Morgunblaðið - 04.09.2010, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2010
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
12
12
L
L
L
12
16
14
L
L
SÍMI 462 3500
12
L
L
12
16
THEOTHERGUYS kl. 2(600kr.) 6-8-10
AULINNÉG 3D kl. 2(900kr.)4-6
DESPICABLEME3D kl. 8
SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 3.50
THEEXPENDABLES kl. 10
SÍMI 530 1919
12
L
12
18
16
14
12
10
THEOTHERGUYS kl. 3.30-8-10.30
THEFUTUREOFHOPE kl.4-6-8-10
AULINNÉG 3D kl. 3.30**(1100kr.) 5.45
THE HUMAN CENTIPEDE kl. 10.20
THEEXPENDABLES kl. 8-10.20
SALT kl. 8
VAMPIRESSUCK kl. 6
THELASTAIRBENDER 2D kl. 3.20(650kr.)-5.30
THEOTHER GUYS kl. 2.50-5.30-8-10.30
THEOTHER GUYSLÚXUS kl. 3-5.30-8-10.30
DESPICABLEME3D kl. 1*(950kr.) 3.30-5.40-8
AULINN ÉG 3D kl. 1*(950kr.) 3.20-5.40
AULINN ÉG 2D kl. 1(650kr.) 3.20
SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 8-10.30
THEEXPENDABLES kl. 8-10.20
SALT kl. 10.10
KARATEKID kl. 5.20
LJÓTI ANDARUNGINN OG ÉG kl. 1(650kr.)
* Gleraugu seld sér
.com/smarabio
**Gleraugu innifalin
"Ísland gæti veitt heiminum
innblástur og þessi
heimildarmynd er sýn
á þá möguleika."
- Damien Rice, tónlistarmaður
Sýnd kl. 8 og 10:15Sýnd kl. 2(950kr), 4, 8 og 10 (3D) - enskt tal
2 VIKUR Á TOPPNUM!
Sýnd kl. 8 og 10:15
Sýnd kl. 2(650kr), 4 og 6 (2D) - íslenskt tal
STEVE CARELL
Sýnd kl. 2(950kr), 4 og 6 (3D) - íslenskt tal
Sýnd kl. 5:50
FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ OG SHAUN OF THE DEAD
KEMUR EIN FYNDNASTA OG FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS
Búðu þig undir eina
óvænta fjölskyldu og
heilan her af skósveinum
sem vaða ekki í vitinu.
ÍSLENSKT TAL
Pétur Jóhann Sigfús-
son fer á kostum í
einni skemmtilegustu
teiknimynd ársins
HHH
S.V. - MBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLARSÝNINGAR MERKTARMEÐ RAUÐU
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Paul gamli Hogan, sem lék ástr-
alska veiðigarpinn og ævintýra-
manninn Krókódadíla-Dundee svo
eftirminnilega, hefur fengið leyfi til
að snúa aftur til Bandaríkjanna, en
hann var kyrrsettur í heimalandinu
Ástralíu fyrir skemmstu vegna
skattaskuldar. Hogan, sem er nú
kominn á áttræðisaldur, var í Ástr-
alíu vegna jarðarfarar móður sinn-
ar en hann er annars búsettur í Los
Angeles.
Hogan firrtist við skuldinni og
segist ekki eiga möguleika á að
greiða hana. Hann er nú í reiptogi
við áströlsk yfirvöld um skuldina
og neitar því harðlega að hafa falið
fjármagn á aflandseyjum. Gangi
honum vel.
Snýr aftur til Bandaríkjanna
Saklaus? Paul Hogan leikari.
Fake Orgasm heitir ein af þeim
kvikmyndum sem verða í flokknum
Fyrir opnu hafi, Open Seas, á
RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík. Kvikmyndin er
spænsk og ku fjalla öðrum þræði
um gervifullnægingar kvenna, að
því er kemur fram í tilkynningu frá
RIFF, en í raun fjalli myndin um
kynjafræði og þróun sjálfsmyndar
okkar.
Í tengslum við sýningar á þessari
kvikmynd verður efnt til keppni í
gervifullnægingum á Næsta bar.
Þar mun kvenfólk keppa sín á milli
og kalla fram ýmsar gervifullnæg-
ingar. Besta gervifullnægingin
verður svo valin. Keppnin fer fram
laugardagskvöldið 25. september á
Næsta bar, líklega um miðnætti því
hún verður haldin að lokinni sýn-
ingu á myndinni sem hefst kl. 22.
Gervifullnægingakeppni
Gervifullnæging Sally gerir sér upp fullnægingu í When Harry Met Sally.
Líklega þekktasta gervifullnæging kvikmyndasögunnar.
Tilefnið kvikmyndin Fake Orgasm
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Það er merkilegt til þess að hugsa að heil tuttugu ár séu
liðin síðan þeir Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi
Stefánsson ræstu fyrsta Party Zone-þáttinn í gang. Allar
götur síðan hefur þátturinn verið í loftinu, með einum
eða öðrum hætti svo ekki sé nú meira sagt. Byrjað var á
Útrás en svo enduðu menn á Rás 2. Fyrr á þessu ári átti
að slá þáttinn af en hætt var við vegna fjölda áskorana
frá hlustendum og velunnurum þáttarins og var hann því
settur aftur á dagskrá í einum, grænum, dansvænum
hvelli.
Afmælinu verður fagnað með miklu húllumhæi á Nasa
í kvöld þar sem Gus Gus, erlendir gestir og fastasnúðar
þáttarins í gegnum tíðina koma saman.
Í forvígi
Party Zone fór í gang er dans/raftónlist var að ryðja
sér rúms á alþjóðavísu. Það er merkilegt til þess að
hugsa að aungvir voru gemsarnir, hvað þá mp3-skrár
þegar herlegheitin fóru í gang. Að maður tali nú ekki um
internetið. Þátturinn varð óðar að nokkurs konar mið-
stöð/Mekku íslenskra danssinna og plötusnúðar eins og
Maggi Lego, Ýmir, Árni E, Frímann, Grétar G og Mar-
geir hófu að venja komur sínar í þáttinn með nýjustu
stefnur og strauma í farteskinu í formi vínyls. Party-
Zone-liðar fylgdust svo með reif-partíinu fæðast, hafa
flutt inn haug af erlendum tónlistarmönnum og plötu-
snúðum og verið á víglínunni hvað tækninýjungar varðar
eins og netútsendingar og hlaðvarp.
Til hamingju með afmælið, strákar. Og skál fyrir
næstu tuttugu.
Trylltur dans í tvo áratugi
Dansþáttur þjóðarinnar,
Party Zone, fagnar 20 ára
afmæli á Nasa í kvöld
Félagar Kristján og Helgi Már, stjórnendur Party Zone.
www.pz.is