Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 50
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Hún er komin vel á veg, það eru komin svona 60%,“ segir tónlistar- maðurinn Mugison, spurður að því hver staðan sé á væntanlegri plötu sem hann er með í smíðum. Sér- fróðir þykjast greina áhrif frá Spil- verki þjóðanna í laginu sem komið er í spilun, „Haglél“. „Já, já, ég er and- setinn af Spilverkinu og sérstaklega Sigga Bjólu,“ segir Mugison sposkur þegar þetta er borið undir hann. Hann hafi lengi verið aðdáandi Spil- verksins og þá dáðst sérstaklega að rödd Sigurðar Bjólu, IKEA-rödd- inni, eins og tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson kalli hana. Út og suður – Ertu að taka nýja stefnu? „Nei, nei. Mér finnst þetta ekki vera ný stefna. Ég hef verið dálítið heppinn með þessar plötur sem ég hef gert, það er viss geðhvarfasýki í gangi á þeim, þær eru svona úti um allt og út og suður. Þannig að mér finnst ég eiginlega geta gert hvað sem er og það er samt mín stefna. Á fyrstu plötunni minni er eitt lag sem heitir „Poke a Pal“, kassagítarlag á elektrónískri plötu og eins er „Two Birds“ svona lag. Mér finnst þetta ekki vera neitt nýtt fyrir mér en … jú, það hefur kannski ekki komið út svona samansafn af lögum sem eru eiginlega öll unnin á kassagítar, þar sem kassagítar og rödd eru eitthvert aðalatriði. Mér sýnist hún vera að stefna þangað sjálfkrafa þessi plata.“ Mugison segir þó líkur á því að hljómsveitarlög verði einnig að finna á plötunni, þ.e. lög sem hann spili með hljómsveitinni sinni sem oftast nær er skipuð þeim Pétri Ben, Guðna Finnssyni, Davíð Þór Jóns- syni og Arnari Gíslasyni. Mugison tekur plötuna upp heima hjá sér og segist hafa unnið allar sínar plötur í „lappanum“, séð um upptökur sjálf- ur. „Svo hendist maður í Sundlaug- ina til hans Bigga í nokkra daga, í trommur og það sem maður þarf að sánda eitthvað,“ segir Mugison. Platan væntanlega er enn án titils en Mugison segir að um tíma hafi hún borið gríntitilinn Mannakorn. „Mér fannst þetta stefna þangað einhvern veginn, í svona þjóðlagablús.“ Andsetinn af Spilverkinu  Mugison langt kominn með plötu, kassagítar og rödd í öndvegi Ljósmynd/Jónas Val Ógeð Mugison kallar þessa mynd ógeðsmynd, enda er hún frekar ógeðsleg. Ein af nokkrum ógeðsmyndum Mugga. 50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011  Fyrsta helgin í mars hefur fest sig í sessi sem blúshátíðarhelgi á Höfn í Hornafirði. Í ár verður lögð megináhersla á hornfirskar hljóm- sveitir og brottflutta Hornfirðinga í tónlistarlífinu, enda er á nógu þar að taka. Hljómsveitirnar sem koma fram á hátíðinni í ár eru átta talsins og munu blúsa á Hótel Höfn, Kaffi- horninu og Víkinni. Sveitirnar sem spila eru Vax, Blues Wayne, Big bandið, Svartar sálir, Mogadon, Mæðusveitin Sigurbjörn, Bjarni Tryggva og Cha cha chas. Á sunnu- deginum verður svo blúsmessa í Hafnarkirkju. Frítt hefur verið inn á hátíðina frá árinu 2009 og á því verður engin breyting í ár. Norðurljósablús 2011 á Höfn í Hornafirði Fólk  Í tilefni af kjötkveðjuhátíðinni í Brasilíu verður slegið til veislu á Bakkusi í kvöld. Kristín Bergs- dóttir, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Samúel Jón Samúelsson standa að hátíðinni en þau hafa öll búið í þeirri dásamlegu borg Rio de Janeiro og þekkja því vel til kjötkveðjuhátíðarinnar. Á boðstólum verður lifandi tónlist og brjálað karnivalstuð en fram koma listamenn sem hafa dálæti á bras- ilískri tónlist. Það verður dansað, sungið og brosað allan hringinn, segir í stuð- vænni fréttatilkynningu. Kjötkveðjuhátíð á Bakkusi í kvöld Blúshátíð í Reykjavík 2011 verður haldin í áttunda sinn 16.-21. apríl. Haldnir verða þrennir stórtón- leikar á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld í dymbilviku. Blúshátíðin hefst laugardaginn 16. apríl en þá verður blúslistamaður ársins heiðraður, blúsvagnar Krú- serklúbbsins keyra um bæinn, framinn verður blúsgjörningur og svo tónleikar um kvöldið. Miðasala hefst á midi.is 10. mars. Gestir Blúshátíðar fá að kynnast nýrri hlið á stórsöngvaranum Björgvini Halldórssyni þegar hann treður upp með Páli Rósinkranz og Blús- mafíunni sem skipuð er Þóri Bald- urssyni, Guðmundi Péturssyni, Ró- berti Þórhallssyni, Pálma Sigurhjartarsyni, Jóhanni Hjör- leifssyni, ásamt blásurum og bak- röddum. Hljómsveitin Ferlegheit kemur fram þetta sama kvöld, en hún gaf nýlega út sína fyrstu plötu You can be as bad as you can be good. Tveir blúsarar frá Miss- issippi koma þá fram á hátíðinni. Marquise Knox, sem hefur verið kallaður krónprinsinn frá Miss- issippi, leikur miðvikudaginn 20. apríl. Marquise Knox fæddist árið 1991 en þrátt fyrir ungan aldur er hann margverðlaunaður tónlist- armaður sem spilar blús af mikilli innlifun og næmni. Hann gaf út sína fyrstu plötu sextán ára gamall og hún var tilnefnd sem besta blúsplata byrjanda þetta sama ár. Hljómsveitin Klassart kemur fram sama kvöld. Vasti Jackson & the Blue Ice band leika síðan á fimmtudaginn 21. apríl. Jackson er blúsinn holdi klæddur, gjörþekkir rætur blústónlistarinnar, er ótrú- lega líflegur á sviði og nær góðum tengslum við áhorfendur. The Blue Ice Band er skipað þeim Hall- dóri Bragasyni, Guðmundi Péturs- syni, Róberti Þórhallssyni, Birgi Baldurssyni og Davíð Þór Jónssyni ásamt blásurum. Stone Stones, ein efnilegasta blússveit landsins, kemur einnig fram þetta kvöld. Klúbbur Blúshátíðar verður starf- ræktur á Hilton Reykjavík Nordica að loknum stórtónleikunum. Þar verður leikinn blús af öllum gerð- um. Meðal viðburða í Klúbbi Blúshátíðar verður þjóðlegi ís- lenski blúsinn og Mississippi blús. Að venju er lögð sérstök áhersla á ungt fólk. Nánari upplýsingar um Blúshátíð í Reykjavík eru á www.blues.is. Blúshátíð í Reykjavík kynnir dagskrá sína Krónprins Marquise Knox.  Tveir sjóðandi heitir blúsarar frá Mississippi troða upp Opið hús í Iðnskólanum þriðjudaginn 8. mars kl. 13:30-17 Leiðsögn um skólann og opnar kennslustundir Iðnskólinn í Hafnarfirði Flatahrauni 12, Hafnarfirði. www.idnskolinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.