Morgunblaðið - 29.12.2010, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég fer ekki langt til aðsækja hugmyndir aðverkunum mínum, þettaer allt hér í heimahög-
unum. Við erum með hross og er-
um nýbúin að fá okkur tuttugu
kindur,“ segir Kristín Erla Ingi-
marsdóttir, bóndi og smíðakennari
frá Unnarholtskoti í Hrunamanna-
hreppi, sem býr til barnaleikföng,
hesta úr tré, kindur, torfbæi og
kolla.
„Hestarnir eru tvenns konar,
annars vegar á hjólum og svo aðr-
ir minni hestar sem eru ekki á
hjólum. Ég hef líka verið að smíða
litla torfbæi fyrir hestana eða önn-
ur dýr sem börnin eiga. Svo hef
ég gert stóra torfbæi sem eru
dótakassar. Núna er ég að byrja
að bæta í bústofninn, er að hanna
kindur, þær eru enn á frumstigi.
Ég er rétt byrjuð að saga þær út.“
Allt í einu, borð,
geymsla og kollur
Kristín Erla hefur líka hann-
að og smíðað fjölnota kolla sem
geta verið borð og geymslukassar.
„Þetta eru í raun kassar sem geta
ýmist verið með sléttu loki eða
loki með gæru. Þegar slétta lokið
er notað er kassinn borð en þegar
gærulokið er notað breytist borðið
í sæti eða koll. Ég smíða þetta í
tveimur stærðum og það er hægt
að stafla þeim upp. Stærri gerðin
getur verið náttborð, símaborð eða
hvaða annað borð sem fólki hent-
ar. Kassana er líka hægt að nota
sem hirslur undir hvað sem er.
Lægri kollana hugsa ég sem
barnakolla eða skammel og þeir
eru líka heppilegir dótakassar.
Auðvitað er best að hafa bæði
slétt lok og gærulok svo hægt sé
Hestar og kindur
úr túninu heima
Þeim fellur sjaldan verk úr hendi sveitakonunum og þannig er það með hana
Kristínu Erlu sem kennir krökkunum í grunnskólanum á Flúðum að smíða á
daginn en smíðar svo sína eigin hluti heima á kvöldin.
Öflugir Stóru hestana á hjólunum er hægt að draga á eftir sér.
Hestar og hús Hægt er að leika sér með trédótið bæði úti og inni. Litlu
hestarnir vilja greinilega fara inn í torfbæinn sem Kristín smíðaði líka.
Önnur hver bók sem gefin er út um
þessar mundir fjallar um einhvers
konar morðgátu og má því ætla að
landsmenn séu sérlega sólgnir í að fá
innsýn í hvernig þesslags gátur eru
leystar. Morðgátuspil (murder mys-
tery games) ættu því ekki síður að
eiga upp á pallborðið. Vert er að
benda á vefsíðuna mymystery-
party.com, en þar er hægt að nálgast
ógrynni morðgátna fyrir fólk á öllum
aldri og fyrir mismarga í einu. Þeir
sem reynt hafa vita að það er virki-
lega gaman að vera boðið í matarboð
eða teiti þar sem þessi frábæri sam-
kvæmisleikur er við hafður. Hver og
einn fær úthlutað fyrirfram einni per-
sónu sem hann/hún leikur og auðvit-
að er mest gaman að vera í klæðum
sem hæfa þeim tíma sem leikurinn
gerist á, til dæmis sjötta áratugnum.
Þá er gaman að gramsa og grúska í
skápum eða jafnvel fara á fataleigu
til að koma sér í rétta gallann. Greiða
sér svo og mála í samræmi við tíma-
bilið. Þetta skapar mikla stemningu
og spennan magnast eftir því sem
fleiri vísbendingar koma fram. Sá
sem leikur morðingjann veit ekki
endilega sjálfur í upphafi að hann er
sá illræmdi, en það gerir leikinn bara
enn skemmtilegri.
Vefsíðan www.mymysteryparty.com
Morð Að leysa saman morðgátu í góðra vina hópi er hin besta skemmtun.
Morðgátur fyrir öll tilefni
Margir eiga einstakar minningar
tengdar Skólaljóðunum, bláu bókinni
sem geymir mörg ljóðin sem hafa
límst við heila landsmanna frá því í
bernsku. Þessi bók sem hýsir úrval
ljóða margar höfuðskálda Íslands
fram um miðja síðustu öld, hefur ver-
ið ófáanleg í tuttugu ár. Því er næsta
víst að margir fagna og hlaupa til nú
þegar endurútgáfa bláu bókarinnar
hefur litið dagsins ljós. Náms-
gagnastofnun gefur ritið út, alls
óbreytt nema við hefur verið bætt
dánardægrum þeirra skálda sem enn
lifðu í síðustu útgáfunni. Teikningar
Halldórs Péturssonar eru fólki ekki
síður hjartfólgnar en ljóðin, hver man
ekki eftir hvernig barnshugurinn
gleypti í sig Skúlaskeiðsmyndir?
Endilega …
… gluggið í Skólaljóðin
Áramót eru tímamót í mörg-um skilningi og þá byrjamargir upp á nýtt, gera
breytingar í lífi sínu og lofa sjálfum
sér að laga sitthvað sem betur
mætti fara. Tíu algengustu ára-
mótaheitin eru þessi:
Verja meiri tíma með fjölskyldu
og vinum Allt of margir eru með
nagandi samviskubit árið um kring
vegna þess að þeim finnst þeir ekki
vera nægilega mikið með sínum
nánustu. Það er hollt og gott að
taka sig reglulega á í þessum mál-
um og forgangsraða, gera ráðstaf-
anir til að geta verið meira heima
og skipuleggja hitting með vinum
sínum.
Taka sig á í líkamsræktinni Það
er til mikils að vinna, regluleg
hreyfing dregur úr hættu á alls-
konar sjúkdómum, lætur fólki líða
betur og líta betur út. Nú er lag í
upphafi nýs árs að taka sig á, skrá
sig á námskeið, kaupa sér kort í
ræktina, synda eða hlaupa reglu-
lega, hjóla, klífa fjöll eða gera hvað
annað sem hverjum hentar best.
Losa sig við yfirvigtina Þar sem
íslenska þjóðin fer hratt fitnandi er
ekki undarlegt að æ fleiri strengja
þess heit um áramót að léttast. Að
setja sér raunhæf markmið og
halda sér við efnið eru þeir tveir
þættir sem skipta mestu ef ná skal
árangri í því að losa sig við um-
framkílóin.
Hætta að reykja Það er aldrei of
seint að hætta að reykja. Hægt er
að sækja sér ýmsa aðstoð, nikótín-
tyggjó reynast mörgum vel en einn-
ig er hægt að fara á námskeið eða
fá leiðbeiningar til að komast yfir
reykingalöngunina.
Njóta lífsins meira Mörgum
finnst þeir ekki njóta lífsins, stund-
irnar líði hjá í vinnustriti og hvers-
dagsamstri. Takið frá tíma til að
gera eitthvað skemmtilegt, til-
einkið ykkur nýtt tómstundagam-
an, farið að stunda áður óreynda
íþrótt, farið á námskeið í einhverju
áhugaverðu eða látið dekra við
ykkur. Látið drauma rætast.
Hætta að drekka Því miður glíma
allt of margir við áfengisvandamál
og það er sannarlega gleðiefni fyrir
alla sem tengjast slíkum ein-
staklingi þegar hann ákveður að
hætta að drekka. Sumir geta hætt á
eigin forsendum en langflestir fara
í gegnum áfengismeðferð til að ná
góðum árangri.
Ná betri tökum á skuldunum
Fjárhagsáhyggjur eru sligandi og
um að gera að fresta því ekki leng-
ur að taka til í fjármálunum. Gott
er að fá aðstoð hjá fagaðilum.
Læra eitthvað nýtt Við það opn-
ast nýjar víddir og það eflir sjálfs-
myndina. Horfið til nýrra átta og
takist á við hið ókunna. Sumir
skipta alfarið um starfsferil, aðrir
láta duga að læra nýtt tungumál
eða eitthvað annað.
Hjálpa öðrum Óeigingjörn nýárs-
heit eru dyggð. Sýnið kærleika í
verki. Takið að ykkur sjálf-
boðastörf fyrir góðgerðarfélög eða
réttið vinum hjálparhönd. Að gefa
frá sér húsgögn, raftæki, fatnað
eða annað sem fólk hefur ekki leng-
ur not fyrir, er gott innlegg í sam-
hjálpina í samfélaginu.
Skipuleggja sig Það er verðugt
verkefni að skipuleggja líf sitt bet-
ur, hvort sem það er á heimavelli
eða í vinnunni.
Gott er að taka til í eigin ranni
Kropparækt Mörg áramótaheit snúa að því að bæta líkamlega heilsu.
Tíu vinsælustu
áramótaheitin
Ár slaufunnar
2011