Morgunblaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 363. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Banaslys í Langadal
2. Andlát: Grétar Áss Sigurðsson
3. Níu ára ökumaður
4. Fékk tengivagninn á sig
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Goðsagnirnar í POPS halda sinn ár-
lega nýársdansleik á Kringlukránni.
Helstu merkisberar sjöunda áratug-
arins, innlendir sem erlendir, verða
teknir fyrir. Forsala er hafin á miði.is
og á Kringlukránni.
Nýársdansleikur
POPS á laugardaginn
„Er búinn að
vera dálítið Lé-
legur undan-
farið,“ gantast
Pálmi Gestsson á
fésbókarsvæði
sínu og vísar þar í
hlutverk sitt í Lé
konungi sem sýnt
er í Þjóðleikhús-
inu. Vinir og vandamenn Pálma rudd-
ust við þetta inn á hann með góðlát-
legum athugasemdum, þ. á m. Björg-
vin Halldórsson og Gísli Rúnar
Jónsson.
Lé-legur Pálmi
Gestsson á Fésinu
Hljómsveitirnar Náttfari og Hudson
Wayne munu kveðja árið með tón-
leikum á skemmtistaðnum Sódómu á
næstsíðasta kvöldi ársins. Hljóm-
sveitin Náttfari ætlar að leggjast í
dvala á ný eftir smáviðveru á yf-
irborðinu. Drengirnir náðu þó að
henda einhverjum lögum á plast sem
lítur dagsins ljós með hækkandi sól.
Náttfari og Hudson
Wayne á Sódómu
Á fimmtudag Suðlæg átt, 5-10 m/s og dálítil rigning, en þurrt að mestu á austanverðu
landinu. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum á austanverðu landinu.
Á föstudag (gamlársdagur) Hæg breytileg átt, en austlæg átt 5-10 m/s síðdegis og
víða dálítil úrkoma. Heldur kólnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 5-13 m/s, hvassast og stöku él V-lands og á annesjum NA-
lands, en annars víða bjart veður. Hiti 0 til 5 stig á V-landi, en annars víða vægt frost.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Vals
tryggðu sér deildabik-
armeistaratitil kvenna í
handknattleik í gær eftir
æsispennandi leik við bik-
armeistara Fram í íþrótta-
húsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði, 23:22. Framarar
fengu færi til að jafna metin
10 sekúndum fyrir leikslok.
Í karlaflokki unnu FH-ingar
sigur á toppliði N1-deildar,
Akureyri, með góðum loka-
kafla, 29:26. »2-3
Valur og FH unnu
deildabikarinn
„Rússajeppinn“ Sigfús Sigurðsson
hefur samið við þýska handknatt-
leiksfélagið Emsdetten um að leika
með því áfram út leiktíðina. Hann
kom til liðsins fyrir sjö vikum þegar
þjálfarinn Patrekur Jóhannesson
auglýsti eftir liðsauka á
Facebook-síðu sinni en
gerði þá samning sem
gilti til áramóta. Með
Sigfús í liðinu hefur
Emsdetten unnið 6
af 7 leikjum. »1
„Rússajeppinn“ verður í
Þýskalandi út tímabilið
Manchester United og Manchester
City eru jöfn að stigum á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar, sjö stigum á und-
an Englandsmeisturum Chelsea sem
eru í 5. sæti, eftir leiki gærkvöldsins.
United missti þó naumlega af sigri
gegn Birmingham en þar skoraði Lee
Bowyer jöfnunarmark undir lok leiks-
ins. Mario Balotelli skoraði þrennu
fyrir City í 4:0 sigri á Aston Villa. »4
Manchester-liðin jöfn á
toppi úrvalsdeildarinnar
ÍÞRÓTTIR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Egill Már Markússon hefur starfað
við flugumferðarstjórn í ríflega ald-
arfjórðung og lengi átt sér þann
draum að búa og starfa erlendis með
fjölskyldunni. Draumurinn rættist í
Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum í haust og þar líður
fjölskyldunni vel. „Það er ekkert
sem rekur á eftir okkur heim,“ segir
hann.
Þegar óskað var eftir íslenskum
flugumferðarstjórum til starfa í
Kosovo sló Egill til og var þar sam-
tals í um eitt og hálft ár. Sú reynsla
kveikti í honum og eftir bankahrunið
haustið 2008 ákvað hann að láta
drauminn verða að veruleika. „Ég
sótti reyndar um hjá breska félaginu
Serco, sem ég vinn hjá, 1992, en þá
var ég ungur og með litla reynslu og
fékk því ekki vinnu,“ rifjar Egill
upp. „Þetta hefur því verið draumur
lengi.“ Egill byrjaði að vinna sem að-
stoðarmaður í flugturninum í
Reykjavík í apríl 1985, fór síðan í
nám til Kanada og loks í þjálfun í
Keflavík haustið 1986.
Góð kjör
Flugumferðarstjórar lepja ekki
beint dauðann úr skel í útlöndum.
Kjörin núna eru mun betri en á Ís-
landi og tala sumir um mikil uppgrip
í þessu sambandi. Algengt er að
menn geri samning til eins eða
tveggja ára, en ákveði þeir að standa
ekki við samninginn getur vinnuveit-
andinn krafist endurgreiðslu
vegna þjálfunar.
Egill hefur verið í
Abu Dhabi í eitt og hálft
ár, var fyrst einn úti en
fékk fjölskylduna til sín í
haust. Hann er 46 ára og
segir að aldursins vegna
hafi hann til dæmis ekki getað
fengið vinnu í Þýskalandi, þar sem
miðað sé við 40 ára hámarksaldur.
Serco sækist hins vegar fyrst og
fremst eftir mönnum með mikla
reynslu og það sé í raun draumur að
búa í Abu Dhabi. Margir erlendu
starfsmannanna og þar á meðal hin-
ir þrír íslensku flugumferðarstjór-
arnir búi í Dubai, en þaðan sé um
klukkutíma akstur í vinnuna. „Ég er
hins vegar aðeins um 10 mínútur í
vinnuna.“
Alþjóðlegt umhverfi
Mikil uppbygging á sér stað á
flugvellinum í Abu Dhabi samfara
aukinni flugumferð og meðal annars
verður nýr flugturn tekinn í notkun í
apríl. „Þetta er skemmtilegt vinnu-
umhverfi,“ segir Egill og bætir við
að af um 50 flugumferðarstjórum sé
um helmingur útlendingar.
Draumur að búa í Abu Dhabi
Kosovo kveikti
í Agli Má flug-
umferðarstjóra
Morgunblaðið/Kristinn
Jólafrí Fjölskyldan skrapp til Íslands um jólin og feðgarnir Tómas, sem er 9 ára, og Egill Már Markússon rifjuðu
upp liðnar stundir á Gróttuvellinum. Tómas spilar með skólaliði sínu ytra en Egill Már er hættur að dæma.
Að minnsta kosti 11 íslenskir flug-
umferðarstjórar starfa erlendis
um þessar mundir og fleiri hugsa
sér til hreyfings. Ottó G. Eiríksson,
formaður Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra, segir að
flugumferðarstjóra
vanti úti um allan
heim. Mönnum bjóð-
ist gull og grænir
skógar og því ekki
furða að þeir láti til
leiðast í stöðugum niðurskurði
hérna heima. 113 manns séu í fé-
laginu og þó nýtt fólk sé í þjálfun
saxist á hópinn.
Um jólin fór einn íslenskur flug-
umferðarstjóri til Bagdad í Írak og
annar er á leiðinni þangað strax
eftir áramót, jafnvel tveir. Fleiri
eru að íhuga að sækja þar um
starf. Fjórir starfa í Abu Dhabi, þrír
í Svíþjóð, einn í Noregi, einn í
Þýskalandi og einn í Oman.
Írak nýjasti vettvangurinn
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR Á FERÐINNI
Dómarinn
Egill Már