Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 2
„Allir farþegarnir gengu rólegir frá borði“  Engan sakaði þegar flugvél FÍ hlekktist á og rann út af flugvellinum í Nuuk Helgi Bjarnason Una Sighvatsdóttir „Það var enginn hávaði eða læti í fólki. Allir farþegarnir gengu róleg- ir frá borði,“ segir Þorleifur Egg- ertsson, einn farþeganna í Dash 8- flugvél Flugfélags Íslands sem hlekktist á við lendingu á flugvell- inum í Nuuk í Grænlandi síðdegis í gær og rann út af flugbraut. Um borð var 31 farþegi auk þriggja manna áhafnar og sakaði engan. Flugvélin er illa farin. Flugvélin fékk á sig vindhviðu þegar hún var að lenda og kom harkalega niður á hægra hjólastell- ið þannig að það brotnaði undan. Hún rann síðan út af flugbrautinni og hafnaði í grjóturð á öryggis- svæði flugvallarins og snýr upp í fjallið. Farþegarnir gengu sjálfir frá borði og inn í flugstöðina og tóku handfarangur sinn með. „Fólk var svolítið sjokkerað, að- allega þegar það kom inn í flugstöð- ina og fékk fullt af liði á móti til að hjálpa og áttaði sig þá kannski fyrst á því hvað það munaði litlu,“ segir Jónas Þór Sigurgeirsson einkaflug- maður sem var meðal farþega. Gerðist á besta stað Jónas og Þorleifur segja að vélin hafi farið út af á besta stað. Hún var rétt komin framhjá kletti sem stendur skammt frá flugbrautinni. „Það var mikil lukka að hún skyldi ekki lenda á klettinum því þá hefði farið illa,“ segir Þorleifur. Gat kom á gólf farþegarýmis og snjór barst inn. Sumum farþeganna leið illa and- lega eftir óhappið. Fulltrúar yfir- valda ræddu við þá í flugstöðinni. Þeim var boðin áfallahjálp. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir að farþeg- arnir verði aftur kallaðir saman í dag. Flugvöllurinn lokaður Rannsóknarnefnd flugslysa í Danmörku mun rannsaka óhappið og íslenska rannsóknarnefndin fylgjast með. Flugvélin er mjög illa farin. Hægra hjólastellið brotnaði af og nefhjólið er laskað, einnig hægri vængur, skrúfa og bolur vélarinnar. Flugvöllurinn hefur verið lokað- ur frá því óhappið varð vegna þess að vélin er inni á öryggissvæði vall- arins. Þrjátíu farþegar áttu bókað far með vélinni til baka. Árni segir að náð verði í þá og áætlun hafin aftur þegar flugvöllurinn opnast á ný. „Það er fyrir mestu að enginn slasaðist. Annað tjón er alltaf hægt að bæta,“ segir Árni. Ljósmynd/Jónas Þór Sigurgeirsson Utan brautar Flugvél Flugfélags Íslands hafnaði úti í urð nokkru frá flugbrautinni í Nuuk og snýr nefi sínu upp í fjall. Hún er mikið skemmd. Flugóhapp í Nuuk » Flugvélin fór frá Reykjavík kl. 10.40 og eftir millilendingu í Kulusuk þar sem tekið var eldsneyti var haldið áfram. Vél- in lenti í Nuuk kl. 13.30 að staðartíma, kl. 16.30 að ís- lenskum tíma. » Um borð var 31 farþegi auk þriggja manna áhafnar. Far- þegarnir eru flestir frá Íslandi, Grænlandi og Danmörku og áhöfnin íslensk. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Sparisjóðakeðjan verður slitróttari ef Sparisjóðurinn í Keflavík hverfur inn í Landsbank- ann eins og blikur eru á lofti um. Sjóðirnir sem eft- ir eru geta engu að síður haldið áfram að starfa. Þetta segir Ari Teitsson, stjórnarformaður Spari- sjóðs Suður-Þingeyjarsýslu. „Ég sé enga ástæðu til að gefast upp en þetta veikir keðjuna og gerir okkur erfiðara fyrir, það gefur auga- leið,“ segir Ari. Búast megi við því að stokka þurfi upp sameiginlega starfsemi sjóðanna ef SpKef hverfur á braut. „Við erum með ýmsa sameigin- lega þjónustu sem við kostum sam- an. Við þurfum örugglega að huga að hagræðingu á henni þegar og ef stærsti sjóðurinn hverfur annað. Við finnum flöt á því. Hinir sjóðirnir geta samt alveg starfað áfram,“ seg- ir Ari. kjartan@mbl.is Sjóðirnir geta starf- að áfram Ari Teitsson Sparisjóðir veikjast Fimm manna fjölskylda frá Akur- eyri sem flutti til Christchurch á Nýja-Sjálandi í fyrra hefur ekki get- að búið í húsinu sínu eftir jarð- skjálftann á dögunum. Móðirin hef- ur reyndar lofað börnunum að þau þurfi aldrei að dvelja í húsinu framar og óvissan er því mikil. Hópur fólks stendur í dag fyrir samkomu í Ketilhúsinu á Akureyri til styrktar fjölskyldunni. „Mér finnst mestu máli skipta ef fólk hugsar fallega til mín,“ segir Erika Lind Isaksen. Nánar í Sunnudags- mogganum. Í óvissu eftir jarðskjálftann Saman Erika, Paul og börnin þrjú. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, afhenti Benedikt XVI páfa styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur eftir einkafund með páfa á skrif- stofu hans í Vatíkaninu í Róm. Styttan er gjöf frá íbúum á Snæ- fellsnesi og var hópur Snæfellinga viðstaddur athöfnina. Síðar um daginn var málþing um miðalda- og kirkjusögu á fyrstu öldum Íslands- byggðar í Háskóla heilags Tómasar frá Akvínó. Reuters Stytta afhent í Páfagarði Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nýjasti Icesave-samningurinn, Icesave III, var kynntur á Alþingi í byrjun desember á síðasta ári en enn liggur ekki fyrir hvað starf samninganefndarinnar kostaði. Í fjármálaráðuneytinu fengust þau svör í gær að verið væri að vinna að svari við fyrirspurn á Alþingi um kostnað við störf nefndarinnar. Samninganefndin boðaði til fundar sl. miðvikudag til þess að kynna nýjar tölur um endurheimt- ur Landsbankans. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fjölmiðlafulltrúi í fjármálaráðuneytinu, segir að ekk- ert hafi verið ákveðið um fleiri fundi. Nefndarmenn hafi og komi væntanlega til með að mæta á fundi hjá stofnunum, starfsmanna- félögum og fyrirtækjum, en slíkir fundir séu óháðir nefndinni og ráðuneytinu. Lárus Blöndal lög- maður villl ekki tjá sig um málið að neinu leyti. Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður segir að ein- stakir nefndarmenn hafi verið beðnir um að skýra málið hér og þar og það hafi þeir gert sem ein- staklingar án þess að fjármála- ráðuneytið ætti hlut að máli eða kostnaður félli á ríkið. Hann segir að nefndin hafi ekki skipulagt neina fundi, en kæmi nýtt endur- heimtumat fram væri líklegt að nefndarmenn reiknuðu kostnað vegna Icesave á ný. Jóhannes Karl áréttar að verk- efni samninganefndarinnar hafi verið að ná samningi um Icesave. Hún hafi lagt fram drög að samn- ingi og gefið Alþingi skýrslu um líklega fjárhagslega niðurstöðu. Nefndin hafi ekki verið leyst frá störfum en sér vitandi séu engin áform um frekari verkefni. Spurður um kostnað vegna nefndarinnar eða einstakra nefnd- armanna segist Jóhannes Karl ekki hafa yfirlit yfir greiðslur til sín og vísar á fjármálaráðuneytið. Nefndin hafi verið að störfum í um eitt ár og nefndarmenn hafi vænt- anlega sent inn reikning fyrir framlagðar vinnustundir mánaðar- lega. Enn reiknað í ráðuneytinu  Kostnaður vegna samninganefndarinnar ekki uppgefinn Nefndin » Í samninganefndinni voru Lee Buchheit, Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, Jóhann- es Karl Sveinsson lögmaður og Lárus Blöndal lögmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.