Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 20
Landspítali Á næstu vikum verður ráðist í að mæla ánægju sjúklinga. Björn Zoëga, forstjóri Landspítal- ans, segir að nokkrum verkefnum verði hleypt af stokkunum fljótlega sem ætlað sé að efla gæði þjónust- unnar á spítalanum. Þetta kemur fram í föstudagspistli Björns sem birtur er á vefsíðu Land- spítalans. Björn nefnir tvö verkefni sem dæmi: „Annars vegar „Sjúk- lingaráðin tíu“ og hins vegar mæl- ingar á ánægju sjúklinga. Bæði verkefnin byggjast á beinni þátttöku sjúklinga og hvernig nýta megi upp- lifun og hugmyndir þeirra til þess að efla þjónustuna,“ skrifar Björn. Hann segir að „Sjúklingaráðin tíu“ hvetji sjúklinga á einfaldan hátt til að spyrja, upplýsa og fá upplýs- ingar um 10 atriði sem séu mikilvæg í meðferðinni, s.s. verki, lyf, hlutverk aðstandenda, framhaldsmeðferð o.fl. Mæla ánægju sjúklinga Þá segir hann að ráðin verði að- gengileg sjúklingum á deildum og á biðstofum. „Einnig förum við á næstu vikum í að mæla ánægju sjúklinga með spurningalistum sem verða sam- bærilegir við þá sem notaðir eru á öðrum sjúkrahúsum í Evrópu,“ segir Björn. Efla gæði þjónustu Landspítalans ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur Auðunn Árnason Stykkishólmur Íbúar Stykkishólms voru 1103 um síðustu áramót. Þeim fjölgaði um 13 á síðasta ári. Sú niðurstaða er mjög jákvæð og ekki sjálfsögð í því árferði sem við búum við. Atvinnu- lífið er veigamesti þátturinn í íbúaþróun og hvert nýtt starf í svo litlu sveitarfélagi skiptir máli. Sagt er að auðveldara sé að verja störfin sem eru fyrir hendi en að skapa ný. Augu fólks hafa beinst að nýjum tækifærum til að styðja við byggð- ina.    Sjálfstæðisfélagið Skjöldur heldur ráðstefnu í dag, laugardag, kl. 14 um atvinnumál og nýsköpun í tilefni af 80 ára afmæli félagsins. Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningunni: Hvernig sköp- um við ný atvinnutækifæri í Stykkis- hólmi og nágrenni og styrkjum um leið samfélagið á Snæfellsnesi? Þar verða flutt 13 erindi þar sem fyrir- lesarar kynna af eigin reynslu þátt- töku í atvinnusköpun og vísinda- starfi. Þeir munu gefa góð ráð og kynna hugmyndir til atvinnusköp- unar og hvetja bæjarbúa og bæjar- yfirvöld til að takast á við ný verk- efni.    Breiðafjörðurinn er matar- kista. Um síðustu helgi var haldin ráðstefna í Hólminum um matþör- unga og möguleika nýtingar á þeim á Íslandi. Með aukinni þekkingu á vinnslu efna og matvæla úr þör- ungum skapast mikil verðmæti og atvinna. Stykkishólmur hefur mikla möguleika þar sem auðlindin er við bæjardyrnar. Þátttakendur fengu að bragða á þörungaréttum eins og þörunga- súpu, djúpsteiktum þara og þurrk- uðum þara. Bragð og gæði komu þeim sem smökkuðu á óvart.    Hólmarinn Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hefur undanfarna laugardaga flutt fróðlega fyrirlestra um eldgos og jarðfærði í Eldfjalla- safninu. Þar hefur hann m.a. frætt heimamenn um tilurð ýmissa kenni- leita í nágrenni Stykkishólms eins og hvernig vötnin þrjú, Baulár- vallavatn, Hraunsfjarðarvatn og Sel- vallavatn, urðu til.    Mikið af fugli hefur safnast saman síðustu vikur í höfninni. Þar er mest um æðarfugl og hefur fjöldi þeirra farið upp í 500 einstaklinga. Það gefur eyjabændum vonir um góða dúntekju og vonast þeir til að æðarkollan rati til þeirra með hreið- urgerð. Þá vekur athygli hversu mikið er um toppskarf og hafa þeir sést allt að 150 saman í hóp á þröngu svæði. Við könnun hefur komið í ljós að þeir eru einkum að eltast við lýsu- seiði.    Veitingastaðurinn Narfeyrar- stofa hefur skipt um eigendur. Hjón- in Sæþór Þorbergsson og Steinunn Helgadóttir hafa rekið staðinn í 10 ár og gert hann að eftirsóttum veit- ingastað. Við rekstrinum tekur Guð- brandur Garðarsson matreiðslumað- ur og mun hann halda áfram að veita góða þjónustu sem er orðin aðals- merki staðarins. Leita nýrra tækifæra Morgunblaðið/ Gunnlaugur Árnason Eldfjallasafnið Þar var áður samkomuhús bæjarbúa, en nú sækja gestir þangað fróðleik um eldfjöll og eldgos, ekki síst til Haraldar Sigurðssonar. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011 Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknastyrki úr sjóði til minningar um Bjarna Benediktsson lagaprófessor og forsætisráðherra. Veittir verða styrkir til rannsókna á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar annars vegar og hag- og stjórnmálasögu 20. aldar hins vegar. Úthlutun miðast við faglegt mat á gæðum rannsóknaverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu til að sinna verkefninu. Sjóðurinn er í vörslu Rannís. Reglur og umsóknareyðublöð er að finna á www.rannis.is. Rannsóknastyrkir Umsóknarfrestur er til 15. mars 2011 Bjarna Benediktssonar H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s. Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna hinn 8. mars nk. verður boðað til hádegisfundar á Akureyri þar sem rætt verður um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, launajafn- rétti og aðgerðir sem geta stuðlað að jafnrétti kynjanna. Fundurinn fer fram á Hótel KEA og stendur frá kl. 12-13.30. Að fundinum standa Jafnréttisstofa, ASÍ, KÍ, BHM, BSRB og Akureyrarbær. Á fundinum verða flutt þrjú er- indi. Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu fjallar um launamun kynjanna en í ár eru 50 ár frá setningu laga um launajöfnuð kvenna og karla. Þá mun Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar, kynna að- gerðir Akureyrarbæjar til að af- nema kynbundið launamisrétti og hvernig nýtt verklag getur tryggt góðan árangur og Katrín Anna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í fjármálaráðuneytinu, flytur erindi um kynjaða hagstjórn og fjárlaga- gerð á tímum niðurskurðar. Er þetta allt að koma? – Fundur um launa- jafnrétti, niðurskurð og kynjaða hagstjórn Morgunblaðið/Kristján Fundur Rætt verður um stöðu karla og kvenna á hádegisfundi á Hótel KEA. Á morgun, sunnudag, verður æskulýðsdagur þjóðkirkj- unnar haldinn. Yfirskrift dagsins í ár er „Samferða“ en þá verður sjónum beint að samfélaginu og samfélags- legri ábyrgð fólks. Margvísleg dagskrá verður í boði í kirkjum landsins þar sem börn og ungt fólk verður í aðalhlutverki, enda er barna- og æskulýðsstarf þjóð- kirkjunnar í miklum vexti. Unglingarnir sem taka þátt í æskulýðsstarfinu í kirkjum um allt land verða sýnilegir í helgihaldinu þenn- an dag. Útvarpsmessa sunnudagsins verður æskulýðs- guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11. Unglingar í æskulýðs- starfi kirkjunnar taka virkan þátt í guðsþjónustunni, kynna messuliði, lesa bænir og ritningarlestra og syngja forsöng í sálmum undir stjórn Þorvaldar Halldórssonar sem leiðir tónlistina. Þráinn Har- aldsson æskulýðsfulltrúi prédikar með aðstoð nokkurra unglinga og sr. Ír- is Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari. Börn og unglingar í aðalhlutverki í kirkjum landsins á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar Hjallakirkja. Á morgun, sunnudag kl. 14-16, verður almenningi boðið að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum Þjóðminjasafns Ís- lands. Þessir greiningardagar hafa verið vel sóttir og samkvæmt feng- inni reynslu næst að greina um 50 gripi á þeim tíma. Fólki er því bent á að koma tímanlega. Hlutir þurfa ekki að vera mjög gamlir til að vera áhugaverðir. Ef til eru á heimilinu sérkennileg áhöld eða gripir er tilvalið að mæta með þá í greiningu. Einungis verð- ur reynt að greina muni með tilliti til aldurs, efnis, uppruna o.s.frv. en ekki verður metið verðgildi gripa. Eigendur taka að sjálfsögðu grip- ina með sér aftur að skoðun lokinni. Morgunblaðið/Ómar Greining Mikill áhugi hefur verið hjá fólki að fá gamla gripi greinda hjá fræðingum. Ókeypis forngripa- greining á Þjóð- minjasafni Íslands Fulltrúafundur skógræktarfélaganna var haldinn á laugardag sl. í Mosfellsbæ. Á fundinum kom það m.a. fram að skógrækt- arfélögin hyggist leggja aukna áherslu á ræktun jólatrjáa fyrir íslenskan markað en telji einnig raunhæft að framleiða hér á landi jólatré og greinar fyrir erlendan markað. Lögð verði aukin áhersla á rækt- unar- og þróunarstarf er miðar að aukinni fjölbreytni og framleiðni auk þess sem samstarf við smásöluaðila og markaðsstarf verði eflt. Framboð á inn- lendum jólatrjám muni stóraukast þegar á þessu ári og upp frá því verði ekki þörf fyrir eins mikinn innflutning eins og verið hefur. Með því að velja jólatré sem ræktuð séu hérlendis sparist líka gjaldeyrir. Ætla að flytja út jólatré Mánudaginn 7. mars mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ásamt forstöðumönnum þeirra stofnana sem heyra undir ráðu- neytið, halda tvo opna fundi á Vestfjörðum. Sá fyrri verður í Fé- lagsheimilinu á Patreksfirði og hefst hann kl. 12. Sá síðari verður á Ísafirði í Þróunarsetrinu og hefst kl. 15.30. Á fundunum mun ráðherra kynna skýrsluna Orkuöryggi á Vestfjörðum – áhrif á samkeppn- isstöðu og atvinnuþróun. Í kjölfar- ið frekari kynningar og að því loknu fyrirspurnir og umræður. Orkuöryggi kynnt Í dag, laugardag, kl. 13-17, verður opið hús hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í nýjum heimkynnum stofn- unarinnar við Urriðaholtsstræti 6-8 í Urriðaholti. Boðið verður upp á leiðsögn um húsið. Þar getur al- menningur kynnt sér skordýra- fræði, jarðfræði, steingervinga- fræði, grasafræði, fuglafræði og vistfræði, svo fátt eitt sé nefnt. Þá fær yngsta kynslóðin ýmsan nátt- úrufróðleik við sitt hæfi. Opið hús í dag STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.