Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Tækifærin eru á netinu
Ótrúlegir möguleikar felast í netinu og dæmin sýna að íslensk fyrirtæki eru dugleg að nýta sér þennan
kröftuga markaðs- og nýsköpunarvettvang.
Kastljósinu verðu beint að möguleikum netsins á ráðstefnunni RIMC 2011
og vörusýningunni Netið Expo dagana 11. til 13. mars.
Viðskiptablað Morgunblaðsins gefur af þessu tilefni út sérstakt aukablað þar sem farið verður í saumana
á tækifærunum sem leynast á netinu.
- Hvernig eru íslensk fyrirtæki og frumkvöðlar að nota netið og þróa nýjar vörur?
- Hvar standa markaðssetningarmál á netinu og hvað getur netið þýtt fyrir sölu á íslenskri framleiðslu?
- Hvernig er netið að þróast? Erum við að halda í við örar breytingar og nýta okkur t.d. snjallsímavæðinguna?
- Hvernig er netið að breyta því hvernig við vinnum og hvernig sköpuð eru verðmæti í rekstri?
- Hvað eru afþreyingar- og samskiptafyrirtækin að bralla? Eru íslenskir leikir, samskiptalausnir og afþreyingarvefir að koma sterkir inn?
Þetta og fleira til í veglegu sérblaði fimmtudaginn 10. mars.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Hvönn, sími 569 1134/692-1010, sigridurh@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Fyrri umræðu um þingsályktunartil-
lögu um skipun stjórnlagaráðs lauk á
Alþingi í vikunni og nokkrir stjórn-
arandstöðumenn munu styðja hana.
En hvor endi vegasaltsins vegur loks
þyngra? Báðir stjórnarflokkarnir og
Framsóknarflokkurinn eru klofnir í
málinu. Sjálfstæðisflokkurinn er á
móti, Hreyfingin með. Sumir þing-
menn eru á móti vegna þess að þeir
vilja hlíta undanbragðalaust ákvörð-
un hæstaréttardómara, sem ógiltu
kosninguna til þingsins, aðrir vilja
frekar raunverulegt stjórnlagaþing
en umrætt ráð. Nokkrir, þ. á m.
Helgi Hjörvar, bera fyrir sig báðar
þessar forsendur.
Tillagan fer til meðferðar í alls-
herjarnefnd í næstu viku og seinni
umræða og atkvæðagreiðsla verða
varla fyrr en um miðjan mánuð. Nú
þegar hafa VG-þingmennirnir Ög-
mundur Jónasson innanríkisráð-
herra, Ásmundur Einar Daðason og
Lilja Mósesdóttir lýst andstöðu
sinni. Óvíst er hvort fleiri VG-liðar
segja nei en ljóst þykir að málið sé
kvöl og pína fyrir marga á þeim bæ.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, er ósáttur, hefur
sagt að með tillögunni sé þess freist-
að af hálfu einfalds þingmeirihluta
að löggilda óbeinlínis það sem dóm-
arar Hæstaréttar hafi ógilt.
Heimildarmenn eru ósammála.
Einn segir ríkisstjórnina vilja draga
niðurstöðuna á þingi á langinn í von
um að athygli almennings beinist
sem mest frá mikilvægum málefn-
um, t.d. Icesave-atkvæðagreiðslunni
9. apríl! Annar segir stjórnarliða
vilja útkljá deiluna sem fyrst.
Framsóknarmenn í vafa
„Ég hef það eftir heimildum mín-
um í Framsóknarflokknum að fimm
af þingmönnum flokksins séu nokk-
uð öruggir með að segja nei, þrír
muni líklega segja já og óljóst um
einn,“ segir hann. „Siv Friðleifs-
dóttir hefur þegar lýst yfir
stuðningi sínum og gert er
ráð fyrir að Höskuldur Þór-
hallsson sé sama sinnis.
Guðmundur Steingrímsson
hefur ekki tjáð sig um sína af-
stöðu.“
Samfylkingarmaðurinn Skúli
Helgason var á mælendaskrá í
fyrri umræðunni en lét taka sig af
henni undir lok hennar.
„Mín kenning er sú að ef til vill
séu einhverjir í Samfylkingunnni
auk Helga Hjörvar með efa-
semdir, kannski tveir eða þrír,“
sagði heimildarmaðurinn.
Óljóst er hvort ósáttir
stjórnarliðar muni beinlínis
greiða atkvæði gegn tillög-
unni eða láta duga að styðja á
gula hnappinn, þ.e. sitja hjá.
Ófætt stjórnlagaráð
klýfur flokkana
Nokkrir stjórnarliðar á þingi hafa lýst yfir andstöðu sinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tómleiki Allt var tilbúið í sal stjórnlagaþingsins í Efstaleiti 2 í Reykjavík þar sem fulltrúarnir 25 áttu að starfa.
Guðmundur Hermannsson
og Jón Pétur Jónsson
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins
gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrver-
andi ráðuneytisstjóra fjármálaráðu-
neytisins, hélt áfram í gær þegar
fimm báru vitni fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Ingimundur Friðriksson, fyrrver-
andi seðlabankastjóri, Tryggvi Páls-
son, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Seðlabanka Íslands, Þórður
Örlygsson, fyrrverandi regluvörður
Landsbankans, Gunnar Viðar, fyrr-
verandi forstöðumaður lögfræðiráð-
gjafar bankans, og Sigurjón Þ. Árna-
son, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, gáfu skýrslu fyrir
dómi.
Tryggvi, sem ritaði fundargerðir
samráðshóps stjórnvalda um fjár-
málastöðugleika, greindi frá því í
gær að hann hefði átt dreift eigna-
safn í öllum bönkunum árið 2008.
Hann tók fram að vegna þeirra upp-
lýsinga sem hann bjó yfir sem einn
fulltrúa samráðshópsins hefði hann
ekki getað selt bréfin. Um trúnaðar-
upplýsingar hefði verið að ræða sem
komu fram á fundunum.
Tryggvi sagði ennfremur að hann
hefði reynt að vanda til verka við rit-
un fundargerðanna og að þær hefðu
orðið mun ítarlegri þegar á leið.
Ingimundur sagði jafnframt að
upplýsingarnar hefðu verið trúnað-
armál og dregur hann ekki í efa það
sem fram kemur í fundargerðunum.
Gunnar greindi frá því að afar fáir
innan Landsbankans, eða um fjórir
til fimm menn, hefðu þekkt til sam-
skipta bankans við breska fjármála-
eftirlitið um hugsanlega yfirfærslu
Icesave-reikninganna yfir í dóttur-
félag í Bretlandi. Þetta hefðu verið
taldar miklar trúnaðarupplýsingar
eins og alltaf þegar um væri að ræða
samskipti við fjármálaeftirlit.
Sigurjón sagði að eftir á að hyggja
hefðu bresk stjórnvöld verið að
reyna að knýja fram ríkisábyrgð á
innlánum Landsbankans í Bretlandi.
Þá sagði hann jafnframt ljóst að mál-
ið hefði verið að færast yfir á hið póli-
tíska svið.
Sigurjón staðfesti að bankastjórar
Landsbankans hefðu setið fund þann
13. ágúst 2008 ásamt ráðuneytis-
stjórum viðskipta- og fjármálaráðu-
neytis til að undirbúa fund íslenskra
og breskra ráðamanna, sem átti að
halda í Lundúnum. Baldur sat fund-
inn 13. ágúst og einnig fund sem
Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra, átti með Alistair
Darling, þáverandi fjármálaráð-
herra Bretlands, sem fór fram í
London 2. september 2008.
Baldur er ákærður fyrir innherja-
svik og brot í opinberu starfi með því
að hafa nýtt sér upplýsingar sem al-
mennir fjárfestar bjuggu ekki yfir
þegar hann seldi bréf í Landsbank-
anum í september 2008. Upplýsing-
arnar hafi hann fengið sem ráðu-
neytisstjóri, einkum í tengslum við
setu sína í samráðshópnum.
Sagði upplýs-
ingarnar trún-
aðarmál
Fimm báru vitni í héraðsdómi í gær
Morgunblaðið/Jón Pétur
Nei Baldur Guðlaugsson neitar að
hafa búið yfir innherjaupplýsingum.
Eitt vitni eftir
» Níu eru búnir að bera vitni í
Héraðsdómi Reykjavíkur í máli
ákæruvaldsins gegn Baldri.
» Halldór J. Kristjánsson, fyrr-
verandi bankastjóri Lands-
bankans, mun gefa skýrslu fyr-
ir dómi í þarnæstu viku. Í
framhaldinu hefst málflutn-
ingur.
» Aðalmeðferðinni lýkur að
málflutningi loknum og verður
málið þá dómtekið.
Samkvæmt þingsályktunar-
tillögunni er forseta Alþingis
falið að skipa 25 manna stjórn-
lagaráð sem fái það verkefni að
taka við og fjalla um skýrslu
stjórnlaganefndar og gera til-
lögur um breytingar á stjórn-
arskránni. Verði þeim boðið
sæti í ráðinu sem landskjör-
stjórn úthlutaði sæti í
kosningu til stjórnlaga-
þings í fyrra, ella þeim
sem næstir voru í röðinni.
Ráðið á meðal annars að
fjalla um helstu undirstöður
íslenskrar stjórnskipunar og
helstu grunnhugtök hennar,
skipan löggjafarvalds og
framkvæmdarvalds og vald-
mörk þeirra, hlutverk og
stöðu forseta lýðveldis-
ins, sjálfstæði og hlut-
verk dómstóla.
Einnig á það að ræða
tímasetningu og fyrir-
komulag þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Grundvöllur
undir smásjá
STJÓRNLAGARÁÐIÐ