Morgunblaðið - 17.03.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2011
Úthlutunardagur Mæðrastyrks-
nefndar og Fjölskylduhjálpar Ís-
lands var í gær og þáði töluverður
fjöldi matargjöf hjá samtökunum.
Nokkur hundruð leituðu til Mæðra-
styrksnefndar og yfir sex hundruð
til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Ís-
lands, segir samtökin hafa keyrt með
matarpakka til tveggja einstaklinga
í dag sem ekki sáu sér fært að koma
á staðinn. Aðspurð segir hún fimm
hundruð einstaklinga og fjölskyldur
þurfa á slíkri aðstoð að halda í
Reykjavík, en erfitt sé að anna þeirri
eftirspurn. Erfitt er að fá sjálf-
boðaliða sem eru viljugir til þess að
leggja út fyrir bensínkostnaðinum.
Fyrir sex vikum tók Fjölskyldu-
hjálpin upp miðakerfi sem hefur
reynst vel. Biðröðum hefur nánast
verið útrýmt og afgreiða samtökin
nú um tvö hundruð og þrjátíu fjöl-
skyldur á klukkutíma. Þeir sem
sækja um mataraðstoð verða að
framvísa pappírum á úthlutunar-
deginum sjálfum. „Fólk þarf að sýna
hvaða innkomu það hefur frá Trygg-
ingastofnun eða Félagsþjónustunni.
Ef það á maka,sem er úti á vinnu-
markaði þarf að koma með launa-
seðil viðkomandi,“ segir Ásgerður
Jóna.
Þeir sem sækja um aðstoð hjá
Mæðrastyrksnefnd þurfa að hafa
skilríki meðferðis á úthlutunardeg-
inum. Þá þurfa þeir sem þiggja at-
vinnuleysisbætur að koma með þar
til gerða pappíra.
Mörg hundruð
manns þáðu
matargjafir í gær
Biðröðum nánast útrýmt hjá
Fjölskylduhjálp með nýju miðakerfi
Morgunblaðið/Ernir
Mæðrastyrksnefnd Nokkur hundr-
uð leituðu þangað í gær eftir aðstoð.
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Samskipti bæjarstjórnar Seltjarnarness og
Ólafs Melsted, sem sakað hefur bæjarstjórann
Ásgerði Halldórsdóttur um einelti, eru í lás og
bíða báðir aðilar þess að hinn aðhafist eitthvað.
Bæjarstjórnin sendi í fyrrakvöld frá sér til-
kynningu þar sem frá því var greint að hún
tæki ekki afstöðu til matsgerðar sem unnin var
að frumkvæði Ólafs, um samskipti hans við Ás-
gerði. Jóhann H. Hafstein, lögmaður Ólafs,
sendi bæjarfulltrúum bréf þann 8. mars síðast-
liðinn þar sem greint var frá niðurstöðum
matsgerðarinnar. Í áður-
nefndri tilkynningu bæjar-
stjórnar segir að farið hafi
verið fram á það að hún
fengist afhent, en við því
hafi ekki verið orðið. Því sé
bæjarfulltrúum ófært að
taka afstöðu til forsendna
þeirra niðurstaðna sem þar
koma fram. Í samtali við
Morgunblaðið í gær sagði
Jóhann að enginn bæjarfulltrúi hefði haft sam-
band við sig vegna matsgerðarinnar. „Þeim er
frjálst að koma hingað [á lögfræðistofuna] og
skoða hana, eða þá að fá hana gegn greiðslu,“
segir Jóhann, en sú greiðsla næmi 1,6 millj-
ónum króna.
Stefnir í dómsmál
Ásgerður Halldórsdóttir vildi ekki tjá sig um
málið við blaðið þegar leitað var eftir því, en
vísaði á lögfræðing Seltjarnarness, Anton
Björn Markússon. „Í samræmi við meginregl-
ur réttarfars er aðili skyldugur til að afhenda
gagnaðila svona skjal,“ segir Anton. „Það er
ótækt að ætlast til þess að bæjarfulltrúar fari á
lögmannsstofu og rýni í svona skjal,“ bætir
hann við, og segir það ekki munu gerast.
„Hann er að þverbrjóta þær reglur sem gilda
um hvernig skuli fara með svona skjöl. Það
blasir við að við getum ekki tekið afstöðu til
þess hvort við viljum beiðast yfirmats eður ei.
Þá er ekkert hægt að gera það fyrr en hann er
búinn að ákveða að höfða dómsmál.“
Jóhann gaf bæjarstjórn Seltjarnarness 20
daga frest til þess að taka afstöðu til málsins,
og bæta Ólafi það tjón sem hann hefði orðið
fyrir vegna þess, ellegar höfði hann mál. Allt
bendir til þess að það verði niðurstaðan, en Jó-
hann segir bæjarfulltrúa ekki virðast spennta
fyrir að skoða matsgerðina. Anton segir bolt-
ann hins vegar hjá Ólafi og lögmanni hans.
Pattstaða komin upp á Seltjarnarnesi
Lögmaður sveitarfélagsins segir lögmann Ólafs Melsted brjóta reglur með því að neita bæjarfulltrú-
um um matsgerð Lögmaður Ólafs segir bæjarfulltrúum velkomið að skoða matsgerðina á stofu sinni
Jóhann H. Hafstein
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Forystumenn Alþýðusambandsins
og Samtaka atvinnulífsins hittust
síðdegis í gær til að fjalla um árang-
ur fundar sem þeir áttu fyrr um dag-
inn með ráðherrum um atvinnumálin
og aðkomu stjórnvalda að kjara-
samningum. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði að farið
hefði verið yfir mörg mál
en ljóst væri að ekki væri hægt að
landa samningi meðan útspil ríkis-
stjórnarinnar lægju ekki fyrir.
Hann nefndi sem dæmi að ekki
væri komin niðurstaða varðandi
kröfu SA um að atvinnutrygginga-
gjald yrði lækkað. Í fyrra hefðu fjár-
festingar aðeins verið um tæpir 200
milljarðar. „Þessi tala þarf á næsta
ári að verða á fjórða hundrað millj-
arðar og helst þyrftu þær að aukast í
300 milljarða á þessu ári til að
tryggja að það verði hagvöxt-
ur,“ sagði Vilhjálmur.
Almenn skilyrði af hálfu
ríkisvaldsins þurfi að vera
í lagi til að tryggja vöxt og
atvinnu, þ. á m. að gjald-
eyrishöft verði afnumin
og fjármagnsmarkaði
opnist leiðir til útlanda.
Einnig þurfi að taka á
skattamálum fyrirtækja og
sjávarútvegsmálunum, fá
festu í starfsskilyrði greinar-
innar til langs tíma til þess að hún
geti farið að fjárfesta. Loks verði að
koma í gang stórframkvæmdum á
sviði orkuvinnslu, einnig vegafram-
kvæmdum og nýja Landspítalanum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sagði m.a. í samtali við mbl.is að tæk-
ist ekki að auka umsvifin í atvinnulíf-
inu yrði erfitt að koma saman kjara-
samningum. Rætt væri m.a. um
möguleika stjórnvalda á að koma
með innspýtingu í atvinnulífið, t.d. í
vegamálum. Ljóst væri að mikil and-
staða væri víða við veggjöld á vegum
út frá höfuðborginni til að fjármagna
breikkun Suðurlands- og Vestur-
landsvegar.
„Við höfum bent á að hægt væri að
fara í Sundabraut, en það þýðir að
fólk getur valið um að fara hana eða
fara um Mosfellsbæ,“ sagði Gylfi.
Hann sagðist hafa lagt áherslu á
að þau verkefni sem forsætisráð-
herra nefndi í ræðu á Alþingi í fyrra-
dag og önnur verkefni yrðu metin
með tilliti til hagvaxtar. Alls væri um
að ræða verkefni upp á 200 milljarða
á næstu þrem árum. „Það þarf því að
bæta ansi miklu við ef menn ætla
ekki að fara í Helguvík,“ sagði Gylfi.
Útspil stjórnvalda
liggja ekki fyrir
Fulltrúar ASÍ og SA ræddu atvinnumálin við ráðherra
Fjallað var um atvinnumál og kjarasamninga á Alþingi í gær og sagði
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, að nú kölluðu
aðilar vinnumarkaðarins eftir aðgerðum stjórnvalda í atvinnu-
málum og aukinni fjárfestingu. Þetta hefðu þeir líka gert 2009
en stjórnvöld hefðu ekkert gert. Það vantaði um 150 milljarða
fjárfestingu inn í atvinnulífið sem menn hefðu reiknað með að
færi í gang 2009. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skatta-
nefndar Alþingis, sagði að ekkert verkefni væri brýnna í stjórn-
málum á Íslandi en að auka fjárfestingu í atvinnulífinu. Skapa
yrði almenn skilyrði fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu frekar en
að einblína á einstök verkefni. Hann sagði að það þyrfti að eyða
óvissu um skuldamál fyrirtækja, um afnám gjaldeyrishafta og um
framtíð Icesave-málsins.
Ekkert verkefni brýnna
ÞINGMENN HVÖTTU TIL FJÁRFESTINGA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kuldalegt Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, varaformaðurinn Grímur Sæmundsen
og Vilmundur Jósefsson, formaður SA, við Stjórnarráðið í gær eftir fund með ráðherrum.
Á annað hundrað manns kusu í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um Ice-
save-samninginn í gær, á fyrsta
degi utankjörfundaratkvæða-
greiðslu. „Það er búið að vera stöð-
ugur straumur í allan dag,“ sagði
Bryndís Bachmann hjá sýslumann-
inum í Reykjavík þegar skrifstof-
unni var lokað en þá höfðu 73 greitt
atkvæði í Reykjavík. Í atkvæða-
greiðslunni er kosið um hvort lögin
sem Alþingi samþykkti haldi gildi
sínu eða hvort þau eigi að falla úr
gildi. Alls greiddu 142 á landinu
öllu í gær en utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla fer fram á skrif-
stofutíma hjá sýslumönnum til 25.
mars nk. Hjá sýslumanninum í
Reykjavík verður einnig opið laug-
ardaginn 19. mars frá kl. 12 til 14
sem og laugardaginn 26. mars og
sunnudaginn 27. mars. Frá og með
mánudeginum 28. mars fer at-
kvæðagreiðslan fram í Laugardals-
höll og þá verður opið alla daga frá
kl. 10 til 22.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um Icesave Þjóðaratkvæða-
greiðslan fer fram 9. apríl.
Atkvæða-
greiðslan
hafin