Morgunblaðið - 29.12.2010, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helga Sigríður Sigurðardóttir er smám saman að
braggast eftir að hafa hnigið niður í nóvemberlok.
Hún var í kjölfarið flutt með sjúkraflugi til Sví-
þjóðar og vöktu skyndileg veikindi þessarar 12
ára fimleikastúlku frá Akureyri mikla athygli. Í
gær heimsóttu Dýri Kristjánsson og Íris Mist
Magnúsdóttir, sem nýverið voru valin fim-
leikafólk ársins 2010, Helgu Sigríði á Barnaspít-
ala Hringsins.
„Það var æðislegt að fá þau í heimsókn,“ segir
Helga Sigríður og bætir við að þau hafi mest-
megnis talað um fimleika en Helga Sigríður æfði
íþróttina af kappi hjá Fimleikafélagi Akureyrar í
nokkur ár áður en hún veiktist. Hún segir fimleik-
ana hafa hjálpað sér að takast á við veikindin.
„Þegar ég veiktist var ég í fínu og góðu formi út
af fimleikunum. Við stelpurnar kvörtuðum alltaf
yfir því að þurfa að gera þrekæfingar en núna
finn ég hvað þær hjálpa mér mikið,“ segir hún.
Helga Sigríður eyddi jólunum ásamt fjölskyldu
sinni á spítalanum og lítur reynsluna jákvæðum
augum. „Það skiptir mestu máli að hafa fjölskyld-
una með sér, það koma önnur jól. Við fengum fínt
herbergi og fengum lánað eitt af jólatrjánum sem
voru inni á spítalanum.“
Ekki ein óþægileg þögn
Dýri segir að eftir umfjöllunina um veikindi
Helgu Sigríðar hafi hann farið að velta fyrir sér
hvernig hann gæti lagt sitt af mörkum. „Ég sá við-
töl við hana í blöðunum og fannst hún svo heil-
steypt og frábær stelpa að ég vildi gera mitt til að
gera dvölina léttari fyrir þessa litlu hetju.“ Hann
hafði samband við Írisi Mist en hún er í Evr-
ópumeistaraliði Gerplu í hópfimleikum.
„Helga hefur fengið fjölmargar batakveðjur frá
fólki sem hún þekkir. Þetta var aðeins öðruvísi,
við þekktumst ekki neitt en það má alveg segja að
við þekkjumst heilmikið núna. Við ætluðum bara
rétt að heilsa upp á hana en vorum þarna í rúman
klukkutíma í heimsókn og það var ekki ein óþægi-
leg þögn.“
Helga Sigríður sagði Dýra og Írisi Mist frá sinni
upplifun af fimleikum og þau sögðu henni frá því
sem þau hafa gengið í gegnum í greininni. „Við
reyndum að hvetja hana áfram en hún hefur sjálf
lært í fimleikunum að gefast ekki upp. Það er
hægt að líta á þetta eins og ef hún hefði dottið af
slánni. Þá er ekkert annað að gera en að standa
upp, fara aftur á slána og halda áfram.“
ylfa@mbl.is
Helga Sigríður segir fimleikana hafa
hjálpað sér að takast á við veikindin
Fimleikafólk ársins heimsótti Helgu Sigríði í gær á Barnaspítala Hringsins
Morgunblaðið/Kristinn
Í heimsókn Helga Sigríður sýnir Írisi Mist og Dýra vináttubók sem hún fékk frá fimleikavinkonum sínum og -þjálfurum á Akureyri.
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
Jónas Margeir Ingólfsson
Lilja Mósesdóttir hefur varpað fram
þeirri hugmynd að segja sig úr þing-
flokki Vinstri grænna en hvorki Atli
Gíslason né Ásmundur Einar Daða-
son hafa viljað tjá sig um hvort þeir
hugleiði slíkt hið sama fyrr en þing-
flokkur VG hefur fundað 5. janúar.
Atli Gíslason segir í samtali við
Morgunblaðið að honum þætti skyn-
samlegra að flýta fundinum þar sem
mikil ólga er í þingflokki VG. „Það er
eins og svosem með annað að það
var ekki haft samráð um tímasetn-
inguna við okkur þremenningana.“
Óvíst með Guðfríði Lilju
Ríkisstjórnin er nú varin af þrjá-
tíu og fimm þingmönnum af sextíu
og þremur. Ef þremenningarnir
segja sig úr þingflokki VG hefur rík-
isstjórnin því lægsta mögulega þing-
meirihluta eða þrjátíu og tvo þing-
menn.
Þá vaknar spurningin hvað Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir mun gera
þegar hún snýr aftur á þing eftir
barneignarleyfi. Hún er gjarnan
flokkuð í sama lið og þremenning-
arnir og hefur fundað með þeim um
hjásetu þeirra við afgreiðslu fjár-
lagafrumvarpsins. Ef af úrsögnum
þeirra fjögurra verður væri því
þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar
fallinn.
Hægt að leysa allt ef menn vilja
Ásmundur Einar Daðason kveðst
ekki vilja ræða stöðu sína innan
þingflokksins fyrr en eftir þing-
flokksfund VG. „Það er nú hægt að
leysa allt ef menn vilja. Það er búið
að boða til þingflokksfundar en fram
að þeim tíma finnst mér eðlilegt að
halda öllum yfirlýsingum í lág-
marki.“
Ásmundur kveðst þó hafa fundið
fyrir þreifingum á milli Framsókn-
arflokksins og stjórnarflokkanna.
„Maður hefur fundið það á göngum.
Þetta hefur borist út af og til. Það
verður að leita svara við því hjá
Framsókn, ekki hjá mér. Ég er ekki
í innsta hring þar.“
Taka góðan tíma í vinnufund
Árni Þór Sigurðsson, þingflokks-
formaður VG, var ekki reiðubúinn að
tjá sig afdráttarlaust um það hvort
ríkisstjórnin mundi lifa af í óbreyttri
mynd, í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það er mjög erfitt að segja til
um það. Auðvitað vona ég það. En
eins og ég segi ætla ég að spara allar
yfirlýsingar þangað til við erum búin
að hittast og fara yfir málin. Við ætl-
um að taka okkur góðan tíma í
vinnufund eftir áramót,“ segir Árni
Þór sem kveður þingflokkinn ætla
að fara vel yfir málin á fundi sínum
5. janúar. „Á þingflokksfundi rétt
fyrir jól kvöddumst við með þeim
orðum að við skyldum hugsa okkar
mál yfir jól og áramót – að við skyld-
um taka okkur frí frá þessu og hitt-
ast svo eftir áramót.“
Össur og Jóhanna eiga að víkja
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, kveður
stefnumál flokks síns og ríkisstjórn-
arinnar of ólík til að geta átt samleið
í ríkisstjórn.
„Ég get aðeins talað fyrir mig –
því nú hefur þingflokkurinn ekki
komið saman síðan fyrir jól – en ég
tel að það beri alltof mikið í milli hjá
Framsóknarflokknum og ríkis-
stjórninni til þess að það sé hægt að
ná samkomulagi í lykilmálum. Ég
hef t.d. ekki viðurkennt – og kem
ekki til með að viðurkenna – laga-
lega skyldu okkar til að greiða Ice-
save. Ég tel jafnframt að ríkisstjórn-
in hafi ekki á þeim 26 mánuðum sem
liðnir eru frá hruni gert það sem hún
þurfti að gera til að koma heimilun-
um til hjálpar,“ segir Vigdís sem
kveður einnig skiptar skoðanir um
Evrópumálin í þingflokki Fram-
sóknar. Þá vill Vigdís að helstu tals-
menn ríkisstjórnarinnar víki.
„Ég myndi setja það sem skilyrði
að hrunráðherrarnir tveir, Össur
Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurð-
ardóttir, hyrfu af vettvangi og þar af
leiðandi Steingrímur J. Sigfússon
jafnframt, því þetta eru þeir þrír
dragbítar sem hvíla yfir ríkisstjórn-
inni.“
Misvísandi skilaboð um samstarf
Atli Gíslason telur skynsamlegt að flýta þingflokksfundi Óvíst með þingmeirihluta ríkisstjórnarinnar
þegar Guðfríður snýr aftur á Alþingi Vigdís Hauksdóttir vill að Össur og Jóhanna víki úr ríkisstjórn
Atli
Gíslason
Árni Þór
Sigurðsson
Ásmundur Einar
Daðason
Vigdís
Hauksdóttir
Össur
Skarphéðinsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu
vann 75 milljónir í Happdrætti Há-
skóla Íslands í gær. Maðurinn er
fjölskyldumaður á miðjum aldri.
„Hann ætlaði ekki að trúa mér
þegar ég hringdi í hann,“ sagði
Bryndís
Hrafnkels-
dóttir, for-
stjóri Happ-
drættis Háskólans. „Hann vildi fara
á netið til að fletta upp vinninga-
skránni til að staðfesta þetta. Mað-
urinn er búinn að eiga tromp-miða
hjá okkur í áratugi. Þetta er því einn
af okkar tryggu viðskiptavinum.“
Maðurinn er fjölskyldumaður, en
sex manns eru í fjölskyldunni.
„Hann sagði mér að hann hefði fyrir
tveimur dögum setið með konunni
sinni þar sem þau voru að velta fyrir
sér hvað þau myndu gera ef þau
ynnu 75 milljónir í happdrætti. Það
varð engin niðurstaða í því samtali,
en nú er hann kominn með 75 millj-
ónir í hendurnar,“ sagði Bryndís.
HHÍ hefur í ár greitt út yfir 800
milljónir í vinninga, sem eru skatt-
frjálsir og greiddir út í peningum.
Aðeins er dregið úr seldum miðum.
Vann 75
milljónir í
happdrætti
Óvenjumargir hafa greinst með
berkla hér á landi miðað við und-
anfarin ár, 21 sjúklingur. Þetta
kemur fram í Farsóttafréttum emb-
ættis landlæknis. Af þeim sem
greindust voru 16 af erlendu bergi
brotnir eða 71% og flestir þeirra frá
Asíu. Þeir sem greinst hafa á árinu
eru á aldrinum 20–70 ára, með-
alaldur er 34 ár. Ekki hefur orðið
vart fjölónæmra berkla á árinu.
Einn Íslendingur greindist hins
vegar með nautgripaberkla, en
ekki er ljóst hvernig smitið bar að
og ekki er vitað til þess að berklar
herji á nautgripi hér á landi um
þessar mundir.
Berklasmit jafngildir ekki
berklasjúkdómi, en talið er að 10%
þeirra sem smitast fái sjúkdóminn.
Óvenjumargir hafa
greinst með berkla