Morgunblaðið - 29.12.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Ýmsir minni spámenn í stjórn-arflokkunum láta sig dreyma
um að kippa Framsóknarflokknum
upp í vanbúið stjórnarfleyið til að
reyna að halda því á réttum kili.
Þettaeru
gjarna
sömu menn
og hafa
linnulítið
sent ýmsum samstarfsmönnum sín-
um í stjórnarliðinu kaldar kveðjur,
ýmist í eigin nafni eða annarra.
Nú halda þeir að Framsókn-arflokkurinn sé svo illa hald-
inn að þingmönnum hans detti í hug
að skrá sig á þessa hripleku skútu
til að sökkva með henni fyrir næstu
kosningar.
Þetta er í meira lagi sérkennileghugmynd og gæti aldrei komið
fram nema vegna þess að rík-
isstjórnin er við það að missa öll
tök.
Hvers vegna ætti Framsókn-arflokkurinn, sem hefur verið
í harðri málefnalegri andstöðu við
ríkisstjórnina í nær öllum veiga-
miklum málum, að hoppa nú upp í
til Samfylkingar og Vinstri grænna
og byrja að ausa?
Ríkisstjórnin er komin að fótumfram og ætti að vera fallin, þó
að hún sjálf hafi ekki enn áttað sig
á því og ráðherrar hennar hafi þess
vegna ekki óskað eftir að fara frá.
Helsta staðfesting þess aðstjórnin er búin að vera er
vitaskuld að litlu spámennirnir
skuli vera á höttunum eftir liðsauka
til að geta setið lengur á valdastól-
unum. Hvers vegna ætti Framsókn-
arflokkurinn að vilja það?
Í örvæntingu
er allt reynt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.12., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri -1 alskýjað
Egilsstaðir -2 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló -12 snjókoma
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -6 snjóél
Helsinki -11 skýjað
Lúxemborg -2 snjókoma
Brussel 1 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 2 alskýjað
London 6 þoka
París 2 súld
Amsterdam 1 léttskýjað
Hamborg -7 skýjað
Berlín -7 skýjað
Vín 0 skýjað
Moskva -6 snjókoma
Algarve 16 skýjað
Madríd 7 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -5 heiðskírt
Montreal -8 heiðskírt
New York 1 alskýjað
Chicago -5 skýjað
Orlando 7 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:38
ÍSAFJÖRÐUR 12:07 15:03
SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:44
DJÚPIVOGUR 11:01 14:59
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Nú styttist óðfluga í gamlárskvöld
með tilheyrandi flugeldakveðjum
landsmanna. Veitt var leyfi fyrir inn-
flutningi á um 510 tonnum af flugeld-
um fyrir þessi áramót; það er hátt í 60
tonna aukning frá því í fyrra.
„Ég var dálítið hissa en menn eru
bjartsýnir, virðist vera,“ segir Ólafur
Emilsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
og stöðvarstjóri á lögreglustöð 2 í
Hafnarfirði. Hann bætir við að sölu-
aðilar hafi fengið leyfi til að hefja sölu
á flugeldum í gærmorgun, og það
gerðu þeir flestir. Ekki ætti að reyn-
ast erfitt að nálgast flugeldana því
sölustaðir eru fjölmargir um land allt
en á höfuðborgarsvæðinu einu eru
þeir 60 talsins.
Minna um risatertur
Líkt og fyrri ár eru björgunarsveit-
ir Slysavarnafélagsins Landsbjargar
stærsti flugeldasalinn og flytja þær
inn um 345 tonn í ár. Útsölustaðir
sveitanna eru alls 112 talsins, þar af
34 á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Ólafar Snæhólm Baldurs-
dóttur, upplýsinga- og kynningafull-
trúa SL, fór salan rólega af stað en
hún segir landann vera þekktan fyrir
að bíða með kaupin allt þar til á gaml-
ársdag. Þann dag sé líf og fjör á sölu-
stöðum og margir sjálfboðaliðar við
störf. Vöruúrvalið hefur breikkað hjá
sveitunum frá fyrri árum og segir
Ólöf að nú sé minna af risatertum, líkt
og tíðkaðist á uppgangsárunum, og
meira af hóflegri tertum.
Hertar reglur í ár
Vel er fylgst með að sölustaðir
fari eftir settum reglum að sögn
Ólafs en lögregla gerði út-
tekt ásamt eldvarnareft-
irlitinu á nokkrum
þeirra á höfuðborgar-
svæðinu í gær og verð-
ur lokið við þá vinnu í dag. „Þetta er
sameiginlegt ferðalag okkar hérna
milli jóla og nýárs og er fastur liður á
hverju ári. Það er verið að fara eftir
nýjum reglum í ár sem eru talsvert
strangari en þær sem áður voru í
gildi. Eldvarnaeftirlitið gerir nú meiri
kröfur, t.d. um aðgengi og flóttaleið-
ir.“
Aðspurður segir Ólafur söluaðila
fara eftir settum reglum „Það er allt í
góðum gír og mér sýnist menn hafa
tekið þessu vel og eru með sitt í lagi.“
En hvernig ætli stemmningin sé á
sölustöðum á fyrsta söludegi? „Það er
mjög góð stemmning. Ég mæti hérna
fólki með flugeldapoka sem það hefur
verið að kaupa. Ég er dálítið hissa á
því hvað menn eru byrjaðir snemma á
þessu,“ segir Ólafur og hlær.
Árið 2010 kvatt með yfir
500 tonnum af flugeldum
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar stærsti flugeldasalinn
Morgunblaðið/Ernir
Vinsælt Sala á flugeldum hófst í gærmorgun um land allt og munu ófáir leggja leið sína á sölustaði á næstu dögum.
Alvarleg slys hafa hlotist af flugeldum og er full ástæða til að brýna fólk
til aðgæslu í meðferð þeirra. Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarna-
hússins, bendir á mikilvægi þess að foreldrar hafi eftirlit með börnum
sínum, bæði fyrir og eftir áramótin, þar sem mörg slys hafa orðið vegna
þess að fiktað hefur verið með skotelda.
Sá sem skýtur upp þarf að gæta þess að vera í góðri fjarlægð frá
fólki og íbúðarhúsum og huga vel að fatnaði, en mjög gott er að vera í
leður- eða ullarhönskum þar sem þau efni brenna einna verst. „Þeir
sem skjóta verða að gæta þess að vera ekki búnir að innbyrða
mikið áfengi, því áfengið gerir mann kærulausan,“ segir Herdís
og bætir við að allir þurfi að nota hlífðargleraugu og ekki bara
þeir sem eru að skjóta.
Flugeldar eru engin leikföng
RÉTT MEÐHÖNDLUN SKOTELDA MIKILVÆG
Herdís Storgaard