Morgunblaðið - 29.12.2010, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010
Þau sorglegu tíðindi
bárust okkur aðfara-
nótt þriðjudags að
Ragnar Valdimarsson
hefði skyndilega fallið frá um aldur
fram. Kynni okkar hófust fyrir rúmum
27 árum þegar hann og Vigga frænka
kynntust. Frá þeim tíma var Ragnar
hluti af fjölskyldunni okkar. Ragnar
var rólyndismaður og ávallt stutt í bros
og léttan hlátur. Margar góðar og
skemmtilegar minningar um hann
koma upp í hugann þegar hugsað er til
baka.
Mér er minnisstætt þegar við fórum
í heilsubótargöngutúrana okkar eftir
erfið veikindi hjá mér. Við fórum í þá í
ólíkum tilgangi en höfðum báðir jafn
gaman og gott af þeim. Við ræddum
um allt milli himins og jarðar og það
var með ólíkindum hvað tíminn var
fljótur að líða og hvað við gátum gengið
langar vegalengdir á þessum klukku-
stundar göngutúrum. Sjórinn átti hug
Ragnars allan og voru þær margar
skemmtilegar sögurnar sem hann
sagði mér frá þeim tíma þegar hann
var í siglingum á milli landa. Ekki má
svo gleyma öllum yndislegu áramóta-
veislunum sem hann og Vigga buðu til í
fjöldamörg ár. Þau töfruðu fram frá-
bærar kalkúnaveislur ár eftir ár í Sæv-
anginum og nú síðast í Nýhöfninni og
var maður strax byrjaður að hlakka til
næstu áramóta þegar haldið var heim
á leið eftir skemmtilega veislu.
Skemmtilegt þótti mér þegar við
kepptumst við að koma með risavaxn-
ar rakettur og skottertur þannig að
það nötraði í húsum nágrannanna.
Því miður verða ekki fleiri heim-
sóknir frá Ragnari í kaffiverslunarleið-
angur en það voru forréttindi að fá að
kynnast honum og þekkja. Við áttum
síðast samleið í jólakaffi hjá móður
minni vikunni á undan og það er erfitt
að trúa því að það hafi verið síðasta
skiptið sem við töluðum saman.
Hans verður sárt saknað en minn-
ingarnar um þann góða mann sem
hann hafði að geyma munu vaka að ei-
lífu. Guð geymi þig og gefi þér góða
drauma.
Elsku Vigdís, Ragnar Valdimar,
Ninna, Berglind og fjölskylda, ég og
fjölskylda mín vottum ykkur okkar
dýpstu samúð á þessu erfiðu tímum.
Óttarr Hlíðar Jónsson og fjöl-
skyldan Safamýri 25.
Mig langar til þess að minnast sam-
starfsfélaga míns Ragnars Valdimars-
sonar sem ég kynnist fyrst fyrir rúm-
um 13 árum þegar ég hóf störf hjá
Eimskip.
Ragnar var einn af þessum gömlu,
góðu og traustu starfsmönnum Eim-
skips sem hafa haldið tryggð við félag-
ið áratugum saman.
Ragnar var mörgum góðum kostum
búinn en ríkjandi þættir í fari hans
voru meðal annars einstök snyrti-
mennska, stundvísi, traust og hlýja.
Ragnar hafði líka mjög góða nærveru,
var með góða kímnigáfu og kom oft
með glettin og skemmtileg tilsvör. Við
unnum saman hjá Eimskip um árabil,
en þegar ég kom til starfa hjá fyrir-
tækinu sem forstöðumaður í Sunda-
höfn varð hann einn af mínum nánustu
samstarfsmönnum. Ragnar var þá
deildarstjóri svæðisþjónustu sem rak
vörsluna og mötuneyti Sundahafnar.
Það var gott að vinna með Ragnari og
hann hjálpaði mér mjög mikið á ýms-
um sviðum. Á sama hátt reyndi ég að
styðja Ragnar í öllum þeim verkefnum
sem hann tók sér fyrir hendur í sínum
rekstri. Við unnum vel saman og gerð-
um ýmsar góðar og gagnlegar breyt-
ingar á starfseminni í gegnum árin.
Ragnar þekkti fyrirtækið mjög vel og
þau voru ófá skiptin sem ég leitaði til
hans til að fá góð ráð sem reyndust
alltaf mjög vel. Ragnar lék líka stórt og
Ragnar Valdimarsson
✝ Ragnar Valdi-marsson fæddist í
Reykjavík 8. júlí 1945.
Hann lést á heimili
sínu, Nýhöfn 5 í
Garðabæ, 14. desem-
ber 2010.
Útför Ragnars fór
fram frá Bústaða-
kirkju 21. desember
2010.
veigamikið hlutverk hjá
okkur þegar kom að því
að halda veislur eða
taka á móti tignum
gestum í Sundahöfn. Þá
var nóg að setjast einu
sinni niður með honum
og fara yfir hlutina og
það sem átti að gera.
Við slíkar aðstæður var
Ragnar í essinu sínu og
fremstur meðal jafn-
ingja í að halda utan um
og leysa málin á farsæl-
an hátt. Alltaf var hægt
að treysta því að málin
væru í traustum og öruggum höndum
hjá Ragnari. Hann reddaði því sem
þurfti að redda með stæl og var góður
í því eins og hans var von og vísa. Ann-
að sem skipti líka miklu máli og hann
passaði vel upp á var að allt færi vel
fram og yrði fyrirtækinu til sóma. Frá
þessum tíma á ég margar og góðar
minningar og fyrir þær ber að þakka.
Verkefnin voru fjölbreytileg, oft krefj-
andi og stundum erfið. En eitt var al-
veg á hreinu, ég gat alltaf gengið að
því sem vísu að hafa fullan stuðning
frá Ragnari í öllu því sem við þurftum
að leysa saman. Ragnar var einn af
okkar traustustu starfsmönnum sem
leysti sín verkefni ávallt af nákvæmni
og samviskusemi.
Mér var mjög brugðið þegar ég
heyrði af andláti Ragnars snemma
morguns hinn 14. desember sl. Þessu
hafði ég ekki átt von á og finnst svo
óvænt og ótímabært að hann skuli
vera farinn frá okkur. Það er erfitt að
sætta sig við orðinn hlut því mér
fannst að hann ætti það svo vel skilið
að eiga mörg góð ár eftir.
Ég vil að lokum þakka Ragnari fyr-
ir afar gott samstarf og mjög farsæl
störf fyrir Eimskip í næstum hálfa öld.
Einnig vil ég fyrir hönd Eimskips
votta Vigdísi eiginkonu hans og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu sam-
úð og bið fyrir góðar kveðjur til fjöl-
skyldunnar. Lífið heldur áfram en hlý
og góð minnig um Ragnar Valdimars-
son, sem var góður félagi og sam-
starfsmaður, mun lifa með okkur
áfram um ókomin ár.
Guðmundur Nikulásson,
framkvæmdastjóri
Eimskip innanlands.
Mig langar að skrifa nokkrar línur
um góðan mann, hann Ragnar Valdi-
marsson, stjúpföður hennar Ninnu og
afa hennar Evu minnar, sem andaðist
fyrirvaralaust 14. desember síðastlið-
inn. Ragnar var skemmtilegur og ljúf-
ur maður, hafði góða nærveru. Það
var ávallt gaman að hitta Ragnar og
spjalla við hann um daginn og veginn
því hann var félagslyndur maður með
góðan húmor. Oft komu glettnar at-
hugasemdir frá honum sem vöktu
mikla kátínu hjá nærstöddum.
Margar góðar minningar koma upp
í hugann þegar hugsað er til Ragnars
og munum við kappkosta að halda
þeim á lofti og miðla til Evu, dóttur
okkar.
Það var okkur Ninnu mikill heiður
að á skírnardaginn hennar Evu okkar
hélt Ragnar Evu undir skírn og viss-
um við að þar væri dóttir okkar í ein-
staklega traustum og góðum höndum.
Því miður hefur Ragnar nú kvatt
okkur og er sárt að missa hann úr lífi
okkar. Elsku Vigdís og fjölskylda, ég
votta ykkur og fjölmörgum vinum
hans mína dýpstu samúð. Ragnari vil
ég þakka fyrir góðar stundir, minning
hans verður ávallt ljós í lífi okkar.
Guð veri með ykkur.
Friðrik Kaldal Ágústsson.
Þegar mamma hringdi í mig þessa
mánudagsnótt sem þú fórst frá okkur
var það slíkt högg að mér leið eins og
það væri ekki hægt að standa upp aft-
ur. Aðeins 10 dögum fyrir aðfangadag,
sem við ætluðum að eyða saman á
heimili okkar Einars og halda „full-
orðins“ jól. Bara við fimm, við Einar,
þið mamma og Ragnar bróðir.
Þú komst inn í mitt líf fyrir tæpum
28 árum við erfiðar aðstæður þar sem
mamma hafði misst eiginmann og við
systur misst föður. Ég veit að við hefð-
um ekki getað óskað eftir betri manni
en þér og fyrir þig er ég og mun alltaf
vera óendanlega þakklát.
Ég er þakklát fyrir allar okkar góðu
minningar saman á Sævangnum,
endalausar sumarbústaðarferðir
gegnum árin. Ég er sérstaklega þakk-
lát fyrir tímann á Sólsetri í vor þar
sem við eyddum Eurovision- og kosn-
ingahelginni saman og hjálpuðumst að
við að smíða bústaðinn þinn og gróð-
ursetja, grilluðum og áttum góðar
stundir.
Þú hefur alltaf verið eins og klettur
í okkar lífi, alltaf, undantekningar-
laust, hægt að treysta á þig. Það er
með öllu ómögulegt að skilja hvers
vegna þú varst tekinn frá okkur og
engan veginn hægt að sætta sig við
það. En eins og með svo margt annað
hefur maður ekki annarra kosta völ en
að læra að lifa með því, það er víst ekk-
ert annað í boði. Lífið er breytingum
háð en þó mun sumt aldrei breytast,
þú verður alltaf minn Ragnar „stóri“
og ég verð alltaf þín Beddí.
Ég sakna þín.
Þín
Berglind.
Okkur langar til að minnast Ragn-
ars með nokkrum fátæklegum orðum.
Við kynntumst Ragnari fyrst sumarið
2009 þegar þau hjónin, hann og Vig-
dís, komu til okkar í heimsókn til
Spánar og við eyddum einni yndislegri
viku þar saman. Ragnar var dálítið
slæmur í bakinu þennan tíma en beit á
jaxlinn eins og ég held að honum hafi
verið einum lagið. Við fundum stax að
þarna fór góður og vandaður maður.
Á því eina og hálfa ári sem liðið er
síðan þetta var kynntumst við Ragn-
ari betur og voru þau kynni til ánægju
og yndisauka. Það var hægt að spjalla
við Ragnar um heima og geima og
gleyma sér alveg í samræðunum. Því
miður verða þessi kynni ekki lengri og
mun ég sakna hans og góða faðmlags-
ins sem maður fékk alltaf þegar við
hittumst.
Elsku Vigdís, við biðjum góðan Guð
að geyma þig og þína fjölskyldu.
Hafdís og Kristján.
Ástkær vinur er fallinn frá allt of
snöggt. Eftir stendur fjölskyldan
hnípin og hrygg. Jólamánuðurinn er
og verður okkur kær og einmitt þá var
hann vinur okkar kallaður burt svo
snöggt. Síðasta minning okkar um öð-
linginn Ragnar er svo björt, hann kom
við hjá okkur um helgina, sat hjá okk-
ur í eldhúsinu og kvaddi okkur svo
sem endranær, með bangsafaðmlagi
og orðunum: „Sjáumst, elskurnar.“
Hann var glaður í bragði en saknaði
sinnar, sem var í árvissri jólaferð til
Þýskalands. Vigdís hafði verið heima í
rúma klukkustund þegar andlát
Ragnars bar að. Höggið er þungt fyrir
fjölskyldu og vini. Hugurinn er hjá
Vigdísi og fjölskyldunni allri. Litli
matarklúbburinn okkar hefur hist
reglulega um árabil og var ljúf jóla-
stund á dagskrá næstu daga. Þess í
stað kveðjum við elskulegan vin í
hinsta sinn. Eftir standa góðar og ljúf-
ar minningar um góðan og traustan
vin. Vinátta okkar dýpkaði með árun-
um og margs er að minnast. Samveru-
stundir í sumarbústöðum eða á heim-
ilum okkar, slökun í heitum pottum,
stutt kaffispjall, allar þessar minning-
ar eru bjartar. Ragnar hafði fest sér
land fyrir austan fjall og var byrjaður
að byggja sér hús, þar sem hann ætl-
aði að dunda sér í ellinni. Þau Vigdís
ræktuðu ýmislegt og við fengum að
njóta nýsprottinna kartaflna og græn-
káls, sem þau færðu okkur á leið sinni
úr sveitinni. Þegar Ragnar og Vigdís
voru á milli húsa sumarið 2008 og vildi
svo heppilega til að við vorum á leið í
sumarfrí og gátum við falið þeim hús-
vörslu hjá okkur á meðan. Eftir það
var ávallt rætt um húsið okkar sem
sameign og hefur oft verið gantast
með hvort Ragnar myndi nú sam-
þykkja þetta og hitt, þegar einhverju
hefur verið breytt á heimilinu.
Ragnar var mjög fróður og ræðinn
maður og einstaklega skemmtilegur
og hlýr í allri sinni framkomu og vin-
áttu. Við þökkum fyrir að hafa notið
þess heiðurs að þekkja Ragnar og fyr-
ir vináttu sem engan skugga hefur
borið á. Megi góður Guð geyma Ragn-
ar og styrkja Vigdísi og fjölskylduna
alla í þeirra miklu sorg.
Helga og Egill.
Jón Haukur Sigur-
björnsson hefur verið
hluti af lífi mínu frá því
ég var þriggja ára
gömul en þá flutti fjölskylda mín í
Stekkjargerði 7 og þau Jón og Dóra
ásamt börnum í Stekkjargerði 8. Við
Rósa, yngsta dóttir Jóns, urðum fljót-
lega bestu vinkonur og því fylgdu tíð-
ar heimsóknir í húsið á móti. Þangað
var alltaf gott að koma. Dóra var oft
búin að baka eitthvað gott þegar við
komum heim úr skólanum og það var
ósköp notalegt að sitja við eldhús-
borðið og borða nýsteikt soðið brauð
eða kleinur. Ég var pínu feimin við
Jón, enda fannst mér hann svolítill
töffari á þessum árum og átti hann
það til að stríða mér pínulítið. Hann
talaði kannski um Spánýju eða Glæ-
nýju í stað Guðnýjar, en honum var
fljótt fyrirgefið, enda skein alltaf í
hlýjuna bak við sposkt augnaráðið.
Eftir búsetu erlendis settist ég aft-
ur að á æskuheimilinu, í þetta sinn
með mína eigin fjölskyldu, og má
segja að þá hafi ég kynnst Jóni upp á
nýtt. Samskiptin voru kannski ekki
mjög mikil, en þegar við hittumst
spjölluðum við alltaf aðeins saman.
Og eins og títt er um nágranna viss-
um við ætíð í grófum dráttum hvað
var að gerast hinum megin við göt-
una, og öfugt. Jón á móti, eins og við
kölluðum hann, var afskaplega vinnu-
samur. Hann sló garðinn, klippti
Jón Haukur
Sigurbjörnsson
✝ Jón Haukur Sig-urbjörnsson
fæddist á Akureyri
28. desember 1934.
Hann lést á heimili
sínu 12. desember
2010.
Útför Jóns Hauks
fór fram frá Akureyr-
arkirkju 28. desem-
ber 2010.
runnana, dyttaði að
húsinu og bílskúrnum,
þvoði og bónaði bílinn
heima á plani og grill-
aði á sumrin. Þegar
hann hætti að vinna
passaði hann upp á að
hreyfa sig og sáum við
hann oft fara út að
ganga eða hjóla. Síðar,
þegar slitgigtin fór að
segja til sín keypti
hann sér vespu og ók
um á henni innanbæjar
þegar veður og færð
leyfði.
Það var segin saga að ef ég var að
koma heim eða fara út og Jón var
staddur úti við þá vinkuðum við alltaf
hvort til annars yfir götuna. Mér þótti
afskaplega vænt um þetta vink, og
síðustu samskipti okkar Jóns voru
einmitt vink yfir götuna. Hann var að
fara í bíl með tengdadóttur sinni, leit
upp og sá mig, og lyfti hendinni í
kveðjuskyni. Nú veifa ég í huganum
til Jóns og kveð hann, með kæru
þakklæti fyrir ánægjuleg kynni sem
aldrei bar neinn skugga á.
Guðný Pálína Sæmundsdóttir
og fjölskylda
í Stekkjargerði 7.
Jón Haukur móðurbróðir okkar,
eða Nonni eins og við systkinin vorum
vön að kalla hann, lést 12. desember
eftir stutta en stranga baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Nonni var stór og
glæsilegur maður, dökkbrýndur með
þykkt silfrað hár. Nonni frændi hafði
létta lund, spáði í fólk og var spaug-
samur og glettinn. Hann hafði áhuga
á þjóðmálum og mannlífinu yfirleitt,
var hreinskiptinn og hafði gaman af
að ræða málefni líðandi stundar og
eiga skoðanaskipti við aðra.
Nonni og fjölskylda hans bjuggu í
sama bæjarfélagi og við og var sam-
gangur innan fjölskyldunnar, vegir
okkar lágu oft saman. Við eigum góð-
ar minningar frá þessum samveru-
stundum liðinna ára.
Nonni hafði listræna hæfileika sem
komu meðal annars fram í skemmti-
legum teikningum og oft fengum við
að njóta þess í minnisstæðum jóla-
kortum frá honum. Ákveðin kímni og
glettni sveif yfir þessum teikningum
hans, allt gert á afar fínlegan og
smekklega máta. Hann átti það til að
draga upp mynd af samferðafólki sínu
þar sem þættir sem einkenndu við-
komandi voru sýndir á gamansaman
hátt, allt gert af virðingu fyrir við-
komandi sem gerði þessar teikningar
hans skemmtilegar. Það liggja eftir
Nonna nokkrar fallegar myndir sem
ylja okkur sem eftir stöndum um
hjartarætur. Það var erfitt að horfa
upp á veikindi Nonna en æðruleysi
hans og andlegur styrkur hjálpaði
okkur við að taka því sem að höndum
bar. Eftir standa minningar um kær-
an frænda og góðan dreng.
Kæra Dóra og fjölskylda, við systk-
inin vottum ykkur samúð okkar.
Björn, Steinar, Sigríður
María og Guðmundur,
Magnúsarbörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEFÁN AÐALSTEINN SIGURÐSSON
frá Ási
í Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði
föstudaginn 24. desember.
Útför hans fer fram frá Vopnafjarðarkirkju fimmtu-
daginn 30. desember kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á að láta Samhjálp
Hvítasunnumanna njóta þess.
Reikn: 115-26-2377, kt. 551173-0389.
Páll Aðalsteinsson, Astrid Linnéa Örn,
Ásmundur Aðalsteinsson,
Rósa Aðalsteinsdóttir,
Katrín Stefanía Pálsdóttir,
Lýdía Linnéa Pálsdóttir,
Enok Örn Pálsson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsing-
ar um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip þeg-
ar verið sent er ráðlegt að senda
myndina á netfangið minning-
@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar