Morgunblaðið - 29.12.2010, Side 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gífurlegt fannfergi hefur sett daglegt líf úr
skorðum á dönsku eyjunni Borgundarhólmi.
Lögreglan hefur haft í nógu að snúast við að að-
stoða íbúa eyjarinnar en hluti þeirra hefur ein-
angrast og því ekki getað sótt sér lyf og aðrar
nauðsynjar síðan dagana 21. og 22. desember.
Frá því er sagt á vef Berlingske Tidende að
í gær hafi lögreglan ekki haft yfirsýn yfir hversu
margir hefðu hvorki komist lönd né strönd
vegna snjóþyngslanna. Meðal þeirra sem hafa
einangrast eru bændur og aðstoðar lögreglan þá
við að nálgast fóður fyrir skepnurnar.
Ein mesta ofankoma í sögu Danmerkur
Fannfergið á Borgundarhólmi er það mesta
sem elstu menn muna og náði snjóhæðin allt að
145-150 sm. Segir á vef Berlingske að þetta fari
án efa nærri metinu í allri Danmörku og að líkur
séu á að ofankoman slái öll fyrri met í landinu.
Snjókoman hefur víða lamað samgöngur og
hefur Politiken eftir lögreglunni að reikna megi
með að það taki viku að ryðja snjóinn.
Verða um 200 viðbótar-snjóruðningstæki
frá öðrum sveitarfélögum notuð til verksins.
Útlit er fyrir að snjóbreiðan muni þekja eyj-
una fram yfir áramótin en skv. veðurspá fer hit-
inn í mest eina gráðu á Celsíus á gamlársdag en
verður annars um frostmark og niður í 6 gráður.
Vöruskortur í Borgundarhólmi
Íbúar eyjarinnar hafa verið einangraðir síðan fyrir jól vegna vetrarharkna og snjóþyngsla
Lögregla liðsinnir fólki við að nálgast mat, eldsneyti og lyf Léttir einnig undir með bændum
Reuters
Bið Farþegar bíða eftir farangri á Kastrup-flugvelli. Vetrarhörkurnar hafa raskað flugsamgöngum
víða í Evrópu síðustu daga og margir hafa þurft að bíða tímunum saman á flugvöllum.
Eyjan í tölum
» Íbúar eyjarinnar eru rúm-
lega 42.000.
» Flatarmál hennar er 588
ferkílómetrar og eru því um 72
íbúar á hvern ferkílómetra.
» Til samanburðar eru rúm-
lega 3 íbúar á hvern ferkíló-
metra á Íslandi.
» Rønne er stærsti bær
eyjarinnar en þar búa hátt í
14.000 manns.
» Hæsti punktur eyjarinnar
er 162 metrum yfir sjó og er
því um 15 metrum hærri en
hæðin Himmelbjerget á meg-
inlandinu.
Algengt er að Indverjar, búsettir er-
lendis, snúi aftur til Indlands til að
ganga í hjónaband en yfirgefi síðan
eiginkonur sínar skömmu eftir brúð-
kaupið og flýi land með heiman-
mundinn. Amanjyot Kaur, 22 ára
kona á Indlandi, er á meðal þúsunda
ungra kvenna sem hafa verið yfir-
gefnar með þessum hætti.
Leiðtogi Lok Bhalai, lítils stjórn-
málaflokks í Punjab, segir að 22.000
konur hafi kært brottflutta eigin-
menn sína fyrir að hafa yfirgefið
þær og sest að erlendis. B.
Ramoowalia, leiðtogi flokksins, seg-
ist hafa hjálpað 1.200 yfirgefnum
eiginkonum að hafa uppi á eigin-
mönnum sínum erlendis.
„Auðveldasta leiðin fyrir þessa
menn til að þéna peninga er að
ganga í hjónaband. Þeir leggja á
flótta úr landinu um leið og þeir fá
heimanmundinn,“ segir Ramoo-
walia. „Ekki er vitað hver raunveru-
legur fjöldi þeirra er vegna þess að
margar konur í íhaldssömum sam-
félögum óttast að fjölskyldur þeirra
hafi skömm af því ef þær kæra eig-
inmenn sína.“
Á Indlandi hefur verið ólöglegt frá
árinu 1961 að greiða eða þiggja
heimanmund. Á mörgum stöðum í
landinu er þó enn haldið í þá alda-
gömlu hefð að foreldrar brúðarinnar
færi fjölskyldu brúðgumans pen-
inga, föt og skartgripi. Þessar gjafir,
eða heimanmundurinn, nema oft
sem svarar hundruðum þúsunda
króna.
Amanjyot Kaur giftist manni sem
býr í Montreal í Kanada og hann
sneri þangað aftur viku eftir brúð-
kaup þeirra í litlu þorpi í Punjab.
Hann lofaði að senda eiginkonu sinni
skjöl, sem hún þurfti til að fá vega-
bréfsáritun, en sveik það loforð.
Þegar henni tókst loks að hafa sam-
band við hann vildi hann ekki við-
urkenna að þau hefðu gengið í
hjónaband.
„Ég skrifaði 120 bréf, hringdi nær
500 sinnum til að ná sambandi við
hann í Kanada en ekkert hafði áhrif
á hann,“ sagði Amanjyot Kaur sem
kvaðst hafa þjáðst af þunglyndi frá
brúðkaupinu fyrir tveimur árum.
„Ég hef óbeit á sjálfri mér fyrir að
elska tilfinningalausan mann. Hann
sveik mig og fjölskyldu mína,“ sagði
hún og benti á föður sinn sem þurfti
að selja hluta af ræktarlandi sínu til
að eiga fyrir brúðkaupinu.
bogi@mbl.is
Flýja land með allan heimanmundinn
Brúðkaup Ellefu ára indversk stúlka stendur við hlið nýbakaðs eiginmanns
síns eftir brúðkaup þeirra í musteri á Indlandi. Algengt er í sveitum lands-
ins að ungar stúlkur, allt niður í sjö ára gamlar, gangi í hjónaband.
Þúsundir kvenna á Indlandi hafa kært eiginmenn sína fyrir að hafa yfirgefið þær og flúið land eft-
ir að hafa tekið við gjöfum frá foreldrum kvennanna Sögð auðveld leið fyrir þá til að þéna peninga
Þeir hjálpuðust að við að bera farangurinn þess-
ir ferðalúnu ferðamenn á leið sinni í leigubíla-
röðina á 7th Avenue í New York.
Djúpur snjór þakti götur borgarinnar, sem
stundum er kölluð Stóra eplið, eftir að blindbyl-
ur skall á á öðrum degi jóla. Kafaldsbylur gekk
þá yfir norðausturríki Bandaríkjanna og mæld-
ist snjódýptin allt að 74 sm.
Um hver áramót streymir fjöldi ferðamanna
til New York til að taka þátt í áramótafagn-
aðinum, sem nær hámarki þegar talið er niður
að miðnætti á torginu Times Square.
Þúsundir flugferða féllu niður á flugvöllum
New York en ofankoman er að sögn New York
Times sú sjötta mesta í sögu borgarinnar.
Reuters
Stóra eplið á kafi
Dómsmálaráð-
herra Simbabve,
Johannes Tom-
ana, hyggst fela
fimm lögfræð-
ingum að rann-
saka hvort Morg-
an Tsvangirai,
forsætisráðherra
hafi gerst brot-
legur við stjórn-
arskrá landsins, í
kjölfar birtingar WikiLeaks-
vefjarins á skjölum um samskipti
ráðherrans og fulltrúa Bandaríkja-
stjórnar.
Varðar allt að dauðarefsingu
Gæti rannsóknin leitt til ákæru
fyrir landráð en slíkt varðar allt að
dauðarefsingu í Afríkuríkinu.
Meðal þess sem haft er eftir
Tsvangirai í skjölunum er að hann
hafi talið nauðsynlegt að viðhalda
viðskiptaþvingunum gegn ríkinu.
Haft er eftir lögmanninum Beat-
rice Mtetwa á vef Guardian að erfitt
verði að byggja dómsmál á skjöl-
unum. Á móti komi að forsetinn og
hans muni muni sækja málið fast.
Kann að ver-
ða ákærður
fyrir landráð
Tsvangirai í vanda
vegna leyniskjala
Morgan
Tsvangirai