Morgunblaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
kg
25
SEK
2
4
6
Bláar fallegar kúlur sem skjótast
upp og springa. Niður fellur rautt
regn með brestum og silfurlituðum
stjörnum. Mögnuð kaka.
2 Jónas Margeir Ingólfssonjonasmargeir@mbl.is
Vanda Cristina, portúgölsk kona sem býr í Súðavík,
velti bíl sínum í Súðavíkurhlíð í fyrrakvöld. Grjót
hafði hrunið úr hlíðinni en þegar hún sveigði bíl sín-
um í átt frá grjótinu missti hún stjórn á honum. Bíll-
inn valt og hafnaði ofan vegar sem þykir mikil mildi
þar sem neðan vegarins er þverhnípt hengiflug og
sjór. Þrír voru í bílnum ásamt Vöndu, þar á meðal tvö
börn, þriggja ára og sex mánaða. Engin slys urðu á
fólki í óhappinu.
„Við vorum á heimleið þegar grjótið birtist okkur á
veginum. Við vorum að keyra í myrkri og komum
fyrir beygju svo við sáum grjótið ekki í tæka tíð. Ég
reyndi þá að koma bílnum yfir á hinn vegarhelming-
inn en missti stjórn á honum í hálkunni,“ segir Vanda
sem velti bílnum þegar hún reyndi að ná stjórn á hon-
um á ný. Bíllinn hafnaði þó á hjólunum réttum megin
vegar og enginn hlaut skaða af.
„Við fengum ekki nema nokkrar skrámur af gler-
brotunum úr rúðunni sem brotnaði en enginn meidd-
ist alvarlega. Við vorum ótrúlega heppin, það finnst
mér. Sonur minn, dóttir mín og eiginmaður minn
voru með mér í bílnum en enginn slasaðist,“ segir
Vanda en dóttir hennar er þriggja ára og sonur henn-
ar sex mánaða gamall.
Vanda flutti til Ísafjarðar ásamt eiginmanni sínum
fyrir fjórum árum. Fyrir tveimur árum festu þau
kaup á húsi í Súðavík. Vanda er nú í barneignarleyfi
en eiginmaður hennar starfar á Ísafirði. Eiginmaður
hennar er einnig portúgalskur en Vanda kveður börn
sín íslensk þar sem þau fæddust hér og hafa búið á
Vestfjörðum síðan.
„Það er mikil mildi að ekki fór verr. Bíllinn er al-
gerlega ónýtur. Vélin gengur að vísu en annað er
brotið og ónýtt.“
„Vélin gengur að vísu en
annað er brotið og ónýtt“
Ljósmynd/Lögreglan á Ísafirði
Velta Bíllinn valt einn hring en hafnaði á hjólunum.
Hjón með tvö lítil börn sluppu ótrúlega vel úr bílveltu
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Rannsóknarnefnd umferðarslysa
kannar nú tildrög slyssins í Langadal
í Austur-Húnavatnssýslu á mánudag
þar sem tengivagn flutningabíls á
norðurleið virðist hafa rekist á flutn-
ingabíl sem kom úr gagnstæðri átt og
valt út af veginum við áreksturinn.
Ökumaður síðarnefnda bílsins lét lífið
í slysinu.
Áreksturinn varð í brekku á hring-
veginum vestan við Bólstaðarhlíðar-
brekku. Klukkan 6:30 í gærmorgun
var þjóðvegur 1 um Langadal opn-
aður á ný til vesturs, þ.e. frá Varma-
hlíð í Skagafirði og hafði þá verið lok-
aður í 12 klukkustundir vegna
slyssins. Skömmu síðar var hann
einnig opnaður fyrir umferð til aust-
ur. Mun það sjaldan hafa komið fyrir
að hringvegurinn hafi verið lokaður
svo lengi vegna umferðarslyss.
Tengivagn bílsins sem valt fór ekki
út af en lokaði veginum, bíllinn sjálf-
ur, sem er í eigu Flytjanda, mun vera
gerónýtur, að sögn lögreglunnar á
Blönduósi. Hinn bíllinn, í eigu einka-
aðila á Austfjörðum, var hlaðinn
steinsteyptum skolprörum og dreifð-
ust þau um allt að 400 metra langan
kafla af veginum.
Langan tíma tók að kanna aðstæð-
ur á vettvangi vegna þess hve víðáttu-
mikið svæðið var. Einnig þurfti að-
stoð fjögurra öflugra vörubíla með
krana til að koma flaki bílsins sem
valt aftur upp á veginn og loks fjar-
lægja rör og rörabúta af veginum.
Fyrstu fréttir af slysinu voru nokk-
uð misvísandi, að sögn Höskuldar
Erlingssonar, varðstjóra lögreglunn-
ar á Blönduósi sem stýrði frumrann-
sókn á slysstaðnum áður en rann-
sóknadeildin á Akureyri tók við
málinu. Höskuldur segir að vegurinn
hafi verið þurr og engin hálka á svæð-
inu, rólegt veður og stjörnubjart.
Ekkert bendi til þess að bílarnir hafi
verið á óeðlilega miklum hraða.
Slysið varð í brekku á hringvegin-
um vestan við Bólstaðarhlíðarbrekku.
Ökumaður bílsins sem missti aftan úr
sér tengivagninn, hlaðinn fiski, lét
fyrst vita af því að orðið hefði óhapp,
hann hefði misst farm á veginn. En
örskömmu síðar sáu hann og ökumað-
ur annars bíls, sem kom að örstuttu
síðar, hvað gerst hafði.
Tvær tilkynningar til lögreglu
„Við héldum fyrst að þarna hefðu
orðið tvö óhöpp á sama tíma, ökumað-
urinn lét okkur fyrst vita af því að
hann hefði orðið var við högg eða
dynk, rör hefðu dottið af bílnum og
hann sá þau á veginum,“ sagði Hösk-
uldur. „Fyrst sá hann ekki hinn bíl-
inn, varð ekki var við áreksturinn sem
slíkan. En hann gengur niður veginn
og nánast á sama tíma kemur vegfar-
andi að úr hinni áttinni og þá sjá þeir
hinn bílinn utan við veginn og til-
kynna um að slys hafi orðið.
Við vitum ekki enn með vissu hvað
gerðist, hvort vagninn með steypu-
rörunum og hinn bíllinn slengjast
eitthvað saman við mætingu eða
vagninn með rörunum losnaði aftan
úr og hafnaði á bílnum með fiskfarm-
inn. Við getum ekki fullyrt neitt um
þetta ennþá.“
Hugsanlegt er að eitthvað hafi farið
úrskeiðis í búnaði bílsins sem flutti
rörin. En oft er bent á að íslenskir
þjóðvegir þoli varla umferð jafn
þungra og breiðra bíla sem þarna
mættust, vegirnir slitni og skemmist
hratt. Bilið á milli þessara öflugu bíla
er oft sáralítið, mishæðir á malbikinu
geta valdið því að hnykkur komi á þá
einmitt þegar þeir mætast. Höskuld-
ur vildi þó ekki segja neitt um það
hvort orsakir slyssins hefðu verið af
þessum toga, enn væri beðið eftir nið-
urstöðum rannsóknarinnar.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á vettvangi Flutningabíllinn sem var á suðurleið valt út af en tengivagninn hélst á veginum.
Óljóst hvað olli slysinu
Líklegt að tengivagn annars bíls hafi rekist á flutningabílinn í Langadal
Engar vísbendingar um of hraðan akstur og engin hálka var á veginum
Langidalur
Húnaver
Slysstaður
Slökkvilið Akureyrar var kallað út í
gær til að dæla vatni úr kjallara
Hótels Akureyrar, en um eins
metra djúpt vatn var í kjallaranum.
Hótel Akureyri hefur staðið autt
að undanförnu.
Í upphaflegri tilkynningu kom
fram að reykur kæmi úr skorsteini
hússins, en þegar slökkvilið mætti á
staðinn kom í ljós að kjallari húss-
ins var hálffullur af vatni. Talið er
að krani í kjallaranum hafi
frostsprungið.
Kjallarinn er steyptur og er ekki
talið að mikið tjón hafi orðið vegna
vatnslekans.
Kjallarinn hálffylltist af vatni
Bifreiðarstjórinn sem fórst í um-
ferðarslysinu í Langadal á mánu-
dag hét Hilmar Tómasson, til
heimilis að Valagili 21 á Ak-
ureyri. Hann var 35 ára gamall.
Hann lætur eftir sig tvær ungar
dætur.
Hilmar var fluttur með sjúkra-
bíl til Blönduóss og þaðan með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Landspítalann um kvöldið. Hann
var úrskurðaður látinn þegar
þangað var komið.
Lætur eftir sig
tvær dætur
Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð í
þyngstu málunum sem koma munu
frá sérstökum saksóknara til dóm-
stóla taki fjórar til sex vikur. Eftir
að mál eru lögð í dóm er talið að
dómasamning muni taka tvo til þrjá
mánuði. Í þeim er fyrirséð að fjöl-
skipa þurfi dóm og dómarar geti
ekki sinnt öðru svo mánuðum skipt-
ir.
Þetta kemur fram í tillögum að
styrkingu dómstóla til að mæta
auknu álagi vegna efnahagshrunsins
en þær voru unnar í dóms- og mann-
réttindaráðuneytinu. Um var að
ræða óformlegt samráð milli fulltrúa
dómsmálaráðuneytis og hags-
munaaðila innan dómskerfisins. Í
samantekt ráðuneytisins er að finna
heildstæðar tillögur til úrbóta innan
dómstólanna til þess að mæta auknu
álagi auk leiða til þess að fjármagna
þær úrbætur.
Koma fram á næsta ári
Ljóst þykir að fyrstu þungu málin
frá sérstökum komi fram á næsta ári
og dreifist svo yfir tíma fram til árs-
ins 2013 og jafnvel 2014. Á sama
tíma er fyrirsjáanlegt að ágreinings-
mál frá slitastjórnum vegna krafna í
þrotabú verði mikil að umfangi og
berist hratt. Frá 1. janúar 2009 hafi
637 slík mál borist og enn sé um
fimm hundruðum þeirra ólokið.
„Munu mál af þessum toga koma
fyrir héraðsdóm af fullum þunga á
árinu 2011 og meðferð þeirra standa
yfir fram eftir ári 2012.“
Einnig er komið inn á stofnun
millidómstóls og segir að Hæstirétt-
ur sinni í dag fremur hlutverki áfrýj-
unardómstóls en æðsta dómstóls
þjóðar. Því megi líta á stofnun milli-
dómstóls sem hluta af þeirri viðleitni
stjórnvalda að tryggja að rétt-
arvörslukerfið geti tekist á við það
umfangsmikla uppgjör sem óhjá-
kvæmilegt er. Bent er á að svigrúm
sé til staðar til að koma slíku milli-
dómstigi á, þar sem mál frá sér-
stökum saksóknara berist Hæsta-
rétti ekki fyrr en í árslok 2011 eða
byrjun árs 2012.
Þá segir að þó svo að gengið hafi
verið eins langt og unnt er við að
kortleggja væntanleg viðbótarverk-
efni dómstóla vegna hrunsins sé enn
töluverð óvissa um umfangið. Því sé
nauðsynlegt að ráðstafanir feli í sér
sveigjanleika. andrikarl@mbl.is
Aðalmeðferð
talin standa í
margar vikur