Morgunblaðið - 29.12.2010, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Munið að slökkva
á kertunum
Munið að algengasta orsök
kertabruna er röng meðferð kerta
STUTTAR FRÉTTIR
● Svíþjóð ætti að
leggja evruaðild á
hilluna um fyrir-
sjáanlega framtíð,
segir sænska blaðið
SvD Näringsliv að
séu skilaboð frá
þeim leiðtogum í
sænsku atvinnulífi
sem blaðið hafi tal-
að við. Skuldakreppa í Evrópu hafi vald-
ið sinnaskiptum hjá mörgum evrusinn-
anum.
Svíar hafa sem kunnugt er haldið fast
í krónuna, þótt landið sé innan Evrópu-
sambandsins. Í umfjöllun SvD Närings-
liv segir að síðastliðið ár hafi verið það
erfiðasta frá upphafi evrusamstarfsins.
Skuldavandræði Grikkja og Íra hafi neytt
önnur Evrópulönd til að koma þjóðunum
til aðstoðar með gríðarstórum neyðar-
lánveitingum. Margir hagfræðingar séu
nú á þeirri skoðun að kreppan hafi sann-
að að myntbandalagið sé ekki ákjós-
anlegt fyrirkomulag. Á sama tíma hafi
sænska hagkerfinu gengið vel, utan
evrusvæðisins. ivarpall@mbl.is
„Núna vill enginn evru“
Evrópski seðlabankinn (ECB) jók
kaup sín á ríkisskuldabréfum aðild-
arríkja evrusvæðisins verulega í síð-
ustu viku. Samkvæmt tölum ECB
keypti hann ríkisskuldabréf fyrir 1,1
milljarð evra í síðustu viku, en and-
virði kaupanna nam 603 milljónum
evra vikuna þar áður.
Breska blaðið Financial Times seg-
ir þessa aukningu til marks um vax-
andi þrýsting á seðlabankann um að
grípa til aðgerða sem eiga að koma í
veg fyrir að fjármögnunarkjör verst
stöddu evruríkjanna rísi upp úr öllu
valdi. Athygli vekur að ECB skuli
auka kaup sín á tíma þar sem yfirleitt
er lítil velta á mörkuðum og leiddar
eru að því líkur í frétt breska blaðsins
að magn kaupanna verði til þess að
styrkja væntingar á markaði um að
bankinn verði enn umsvifameiri í
beinum kaupum á ríkisskuldabréfum
á næstu misserum, ekki síst vegna
þess að stórir gjalddagar falla á rík-
isstjórnir sumra verst stöddu evru-
ríkjanna á næsta ári og að öllu
óbreyttu gætu efasemdir um að hægt
verði endurfjármagna þá á viðunandi
kjörum leitt til enn frekari spennu á
evrópskum fjármálamörkuðum.
Beinast að írskum og
portúgölskum bréfum
ECB hóf bein kaup á ríkisskulda-
bréfum í maí síðastliðnum, þegar mik-
il spenna ríkti á fjármálamörkuðum
vegna skuldastöðu gríska ríkisins.
Um tíma námu kaup bankans á rík-
isskuldabréfum allt að 10 milljörðum
evra í viku hverri. Síðan dró úr kaup-
unum en þau hófust að nýju í byrjun
þessa mánaðar. Þau hafa hinsvegar
ekki enn náð sömu hæðum og í sumar.
ECB veitir ekki upplýsingar um
sundurliðun kaupanna en að sögn
Financial Times hafa þau að undan-
förnu beinst fyrst og fremst að írsk-
um og portúgölskum ríkisskuldabréf-
um. Seðlabankinn hefur varið sig að
hluta gegn tapi af þessum kaupum en
nýlega var eigið fé bankans tvöfaldað
í 10,6 milljarða evra. ornarnar@mbl.is
REUTERS
Bætt í Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu, hefur aukið kaup
bankans á ríkisskuldabréfum að undanförnu.
ECB eykur kaup
á skuldabréfum
Kaup beinast að Írlandi og Portúgal
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Uppsafnaðar skuldir einkahluta-
félaga sem hafa haft skráð lög-
heimili að Túngötu 6 í Reykjavík
hlaupa á mörghundruð milljörðum
króna. Lögheimili fjárfestinga-
félagsins Baugs var eitt sinn stað-
sett við þá götu, en fjöldi dótt-
urfélaga Baugs var skráður til
heimilis í sama húsi. Fjöldi hluta-
félaga með lögheimili að Túngötu 6
skipti tugum. Þessi misserin birtast
tilkynningar í Lögbirtingablaðinu
sem sýna að þessi félög eru eitt af
öðru að verða gjaldþrota. Nú síðast
birtist innköllun vegna félagsins F-
Capital ehf., en þar áður vegna Mil-
ton ehf. Þessi félög hafa hvorugt
skilað inn ársreikningum frá árinu
2007. Sé þó litið til þeirra reikninga
má sjá að skuldir beggja félaga
námu í kringum 12 milljörðum
króna í lok þess árs, sé miðað við
opinbert gengi krónunnar í dag,
samkvæmt Seðlabankanum.
Í einhverjum tilfellum er gjald-
þrotameðferð lokið á félögum með
lögheimili að Túngötu 6. Er þar
skemmst að minnast skiptameð-
ferðar á Styrk Invest, en lýstar
kröfur í bú félagsins voru 47,5
milljarðar króna. Engar eignir
fundust þó á móti þeim kröfum.
Ekki hefur birst innköllun vegna
félagsins A-Holding, en skuldir
þess félags nema í dag um 37 millj-
örðum króna. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að það félag verði
brátt sett í þrot, en ólíklegt er talið
að einhverjar eignir muni finnast á
móti þeim skuldum.
Sem kunnugt er stendur skipta-
meðferð á móðurfélaginu Baugi
Group yfir um þessar mundir.
Lýstar kröfur í þrotabú Baugs
námu 319 milljörðum króna. Sam-
anlögð upphæð lýstra krafna í
þrotabú félaga sem höfðu lögheim-
ili að Túngötu 6 annars vegar og
skuldir félaga sem eru enn á lífi
hins vegar nemur tæplega 550
milljörðum króna. Þess ber þó að
geta að hér er ekki litið til skulda-
söfnunar félaga á borð við FL Gro-
up og Landic Property í þeirri
samtölu, en samanlagðar skuldir
þeirra námu hundruðum milljarða.
Mörghundruð milljarða
skuldir hýstar að Túngötu 6
Einkahlutafélög með lögheimili að Túngötu 6 fara í gjaldþrot eitt af öðru
Félög með aðsetur að Túngötu 6 - skuldir og lýstar kröfur í þrotabú
Baugur Group
Styrkur Invest
1998 ehf
F-Capital ehf
Milton ehf
A-holding
BGE Eignarhaldsfélag
M-Holding
M-Invest
Arena Holding
Stoðir Invest
BG Equity
BG Bondholders
Sports Investments
319milljarða kröfum lýst
47,5milljarða kröfum lýst - engar eignir
Skuldar 48milljarða - söluverð Haga ræður heimtum
Gjaldþrota - skuldaði 12,4milljarða í árslok 2007
Gjaldþrota - skuldaði 12milljarða í árslok 2007
37milljarða skuldir, engar eignir
Eignalaust - Kaupþing vill 1,8milljarða
Skuldaði 27milljarða í árslok 2007
Skuldaði 3milljarða í árslok 2007
Gjaldþrota - 1,4milljarða kröfu lýst - eignalaust
Tekið yfir af skilanefnd Kaupþings
Tekið yfir af skilanefnd Kaupþings
Slitið og afskráð
35milljóna kröfum lýst
Fjárfestingafélagið Gaumur
„beinar skuldir”nema sexmilljörðum samkvæmt Kristínu Jóhannesdóttur
Maccus ehf
Nelson ehf
Unity One
Unity Investments
M-Holding
M-Invest
Arctic Holding
BG Aviation (félag um einkaþotu)
BG Newco 6
BG Newco 2
BG Newco 4
BG Newco 5
Kyrrstöðusamningur við Arion banka,
Slitið og afskráð
Slitið og afskráð
Óljós staða
Óljós staða
Skuldaði 27 milljarða í árslok 2007
Skuldaði 3 milljarða í árslok 2007
Tekið yfir af skilanefnd Kaupþings
Skuldaði 3,6 milljarða í árslok 2007
Eignalaust
Eignalaust
Eignalaust
Eignalaust
!"# $% " &'( )* '$*
++,-,.
+./-0/
++,-1,
02-,03
+4-,5,
+.-233
+00-+
+-523
+..-3/
+,1-2+
++,-/,
+./-.+
++,-34
02-,/3
+4-321
+.-++3
+00-55
+-5+2+
+./-0+
+,1-55
02.-/133
++3-+1
+.4-+5
++3-21
02-353
+4-33+
+.-+33
+00-./
+-5+50
+./-.5
+,1-/.