Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011 Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs og eru eftirtalin atriði lögð til grundvallar: l Að tækin eða búnaðurinn séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda. l Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna eða að tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður eða markáætlun um öndvegissetur og klasa styrkir. l Að tækin eða búnaðurinn séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum. l Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti. l Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum séu raunhæfar. Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við fjárfestinguna. Nánari upplýsingar um sjóðinn, reglur og umsóknir er að finna á www.rannis.is. Tækjasjóður Umsóknarfrestur er til 15. mars 2011 Styrkir til rannsóknastofnana H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s. Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Andrés Skúlason Djúpivogur | Í dag, laugardag, verður haldin fyrsta sýningin undir yfirskriftinni Fashion with Flavor á Íslandi. Um er að ræða við- burð sem kallar fram íslenska náttúru með nýstárlegum hætti, þar sem hráefni tengd- um landbúnaði- og sjávarútvegi verða flétt- uð saman á mjög áhrifaríkan hátt bæði í mat og tísku. Hugmyndafræðingurinn að Fashion with Flavor og skipuleggjandi sýningarinnar er hönnuðurinn Ágústa Arnardóttir sem á og rekur fyrirtækið Arfleifð á Djúpavogi. Ágústa hefur sérhæft sig í hönnun og fram- leiðslu á hágæða fatnaði og fylgihlutum úr fiskiroði, hreindýra- og lambaleðri. Sjá nán- ar á www.arfleifd.is. Fyrsta sýningin verður haldin á Höfn í Hornafirði og í framhaldi verða sýningar í Reykholti, á Húsavík og í Reykjavík. Sýn- ingin fer þannig fram að gestir sitja til borðs og fá sex kjöt- og fiskrétti framreidda á meðan þeir horfa á tískusýningu þar sem notuð eru hráefni úr landbúnaðar- og sjáv- arútvegi í framleiðslu á hágæða tískufatn- aði. Inn í þetta tvinnast skartgripir sem framleiddir eru undir vörumerkinu Sign og falla þeir sérstaklega vel að þema sýningar- innar sem er að njóta íslenskrar náttúru á sem áhrifaríkastan hátt. Undir sýningunni verður leikin tónlist frá Amazing Creature sem er sérstaklega samin að þessu tilefni. Ágústa stefnir á að gera sýningu af þessu tagi að árlegum viðburði og hafa viðbrögðin verið mjög góð, bæði innanlands og utan. Ágústa segir sömuleiðis að þessi viðburður geti markað upphaf að vettvangi til fram- tíðar fyrir íslenska hönnuði, listamenn, mat- reiðslumeistara, ljósmyndara og fleiri aðila, til að koma sér á framfæri og sýna það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða í þessum efnum. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Hátíska Í sandfjöru við Djúpavog. Tindur Arfleifð notar sterka tengingu við náttúruna - Búlandstindur í baksýn. Jafnvægi Hönnunin og hráefnið eru í full- komnu jafnvægi við umhverfið. Náttúra með nýstárlegum hætti Náttúran Tískufatnaður frá Arfleifð í sínu náttúrulega umhverfi í nágrenni Djúpavogs.  Hönnuðurinn Ágústa Arnardóttir stendur að sýningunni Fashion with Flavor  Gestir njóta tískusýningar á meðan þeir gæða sér á mat Bæjarráð Kópavogs telur rök- stuðning Fjármálaeftirlitsins fyrir því að nýtt húsnæði stofnunarinnar verði að vera miðsvæðis í Reykja- vík ómálefnalegan. Bæjarráðið vill fylgja málinu eftir og óskar eftir að Fjármálaeftirlitið fresti á meðan ákvörðun um leigu á húsnæði. Ríkiskaup auglýstu nýverið eftir 2.000 fermetra húsnæði undir starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Í auglýsingunni er það skilyrði sett fyrir húsnæðinu að það sé mið- svæðis í Reykjavík, nánar tiltekið í póstnúmerum 101 til 108. Í nágrenni stjórnsýslustofnana Bæjarráð Kópavogs lýsti furðu sinni á auglýsingunni þar sem tak- markanir á staðsetningu útilokuðu eigendur fasteigna í sveitarfélög- unum á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, frá því að bjóða fram húsnæði. Fól það bæjarlögmanni að kanna lögmæti auglýsingarinn- ar. Bæjarlögmaður óskaði eftir skýringum frá Fjármálaeftirlitinu og barst svar í lok febrúar. Þar segir meðal annars að FME telji nauðsynlegt að stofnunin sé í ná- lægð við helstu stjórnsýslustofn- anir og stærstu eftirlitsskyldu að- ilana. „Af þeim sökum var í auglýsingu um nýtt húsnæði undir starfsemi stofnunarinnar sett það skilyrði að húsnæðið væri staðsett innan þessara tilteknu marka,“ segir meðal annars í rökstuðningi FME. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum í fyrradag og bókaði: „Bæjarráð fellst ekki á rökstuðn- ing Fjármálaeftirlitsins og telur hann ómálefnalegan. Bæjarráð tel- ur brýnt að málinu verði fylgt eftir og óskar eftir tillögu frá bæjar- stjóra að erindi til fjármálaráðu- neytis. Þá óskar bæjarráð eftir því að Fjármálaeftirlitið fresti ákvörð- un um leigu á nýju húsnæði.“ Mótmæla stað- setningu FME  Vilja eiga kost á Fjármálaeftirliti Fjármálaeftirlitið » FME óskar eftir 2.000 fer- metra húsnæði. Hjá stofnun- inni voru tæplega 100 starfs- menn á síðasta ári. » Stofnunin hefur meðal ann- ars eftirlit með viðskiptabönk- um, sparisjóðum, trygginga- félögum, greiðslukortafyrir- tækjum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlunum, verð- bréfasjóðum og lífeyris- sjóðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.