Morgunblaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
✝ Sigrid fæddist íKaupmannahöfn
4. febrúar 1918. Hún
andaðist á Landspít-
alanum 14. desember
2010. Foreldrar
hennar voru Fri-
drikka K. Nilsson, f.
13.8. 1896, d. 10.10.
1919, og Karl Bjarna-
son bakarameistari, f.
6.8. 1890, d. 23.2.
1970. Foreldrar Fri-
drikku voru Lars og
Marie A.K. Nilsson f.
Levanius búsett í
Kaupmannahöfn aðflutt frá Malmö.
Foreldrar Karls voru Sigríður Ás-
björnsdóttir, f. 1861, d. 1934, og
Bjarni Þorsteinsson sjómaður, f.
1866, d. 1897, Sigrid átti 4 hálf-
systkini samfeðra, Ingimar, Guð-
nýju Refsett, Kristínu F. Hjörvar
og Ingibjörgu sem eru öll látin.
Sigrid giftist eftirlifandi eig-
inmanni sínum Garðari Sigurðs-
syni f.v. prentsmiðjustj., 23. mars
1940. Foreldrar hans Sigurður E.
Hjörleifsson múrararmeist., f.
1882, d. 1955, og Guðrún Jóhann-
esdóttir, f. 1891, d. 1984. Bróðir
Garðars samfeðra var Sigurður B.
Sigurðsson, f. 1915, d. 2010, og
uppeldissystir Markúsina Guðna-
dóttir, f. 1928, d. 2003.
dóttur, börn þeirra Dagur Þór, f.
2003, Birna Björk, f. 2007, Andri
Snæbjörn, f. 2010, b) Pétur, f. 1977,
sambýlismaður Ásgeir Helgi Magn-
ússon, c) Garðar, f. 1982. 4) Gunn-
laugur, f. 3.1. 1950, kvæntur Sig-
ríði Halldórsdóttur, börn þeirra a)
Sunna Kristrún, f. 1981, gift Elías
Inga Björgvinssyni, sonur þeirra
Gunnlaugur Davíð, f. 2010, b)
María Guðrún, f. 1985, c) Jóhannes
Benedikt, f. 1998. 5) Kristín, f. 3.2.
1954, gift Ólafi Fannberg, synir
þeirra a) Sigurður Egill, f. 1980, b)
Ólafur Páll, f. 1980, c) Garðar
Karl, f. 1990. 6) Anna María, f.
16.10. 1956.
Eftir andlát móður sinnar fluttist
Sigrid heim til Íslands og ólst upp
hjá föðurömmu þar til faðir hennar
kvæntist seinni konu sinni Pálínu
Steinsdóttur, en þá flutti hún til
þeirra. Að skólagöngu lokinni
starfaði hún hjá Mogensen lyfsala
og við saumaskap þar til hún gift-
ist eftirlifandi eiginmanni sínum.
Þau hófu búskap með foreldrum
Garðars sem voru á heimilinu þar
til þau létust. Þegar börnin voru
uppkomin vann Sigrid um tíma í
Hattabúð Reykjavíkur. Sigrid var
áhugasöm um félagsstörf, starfaði
í kvenfélagi Hallgrímssóknar og
sat í stórn þess, einnig starfaði hún
í Thorvaldsenfélaginu og naut þess
að leggja því lið.
Útför Sigrid fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 29. desember
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Börn Garðars og
Sigrid eru 1) Sig-
urður Egill, f. 24.3.
1942, fv. eiginkona
Anna M. Ein-
arsdóttir, börn þeirra
a) Garðar, f. 1966,
kvæntur Shayni Gal-
logly, synir hans
Knútur, f. 1994, og
Daníel Freyr, f. 1995,
b) Björg, f. 1969,
dóttir hennar Telma
Rut, f. 1997, c) Einar
Bjarni, f. 1973,
kvæntur Guðrúnu I.
Sigurgeirsdóttur, synir þeirra Ósk-
ar Þór, f. 2003, og Sigurgeir Egill,
f. 2010, sonur Guðrúnar Fannar, f.
2000. 2) Karl Friðrik, f. 4.12. 1942,
giftur Áslaugu Sif Guðjónsdóttur,
börn þeirra a) Guðjón, f. 1968,
kvæntur Aðalbjörgu Guðsteins-
dóttur, börn þeirra Elísabet Árný,
f. 1998, Davíð Karl, f. 2000, Áslaug
María, f. 2005, b) Sigríður, f. 1974,
gift Hlyni Höskuldssyni, sonur
þeirra Karl Logi, f. 2008, dóttir
Hlyns Elfa Dís, f. 2000, c) Kristján
Egill, f. 1984, í sambúð með Þóru
Rún Úlfarsdóttur, dóttir þeirra
Sóley, f. 2010. 3) Guðrún, f. 18.12.
1946, gift Snæbirni Kristjánssyni,
synir þeirra a) Friðrik Þór, f. 1973,
kvæntur Helgu Björk Vilhjálms-
Tengdamóðir mín, Sigrid Karls-
dóttir, alltaf kölluð Núdda, var ein-
staklega falleg og glæsileg kona.
Svipurinn var hreinn og glæsileiki
og þokki einkenndi hana sem virkaði
tiginmannlega á mig frá fyrstu tíð.
Hún var prýdd mörgum dyggðum.
Hún var hreinhjörtuð og vildi öllum
vel. Á þeim tæpu 40 árum sem ég
þekkti hana heyrði ég hana aldrei
leggja illt til nokkurs manns. Hún
var heilshugar á móti allri ósiðsemi
og lagði áherslu á heiðarleika. Hún
var viljasterk, þolgóð og umhyggju-
söm. Hún hafði næmt skopskyn og
brosti oft – var glöð á góðri stundu
og kunni vel að meta spaugilegu
hliðar tilverunnar. Hún var trúuð
kona og líf hennar einkenndist af
þjónustu og kærleika. Hún var and-
lega sterk, með einbeittan vilja og
agaða dómgreind. Það var mikil
reisn yfir Núddu og hreinlega geisl-
aði af henni.
Núdda var mikill leiðtogi á sínu
heimili. Hún vildi mjög gjarnan
fylgjast með fólkinu sínu og tók þátt
í sigrum þess og ósigrum. Hún var
góð húsmóðir og heimili þeirra
Garðars í Mávahlíðinni bar því fag-
urt vitni. Gestrisni er sannarlega
dyggð og hún átti hana í ríkum
mæli. Maturinn sem hún eldaði var í
senn hollur og einstaklega góður.
Hún hafði mikinn áhuga á blómum
og í stóra glugganum í ganginum í
Mávahlíðinni blómstruðu alls kyns
blóm í fögrum litum sem vöktu at-
hygli þeirra sem þau sáu. Ég hugs-
aði til Núddu þegar ég eitt sinn var
að flytja erindi á ráðstefnu á Sikiley,
öll blómin og blómailmurinn sem
einkennir borgina að sumarlagi
hefðu glatt hana mjög.
Núdda og Garðar héldust í hend-
ur allt frá ungdómsárum til hinsta
dags. Þau héldu upp á 70 ára brúð-
kaupsafmæli sitt fyrr á árinu og
sjónvarpsviðtal við þau við það til-
efni vakti verðskuldaða athygli, góð-
vildin, greindin og æðruleysið var
áhrifamikið. Hjónabandið var mjög
farsælt og þau náðu alla tíð að við-
halda elskunni. Eitt sinn þegar við
vorum stödd í Reykjavík fórum við
hjónin og fengum okkur ís og keyrð-
um niður að Laugarásnum til að
horfa á sólarlagið saman. Við sáum
langt að bíl sem stóð þar sem við
ætluðum einnig að leggja. Mér varð
að orði: „Það eru fleiri rómantískir
en við.“ Þegar við komum nær sáum
við að það voru tengdaforeldrar
mínir.
Aldrei heyrði ég Núddu vorkenna
sjálfri sér, það var henni víðs fjarri.
Sigrid þýðir fagur sigur og líf henn-
ar var fagur sigur, því þrátt fyrir
mótlæti af ýmsu tagi hélt hún ætíð
góðmennsku sinni, trú og ást á öllu
því sem fagurt er og gott. Ég valdi
eitt sinn handa Núddu hálsmen sem
var bæði með gimstein og perlu og
sagði við hana að í mínum augum
væri hún í senn gimsteinn og perla
og það fannst mér um hana alla tíð.
Ég er þakklát Guði fyrir að hafa náð
því að vera hjá henni síðustu klukku-
stundirnar sem hún lifði. Það var
heilög stund.
Með Núddu er gengin merk kona
sem ef til vill komst ekki á spjöld
sögunnar en hún er rituð á hjarta-
spjöld þeirra sem elskuðu hana og
þar mun hún vera um ókomin ár,
ógleymanleg heiðurskona.
Blessuð sé minning Sigrid Karls-
dóttur.
Sigríður Halldórsdóttir,
Akureyri.
Sigrid tengdamóðir mín lést á
Landspítalanum Fossvogi 14. des-
ember sl. eftir stutt veikindi tæplega
93ja ára. Hún fæddist í Kaupmanna-
höfn frostaveturinn mikla árið 1918,
móðir hennar Fridrikka var dönsk
en faðir hennar Karl, hafði farið
þangað til framhaldsnáms í bakara-
iðn. Eftir skamma sambúð lést móð-
ir hennar og var þá Núdda eins og
hún var ávallt kölluð aðeins tæplega
3ja ára gömul. Kom hún þá til Ís-
lands í fylgd föður síns og ólst upp
sín fyrstu æviár hjá Sigríði föður-
ömmu sinni sem bjó á Grettisgöt-
unni í Reykjavík en flutti síðar til
föður síns og seinni konu hans Pál-
ínu.
Ég hitti Núddu fyrst þegar ég
kom í fylgd sonar hennar í Máva-
hlíðina. Hún var þá að sýsla í eldhús-
inu sínu og þar hófust kynni okkar
sem hafa varað í rúm 44 ár. Mér er
enn í minni, hvað þessi fyrstu kynni
höfðu góð áhrif á mig. Ekki man ég
hvað okkur fór á milli en örugglega
hefur það verið eitthvað uppbyggi-
legt sem hún sagði við mig. Ég hafði
það þó á tilfinningunni að henni
þætti ég ung sem ég auðvitað var.
Ég mun alla tíð vera Núddu þakklát,
þakklát fyrir að hafa vísað mér veg
til þroska á margan hátt. Núdda
eins og hún var alltaf kölluð var
sterkur persónuleiki og gædd mikilli
smekkvísi.
Hún var glæsilegt kona sem eftir
var tekið og hafði til að bera ein-
staklega fágaðan og fallegan smekk
án þess að ofgera í neinu. Mér
fannst hún bera með sér annan og
öðruvísi andblæ, Ég er ekki frá því
að þar komi til hennar danski upp-
runi. Blóm voru hennar yndi og for-
stofuglugginn hennar var skrýddur
blómahafi. Hún kunni betur að vera
veitandi en þiggjandi, þrátt fyrir
hógværð og hlédrægni átti hún gott
með að umgangast fólk. Hún var
myndarleg húsmóðir og gestrisin.
Það var gott að koma til Núddu og
Garðars í Mávahlíðina, þau tóku
ávallt á móti okkur með opinn faðm-
inn. Heimili þeirra fallega stóð öllum
opið og hafa margir afkomendur
þeirra og aðrir notið umfaðmandi
kærleika þeirra hjóna um lengri eða
skemmri tíma.
Við höfum haft það fyrir sið hátt í
20 ár að drekka saman morgun-
kaffið okkar á laugardagsmorgnum,
Núdda og Garðar komu þá til okkar
Kalla í Safamýrina. Yfir kaffibolla
og brauðbollum ræddum við mál líð-
andi stundar eða annað sem bar á
góma: Þetta voru gæðastundir sem
gott er að minnast. Síðasta morg-
unstund okkar var reyndar í eldhús-
inu hennar í Mávahlíðinni, rétt
rúmri viku fyrir andlát hennar.
Kynslóðir koma og kynslóðir fara.
Nú hefur litið stúlka litið dagsins
ljós úti í Kaupmannahöfn eitt nýj-
asta barnabarnabarn Núddu, svona
heldur hringrás lífsins áfram og
ekkert fær stöðvar tímans þunga
nið.
Garðar tengdafaðir minn elsku-
legur kveður eiginkonu sína til 70
ára, megi algóður guð vernda hann
og styrkja. Fjölskyldan kveður móð-
ur, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu. Nú er komin nótt, hafðu
þökk fyrir dýrmætar samverustund-
ir. Blessuð sé minning Sigrid Karls-
dóttur tengdamóður minnar.
Áslaug Sif Guðjónsdóttir.
Mín kynni af tengdamömmu hóf-
ust fyrir 44 árum þegar ég fór að
venja komur mínar í Mávahlíðina til
að heimsækja dóttur hennar Guð-
rúnu (Dúu). Mér var strax afskap-
lega vel tekið af fjölskyldunni í
Mávahlíð, ekki síst af tengda-
mömmu sem dekraði við mig. Okkur
samdi alla tíð vel og ekki verður
annað sagt en að betri tengdamóður
sé ekki hægt að hugsa sér.
Sigrid var einstaklega glæsileg
kona sem ávallt var sannkölluð hefð-
ardama í öllu fasi. Löngu ævistarfi
skilaði hún af stakri prýði og ósér-
hlífni. Mikinn dugnað þurfti til að
halda heimili fyrir sex börn og á
tímabili bjuggu einnig á heimilinu
tengdaforeldrar, uppeldissystir
Garðars og síðar tengdamóðir sem
eftir lifði til 93ja ára aldurs. Það er
ekki algengt að fólk haldi heimili
með reisn fram á svo háan aldur en
það gerðu þau Garðar og Sigrid. Það
mun heldur ekki vera algengt að
fólk nái þessum aldri án þess að hafa
nokkurn tímann farið á sjúkrahús en
Sigrid var alla tíð heilsuhraust ef frá
er talin sjóndepurð og gigt í hnján-
um síðustu árin.
Sú venja skapaðist á síðustu árum
að þau hjónin komu í kaffi til okkar
Dúu vikulega. Þá var glatt á hjalla
og margt skrafað. Hinn 23. mars síð-
astliðinn héldu þau upp á 70 ára
brúðkaupsafmæli hjá okkur með
mikilli veislu sem var mjög eftir-
minnileg. Kristín, dóttir þeirra, var
þeirra aðalhjáparhella seinni árin og
alltaf reiðubúin til að sinna því sem
þurfti og þau Garðar og Sigrid kom-
ust ekki yfir.
Haustið 2000 fóru þær mæðgur,
Dúa og Sigrid, í eftirminnilega ferð
til Kaupmannahafnar, meðal annars
til þess að heyra yngsta son okkar
spila á tónleikum og hitta ættingja.
Í sömu ferð skoðuð þær húsið á Got-
hersgade þar sem tengdamamma
bjó fyrsta aldursárið. Þá hafði hún
ekki komið til Danmerkur í 51 ár.
Það má teljast merkilegt því allt
sem var danskt var henni sérstak-
lega hugleikið. Það verður þó að
skoðast í því ljósi að hennar kynslóð
fór síður á milli landa en þeir sem
yngri eru. Sigrid þótti ákaflega
vænt um þau tengsl sem Dúa hefur
haldið við ættingja í Kaupmanna-
höfn.
Nú þegar jólin eru haldin hátíðleg
finnur maður sterklega fyrir því að
Sigrid er fallin frá af því að fjöl-
skylduboðin í Mávahlíðinni hafa ver-
ið fastur liður í jólahaldinu alla tíð.
Þessi jól eru því blandin trega og
eftirsjá.
Ég kveð tengdamóður mína með
söknuði og þakka henni af heilum
hug fyrir ástúð og umhyggju sem
hún sýndi mér og fjölskyldunni.
Missir Garðars er mikill og megi
Guð gefa honum styrk í sorginni.
Blessuð sé minning hennar.
Snæbjörn Kristjánsson.
Okkur bræðurna langar til að
minnast í fáeinum orðum ömmu
Núddu, eins og hún var ætíð kölluð.
Það er einkennilegt að hugsa til
þess að amma sé horfin af sjónar-
sviðinu því að hún hefur ávallt verið
til staðar, þessi góða kona af kyn-
slóð sem man tímana tvenna á Ís-
landi.
Amma var borgarbarn og það var
gaman að heyra sögur af fyrri tím-
um í Reykjavík, t.d. þegar ungt fólk
klæddi sig í fín föt og gekk rúntinn.
Hún talaði fallegt íslenskt mál sem
hafði þó þau sérkenni að af og til
notaði hún einstöku tökuorð úr
dönsku, til dæmis var okkur strák-
unum boðið út á altan á sumrin en
ekki svalir. Amma var áhugasöm
um það sem við tókum okkur fyrir
hendur, lýsti yfir stolti er vel gekk
og sérstaklega þótti henni gaman að
hlusta á okkur spila á hljóðfæri.
Þegar við komum í kaffiboð eða af-
mæli var gott að sitja í borðstofunni
og bragða á því sem amma hafði
bakað, ekki síst skúffukökunni
góðu. Við minnumst ömmu með
þakklæti.
Friðrik, Pétur og Garðar
Snæbjörnssynir.
Meðal ljúfustu bernskuminninga
okkar systkina eru um Núddu og
Garðar í Mávahlíðinni. Fyrstu æviár
okkar bjuggum við í risinu í Máva-
hlíð 4 þar sem foreldrar okkar hófu
búskap.
Eftir að við fluttum þaðan hefur
heimilið í Mávahlíðinni ætíð verið
eins og fastur punktur í lífinu, mið-
stöðin þar sem allir voru velkomnir
og það var ekki síst fyrir tilstuðlan
Núddu sem ætíð tók á móti okkur
með útbreiddan faðminn.
Þó að margt væri í heimili var
ávallt pláss fyrir fleiri. Við sem
krakkar fengum stundum að gista
hjá ömmu okkar sem bjó þá í risinu,
en vorum auðvitað í mat hjá Núddu
– það var alltaf hægt að bæta fleir-
um við eldhúsborðið þar. Okkur
fannst við vera hluti af þessari stór-
fjölskyldu sem við vorum svo stolt af
að tilheyra.
Að Núdda skuli kveðja okkur ein-
mitt um jólin þykir okkur táknrænt
því það var einmitt jóladagur í
Mávahlíðinni sem var svo mikilvæg-
ur í bernskunni, að ganga þar í
kringum jólatréð og heimilisfaðirinn
spilaði undir á píanóið. Þetta var
ómissandi þáttur í okkar jólahaldi
lengi fram eftir og um hver jól
minnumst við þessara gleðistunda.
Núdda var glæsileg og þau hjón
bæði. Svo samrýnd hafa þau verið
að ekki er hægt að nefna annað án
þess að nefna hitt. Það var eitthvað
tigið við Núddu og allt hennar fas en
þó svo mikil hlýja og alúð sem
steymdi frá henni. Heimilið í Máva-
hlíðinni ber þess einnig merki að þar
bjó kona með smekk fyrir fallegum
hlutum, þar var ekki sífellt verið að
endurnýja, vel var farið með alla
hluti. Núdda og Garðar hafa reynst
okkur hinar bestu fyrirmyndir í um-
hyggju og virðingu hvort fyrir öðru.
Þau hafa verið fádæma samhent, en
á árinu áttu þau 70 ára brúðkaups-
afmæli sem við nutum þeirrar
ánægju að heiðra þau í.
Við viljum þakka Núddu þá vin-
áttu sem hún ætíð sýndi móður okk-
ar frá unga aldri, það leið varla sá
sunnudagur í fjölda ára að ekki væri
farið í bíltúr í Mávahlíðina eða þá að
Núdda og Garðar kæmu í heimsókn
til hennar.
Elsku Garðar, við vottum þér og
fjölskyldunni allri okkar innilegustu
samúð og erum ævarandi þakklát
fyrir þær minningar og fyrirmyndir
sem þið hafið gefið okkur.
Helena og Sigurður.
Núddu og Garðari kynntumst við
hjónin Halldóra og ég í kjölfar seinni
heimsstyrjaldarinnar, þegar við
komum heim frá Danmörku. Ég
hafði þá verið við nám og störf er-
lendis í níu ár og að mestu án sam-
bands við mína eigin fjölskyldu
vegna þess stríðsástands sem ríkt
hafði í heiminum.
Kynni okkar hjóna við þau Garðar
og Núddu hófust í gegnum Oddfel-
low-regluna. Við hjónin gengum í
regluna stuttu eftir komu okkar til
landsins, en Garðar var mjög virkur
í reglunni og þar hófst okkar vin-
átta. Þessi vinátta sem hófst í kring-
um 1947 hefur alla tíð verið mjög
einstök og verðmæt fyrir okkur
hjónin og tengdi okkur við fjölmarga
aðra vini.
Eitt af því sem einkenndi Núddu
var einstök góðmennska hennar og
hvað auðvelt hún átti með að gera
samkomur gleðilegar og fá fólk til að
sameinast með sínu létta lundarfari.
Allan þann tíma sem við bjuggum á
Álafossi og Akranesi var heimili
þeirra hjóna ávallt opið fyrir fjöl-
skyldu mína þegar við komum í bæ-
inn og það voru ómæld þau erindi
sem þau hjón útréttuðu fyrir okkur
utanbæjarfólkið. Eftir að við fluttum
til Reykjavíkur árið 1965 má segja
að þau hafi hjálpað okkur að komast
inn í og aðlagast borgarlífinu að
nýju. Það eru óteljandi þær stundir
sem við áttum saman bæði í kaffi og
matarboðum hjá Núddu. Einnig eru
ferðalög okkar með þeim hjónum,
svo sem í Heiðmörk ógleymanleg.
Þar áttum við óteljandi gleðistundir.
Við söknum mjög fjarveru Núddu
og margra ánægju og gleðistunda
sem fjölskyldur okkar áttu saman.
Þar sveif andi Núddu gjarnan yfir.
Að lokum viljum við senda
Garðari okkar kæra vini og fjöl-
skyldu hans, okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Pétur Sigurjónsson og
Halldóra Gudjohnsen.
Kveðja frá
Thorvaldsensfélaginu
Í dag kveðjum við eina af okkar
kæru félagskonum Sigrid Karlsdótt-
ir. Sigrid var búin að starfa í Thor-
valdsensfélaginu frá árinu 1978.
Hún gegndi trúnaðarstörfum fyrir
félagið hjá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, á árunum 1980-1984.
Einnig vann hún gjarnan sjálfboða-
liða starf við afgreiðslu á basarnum
okkar.
Sigrid var glæsileg kona, hún
hafði ljúfmannlega framkomu og
vakti ávallt athygli hvar sem hún
fór. Síðasta samverustund okkar
með Sigrid var á hádegisverðarfundi
félagsins í mars á þessu ári. Hún
hélt sinni reisn og ekki var hægt að
sjá að þar færi kona sem var komin
yfir nírætt. Við þökkum henni fyrir
ljúfa samfylgd á liðnum árum og
hennar góðu störf fyrir félagið okk-
ar.
Að leiðarlokum sendir Thorvald-
sensfélagið fjölskyldu hennar og
öðrum aðstandendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Kristín Zoëga, formaður.
Sigrid Karlsdóttir