Morgunblaðið - 29.12.2010, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
✝ Þórhildur Sig-urðardóttir
hárgreiðslumeist-
ari fæddist á Litla-
Melstað í Reykja-
vík 10. júlí 1927.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja 23. des-
ember 2010. For-
eldrar hennar voru
Sigurður Bene-
diktsson, f. 23.2.
1898 á Mjóafirði, d.
3.12. 1978, og
Steinunn Jóns-
dóttir, f. 16.7. 1902 á Vopnafirði,
d. 14.5. 1969. Systkini Þórhildar
eru Erla Fríðhólm, f. 6.11. 1922.
Eiginmaður hennar var Hallbjörn
Elímundarson, d. 2009. Reynir, f.
1.6. 1929. Eiginkona hans var Haf-
dís Guðmundsdóttir. Yngst var
Valgerður, f. 6.9. 1930, d. 2008.
Eiginmaður Þórhildar var Frið-
rik Björnsson rafvirkjameistari, f.
2.3. 1927 í Sandgerði, d. 17.1.
2004. Foreldrar hans voru Björn
Samúelsson, f. 22.9. 1881, d. 3.9.
1969, og Guðbjörg Sigríður Guð-
jónsdóttir, f. 30.10. 1893, d. 30.6.
1931. Þórhildur og Friðrik giftu
sig 8. apríl 1950 og eignuðust sjö
börn. Þau eru 1) Steinunn Fríð-
hólm, f. 17.8. 1948, gift Gunnlaugi
Sigmarssyni. Þeirra börn eru Jó-
steinn Þór, í sambúð með Kol-
brúnu Ósk, þau eiga eina dóttur.
Dóttir Mörtu er Hrafnhildur Ása.
6) Fanney, f. 7.11. 1964, í sambúð
með Theodór Blöndal Einarssyni.
Fyrri eiginmaður Fanneyjar var
Draupnir Hauksson, en hann lést í
okt. 2010. Þeirra dætur eru Hild-
ur Mekkín, hún á einn son, og
Dagný Lind. Börn Theodórs eru
Bergur og Kristín Fjóla. 7) Heiður
Huld, gift Eiði Þórarinssyni. Dótt-
ir þeirra er Kolbrún Sunna, dóttir
Heiðar er Valgerður Ósk. Börn
Eiðs eru Garðar Þór, Hjörtur Örn
og Íris Dögg.
Þórhildur ólst upp á Bráðræð-
isholtinu, gekk í Miðbæjarskól-
ann, lærði hágreiðslu og starfaði
við það í nokkur ár. Þau Friðrik
hófu búskap á Lágholtsveginum
árið 1948, en fluttu svo í Kópavog-
inn þar sem þau byggðu sér íbúð-
arhús við Reynihvamm. Þórhildur
og Friðrik fluttu til Sandgerðis
árið 1969. Lengst af var Þórhildur
húsmóðir, en á seinni árum starf-
aði hún við ýmis störf. Hún hafði
yndi af söng og starfaði um tíma
með Kvennakór Suðurnesja og í
Kirkjukór Hvalsnessóknar um
áratuga skeið.
Útför Þórhildar fer fram frá
Safnaðarheimilinu í Sandgerði í
dag, 29. desember 2010, og hefst
athöfnin kl. 14.
hanna og Ragnar
Friðrik. 2) Sigurður
Sævar Fríðhólm, f.
18.12. 1949, kvænt-
ur Sólrúnu Braga-
dóttur. Börn þeirra
eru Þórhildur, gift
Magnúsi Þór, þau
eiga þrjár dætur,
Bragi Páll, kvæntur
Helgu Ágústu, þau
eiga tvær dætur,
Bragi Páll á tvö
börn frá fyrra
hjónabandi, Sig-
ursteinn, kvæntur
Heiðu Kristínu, þau eiga tvo syni,
og Sigrún, gift Yngva Jóni, þau
eiga eina dóttur. 3) Þorbjörg Elín
Fríðhólm, f. 6.10. 1951, d. 15. des-
ember 2010, gift Rúnari Þórarins-
syni. Börn þeirra eru Erla Björg,
gift Egil Aagaard-Nilsen, þau eiga
einn son, Erla Björg á eina dóttur
frá fyrri sambúð, einnig á Egil
eina dóttur og Hallbjörn Valgeir.
Sonur Rúnars er Ásgeir Breið-
fjörð. 4) Jón Fríðhólm, f. 10.11.
1954, kvæntur Ölmu Jónsdóttur.
Synir þeirra eru Jónas Guðbjörn, í
sambúð með Helgu Sigrúnu, þau
eiga einn son, og Eiríkur, í sam-
búð með Kristjönu Vilborgu, þau
eiga eina dóttur. 5) Friðrik Þór, f.
12.11. 1961, kvæntur Mörtu Ei-
ríksdóttur. Sonur Friðriks er Haf-
Elsku hjartans mamma mín. Stórt
skarð er í hjarta mínu núna og sökn-
uðurinn mikill en maður huggar sig
við það að nú ertu verkjalaus og búin
að hitta Bobbý systur og pabba.
Ég átti ekki von á að horfa á eftir
ykkur með svo stuttu millibili en þú
baðst um að fá að deyja líka þegar þú
fékkst fréttirnar um fráfall Bobbýj-
ar.
Það var sárt að vera með þér á
Borgarspítalanum og fá þau tíðindi
að ekki væri hægt að gera neitt
meira fyrir þig. Síðustu dagana þína
sátum við Vala hjá þér og strukum
þér og reyndum að láta þér líða sem
best. Þegar Eiður kom til landsins og
sat við rúmið þitt og söng fyrir þig
lagið Lífsbókin, runnu tár niður
vanga þinn.
Þú varst mikil tónlistardýrkandi.
Fyrir tveimur mánuðum þegar ég
var hér á landinu eyddi ég megninu
af tímanum með þér úti á Garðvangi
og þú sast í hjólastólnum þínum og
við pöntuðum okkur kínamat. Það
var venjan að koma við á stöðum eins
og KFC, Nings eða American style
þegar við fórum saman í bæinn.
Tími þinn hjá okkur í Noregi var
mér alveg einstaklega dýrmætur og
gaman var að sjá hvað þú blómstr-
aðir þar. Þú fannst meira að segja lít-
ið rautt hús sem þú talaðir um að
gaman hefði verið að eiga og dvelja í
á sumrin.
Húmor þinn var einstaklega
skemmtilegur og dætur mínar rifja
oft upp skemmtilegar setningar sem
þú sagðir. Þú varst mikil ævintýra-
manneskja og sagðir oft við mig að
ég hefði erft flökkueðli þitt.
Þegar ég kvaddi þig daginn fyrir
andlát þitt vissi ég að það væri mín
hinsta kveðja til þín og erfiðari tíma
hef ég ekki upplifað. Elska þig út af
lífinu, elsku hjartans mamma mín.
Hvíl í friði.
Ljúktu nú upp lífsbókinni
lokaðu ekki sálina inni.
Leyfðu henni í ljóði og myndum
leika ofar hæstu tindum.
(Laufey Jakobsdóttir.)
Þín dóttir,
Heiður.
Elsku yndislega mamma mín. Yf-
irþyrmandi söknuður ríkir í hjarta
mínu þessa dagana. Svo sárt að upp-
lifa aðfangadag án þín en nánast síð-
ustu árlega 15 árin hefur þú verið hjá
mér og fjölskyldu minni. Stelpurnar
þekkja ekkert annað en að hafa þig
hjá okkur og síðustu tveir mánuðir
hafa verið þeim mjög erfiðir, fyrst
lést pabbi þeirra, svo elskuleg systir
mín sem var þeim mjög kær og svo
núna amma þeirra. Ég trúi því að nú
sé þrautagöngu þinni lokið og saman
eruð þið Bobbý núna og hlaupið um
verkjalausar.
Þú varst mín besta vinkona og ég
leitaði til þín með alla skapaða hluti
og alltaf áttir þú einhver ráð handa
mér. Sumarið eftir að pabbi lést fór-
um við Frikki með þig til Danmerk-
ur en þangað leitaði hugur þinn oft
eftir dvöl ykkar pabba þar í húsinu
ykkar í Ansager. En þegar heilsu
þinni hrakaði fyrir ca 15 árum var
húsið selt með mikilli eftirsjá. Dan-
mörk togaði alltaf í þig og þessi ferð
okkar fyrir rúmum sex árum var
yndisleg.Við trilluðum þér í hjólastól
í gegnum tívolíið og það var mikið
sprellað og hlegið og þú geislaðir af
hamingju. Allar ferðirnar okkar í
sumarbústaðinn síðustu árin eru
ómetanlegar og sama hversu mikið
þú fannst til léstu þig hafa það. Í
fyrravor fylgdi ég þér til Bergen og
þú varst svo ánægð að fá tækifæri til
að dvelja hjá Heiði og fjölskyldu og
það var ánægð kona sem kom til
baka um mitt sumarið.
Fyrir fjórum mánuðum tókstu þá
ákvörðun að fara á hjúkrunarheimili
og ekki óraði okkur fyrir því að dvöl
þín þar yrði svo stutt. Þú hafðir ein-
staklega þægilega nærveru og allir
sem kynntust þér sáu fljótt hversu
mikil perla þú varst. Þú hafðir yndi
af tónlist og starfaðir í kvennakór
um tíma og í kirkjukór Hvalsnes-
kirkju í nær 30 ár. Þegar við vorum
lítil spilaðir þú á gítar fyrir okkur og
söngst af mikilli innlifun.
Litli langömmustrákurinn þinn
hann Mikael Aron naut góðs af ástúð
þinni og umhyggju fyrstu átta mán-
uðina í lífi sínu. Þú elskaðir hlátur
hans og nærveru.
Elsku mamma, það eru forréttindi
að fá að vera dóttir þín. Fjölskylda
okkar hefur aldeilis stækkað á himn-
um síðustu daga og öll hittumst við
svo að lokum.
Megi góður guð styrkja okkur öll í
sorginni.
Þín dóttir,
Fanney.
Elsku amma, nú er skammt stórra
högga á milli í fjölskyldunni, því
Bobbý dóttir þín lést hinn 15. desem-
ber síðastliðinn og þú sjálf lést á Þor-
láksmessu.
Minningarnar sem tengjast þér
eru óteljandi, þegar ég sat í eldhús-
inu hjá ykkur afa í Breiðabliki, teikn-
aði og klippti út byssukarla og
byssur úr vinnuseðlum sem afi lét
mig fá. Þau mörgu skipti sem ég og
vinir mínir gengum fjöruna að A-bú-
staðnum sem afi byggði við fjöru-
borðið úti á Stafnesi og þar fengum
við heitt kók og kex hjá þér. Bragðið
af heitu kóki minnir mig alltaf á þig.
Löngu frímínúturnar sem ég hljóp til
þín niðri á Vallargötu og fékk ristað
brauð og sóda-stream hjá þér. Sendi-
ferðirnar sem ég fór fyrir þig niður í
Lákabúð. Tíminn sem ég dvaldi einn
hjá ykkur afa á Allegade 1 í Ansager
í Danmörku og svo margt annað.
Í framhaldsskóla skrifaði ég 20
blaðsíðna viðtalsritgerð um þig og
þau skipti sem ég sat og skrifaði og
hlustaði á þig segja frá æskuárunum
þínum á Bráðræðisholtinu í Vestur-
bænum, jólunum ykkar fjölskyld-
unnar, deginum sem Ísland var her-
numið, grásleppuveiðum með afa
þínum, harðri lífsbaráttu sem þú tal-
aðir um af æðruleysi og svo mörgu
öðru eru mér svo dýrmæt núna.
Alltaf var hægt að ræða við þig um
málefni líðandi stundar og það sem
var efst á baugi í samfélaginu hverju
sinni og þú hafðir skoðanir á flestu.
Þú hafðir ríka réttlætiskennd og
hvers kyns mismunun og óréttlæti
voru þér þyrnir í augum.
Þú hafðir mikla ánægju af tónlist
og kórsöng, leystir krossgátur og
hafðir gaman af allri handavinnu,
það var því notaleg tilfinning að fá
skál sem þú hafðir sjálf málað fal-
legar blómamyndir á í jólagjöf að þér
látinni.
Elsku amma, þakka þér fyrir allt
það sem þú varst mér og mínum og
allar góðu stundirnar, núna bíða þín
önnur verkefni á betri stað.
Þinn
Bragi Páll.
Elsku amma, við söknum þín en
vitum að þér líður vel hjá afa og
Bobbý. Okkur leið alltaf vel hjá þér
og fannst við vera í uppáhaldi, líkt og
örugglega hinum barnabörnunum.
Þú varst alltaf með bros á vör.
Við munum minnast þín í gróð-
urhúsinu og fallega garðinum á Vall-
argötunni, en okkur þótti rabarbar-
arnir þínir vera mesta sælgæti
sérstaklega þegar þú leyfðir okkur
að dýfa þeim í sykur. Það var líka svo
skemmtilegt að koma í heimsókn og
fá að spila á orgelið þitt, við gátum
verið þar eins lengi og við vildum,
þér fannst bara gaman að hlusta á
okkur spila. Þú varst alltaf svo gest-
risin og það var alltaf nóg á boð-
stólum hjá þér, þó svo að við hefðum
verið nýbúin að borða, við máttum
sko ekki fara svöng heim eftir heim-
sókn hjá ykkur afa.
Elsku amma, við sendum þér nú
þrjá kveðjukossa á kinnina líkt og við
fengum alltaf frá þér.
Sigursteinn og Sigrún.
Þórhildur Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJAElsku langamma, okkur
finnst mjög leiðinlegt að þú
varst að deyja. Við vonum að
þér líði vel.
Við söknum þín mjög mikið.
Kær kveðja
Edda Rós og Sólrún Lilja.
Hún Dísa mín er
dáin. Aldrei er maður
viðbúinn andláts-
fregnum, mér brá og minningarnar
leituðu á hugann.
Fyrstu kynni okkar Dísu voru
sumarið 1980 þegar ég, sveitastelp-
an að austan, ákvað fyrir hvatningu
bræðra minna að læra á bíl í höf-
uðborginni. Það lá beinast við,
fannst föður mínum að leita til Sig-
Herdís
Antoníusardóttir
✝ Herdís Antoníus-ardóttir fæddist í
Núpshjáleigu á Beru-
fjarðarströnd 21.
mars 1923. Hún lést á
öldrunardeild Land-
spítalans 17. desem-
ber 2010.
Útför Herdísar fór
fram frá Grafarvogs-
kirkju 28. desember
2010.
steins frænda og Dísu
konu hans um húsa-
skjól þennan tíma. Ég
hringdi heim til þeirra,
Dísa varð fyrir svör-
um, ég þuldi upp er-
indið og hún var ekk-
ert að hugsa sig um
„já, komdu bara,“ var
svarið.
Mér var tekið opn-
um örmum af þeim
hjónum það var eins
og við hefðum alltaf
þekkst, við Dísa urð-
um strax góðar vin-
konur og mikið þótti mér vænt um
hana. Þau hjónin voru höfðingjar
heim að sækja og á ég þeim mikið að
þakka. Ekki mátti nefna við þau að
borga fæði eða húsnæði, það eina
sem frændi fór fram á var að ég
heimsækti þau þegar ég kæmi til
Reykjavíkur, það reyndi ég að gera
og alltaf veitti það mér jafn mikla
gleði og vonandi þeim líka. Maður
var ekki fyrr komin inn úr dyrunum
en Dísa mín var farin að raða á borð-
ið alls konar góðgæti, „ertu ekki
svöng?“, „þú hlýtur að vera svöng“,
ég veit að allir sem þekktu Dísu
kannast við þetta, það fór enginn
svangur frá henni.
Síðast þegar ég heimsótti Dísu
mína á Skúlagötu sagðist hún vera
ósköp léleg en húmorinn var enn til
staðar, ég kunni alltaf vel að meta
hann.
Ég þakka almættinu fyrir að leyfa
mér að kynnast henni Dísu.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Vertu Guði falin, elsku Dísa mín,
og hjartans þakkir fyrir allt.
Afkomendum Dísu votta ég mína
dýpstu samúð. Minningin lifir.
Dagbjört Oddsdóttir.
✝
Móðir mín,
EDDA SIGURÐARDÓTTIR,
lést að morgni 28. desember á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðný Einarsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG ÞÓRA SIGURGRÍMSDÓTTIR,
Grænumörk 5,
Selfossi,
áður Heiðarbrún, Stokkseyri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands að morgni
föstudagsins 24. desember.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju fimmtudaginn
30. desember kl. 13.00.
Sveinbjörn Guðmundsson,
Jóhann Sveinbjörnsson, Ólöf Bergsdóttir,
Einar Sveinbjörnsson, Kristín Friðriksdóttir,
Bjarki Sveinbjörnsson, Sigrún Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
UNNUR PÉTURSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 4,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
21. desember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 3. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjálmar Torfason,
Kolfinna Hjálmarsdóttir,
Pétur Tryggvi Hjálmarsson, Hlín Hermannsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson, Gitte Tofteskov,
Torfi Rafn Hjálmarsson, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir
og barnabörn.