Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði Sigrúnar Ástrósar
Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir
á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita
um þau efni. Úthlutun miðast við faglegt mat á gæðum rannsóknarverkefnis,
færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu
til að sinna verkefninu. Sjóðurinn er í vörslu Rannís.
Rannsóknasjóður
Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2011
Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur
og Haraldar Sigurðssonar
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda-
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Ég bið fjölskylduna innilega afsök-
unar. Ég á ekkert sökótt við þau nú
frekar en þá,“ sagði Ívar Örn Kol-
beinsson, einn fjögurra sem ákærðir
eru fyrir skotárás á hús við Ásgarð á
aðfangadag, við aðalmeðferð málsins
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hann, líkt og aðrir sakborningar, iðr-
aðist gjörða sinna sem þeir sögðu
hafa komið til vegna óreglu. Ívar og
bróðir hans Ríkharður sögðust báðir
komnir á beinu brautina á Litla-
Hrauni og nokkuð fegnir að vera
„teknir úr umferð“.
Atvik máls þróuðust á þann veg að
húsráðandinn kom óafvitandi upp um
sölumann fíkniefna sem leiddi til
handtöku hans. Vegna þess fór sá
hinn sami fram á fjárbætur vegna
miska. Lagði hann fram þriggja millj-
óna króna kröfu á húsráðandann og
fól öðrum að innheimta. Innheimtu-
maðurinn fékk starfið þriðja manni í
hendur, Kristjáni Hauki Einarssyni,
sem tókst verkið á hendur.
Erfiðlega hafði gengið fyrir Krist-
ján, sem ákærður er í málinu, að ná
tali af húsráðandanum og umræddan
dag, aðfangadag, hafði hann gert
árangurslausa tilraun þegar hann
hringdi í vini sína, Ríkharð og Ívar,
en áður hafði hann sótt Dag Bjarna
Kristinsson. Saman fóru þeir fjórir
að húsinu við Ásgarð, vopnaðir hagla-
byssu. Ívar og Kristján hleyptu báðir
af byssunni á og inn í húsið.
Óregla dagana áður
Í framburði Kristjáns kom fram að
hann hefði sagt hinum þremur það
eitt að hræða þyrfti umræddan hús-
ráðanda, hann hefði hins vegar ekki
greint frá því hvers vegna. Hann
sagði einnig að þeir hefðu gengið úr
skugga um að enginn stæði fyrir inn-
an hurðina þegar þeir hleyptu af
byssunni. Ívar Örn sagðist alls ekki
draga úr þætti sínum í málinu en ekki
hefði staðið til að valda nokkrum
manni hörmum. Um hefði verið að
ræða brot sem framið var vegna mik-
illar óreglu á aðfangadag og dagana á
undan.
Þáttur þeirra tveggja sem ekki
komu nærri byssunni, þ.e. Ríkharðs
og Dags Bjarna, virðist öllu minni.
Stóðu þeir hjá þegar umrædd atvik
áttu sér stað og höfðu sig lítið í
frammi, auk þess sem þeir áttu – líkt
og aðrir – ekkert sökótt við húsráð-
andann. „Við erum ekki morðingjar
eða ofbeldismenn,“ sagði Ríkharður
sem og einnig að Dagur hefði verið
fórnarlamb aðstæðna þennan dag.
„Ekki morðingjar
eða ofbeldismenn“
Skotárásarmenn voru fullir iðrunar við aðalmeðferðina
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Dómur Ríkharður og Ívar Örn Kolbeinssynir við upphaf aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Borgin er ekki að forgangsraða í
þágu barnanna,“ sagði Rósa Stein-
grímsdóttir, formaður Barnanna
okkar, samtaka foreldra leikskóla-
barna í Reykjavík. Hún sagði að
samtökunum þætti lítið fara fyrir
faglegum ávinningi í skýrslu starfs-
hóps borgarinnar um sameiningu
eða samrekstur leikskóla, grunn-
skóla og frístundaheimila. „Okkur
finnst að það þurfi að vinna málið í
sátt og samvinnu við foreldra og
fagfólk.“
Rósa benti m.a. á að í skýrslunni
væri talað um að sameining starfs-
mannahópa ýtti undir nýbreytni og
fjölbreyttari þekkingu. „En það er
hvergi minnst á fjárveitingu til yf-
irvinnu vegna starfsmannafunda í
skýrslunni.“ Hún sagði að boðuð
hagræðing ætti að vera komin að
fullu til framkvæmda árið 2014. Þá
ætti sparnaðurinn að vera samtals
á öllum sviðum einungis rúmlega
1%.
„Okkur finnst þetta mikil aðför
að leikskólanum,“ sagði Rósa. Hún
sagði að foreldrum hefði ekki þótt
samráðsfundir snúast um samráð
heldur upplýsingagjöf. Samkvæmt
skýrslunni hefðu borist um 800
ábendingar vegna málsins. Meiri-
hluti almennra athugasemda, sem
voru um 65% ábendinganna, hefði
innihaldið varnaðarorð eða mót-
mæli gegn niðurskurði í mennta-
kerfi borgarinnar.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að
leikskólarnir Hamraborg og Sól-
bakki í Hlíðahverfi verði samein-
aðir undir eina yfirstjórn. Sé litið
til Hamraborgar þá sendu starfs-
menn leikskólans frá sér yfirlýs-
ingu þar sem sameiningaráformum
er mótmælt.
„Niðurskurður hefur verið í
rekstri leikskólanna undanfarin ár
og er að okkar mati kominn langt
yfir sársaukamörk,“ segir þar m.a.
Starfsmennirnir spyrja hvort ekki
sé eitthvað að „þegar enginn er
sáttur nema meirihluti borgar-
stjórnar“.
Hólmfríður Ólafsdóttir, formaður
foreldrafélags Hamraborgar, sagði
að allir hefðu orðið varir við mikla
manneklu í leikskólanum.
„Aðstoðarleikskólastjórinn hefur
engan tíma til að sinna því starfi
heldur er hún alltaf í afleysingum,“
sagði Hólmfríður. Hún taldi að ef
fækka ætti starfsfólki enn meir
kæmi það óhjákvæmilega niður á
starfinu. Engin yfirvinna væri leyfð
og því sæti enginn starfsmaður
leikskólans fundi foreldraráðsins.
„Niðurskurðurinn er kominn að
þolmörkum fyrir löngu. Ég held að
fólk sé orðið leitt á því að það skuli
alltaf bitna á þeim sem síst skyldi,
börnum og fötluðum. Þetta er svo
mikil vanvirðing við þessa hópa.“
Óánægja með
sameiningu
leikskóla
Foreldrar vilja sátt og samvinnu
Morgunblaðið/Ernir
Leikskólar Mikil óánægja ríkir
vegna áforma um breytta leikskóla.
Sameining leikskóla
» Starfshópur Reykjavíkur-
borgar leggur til að 30 leik-
skólar verði sameinaðir í 14.
» Nú eru að meðaltali 76 börn
í hverri rekstrareiningu en
verða 98 samkvæmt tillög-
unum.
» Stefnt er að sameiningu
leikskólanna á þessu ári. Fjölga
þarf leikskólarýmum 2012
vegna stórs 2010-árgangs.
„Ég vissi af hverju þeir komu.
Þeir voru sendir á mig af Dav-
íð. Hann sagðist ætla að
senda einhverja dópista á
mig,“ sagði húsráðandinn í
Ásgarði, fórnarlamb skotárás-
arinnar á aðfangadag.
Dómari í málinu, Pétur Guð-
geirsson, spurði Sigríði Elsu
Kjartansdóttur saksóknara út
í umræddan Davíð, sem ekki
var frekar nafngreindur, og
hvort hans þáttur hefði verið
til rannsóknar. Svaraði Sigríð-
ur Erla því til að hann hefði
verið til rannsóknar en ekki
fengist niðurstaða í málið.
Annar maður var einnig
nefndur til sögunnar, Sverrir,
sem virðist af framburði vitna
hafa verið sá sem átti eitt-
hvað sökótt við húsráðanda.
Þessir menn voru ekki kallaðir
fyrir dómara.
„Þeir voru
sendir á mig“
SKÝRSLA HÚSRÁÐANDA
Goðafoss átti að sigla inn í höfnina í
Óðinsvéum í birtingu í morgun þar
sem skipið verður sett í slipp. Lá
skipið við akkeri utan við innsigl-
inguna í nótt en þangað kom það um
klukkan 18.00 í gær eftir siglingu frá
Grenå á Jótlandi. Samkvæmt hafn-
arreglum má ekkert skip sigla inn í
höfnina í myrkri og þurfti Goðafoss
því að bíða til morguns. Að sögn
Ólafs W. Hand, forstöðumanns upp-
lýsinga- og markaðsmála Eimskips,
kemur áhöfn Goðafoss væntanlega
ekki heim fyrr en á sunnudagskvöld
eða mánudagsmorgun. Áætlað er að
skipið verði í slipp í þrjár vikur og
fari svo aftur í venjubundnar sigl-
ingar.
Goðafoss fer í slipp
í Óðinsvéum í dag