Morgunblaðið - 05.03.2011, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
®
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að
draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga
úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum
innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp - ert með
hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með
barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
Gegn krabbameini í körlum
Í mars renna 100 kr. af hverjum seldum pakka af Nicotinell
beint til átaksins Mottumars
100 KRÓNUR
Skólahreysti MS í ár fer af stað með
látum, en keppni hófst í vikunni.
Strax á fyrstu dögum keppninnar
féllu tvö Íslandsmet.
Valgarð Reynaldsson úr Linda-
skóla setti Íslandsmet Skólahreysti
í dýfum þegar hann tók 83 slíkar í
keppninni síðastliðinn fimmtudag.
Fyrra met átti hann reyndar sjálfur
og það hljóðaði upp á 81 dýfu og
var slegið í keppninni í fyrra.
Lið Myllubakkaskóla og Lækjar-
skóla virðast einnig hafa unnið
heimavinnuna sína því keppendur
úr þeim skólum settu báðir Íslands-
met í armbeygjum.
Gamla metið var 95 armbeygjur
sem María Ása Ásþórsdóttir úr
Heiðarskóla í Reykjanesbæ átti.
Fyrst var það Jóhanna Júlía Júl-
íusdóttir úr Myllubakkaskóla sem
tók 98 armbeygjur síðastliðinn
fimmtudag og átti hún því nýtt Ís-
landsmet í nokkrar mínútur eða allt
þar til Dóra Sóldís Ásmundardóttir
úr Lækjarskóla mætti til leiks og
tók 100 armbeygjur.
birta@mbl.is
Tvö ný Íslandsmet sett
í Skólahreysti í vikunni
Sterk Dóra tók 100 armbeygjur og sló þar með Íslandsmet Skólahreystis.
Verið er að
leggja lokahönd
á prentun
skýrslu stjórn-
laganefndar sem
safnaði gögnum
sem nýtast áttu
stjórnlagaþingi
við að gera til-
lögur um breyt-
ingar á stjórnar-
skránni. Afhenda
átti þinginu skýrsluna en þar sem
ekkert verður af sjálfu þinginu lét
formaður nefndarinnar, Guðrún
Pétursdóttir, forseta Alþingis, Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur, hana í
té. Hún hyggst ekki láta birta
skýrsluna að sinni.
„Ég hef látið þetta eiga sig með-
an mál varðandi vinnuna fram-
undan hafa ekki skýrst,“ segir
Ragnheiður Ásta. „En ég geri ráð
fyrir að þessi vinna nýtist.“
kjon@mbl.is
Beðið með að birta
skýrslu stjórnlaga-
nefndarinnar
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
„Ræktum okkar land“ eru einkunn-
arorð setningarathafnar búnaðar-
þings sem hefst á morgun. Har-
aldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, flytur setn-
ingarræðu og Jón Bjarnason sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
ávarpar samkomuna.
Setningarathöfnin verður í
Súlnasal Hótels Sögu og hefst kl.
13.30. Að lokinni hátíðardagskrá
funda búnaðarþingsfulltrúar og
skipað verður í starfsnefndir. Þing-
störf hefjast á mánudagsmorgni.
Fjöldi mála liggur fyrir þinginu
sem stendur fram á miðvikudag.
Dagskrá við setn-
ingu búnaðarþings
Morgunblaðið/Ómar
Búnaðarþing Haraldur Benediktsson flyt-
ur setningarræðu á Búnaðarþingi.
Hagkaup ákváðu í gær í samráði við
matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur að innkalla tvær teg-
undir af pitsum sem merktar eru
búðinni. Var það gert vegna þess að
í innihaldslýsingu þeirra kom ekki
fram að þær innihéldu glúten.
Pitsurnar sem um ræðir eru 16
tommu Hagkaupspitsa með peppe-
róní annars vegar og með skinku
hins vegar sem Hollt og gott fram-
leiðir fyrir Hagkaup.
Að því er kemur fram í tilkynn-
ingu frá matvælaeftirlitinu kemur
ekki fram í innihaldslýsingu á um-
búðum pitsnanna að þær innihalda
afurðir úr korni sem inniheldur glú-
ten. Korn sem inniheldur glúten og
afurðir úr því eru á lista yfir ofnæm-
is- og óþolsvalda en samkvæmt mat-
vælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og
óþolsvaldar að vera skýrt merktir í
merkingum matvæla.
Er þó tekið sérstaklega fram að
pitsurnar séu skaðlausar fyrir þá
sem ekki séu viðkvæmir fyrir glú-
teni.
Hafa Hagkaup fengið frest til 7.
mars til þess að endurmerkja um-
búðirnar.
Í tilkynningu frá Hagkaupum
kemur fram að merkingar varanna
hafi þegar verið endurbættar í versl-
unum Hagkaupa. Þeir neytendur
sem kunni að eiga vörurnar til, í
kæli eða frysti, og hafa ofnæmi eða
óþol fyrir hveiti (glúteni) eru beðnir
um að skila þeim í næstu verslun
Hagkaupa gegn fullri endur-
greiðslu.
Pitsur innkallaðar
hjá Hagkaupum