurínu. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17.30.
Gísli Pálmi nýtur vaxandi vin-
sælda og lét Sölvi Blöndal, for-
sprakki Quarashi, meðal annars
hafa eftir sér á dögunum að
Gísli væri framtíðin í íslensku
hipphoppi og það besta sem hann
hefði heyrt í langan tíma.
Gísli kom síðast fram á troð-
fullum Gauki á Stöng í nóvem-
ber. Hann er búinn að vera eftir-
sóttur síðan þá, en það er varla
til það nemendafélag sem hefur
ekki beðið hann um að spila á
próflokadjammi sínu, án árang-
urs.
Tónleikar Gísla Í Hörpunni
vara í allt að hálftíma, sem ein-
hverjum gæti þótt stuttur tími.
„Það er stutt fyrir eyrað að
heyra, en fyrir mér eru það öll
lögin mín og 20 lítrar af svita,“
segir Gísli.
Gísli Pálmi í Hörpu
Í HÖRPUNNI Gísli Pálmi hefur verið eftirsóttur undanfarnar vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KLAUFI Charlie Sheen veitti aðdáendum
sínum óvæntan aðgang að sér á dög-
unum.
Leikarinn Charlie Sheen lenti
í smá vandræðum með sam-
skiptasíðuna Twitter á dög-
unum. Sheen ætlaði að senda
einkaskilaboð til Justins Bieber
sem innihélt símanúmerið hans,
en birti skilaboðin óvart fyrir
allra augum.
Sheen er með um 5,5 millj-
ónir áhangenda á Twitter, sem
fylgjast með hverju skrefi hans
á vefsíðunni. Sheen uppgötv-
aði mistökin og fjarlægði skila-
boðin skömmu eftir að þau birt-
ust. Hann komst þó ekki hjá því
að fá um 1.800 sms-skilaboð
frá æstum aðdáendum sem sáu
símanúmerið.
Sheen neyðist að öllum lík-
indum til að skipta um símanúm-
er, en hann náði engu að síður
að hafa gaman að mistökunum.
Samkvæmt breska dagblaðinu
Daily Mail svaraði hann nokkr-
um sinnum í símann og kynnti
sig sem starfsmann pitsustaðar.
Sheen birti
númerið sitt
Söngkonan bandaríska Jessica
Simpson grætur þessa dagana
af minnsta tilefni. Ástæðan er
sú að hún gengur með sitt fyrsta
barn, og segir að óléttan geri
það að verkum að hún tárist yfir
öllu og engu. „Biti af frábærri
súkkulaðiköku myndi jafnvel
geta grætt mig,“ var haft eftir
söngkonunni í viðtali á dögun-
um. Simpson og
unnusti hennar,
Eric Johnson
sem leikur
í banda-
rísku NFL-
deildinni,
eru mjög
ham-
ingjusöm
saman og
hlakka
til að fá
frum-
burðinn í
hendurn-
ar. „Ég
fann það
hreyfa sig í
fyrsta sinn
um daginn
og hágrét
yfir því.
Þetta var eitt
það besta sem
ég hef upplifað
um ævina,“ sagði
Simpson, sem á
von á sér í vor.
Jessica alltaf
grátandi
LJÓMAR Jessica Simpson
borðar nær eingöngu
hnetusmjörssamlokur
og salt þessa dagana.