Morgunblaðið - 29.12.2010, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Gunnar Thoroddsen varkallaður „silkitungaíhaldsins.“ Það hljómar
ekki eins og hrós, en var það.
Gunnar var fremstur pólitískra
ræðumanna á sinni tíð. Og sú tíð
var ekkert blíðalogn í barátt-
unni. Stormarnir voru harðir og
stórudómarnir fylgdu þeim
veðragný. En Gunnar hélt sínu
lagi og náði samt athygli. Kurt-
eisi hans og háttvísi var við-
brugðið en röksemdir hans náðu
betur í gegn en þeirra sem fóru
geyst. Það sást að mikils mætti
af Gunnari vænta. Hann var af-
burðamaður. Kristján Eldjárn
og hann „dúxuðu“ á lokaprófi í
menntaskóla. Tæpum fjórum
áratugum síðar tókust þeir á um
hvor skyldi sitja á hefðarstóli
Bessastaða og svo útsmogin
voru örlögin að síðasta verk
Kristjáns forseta var að skipa
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra í ríkisstjórn, sem ýms-
um þótti illa til stofnað.
Nýleg ævisaga Gunnars
Thoroddsen eftir Guðna Jó-
hannesson er athyglisverð, ekki
einvörðungu vegna þess hlut-
verks sem Gunnar hafði í ís-
lenskum stjórnmálum, heldur
vegna þess að Gunnar leggur til
sögunnar minnisbrot og dag-
bókarfærslur sem varpa ljósi á
sögu, sem var önnur en ætlað
var. Þau skrif staðfesta margt af
því sem menn höfðu gefið sér um
tilgang Gunnars og metnað. En
metnaðurinn hefur frá fyrstu tíð
verið afl hans og drifkraftur. Sá
metnaður uppfylltist um margt
vegna gáfna Gunnars og hæfi-
leika, en einnig vegna staðfestu.
Hann missti aldrei sjónar á
markmiðum sínum. En aldrei
verður vitað til fulls hvað hefði
orðið hefði þjóðin fengið að njóta
hæfileika Gunnars við bestu
skilyrði.
Forsetakosningar í landinu
1952 fylgdu Gunnari alla tíð.
Forystumenn stærstu flokka
þjóðarinnar höfðu ákveðið að
styðja sr. Bjarna Jónsson, þjóð-
frægan höfuðborgarprest, til
embættisins. Þótti það val sýna
að hinum allsráðandi foringjum
þætti lítið til „puntembættisins“
koma og ákvörðun þeirra væri
neikvæð viðbrögð við framboði
Ásgeirs Ásgeirssonar. Gunnar,
þá vinsæll borgarstjóri, fór gegn
ákvörðun Ólafs Thors og studdi
tengdaföður sinn sem forseta.
Sumir töldu það svik sem aldrei
yrðu fyrirgefin. Til þeirra at-
burða má rekja síðari ágreining
við Gunnar og einnig að nokkru
það afhroð sem hann beið í for-
setakosningum 1968. Þar kom
þó einnig til farsæll mótfram-
bjóðandi, viðreisnarstjórnin var
í andbyr og róttækir straumar
fóru um þjóðfélagið.
Gunnar var þá sendiherra í
Danmörku. Þangað fór hann til
að skapa fjarlægð frá löngu
stjórnmálavafstri, segja upp
löngum vinskap við Bakkus og
til að undirbúa forsetakjör.
Gunnar vildi nú heim og varð
ýmsum órótt og til ófriðar dró.
Sviplegt fráfall Bjarna Bene-
diktssonar 1970 breytti stöðunni
og Gunnar sá leið opnast inn í ís-
lensk stjórnmál á ný. Jóhann
Hafstein axlaði forystuhlutverk-
ið í flokknum. „Varaformennska
var laus,“ eins og Gunnar orðaði
það. Því embætti hafði hann
gegnt og því sjálfsagt að sækj-
ast eftir því á ný. En í millitíð-
inni hafði Geir Hallgrímsson
mætt til leiks, virtur borgar-
stjóri í Reykjavík sem margir
horfðu til sem framtíðarleiðtoga
flokks. Allt rétt, sagði Gunnar,
hans tími kemur, hann getur
beðið, en ég ekki. Geir vann
varaformannskjörið, þar sem
hart var tekist á. En munurinn
varð svo naumur að ljóst þótti að
Gunnar hlyti að sitja nærri önd-
veginu hvað sem þessum úrslit-
um liði. Hófust því deilur og
átök víða innan flokks. Gunnar
varð ráðherra á ný og þegar ör-
lögin blésu enn til breytinga
fékk hann loks varaformanns-
embættið. Stórsigur virtist
blasa við Sjálfstæðisflokknum
haustið 1979 eftir einhverja
verstu vinstristjórn sem setið
hafði. En stefnumörkun flokks-
ins sem var skýr og skynsamleg
hentaði illa til kosninga og fram-
bjóðendur flokksins hlupu frá
henni hver sem betur gat. Von-
irnar brugðust og skilyrði til
skaplegrar stjórnarmyndunar
urðu afleit. Togstreita innan
stærsta flokksins bætti ekki úr.
Svo fór eftir langt stjórnar-
myndunarþref, sem þótti orðið
stjórnarkreppa, að Gunnar
bauðst til að leggja með sér
nokkra félaga úr þingflokki
Sjálfstæðisflokksins og sjálfan
sig í forsæti ríkisstjórnar. Stein-
grímur Hermannsson, Ólafur
Ragnar og Svavar Gestsson
töldu að yrði þetta látið eftir
Gunnari myndi Sjálfstæðis-
flokkurinn sundrast og aldrei ná
sér. Það væri tilvinnandi, þótt
þjóðarhagur væri í veði. Allir
vita hvernig fór. Verðbólga varð
80 prósent á einu ári og 120 pró-
sent miðað við þrjá mánuði.
Sjálfstæðisflokkurinn engdist
með formanninn sem leiðtoga
stjórnarandstöðunnar og vara-
formanninn sem forsætisráð-
herra. En hann klofnaði ekki.
Geir lét ekki undan kröfum um
að víkja „svikurunum“ úr
flokknum. Gunnar studdi mynd-
arlega sinn flokk í borgarstjórn-
arkosningum 1982 þar sem
hreinn meirihluti vannst á ný.
Gunnar náði því takmarki að
verða forsætisráðherra. En
hann hafði engan raunverulegan
bakstuðning í þinginu. Hann var
því sem fundarstjóri í ríkis-
stjórn og talsmaður út á við
fremur en leiðtogi landsins.
Virðingar naut hann og vin-
sælda. En þjóðin fékk aldrei að
sjá til þess mikla hæfileika-
manns, Gunnars Thoroddsen, í
hlutverki forsætisráðherra, með
óskoraðan stuðning flokks síns.
Og það er eftirsjá að því. Gunn-
ars er á þessum degi minnst með
hlýju.
Gunnar Thoroddsen
Þ
að hnykkti eflaust einhverjum við
þegar borgarstjórinn í Reykjavík,
Jón Gnarr, lýsti þeirri skoðun sinni
á fundi borgarstjórnar að það
mætti líkja þjóðinni við fjölskyldu
alkóhólista sem búinn væri að vera fullur sam-
fleytt í mörg ár: „Allt veldi hans var byggt á
kjaftagangi, klækjum og blekkingum. Hann
faldi gluggaumslögin. Hann tók lán hjá okurlán-
urum þegar annað brást. Í örvæntingu sinni fór
hann meira að segja með sparifé fjölskyldunnar
í spilavíti til að reyna að dobbla það.“
Við þessa lýsingu, sem nær óneitanlega mjög
vel yfir uppsveifluna miklu, fylleríið mikla, og
timburmennina í kjölfarið, má svo bæta því að
samband kjósenda og stjórnmálamanna er að
mörgu leyti eins og samband fjölskyldumeðlims
við alkóhólista hvarvetna þar sem lýðræði er við
lýði. Alkóhólistinn lýgur að sjálfum sér og öllum í kringum
sig, það er eðli sjúkdómsins; segir það sem hann telur að
muni duga til að geta haldið neyslunni áfram. Stjórn-
málamaðurinn lýgur, ekki vegna þess að hann sé veikur,
heldur vegna þess að hann heldur að hann eigi að gera það,
heldur að hann eigi að fegra hlutina, skreyta þá og færa til
betri vegar til þess að geta náð og/eða haldið völdum.
Kosningasigur Besta flokksins í Reykjavík kom mörgum
stjórnmálamönnum í opna skjöldu og ekki síður mörgum
áhugamönnum um stjórnmál. Frá þeim sigri hefur líka
ekki linnt ómálefnalegum og ruddalegum árásum á að-
standendur flokkins, en þó aðallega á forsvarsmann hans,
Jón Gnarr, sem síðar varð borgarstjóri. Hann
er gjarnan nefndur trúður, spaugari, vesalings
grínleikari sem lifi í ævintýraheimi. Þeir sem
þannig láta skildu ekki hvernig Besti flokk-
urinn gat sigrað í Reykjavík og skilja ekki enn.
Skýringin er þó einföld að mínu viti – fjöl-
skyldumeðlimir alkóhólistans þrá ekkert heitar
en að heyra sannleikann, en ekki bara það sem
stjórnmálamaðurinn telur að kjósandinn vilji
heyra. Það var því eins og ferskur andblær að
heyra stjórnmálamann segja að hann hygðist
svíkja öll kosningaloforð eftir að hafa heyrt
hinu gagnstæða haldið fram árum saman en
loforðin svikin samt. Það var ævintýralegt að
heyra stjónmálamann segja sannleikann með
erfiðleikana sem blasa við eftir fyllerí síðustu
ára í stað þess að halda því fram að það væri
enn hægt að gera allt og myndi ekki kosta
neitt.
Eftir áratuga óráðsíu og sukk blasa miklir erfiðleikar við
um land allt, ekki bara í Reykjavík. Kjósendur vilja ekki
heyra gamla sönginn um að að allt sé í lagi, heldur vilja þeir
fá að heyra sannleikann, þó hann sé sár. Ef allt er í kalda
koli vilja þeir fá að heyra það og síðan hvaða leiðir menn
telja bestar til að lóðsa okkur úr þessum (vonandi) tíma-
bundnu erfiðleikum. Nú er það að vissu leyti skiljanlegt að
stjórnmálamenn vilji fegra sem mest viðskilnað sinn – þeir
byrja ekki með hreint borð eins og Besti flokkurinn, en það
er engin afsökun fyrir því að leyfa okkur ekki að heyra
sannleikann öðru hvoru. arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Af óheilbrigðu fjölskyldumynstri
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
E
ldsneytisverð hefur lítið
gert annað en að
hækka á árinu sem er
að líða. Ekki var liðinn
nema mánuður af árinu
þegar 200 króna múrinn var rofinn.
Lítraverðið fór á skömmum tíma frá
um 190 krónum í 205 krónur, jafnt á
bensíni sem díselolíu. Hæst fór bens-
ínlítrinn í 212 krónur í lok apríl sl. en
fór síðan lækkandi er leið á sumarið,
þó ekki neðar en í rúmar 193 krónur.
Í haust fór verðið að hækka og fór
fljótt yfir 200 krónurnar á ný. Vetr-
arríkið í Evrópu og Bandaríkjunum
hefur síðan ekki dregið úr hækk-
unarþörfinni og ef mið er tekið af boð-
aðri hækkun ríkisins á vörugjaldi þá
eru litlar sem engar líkur á að bens-
ínlítrinn fari undir 200 krónurnar árið
2011. Fljótlega eftir áramót má búast
við 5-6 króna hækkun sem aðeins má
rekja til vörugjaldsins.
Um miðbik ársins virtist sem
mikil verðsamkeppni ríkti á milli olíu-
félaganna hér á landi og var óvenju-
mikill verðmunur á milli félaga og
jafnvel hjá sama félagi eftir lands-
hlutum. Þetta stóð þó ekki yfir nema í
5-6 vikur. Félög eins og Orkan, sem
er í eigu Skeljungs, kynntu nýja verð-
stefnu þar sem sama verð var innan
sama landshluta. Nú er svo komið að
nánast enginn verðmunur er á milli
olíufélaganna og telst í aurum frekar
en krónum. Þannig mátti sjá á vefn-
um gsmbensin.is í gær að eldsneyt-
isverð hjá sjálfsafgreiðslufélögunum
Orkunni, ÓB og Atlantsolíu var hið
sama um allt land. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins virðist samkeppnin
meira hafa færst yfir í vildarkjörin,
þar sem viðskiptavinum félaganna
gefst kostur á mismiklum afslætti
með kortum eða lyklum, í sumum til-
vikum allt upp undir 10 krónur á lítr-
ann. Þá eru afslættir gefnir einn og
einn dag hjá sumum félögum,
ákveðnir með skömmum fyrirvara.
Meiri hækkun erlendis
Ef þróun heimsmarkaðsverðs á
olíu er skoðuð á árinu kemur í ljós að
það hefur hækkað heldur meira en
útsöluverð eldsneytis hér á landi. Sé
meðalverð hvers mánaðar skoðað á
heimsmarkaði hefur 95 okt. bensín
hækkað um rúm 16%, og þá miðað við
spá fyrir þennan mánuð upp á 835
dollara fyrir tonnið. Meðalverð jan-
úar sl. var um 718 dollarar. Tunnan af
hráolíunni hefur einnig hækkað á
árinu en þó ekki jafnmikið. Á sama
tíma hefur dollar veikst gagnvart ís-
lensku krónunni um rúm 7%.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir að þrátt
fyrir allar hækkanir á árinu líti út fyr-
ir að álagning olíufélaganna sé svipuð
og undanfarin ár. Slæmu tíðindin fyr-
ir neytendur séu hins vegar auknar
álögur ríkisins á eldsneyti. Undir
þetta tekur Hermann Guðmundsson,
forstjóri N1, og telja þeir að komið sé
að ákveðnum þolmörkum hvað álagn-
ingu ríkisins varðar. Þannig telur
hann hæpna spá í forsendum fjárlaga
að söluaukning verði á eldsneyti á
næsta ári, tekjusamdráttur af elds-
neyti sé öllu líklegri þar sem umferð
hafi minnkað og hegðun neytenda
breyst.
„Það hefur dregið úr umferð og
fólk er farið að spara aksturinn við
sig. Við erum klárlega komin upp að
ákveðnum þolmörkum. Enn og aftur
eru álögur ríkisins að aukast og ekki
bætir það stöðu neytenda,“ segir
Runólfur og reiknar með að vegna
hærri gjalda til ríkisins muni kostn-
aður neytenda aukast um 5 krónur
á hvern bensínlítra.
Spurðir um horfur á árinu
2011 telja þeir Runólfur og
Hermann allar líkur á að verð
haldi áfram að hækka. Út-
litið er því ekki gott fyrir
ökutækjaeigendur á
komandi ári.
Bensínið ekki undir
200 krónur í bráð
28. des. 2009 28. des 2010
135
130
125
120
115
110
105
Gengi dollara gagnvart krónu
Heimsmarkaðsverð, meðalverð hvers
mánaðar og spá fyrir desember
Algengt verð í sjálfsafgreiðslu
840
820
800
780
760
740
720
700
jan
.
feb
.
ma
r.
ap
r.
ma
í
jún
.
júl
.
ág
ú.
se
p. ok
t.
nó
v.
de
s.
718
,61
835
,41
125
,5
115
,85
215
210
205
200
195
190
185 18
8,2
207
,7
1. jan. 2010 23. des. 2010
Bensínverð og gengi dollara frá áramótum
kr./ltr.
USD/T
„Enginn treystir sér til að vera
dýrastur og þess vegna er
þessi staða komin upp að
verðmunur er orðinn hverf-
andi,“ segir Hermann Guð-
mundsson, forstjóri N1, um
eldsneytismarkaðinn í dag.
Hann tekur undir með Runólfi
Ólafssyni hjá FÍB að álagning
olíufélaganna sé svipuð í sögu-
legu samhengi miðað við und-
anfarin ár, þegar allt árið sé
skoðað. Álagningin hafi hins
vegar engin verið í sumar þeg-
ar verðstríð félaganna stóð
sem hæst.
Vegna hækkunar ríkisins á
vörugjöldum af eldsneyti býst
Hermann við að N1 þurfi að
hækka útsöluverð um 5-6
krónur eftir áramótin. Hins
vegar hafi ekki fengist svar frá
fjármálaráðuneyt-
inu um hvort
gjaldið leggist
á um áramót
eða taki mið af
nýjum birgð-
um.
Enginn
vill vera
dýrastur
LÍTILL VERÐMUNUR
Runólfur
Ólafsson
Hermann
Guðmundsson