Morgunblaðið - 05.03.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
FRÉTTASKÝRING
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
MC Iceland er orðið fullgildur aðili
að Vítisenglum og þar með er ljóst að
þessi hættulegu glæpasamtök hafa
ekki aðeins náð fótfestu hér á landi
heldur fest rætur. Herða á aðgerðir
gegn Vítisenglum og öðrum glæpa-
samtökum sem hér starfa og til
marks um það samþykkti ríkis-
stjórnin í gær að veita 47 milljónir
aukalega til sérstaks átaks gegn
skipulagðri brotastarfsemi.
Það breytir engu um aðild MC
Iceland að Vítisenglum (Helĺs Ang-
els) að átta félagar MC Iceland hafi
verið stöðvaðir á Gardermoen-flug-
velli við Ósló í gærmorgun og síðan
vísað úr landi þannig að þeir komust
ekki á inntökuathöfn sem fyrirhuguð
var í Noregi um helgina. Til marks
um það þá var skilti með merki Vít-
isengla og MC Iceland sett utan á fé-
lagsheimili klúbbsins í gær og þess
má vænta að félagar í MC Iceland
muni setja merki Vítisengla á jakka
sína.
Gátu tafið en ekki hindrað
Lögregla og tollgæslan hafa árum
saman spyrnt við fótum gegn því að
félagar í MC Iceland og forvera þess,
Fáfni, yrðu fullgildir meðlimir í Vít-
isenglum. Yfirmaður í lögreglunni
sem Morgunblaðið ræddi við í gær
sagði að það hefði þó lengi legið ljóst
fyrir og verið varað við því að MC
Iceland yrði fyrr eða síðar fullgildur
meðlimur. Tekist hefði að tefja fyrir
fullri aðild en nú væri hún orðin að
veruleika.
Greinilegt er af viðtölum við yfir-
menn í lögreglu og tollgæslu í gær að
þeir hafa verulegar áhyggjur af því
að aðildin leiði til aukinna afbrota og
meiri hörku í undirheimum.
Yfirmaður í lögreglunni, einn
þeirra sem hvað best þekkja til starf-
semi Vítisengla, benti á að með því
að MC Iceland væri orðið fullgildur
meðlimur í Vítisenglum gætu þeir
kallað eftir ýmiss konar stuðningi frá
Vítisenglum á heimsvísu. Félagar í
Vítisenglum hefðu t.d. aðgang að
sjóði sem er notaður til að greiða
verjendum. Þá gætu þeir, lentu þeir í
vandræðum, t.d. í átökum við aðra
glæpahópa, kallað á liðsauka frá öðr-
um klúbbum Vítisengla í öðrum
löndum. Í nýju hættumati lögreglu
kemur fram að með fullgildingu MC
Iceland aukist hætta á uppgjöri milli
glæpahópa. Staðfest er að hér starfi
hópur pólskra og litháískra glæpa-
manna sem sé þekktur af hörku og
ofbeldi, auk íslenskra glæpahópa.
Lögregla hefur einnig upplýsingar
um að annar alþjóðlegur glæpahóp-
ur, Outlaws, sé byrjaður að koma sér
fyrir hér á landi. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins lítur lögregla
svo á að hingað til hafi ríkt eins kon-
ar ógnarjafnvægi á milli hópanna en
að með fullgildingu MC Iceland auk-
ist hætta á átökum þeirra á milli. Fé-
lagar í MC Iceland gætu talið að þeir
gætu, sem fullgildir meðlimir í Vít-
isenglum, færst meira í fang og aðrir
hópar gætu litið svo á að þeim stafaði
svo mikil ógn af Vítisenglunum að
þeir yrðu að grípa til aðgerða gegn
þeim.
Skipulögð og markviss afbrot
Yfirmaður í lögreglunni sem rætt
var við taldi þó ekki víst að starfsemi
MC Iceland myndi breytast strax.
Það væru ekki endilega félagar í Vít-
isenglum sem fremdu afbrot heldur
ekki síður ýmiss konar áhangendur
sem sæju um afbrotin fyrir þá, undir
þeirra stjórn. „Við höfum enga
ástæðu til að ætla að það verði eitt-
hvað öðruvísi hér. Þessum samtök-
um fylgja glæpir,“ sagði hann.
Bæði Sigríður Björk Guðjónsdótt-
ir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, vonast eftir
því að auknar rannsóknarheimildir
lögreglu leiði til þess að baráttan
gegn skipulagðri glæpastarfsemi
verði einfaldari og skilvirkari.
Sigríður Björk segir að baráttan
standi gegn ýmsum skipulögðum
glæpasamtökum sem hér starfa,
þ. á m. þjófagengjum, svokölluðum
vélhjólaklúbbum og eiturlyfjasmygl-
urum. „Þessi vinna krefst öðruvísi
aðferða og meiri mannafla. Rann-
sóknin er flóknari enda eru afbrotin
skipulögð og markviss. Það eru
mörg gengi innan hvers hóps. Eitt
sér um að selja þýfi, eitt sér um
rukkun, eitt sér um að smygla fíkni-
efnum og svo framvegis. En það get-
ur verið erfitt að sýna fram á tengsl
milli gengjanna. Það fer mjög í taug-
arnar á mér að við í lögreglu og toll-
gæslu á Suðurnesjum skulum sífellt
taka burðardýr fíkniefna en svo
gengur misjafnlega að hafa uppi á
þeim sem bera raunverulega ábyrgð
á innflutningnum,“ segir hún.
Geti rannsakað hópa
Halla Gunnarsdóttir, aðstoðar-
maður Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra, segir að ráðuneytið
vinni nú að frumvarpi sem muni
rýmka heimildir lögreglu til að rann-
saka skipulagða glæpastarfsemi.
„Það þarf að lækka þröskuldinn til
að beita þeim úrræðum sem þegar
eru fyrir hendi gegn skipulögðum
glæpahópum,“ segir hún. Ekki sé
verið ræða um ný þvingunarúrræði,
til viðbótar við t.d. símhleranir og
húsleitir, og eftir sem áður þurfi að
fá samþykki dómara fyrir þeim. Lög-
regla muni ekki geta rannsakað
hvern sem er, heldur verði að hafa
sterkan grun og vísbendingar um
brotastarfsemi.
Hún nefnir sem dæmi að nú sé erf-
itt fyrir lögreglu að rannsaka starf-
semi glæpahópa. Það geti verið snúið
að fá t.d. úrskurð til símhlerana
vegna gruns eða upplýsinga um að
hópurinn stundi skipulagða brota-
starfsemi, ef grunurinn beinist ekki
að tilteknu afbroti hjá tilteknum ein-
staklingi.
Halla býst við að frumvarpsdrög
liggi fyrir mjög fljótlega.
Íslenskum Vítisenglum fylgja afbrot
Morgunblaðið/Sverrir
Vísað frá Tekið var upp tímabundið landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli fyrir tveimur árum, þegar von var á
hópi norrænna Vítisengla í veislu vegna vígslu nýs félagsheimilis Fáfnis. Fjórtán mönnum var snúið til baka.
MC Iceland fullgildur aðili að Vítisenglum Stjórnvöld herða sókn gegn skipulagðri brotastarfsemi
Alls staðar hafa aukin afbrot fylgt í kjölfar þess að klúbbur fær fulla aðild að glæpasamtökunum
Lögregla á Íslandi hefur hand-
tekið menn frá Austur-Evrópu
sem bera húðflúr sem vitna um
tengsl þeirra við austurevrópsk
glæpasamtök. Félagar í rúss-
neskum mafíum og glæpahópum í
ríkjum A-Evrópu auðkenna sig oft
með húðflúri. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins hafa
nokkrir austurevrópskir glæpa-
menn, sem hafa tengsl og starfa
með skipulögðum glæpahópum í
heimalöndum sínum, sest hér að.
Lögreglumaður sem rætt var við
sagði að þessir menn hefðu kom-
ið sér vel fyrir hér á landi, ækju
um á fínum bílum og byggju vel,
en væru samt sem áður skráðir
atvinnulausir. Þeir væru með
menn í vinnu fyrir sig, yfirleitt
landa sína, sem þeir gerðu út til
innbrota, fíkniefnasmygls og
fleira.
Þá hefur Morgunblaðið fengið
staðfest að hópur glæpamanna
frá Póllandi og Litháen starfi
saman, m.a. við að framleiða am-
fetamín. Þetta séu harðsvíraðir
menn, hiki ekki við ofbeldisverk,
og að aðrir glæpamenn á Íslandi
óttist þá.
Menn af þessu tagi eru aug-
ljóslega mikil ógnun við íslenska
lögreglumenn.
Lögreglumaður sem rætt var
við benti á að skemmst væri að
minnast grófrar árásar sem óein-
kennisklæddir fíkniefnalögreglu-
menn urðu fyrir á Laugavegi í jan-
úar 2008 en lögreglumenn áttu
fullt í fangi með að verjast árás-
inni. Lögreglumennirnir bentu á
að þeir hefðu bæði verið með
lögregluskilti og hrópað að hér
væri lögregla að störfum en árás-
armennirnir, þeir þrír sem voru
ákærðir, sögðust ekkert kannast
við það.
Húðflúr vitna um tengsl
ÁHYGGJUR AF GLÆPAMÖNNUM FRÁ AUSTUR-EVRÓPU
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Styrkir fyrir
námsmenn
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
N
B
IH
F
.(
L
A
N
D
S
B
A
N
K
IN
N
)
,K
T
.4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Sæktu um námsstyrk Námunnar á landsbankinn.is.
Umsóknarfrestur er til 18. mars.
Námufélagar eiga nú kost á veglegum
námsstyrkjum á framhalds- og háskólastigi
fyrir skólaárið 2011-2012. Styrkjum hefur
verið fjölgað og styrkupphæðir hækkaðar.
Veittir verða styrkir í fjórum flokkum
4 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms, 200.000 kr.
4 styrkir til háskólanáms (BA/BS/BEd), 350.000 kr.
4 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi, 400.000 kr.
4 styrkir til listnáms, 400.000 kr.