Morgunblaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 304. tölublað 98. árgangur
TÓNLEIKAFERÐ
UM HEIMINN
LÝKUR Í KVÖLD
AUKA-
KÍLÓIN
KVÖDD
DÁNIR LÝSA DAUÐA
OG JÓN GNARR
BORGARSTJÓRI
VINSÆL ÁRA-
MÓTAHEIT 10 ÓVÆNTUSTU FRÉTTIR ÁRSINS 40JÓNSI Í LAUGARDALSHÖLL 38
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, kveðst
hafa orðið var við viðræður á milli stjórnarflokk-
anna og Framsóknarflokksins um ríkisstjórnar-
samstarf fimmtudag og föstudag fyrir þinglok. „Ég
fékk það staðfest að það hefði gerst. Þreifingar
voru í gangi. Menn þreifuðu á Framsóknarflokks-
þingmönnum. Bæði ég og Ásmundur Einar feng-
um það staðfest í viðtölum við þingmenn. Svo fór
þetta ekki framhjá neinum sem fylgdist með í saln-
um,“ segir Atli sem kveður vissa stjórnarþingmenn
grennslast fyrir um áhuga þing-
manna á ESB-aðild. „Það er
auðvitað sótt í þingmenn sem
eru hlynntari ESB-aðild en
aðra. Ef það er á einstaklings-
grundvelli. Ég hef staðfestingu
á því að þessar þreifingar hefðu
verið í gangi. Ég varð satt best
að segja undrandi á því.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, kveðst þó ekki kannast við
eiginlegar umræður um stjórnarsamstarf Sam-
fylkingar, VG og Framsóknar. „Það hefur nú
mjög lítið eða ekkert verið. Það
fer ýmislegt fram á göngunum
á Alþingi, það er kannski slíkt
sem menn rýna í. Það er búið að
vera jólafrí á Alþingi og ekkert
gert í millitíðinni hvað okkur
varðar. Ég hef nú grun um að
þetta tengist frekar þessum
innanbúðarmálum hjá VG en
öðru,“ segir Sigmundur Davíð.
„Við færum aldrei inn í þessa
ríkisstjórn með óbreyttan
stjórnarsáttmála. Ég held að það sé best að menn
skoði þetta allt frá grunni. Það væri bara óraun-
hæft með óbreytta stefnu að velta slíku fyrir sér.“
Leita að Evrópusinnuðum þingmönnum
Atli Gíslason var við þreifingar Formaður
Framsóknarflokksins kannast ekki við slíkt
Atli
Gíslason
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
MMisvísandi skilaboð um samstarf »2
Leyfi voru veitt fyrir innflutningi á um 510 tonnum af flugeldum fyrir þessi
áramót, en það er hátt í 60 tonna aukning frá því í fyrra. Hér sýnir Jónas
Guðmundsson, sölustjóri hjá Flugbjörgunarsveitinni, nokkra öfluga flug-
elda á Grjóthálsi.
Seljendur máttu hefja flugeldasölu í gærmorgun og það gerðu þeir flest-
ir. Sölustaðir eru fjölmargir um land allt en á höfuðborgarsvæðinu einu
eru þeir 60 talsins. »8
Sprengja um 500 tonn
Morgunblaðið/Eggert
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Fasteignamarkaðurinn sem botn-
fraus við bankahrunið virðist nú
vera að þiðna og umsvifin jafnt og
þétt að færast í aukana. Seinni hluti
ársins 2010 er umtalsvert líflegri en
fyrstu misseri kreppunnar.
Þinglýstum kaupsamningum hef-
ur fjölgað, mest á höfuðborgarsvæð-
inu eða um 41%. Á sama tíma hefur
makaskiptum hlutfallslega fækkað,
en þau voru um 36% af öllum kaup-
samningum í fyrra en eru um 24%
kaupsamninga það sem af er 2010.
Leigusamningum hefur hinsvegar
fjölgað verulega. Þeir eru um tvöfalt
fleiri nú en fyrir 5 árum og virðast
því stoðir leigumarkaðarins vera að
styrkjast eins og spáð hafði verið.
Veltan jókst um 16%
Velta fasteignaviðskipta er enn
smáræði hjá því sem var þegar góð-
ærið stóð sem hæst en hefur engu að
síður aukist um 16% á milli ára, úr
99 milljörðum árið 2009 í tæpa 115
milljarða 2010. Sé litið til höfuðborg-
arsvæðisins stefnir í að kaupsamn-
ingar verði rúmlega 2.900 og heild-
arupphæð þeirra rúmir 83 milljarðar
króna, en í fyrra voru þeir 2.100 og
upphæð þeirra 72 milljarðar.
Um áramót tekur gildi nýtt fast-
eignamat sem felur í sér 8,6% lækk-
un á landsvísu.
Auknar væntingar kaupenda
Fasteignasalar segjast skynja
aukna eftirspurn og jákvæðari horf-
ur á næsta ári og Væntingavísitala
Gallups virðist styðja það því vísitala
um fyrirhuguð húsnæðiskaup hækk-
ar úr 4,3 stigum í 7,0 stig og hefur
ekki verið hærri síðan í september
árið 2008, rétt fyrir hrun.
Athygli vekur að fjármálastofnan-
ir eru um 10% seljenda í viðskiptum
með íbúðarhúsnæði á höfuðborgar-
svæðinu. Árin 2006 og 2007 voru
þær innan við 1% seljenda en hlut-
fallið hefur farið jafnt og þétt hækk-
andi.
Jákvæð teikn
á lofti á fast-
eignamarkaði
Aukin velta og fleiri kaupsamningar
MFasteignasala að lifna við »6
Hlutafélög með lögheimili að
Túngötu 6 í Reykjavík skiptu tug-
um þegar Baugur Group var tek-
inn til
gjald-
þrotaskipta
í mars á
síðasta ári.
Í öllum til-
fellum voru
þessi félög
að öllu eða
mestu leyti í beinni eigu Baugs
Group. Félögin eru nú að verða
gjaldþrota eitt af öðru, en inn-
kallanir þess efnis birtast í Lög-
birtingablaðinu. Tvö nýjustu fé-
lögin eru Milton ehf. og
F-Capital, en enn er hægt að lýsa
kröfum í bú þessara félaga svo að
samtala lýstra krafna liggur ekki
fyrir. Samkvæmt nýjustu upp-
gjörum Milton og F-Capital námu
þó samanlagðar skuldir félag-
anna um 24 milljörðum króna við
árslok 2007. Sé litið til allra
lýstra krafna í þrotabú félaga
sem áttu lögheimili að Túngötu 6
og nýjustu fjárhagsupplýsinga
þeirra sem enn eru lifandi, nem-
ur samanlögð tala um 550 millj-
örðum króna. » 16
Skuldafjall til heim-
ilis að Túngötu 6
Fljótlega
eftir áramót
má búast við
5-6 króna
hækkun á
eldsneyti sem
rekja má til
hækkunar á
vörugjaldi. Þá
hefur vetr-
arríkið í Evr-
ópu og Bandaríkjunum undanfarið
ekki dregið úr hækkunarþörf.
Litlar sem engar líkur eru taldar
á að bensínlítrinn fari undir 200
krónur árið 2011.
Hæst fór bensínlítrinn á þessu
ári í 212 krónur í lok apríl sl. en
fór síðan lækkandi er leið á sum-
arið, þó ekki neðar en í rúmar 193
krónur. Í haust fór verðið að
hækka og fór fljótt yfir 200 krón-
urnar á ný. »20
Hækkun á eldsneyti
líkleg eftir áramótin
Jón Guðmundsson, fasteignasali hjá Fast-
eignamarkaðinum, segist sjá fá teikn á lofti um
hærra fasteignaverð. Hann segir að viðskipti
með fasteignir hafi verið treg að undanförnu.
„Það er mikið atvinnuleysi og kaupmáttur er að
rýrna. Skattar eru einnig að hækka. Það eina
sem getur hjálpað fasteignamarkaðinum er að
vextir eru mjög neikvæðir. Það getur vel verið að
fólk muni sjá sér hag í því að kaupa fasteignir í
stað þess að láta peningana liggja inni í banka vaxtalausa. Það eitt og
sér getur leitt til þess að eftirspurn eftir fasteignum verði meiri á kom-
andi ári,“ segir Jón.
JÓN GUÐMUNDSSON SÉR FÁ TEIKN UM HÆKKANDI VERÐ
Fasteign betri en vaxtalaust fé
Í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld kvaðst Þórunn Svein-
bjarnardóttir, þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar,
ekki kannast við þreifingar en
mun ræða það við forsætisráð-
herra. „Ég veit ekkert um það.
Ég ætla að eiga svolítinn fund
með forsætisráðherra á morg-
un. Ég spyr hana þá að því.“
Spyr Jóhönnu
ÞINGFLOKKSFORMAÐUR