Morgunblaðið - 28.07.2010, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
6 1 8
5 8 7 9
8 1
6 9
2
4 6
1 4 2
2 7 1 8
7 2 5 4
8 2 5 7
8 4
6 3
4
6 5 2 3
7 9
3 8 6
8 7 9 2
5 9 3
3
5 6
1 8
2 3 1
8 9 4
1 6 7 2
5 6 4
3 4 2 7 9
4 1
3 5 8 7 6 9 4 1 2
7 9 2 3 4 1 5 6 8
4 6 1 8 5 2 7 9 3
8 1 4 5 2 7 6 3 9
5 2 3 6 9 4 8 7 1
6 7 9 1 3 8 2 5 4
1 3 6 2 8 5 9 4 7
2 4 5 9 7 3 1 8 6
9 8 7 4 1 6 3 2 5
3 1 7 9 2 5 8 4 6
8 4 5 6 1 7 3 9 2
6 2 9 3 4 8 7 5 1
9 7 3 5 6 1 4 2 8
2 5 6 8 7 4 1 3 9
1 8 4 2 3 9 5 6 7
5 9 2 1 8 3 6 7 4
4 3 8 7 9 6 2 1 5
7 6 1 4 5 2 9 8 3
6 1 5 9 2 4 3 8 7
2 8 7 3 6 5 4 1 9
3 4 9 1 8 7 2 6 5
4 3 2 7 5 6 8 9 1
5 7 1 4 9 8 6 2 3
9 6 8 2 1 3 7 5 4
1 9 4 8 3 2 5 7 6
8 5 3 6 7 9 1 4 2
7 2 6 5 4 1 9 3 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 28. júlí,
209. dagur ársins 2010
Orð dagsins: En halt þú stöðuglega við
það, sem þú hefur numið og hefur fest
trú á, þar eð þú veist af hverjum þú
hefur numið það. (2. Tím. 3, 14.)
Víkverja sýnist að Ríkissjónvarpiðætli heldur betur að spýta í lóf-
ana á lokaspretti sumardagskrár-
innar. Í gærkvöldi tók RÚV til sýn-
inga tvær sænskar þáttaraðir sem
eru til þess fallnar að geta sameinað
fjölskylduna fyrir framan flatskjáinn.
x x x
Annarsvegar er um að ræða þátt-inn Barnmorskorna en í honum
er varpað ljósi á þá hversdagslegu en
umfram allt mannlegu storma sem
einkenna störf ljósmæðra á Karol-
inska háskólasjúkrahúsinu. Af því
sem Víkverji hefur lesið um þessa
vönduðu þætti má ráða að þar sé oft
handagangur í öskjunni þó ávallt sé
stutt í hláturinn.
x x x
Dr.Åsa er ekki síður spennandiþáttur. Í honum fjallar sænski
læknirinn Åsa Vilbäck um flesta þá
krankleika sem fylgja viðvarandi
þögn guðs og fleira sem fylgir hinni
hversdagslegu samnorrænu vegferð
á Norðurslóðum.
x x x
Víkverji hefur lengi beðið eftir þvíað þessir þættir yrðu teknir til
sýninga hér á landi. Hann hefur kos-
ið að falla ekki í sömu freistni og
samferðafólk hans, en það hefur sótt
sér þessa þætti með ólöglegu niður-
hali á sjóræningjasíðum á Netinu.
Víkverji telur slíkt vera hreina og
beina móðgun við þá sem framleiða
og fjármagna svo vandaða dag-
skrárgerð.
x x x
Víkverji vonar að framhald verði áþessum norrænu áherslum í
efnisvali Ríkissjónvarpsins. Sér-
staklega væri gaman að íþróttadeild
RÚV myndi feta sömu slóð. Er ekki
til að mynda ráð að sýna beint frá
Vasagöngunni? Hún er óumdeilan-
lega vinsælasta skíðaganga heims og
á hug og hjörtu fjölmargra íþrótta-
unnenda hér á landi. Það sama gildir
einnig um þá fjölmörgu skíðaviðburði
sem eiga sér stað nánast daglega hjá
frændum okkar í Noregi. Það mætti
sýna meira af slíku. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sköpulag, 8
biskupshúfa, 9 blunda,
10 magur, 11 safna
saman, 13 fram á leið,
15 næðis, 18 óbreyttur,
21 frístund, 22 skil eft-
ir, 23 styrkjum, 24 sval-
ur.
Lóðrétt | 2 þráttar, 3
hressa við, 4 örskots-
stund, 5 kvendýr, 6
skömm, 7 ræfil, 12 hóp-
ur, 14 rotskemmdar, 15
menn, 16 duglegur, 17
blaðlegg, 18 hvell, 19
moluðu, 20 vítt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ópera, 4 sægur, 7 ólgan, 8 kurfs, 9 auk, 11 ið-
an, 13 barð, 14 eitla, 15 fans, 17 krás, 20 enn, 22 nálin,
23 æfing, 24 Ingvi, 25 totta.
Lóðrétt: 1 ósómi, 2 ergja, 3 arna, 4 sekk, 5 garfa, 6 ræs-
ið, 10 urtin, 12 nes, 13 bak, 15 fangi, 16 nálæg, 18 reist,
19 sigla, 20 enni, 21 næmt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 b6 3. e3 Bb7 4.
Bd3 e6 5. O-O Be7 6. c4 c5 7. Rc3
cxd4 8. exd4 d5 9. cxd5 Rxd5 10.
Re5 O-O 11. Dg4 Rf6 12. Dh4 Re4
13. Dh3 Dxd4 14. Bf4 Rf6 15. Re2
Dd8 16. Had1 Bd5 17. Bg5 g6 18.
Dh4 He8
Staðan kom upp í grísku deildar-
keppninni sem lauk fyrir skömmu.
Stelios Halkias (2580) hafði hvítt
gegn Epaminondas Kourousis
(2229). 19. Rxf7! Kxf7 20. Bxf6
Bxf6 21. Dxh7+ Kf8 22. Rf4! Bg7
23. Bb5! He7 24. Rxg6+ Kf7 25.
Rxe7 Dxe7 26. Hxd5! og svartur
gafst upp enda fokið í flest skjól
eftir 26…exd5 27. Df5+.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Dularfull vörn.
Norður
♠5
♥KDG862
♦8
♣KD983
Vestur Austur
♠ÁG82 ♠K10943
♥-- ♥5
♦ÁDG1032 ♦K76
♣G75 ♣Á1064
Suður
♠D76
♥Á109743
♦954
♣2
Suður spilar 5♥ dobluð.
Spil dagsins er frá viðureign Dia-
monds og Jacobs í fjórðungsúrslitum
bandarísku landsliðskeppninnar. A-V
fara augljóslega létt með 5♠ í sína átt –
meira að segja vinnst slemma sjálfkrafa
vegna sambandsleysis varnarinnar í
laufi – en sú saga er akademísk, því 5♥
voru spiluð á báðum borðum.
Liðsmenn Diamonds tóku strax þrjá
slagi á ásana sína, en Jacobs-mennirnir
Compton og Bramley hættu sér út á
hálan ís gegn Geoff Hampson. Compton
lagði niður ♠Á og skipti svo yfir í ♣5.
Dularfull vörn, en líklega hefur Comp-
ton séð fyrir sér laufstungu og viljað
geyma ♦Á sem innkomu. Hampson
nýtti tækifærið vel – lét smátt lauf úr
blindum! Bramley kokgleypti: drap á
♣Á og spilaði laufi til baka, handviss um
að makker myndi trompa.
Ekki aldeilis.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur einbeitt þér um of að
andlegri líðan þinni og um leið vanrækt
líkama þinn. Ekki bíða eftir fellibyl til
að hrista upp í hlutunum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er sem spenna byggist jafnt
og þétt upp innra með þér núna.
Reyndu að komast að niðurstöðu um
hvað eigi að halda í og hverju megi
henda. Þú kynnist ástinni fljótlega.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stundum ertu uppfull/ur af
hugmyndum og vinnur verkið létt.
Gættu þess þó að taka tillit til þinna
nánustu og þeirra þarfa.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Byrjarðu nú að hugsa eina ferð-
ina enn! Þér gremst seinagangur í
dómsmáli sem þú stendur í. Einhver
kemur við kaunin á þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sýndu ýtrustu varkárni í starfi,
því ýmsar hættur leynast handan
hornsins. Þú reynir að sannfæra þig
um að þú sért á réttri leið í ástamál-
unum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Vertu óhrædd/ur við að kanna
nýjar leiðir og taka einhverja áhættu.
Einhver reisir sér skýjaborgir sem þú
vilt ekki taka þátt í.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Umræður um lífsgildi og
framtíðardrauma eru skemmtilegar í
dag. Reyndu að hitta fólk sem er lík-
legt til að hressa upp á sál þína.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sýndu öðrum næga tillits-
semi, sérstaklega þar sem um
sameiginlega eign er að ræða.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að vera reiðubúin/n
að beita þínum innri styrk gegn tilfinn-
ingum og ásókn annarra. Viðskotaillur
nágranni flytur, þér til mikillar gleði.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Skýrðu frá fyrirætlunum þín-
um, því þeim verður vel tekið af vanda-
mönnum, vinum og vinnufélögum. Þér
dettur ekki í hug að blanda þér í deilur
annarra, enda eins gott.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú setur þér markmið og
skrifar þau niður rætast þau frekar.
Einhver þér nálægur er annars hugar,
hafðu þó ekki áhyggjur af því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú nýtur þeirra stunda sem þú
getur átt með sjálfum þér til fullnustu
um þessar mundir. Á næstu vikum
ferðu víða – í huganum.
Stjörnuspá
28. júlí 1662
Erfðahyllingin í Kópavogi
(Kópavogsfundur). Helstu for-
ystumenn þjóðarinnar, m.a.
Árni Oddsson lögmaður og
Brynjólfur Sveinsson biskup,
undirrituðu skuldbindingar-
skjal er miðaði að einveldi
Danakonungs hér á landi.
28. júlí 1960
Norðurlandaráðsþing var
haldið á Íslandi í fyrsta sinn.
Þingið var sett í hátíðasal Há-
skóla Íslands og sátu það 69
kjörnir fulltrúar og 28 ráð-
herrar.
28. júlí 1974
Þjóðhátíð var haldin á Þing-
völlum í blíðskaparveðri. Um
fjórðungur þjóðarinnar sótti
hátíðina sem var til minningar
um 1100 ára afmæli Íslands-
byggðar. Á hátíðarfundi Al-
þingis var samþykkt þings-
ályktun um landgræðslu og
gróðurvernd.
28. júlí 1996
Ný kirkja var vígð í Reykholti
í Borgarfirði, en þar hafði ver-
ið kirkja frá því skömmu eftir
árið 1000. Reykholtsmáldagi
frá því um 1150 er elsta skjal
sem varðveitt er í frumriti á
norrænu máli hér á landi, en í
honum er greint frá kirkju-
eignum á staðnum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Berglind
Björnsdóttir
safnaði pen-
ingum með því
að vinna heim-
ilisverk og gaf
svo Rauða
krossi Íslands
ágóðann, eða
12.519 kr.
Söfnun
Ráðgjafinn og endurskoðandinn Ragnar Þórir
Guðgeirsson fagnar 45 ára afmæli sínu í dag.
Hann ætlar að vísu ekki að gera það með miklum
tilþrifum, heldur láta sér nægja að borða góðan
mat í faðmi fjölskyldunnar. „Ég held það verði
eitthvað voðalega notalegt og þægilegt með fjöl-
skyldunni út að borða,“ segir Ragnar, spurður um
áætlanir dagsins. Hvert fjölskyldan fer hefur ekki
enn verið ákveðið. „Það er óákveðið, en það verð-
ur einhver góð steik.“
Ragnar Þórir er kvæntur Hildi Árnadóttur.
Saman eiga þau Katrínu, sem er 17 ára og Ragnar
Geir, sem er 13 ára gamall. Ragnar starfar hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Expectus og segir að þar gangi vel. „Það felast ýmis tækifæri í
ástandinu í dag og við erum að reyna að hjálpa mönnum að finna já-
kvæðar hliðar á því.“
Ragnar útilokar ekki að fagna deginum síðar. „Það gæti nú verið
að það yrði eitthvert smá-partí seinna, en ekki á morgun. Nú eru allir
í sumarfríi. Þetta er ekta sumarfrí-afmæli,“ segir Ragnar sem þekkir
ekki annað en að eiga afmæli um hásumar.
gislibaldur@mbl.is
Ragnar Þórir 45 ára í dag
Ekta sumarfrís-afmæli
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is